Morgunblaðið - 03.12.1981, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 03.12.1981, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1981 HM unglinga í handknattleik: Fyrsti leikurinn á morgun gegn gestgjöfunum Portúgal • Páll Olafsson er leikreynda-sti leikmaður íslenska landsliðsins sem skipað er leikmönnum 21 árs og yngri. Hér sést hann skora eitt af raörkum sínum í landsleiknum gegn Noregi á sunnudaginn. Gamla kempan Trevino enn til alls líkleg - Island á heiður aö verja - síðustu HM-keppni unglinga ÍSLENSKA landsliðið skipað leikmönnum 21 árs og yngri, hélt í gærraorgun áleiðis til Portúgals, þar sem það tekur þátt í lokakeppni HM í handknattleik. Síðast er Island keppti á móti þessu, í Danmörku fyrir 2 árum, hafnaði liðið í 7. sæti og þurfti því ekki að leika um sæti sitt í lokakeppninni. 8 efstu lið hverju sinni eru sjálfkjörin í næstu keppni. ísland á því heiður að verja að þessu sinni, liðið hafnaði sem fyrr segir í 7. sætinu í Danmörku og stóð sig stórkostlega vel. Meðal þeirra sem íslenska liðið sigraði voru lið Vestur og AusturÞýska- lands. GOLFKAPPINN kunni, Lee Trev- ino, sigraði í fyrsta opna ('asio-mót- inu í golfi, sem haldið var í Japan um helgina og fram á mánudag. Ilinn 41 árs gamli Trevino vann þarna sína aðra meiri háttar keppni á þessu keppnistímabili. Trevino, sem vann þarna í fyrsta skipti golfkeppni á jap- anskri grund, lék síðustu 18 hol- urnar á 69 höggum, eða 3 undir pari. Samtals lék kappinn því hol- urnar 72 á 275 höggum, eða 9 und- ir pari. Japanski kylfingurinn kunni, Isao Aoki, hafði forystu eftir fyrstu umferðina og var jafn Trevino að annari umferðinni lok- inni, varð síðan að gera sér annað sætið að góðu, en hann lék samtals á 279 höggum. Þriðji, á 280 höggum var Japan- inn Maomichi Ozaki og jafnir í 4—5 sætunum voru Bandaríkja- maðurinn Ron Hinkle og Tateo Ozaki á 283 höggum hvor. En róðurinn verður þungur, ís- land er að þessu sinni í riðli með Rússum, Hollendingum og Portú- gölum. Þessar fjórar þjóðir skipa C-riðil. í A-riðli eru Júgóslavía, Austur-Þýskaland, Sviss og Jap- an, í B-riðli Danmörk, Tékkoslóv- akía, Spánn og Nígería og í D-riðli Svíþjóð, Frakkland, Vestur- Þýskaland og Ítalía. Tvö efstu lið úr hverjum riðli komast í framhaldskeppni og er þá léikið í tveimur riðlum. Liðin úr A- og B-riðli leika innbyrðis og liðin úr C- og D-riðli sín á milli. Færi svo, að Island og Sovétríkin kæmust áfram úr C-riðli ‘ myndu úrslit í leik liðanna í fyrri riðla- keppninni gilda og því yrði að standa sig þeim mun betur gegn áá KR ÞAÐ stefnan í framtíðinni að byggja landsliðið upp í kringum atvinnu- mennina eða mynda kjarnann hér heima? Guðni svaraði fyrst: „Ég held að það verði aldrei hægt að byggja landsliðið upp á atvinnumönnunum. Þeir eru samningsbundnir sínum félagsliðum og mjög oft kemur fyrir að þeir eiga leik með sínum félagsliðum og þá geta þeir ekki mætt í landsleiki. Kjarnann af landsliðinu verður að byggja upp hér innanlands en síðan á að bæta inn í hópinn atvinnumönnum til að styrkja liðið. Helgi sagði: „Það er draumur okkar hér hjá landsliðsnefnd að við gætum valið 22ja manna landsliðshóp hér innanlands um t.d. áramót. í þennan hóp væru valdir ungir og efnilegir leikmenn og reyndir, strax yrði farið að gera eitthvað fyrir þennan hóp. Stefnt yrði að því að við gætum farið út með þennan hóp í keppnisferð og æft erlendis. Þegar síðan líða tekur að „alvöru“landsleikjum myndum við grisja úr hópnum og bæta kannski nokkrum atvinnumönnum við til að styrkja liðið. Þeir leikmenn sem detta myndu þá út hafa þá fengið dýrmæta reynslu sem þeir geta síðan nýtt sér síðar í baráttunni um að komast í hópinn“. Fleiri komu að sjá landslidið U-21 „Við getum aldrei byggt algjör- lega upp á atvinnumönnunum heldur verður kjarninn að vera leikmenn sem spila hér heima. Það er rétt að margir hafa gagn- rýnt það að lítið vit sé í því að kalla leikmenn heim sem komi kannski daginn áður en leikurinn fer fram og spili síðan langt undir getu. En það er eitt sem verður að athuga að aðgangseyrir að lands- leikjum er eina stóra tekjulind KSI en alls ekki örugg tekjulind. Við spiluðum gegn Rússum hér heima með aðeins einn atvinnu- mann, Örn Óskarsson. Við spiluð- um mjög vel og Rússarnir rétt náðu að vinna okkur 2—1. Á þenn- an leik mættu u.þ.b. 4000 áhorf- endur. Nokkru áður spilaði lands- liðið U-21 hér heima og þar spil- uðu bæði Arnór Guðjohnsen og Pétur Pétursson með. Á þennan leik mættu yfir 6000 áhorfendur! Eg er ekki með þessu að segja að það eigi að velja atvinnumennina af því að þeir trekkja að áhorfend- ur en bara benda á það að það er svo margt sem spilar inní þetta val. „Mistúlkun“ Nú gagnrýndi Janus Guðlaugs- son störf landsliðsnefndar í viðtali við Morgunblaðið og sagði að mik- ill doði og ládeyða hefði verið í störfum nefndarinnar. Hverju viljið þið svara þessari gagnrýni? „Á þessu stigi málsins vil ég ekki tjá mig um þetta mál. Ég hef ekki séð neinar rökstuddar fullyrð- ingar á þessum ásökunum Janusar neins staðar og hef því ekki að- stöðu til að svara þeirn," sagði Helgi Daníelsson. „En ég skal vera fyrsti maðurinn til að viðurkenna að alltaf er hægt að gera betur í störfum landsliðsnefndar oggagn- rýni er nauðsynleg en verður líka að vera rökstudd." „Ég hef raett töluvert við Janus Guðlaugsson um þessi mál og ég held að þetta sé dálítil mistúlkun á skoðunum Janusar í þessu máli,“ sagði Guðni Kjartansson. „Ég held að Janus sé með þess- ari skoðun sinni að gagnrýna skipulag KSÍ almennt en ekki bara landsliðsnefnd." Er skipulag KSÍ staðnað? Guðni hélt áfram: „Ég veit að forystumenn KSI eru allir af vilja gerðir að inna sitt hlutverk vel af hendi en ég er hræddur um að stjórnkerfi KSI sé orðið staðnað. Landsliðið hefur verið á mikilli uppleið á síðustu 6—8 árum en ýmis skipulagsatriði í kringum það hafa ekki batnað. Þeir leik- menn sem spila hér heima eru vanir þessu og eru ekki að gera veður út af því en þeir leikmenn sem fara og gerast atvinnumenn kynnast allt annarri og betri skipulagningu. Þeir venjast á að hlutirnir séu gerðir fullkomlega og að þeir og þjálfarinn þurfi ekki að hafa áhyggjur af því að komast ekki inn í búningsklefa, fá ekki völl eða að komast ekki í sturtu eftir æfingu. Þetta veldur óánægju hjá mönnum eins og t.d. Janusi. Það er öruggt að ekkert landslið í svipuðum klassa og við, myndi láta sér nægja svipaðar að- stæður og við þurftum að sætta okkur við síðasta haust. „Vid getum og eigum að gera kröfur til landsliðsins“ Hver er framtíð íslenska lands- liðsins og getur það staðið undir þeim miklu kröfum sem nú eru gerðar til þess eftir þennan góða árangur? Guðni sagði: „Við getum og eig- um að gera kröfur til landsliðs okkar því að íslenska landsliðið hefur sýnt það og sannað að það er fullkomlega frambærilegt á al- þjóðlegum vettvangi. En það verð- ur að skapa landsliðinu aðstöðu og tíma hér heima til að það geti staðið undir þessum kröfum. Mér finnst það alltof ríkjandi hjá for- ráðamönnum margra félaga hér, að þeir líta á landsliðið sem ein- hvern fjarskyldan hlut sem komi þeim ekkert við, sérstaklega ef viðkomandi félag á ekki leikmann í tandsliðinu. Það kom fyrir í haust að við leituðum eftir æf- ingaaðstöðu hjá nokkrum félögum en okkur var tjáð að búið væri að loka völlunum. Þegar við keyrðum þar fram hjá nokkru síðar voru æfingar á völlunum. Landsliðið er auðvitað ekkert annað en sameig- keppinautunum úr D-riðli til þess að komast í undanúrslitin. Fyrsti leikur íslenska liðsins er á dagskrá 4. desember, eða á morgun og verður þá leikið við gestgjafana Portúgali. Verður það erfiður leikur þar sem mótherj- arnir leika á heimavelli, en þó ætti að vinnast sigur. Næsti leikur ís- lands er síðan 5. desember og mætir liðið þá Hollandi. 6. des- ember verður mótherjinn svo rússneski björninn. Leikirnir í síð- ari riðlakeppninni fara fram dag- ana 8. til 10. desember og leikir varö í 7. sæti í um sæti dagana 12. og 13. desem- ber. Efstu liðin í hvorum riðli í síðari riðlakeppninni leika til úr- slita, þau sem urðu í 2. sæti um 3.-4. sætin og þannig koll af kolli. Islenska liðið er skipað eftir- töldum leikmönnum: Markverðir eru Sverrir Kristinsson FH, Gísli Felix Bjarnason KR og Sigmar Þröstur Óskarsson Þór Vest- mannaeyjum, aðrir leikmenn eru Þorgils Óttar Mathiesen FH, Brynjar Harðarson Val, Valgarð- ur Valgarðsson FH, Guðmundur Guðmundsson Víkingi, Gunnar Gunnarsson Þrótti, Gunnar Gísla- son KR, Dagur Jónasson Fram, Brynjar Stefánsson ÍR, Páll Ólafsson Þrótti, Ragnar Her- mannsson KR, Kristján Arason FH, Erlendur Davíðsson Þór Vest- mannaeyjum og loks Heimir Karlsson Víkingi. Leikreyndastur er Páll Ólafs- son, sem leikið hefur 1 drengja- landsleik, 9 unglingalandsleiki og 16 A-landsleiki. Þjálfari liðsins er Hilmar Björnsson. ~ gg- „Hræddur um að stjórnkerfi KSÍ sé orðið staðnað - segir Guðni Kjartansson landsliðsþjálfari Janus Guðlaugsson, sem hér á í höggi við Dieter Höness inlegt lið allra félaganna hér á landi en með svona „smákónga"- hugsunarhætti náum við aldrei langt með þetta lið.“ Ellert gefur kost á sér Við snerum okkur nú til Ellerts B. Schram formanns KSI og spurðum hann fyrst hvort hann ætlaði að gefa kost á sér áfram í formannsembættið? „Ég veit að ég hef verið nokkuð lengi í þessu embætti (síðan 1973) og eftir svona langan tíma getur verið gott að fá nýtt blóð í hreyf- inguna en eftir langa umhugsun hef ég ákveðið að gefa kost á mér áfram í eitt ár ef hreyfingin vill njóta krafta minna i þann tíma. Ég tel að ég geti gert gagn í eitt ár í viðbót og vegna þess gef ég kost á mér áfram." Nú hefur þú gagnrýnt, í viðtali við íþróttablaðið, leikmenn fyrir að hafa ekki nægjanlegan metnað í sér til að leika með íslenska landsliðinu. Á hverju byggir þú þessa gagnrýni? „Jú, J)að er rétt að ég hafi sagt þetta. Áður fyrr var það æðsta markmið hvers leik- manns að spila landsleik en nú er það algengt að menn taki eigin fé- lagslið fram yfir landsliðið. Að vísu hafa allar aðstæður breyst. Við spilum nú miklu fleiri landsleiki en áður tíðkaðist þann- ig að hver landsleikur er ekki sami áfangi á ferli knattspyrnumanns eins og hann var. Ahuginn skiptir öllu Nú er gífurlegt álag á leik- mönnum 1. deildar meðan á keppnistímabilinu stendur. Held- ur þú að þetta geti gengið svona lengi? „Svo lengi sem menn hafa áhuga getur þetta gengið. En þetta er að breytast hjá flestum félögum þannig að leikmenn fái eitthvað greitt ef þeir verða fyrir beinu vinnutapi eða þá að félögin greiði einhverskonar bónus ef vel gengur. Þetta er líklegast framtíð- in en það verður líklegast aldrei hægt að bæta leikmönnum upp að fullu þann tíma sem þeir eyða í knattspyrnuna. Það gerir fólks- fæðin og smæð landsins." Ellert, hver er framtíðin? „Ég vona að íslenska landsliðið geti haldið áfram að vinna glæsi- lega sigra, bæði hér heima og úti, íslensku þjóðinni til sóma. En því miður finnst mér vanta skilning hjá opinberum aðilum á auglýs- ingagildi landsleikja í öllum íþróttum. Besta landkynning sem ísland fær er þegar íþróttamenn okkar standa sig vel í keppni er- lendis. Knattspyrnulandsleikir fara að vísu fram í nafni KSÍ en eru í þágu allrar íþróttahreyf- ingarinnar og raunverulega allrar þjóðarinnar. I framtíðinni verður einhvern veginn að tryggja fjárhag KSÍ betur. Okkar eina stóra tekjulind er aðgangseyrir að landsleikjum en það er mjög óörugg tekjulind því að oftast mæta fáir á völlinn og þá verðum við að bera tapið. Það kostar líka drjúgan skilding að fara til Moskvu og Istanbúl að keppa, þannig að þetta eru stöðug hlaup hjá okkur að reyna að ná endum saman. En það þýðir ekki að gefast upp og ég er bjartsýnn á framtíðina."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.