Morgunblaðið - 03.12.1981, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 03.12.1981, Qupperneq 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR’3 ' DESEMBER 1981 Minning: Theodór Lilliendahl fv. skrifstofustjóri Fæddur 27. febrúar 1901 Dáinn 25. nóvember 1981 I dag er kvaddur hinstu kveðju vinur minn Theodór Lilliendahl fv. skrifstofustjóri. Hann andaðist á sjúkraheimilinu í Hafnarbúðum 25. nóvember sl., rösklega áttræð- ur að aldri. Theodór var fæddur á Vopna- firði 27. febrúar 1901. Foreldrar hans voru Carl Lilliendahl bókari hjá Örum og Wulff, og Ágústa Jónasdóttir frá Kjarna í Eyjafirði. Þeim hjónum varð 4 barna auð- ið: Dóttirin Laufey giftist Einari Pálssyni, fv. bankastjóra Lands- bankans á Selfossi. Jónas fulltrúi bæjarsímstjóra, hann var kvænt- ur Margréti Jónsdóttur frá Akur- eyri. Jónas andaðist 1975. Alfreð símritari á Siglufirði var kvæntur Ingunni Steingrímsdóttur frá Isa- firði. Alfreð andaðist 1969. Carli J. Lilliendahl kynntist ég er ég starfaði sem símritari á Siglufirði 1939. Hann dvaldi þá hjá syni sínum Alfreð. Carl var sannkallaður heiðursmaður, fág- aður í allri framkomu og sérstakt snyrtimenni í klæðaburði. Hann var málamaður ágætur, og var oft leitað til hans á Vopnafirði og síð- ar á Akureyri, ef túlka þurfti er- lent mál og þá einkum frönsku. Rithönd hafði hann fagra svo að orð fór af. Synirnir þrír, sem allir störfuðu við símritun, tóku að erfðum góða rithönd föðurins. Var til þess tekið hve leiknir þeir voru á skrift „morse-lykilsins", sem og pennans. Theodór fluttist barn að aldri með fjölskyldunni til Akureyrar er faðir hans Carl tók við bókara- starfi hjá verslun Ottós Thuliníus- ar. Ungur að árum hóf Theodór sendilsstarf við símstöðina á Ak- ureyri. Þar nam hann jafnframt símritun. Theodór var settur sím- ritari á Siglufirði vorið 1917. í september sama ár var hann skip- aður símritari á Akureyri, aðeins 16 ára að aldri. Það sýnir hve mik- ið traust yfirboðarar Theodórs báru til hans. Theodór hafði mikið yndi af hljómlist. Á yngri árum lék hann í hljómsveit á Akureyri, sem vinur Fæddur 14. desember 1923 Dáinn 25. nóvember 1981 Miðvikudaginn 25. nóvember lést góður vinur, Hahs Víum Vilhjálmsson, eftir langvarandi veikindi. Fyrir tæpum 8 árum var ég svo lánsöm að kynnast Hansa, eins og hann var ávallt kallaður, og konu hans Eygló þegar þau hjónin tóku dóttur mína í daggæslu. Hansi var einstakur maður, alltaf hress og kátur og gerði lítið úr veikindum sínum, sem þó voru veruleg og höfðu staðið lengi. Öll börn hændust að Hansa, hann var handlaginn, allt lék í höndunum á honum, alltaf var hann að dytta að heimili sínu, enda var sérstaklega hlýlegt og notalegt að koma á heimili þeirra hjóna. Þar voru allir velkomnir og tóku þau öllum opnum örmum. Hugsunin um aðra ávallt í fyrir- rúmi. Hansi átti mjög góða konu sem stóð við hliðina á honum í einu og öllu, ríkti ávallt samstaða og ein- hugur á milli þeirra hjóna öðrum til eftirbreytni. Hansi og Eygló reyndust mér og minni fjölskyldu einstaklega vel og voru börnum mínum sem for- eldrar. hans, Karl Ó. Runólfsson tónskáld stjórnaði. Þá lék Theodór á klarin- ett. Seinna hneigðist hugur hans að cellóhljóðfærinu og naut hann þess í tómstundum að leika fagra tónlist og gleðja samferðamenn sína með cellóleik. Þegar talsamband frá íslandi við útlönd á stuttbylgju var tekið í notkun 1935, hafði verið reist sendistöð á Vatnsenda og mót- tökustöð í Gufunesi. Theodóri var falið að gegna stöðvarstjórastarf- inu í Gufunesi. Fluttist hann því frá Akureyri og tók til starfa í Gufunesi í nóv. 1934. Því starfi gegndi hann til 1940. Þá var stuttbylgjusambandinu við um- heiminn lokað vegna styrjaldar- innar. Theodór tók þá við starfi varðstjóra á ritsímasambandi við Ameríku. Árið 1965 var Theodór skipaður skrifstofustjóri á skrif- stofu ritsímastjóra. Því embætti gegndi hann þar til hann lét af störfum vegna aldurs. Theodór var eftirsóttur starfs- maður, leikinn símritari, sem naut trausts yfirmanna og samstarfs- manna sinna. Hann vann mikið að félagsmálum símamanna, var formaður Félags ísl. símamanna 1939—40. Hann var einn af stofn- endum Byggingarsamvinnufélags símamanna 1946. Kosinn í stjórn 1950 og ritari félagsins í 20 ár. Theodór var ósérhlífinn og fús að leggja á sig mikla vinnu til að stuðla að framgangi hagsmuna- mála símamanna. Samstarfsmenn Theodórs á ritsímanum svo og aðrir símamenn, sem unnu með honum á löngum og farsælum starfsferli, færa honum þakkir fyrir góða samvinnu og trausta vináttu. Árið 1932, þann 18. júní, kvænt- ist Theodór Huldu Káradóttur frá Hallbjarnarstöðum á Tjörnesi. Theodór taldi það sitt mesta gæfu- spor, er hann steig á lífsleiðinni. Hulda er mikilhæf kona, sem Theodór mat mikils og virti. Var einkar kært með þeim hjónum. Hulda stóð trú og traust við hlið manns síns í blíðu og stríðu til hinstu stundar. Þeim hjónum varð þriggja barna auðið, þau eru: Karl Ég vil þakka Hansa fyrir allt sem hann hefur gert fyrir mig og mína, það verður aldrei fullþakk- að. Sú góða minning sem við eigum um hann mun alltaf lifa í brjóst- um okkar. Ég veit að Guð varð- veitir hann um alla eilífð. Elsku Eygló mín, Villi, Davíð og Jóhanna, ykkur vottum við okkar dýpstu samúð. Guð veri með ykkur og styrki. E.Ó. Fósturmóðir mín, Rebekka Ingvarsdóttir, Merkurgötu 7, Hafnarfirði, er látin. Hún er komin á leiðarenda og hefur nú fengið svar við lífsgát- unni miklu. Leiðin um veginn er misjafnlega löng, sumum reynist hún grýtt en öðrum greiðfær. Ein- staka eru rétt lagðir af stað þegar kallið kemur, en aðrir eru á göng- unni frá sólarupprás til sólarlags. Svo var um mömmu, hennar ganga stóð í 80 ár. Hún og fóstri minn, Jón Andr- ésson, sem látinn er fyrir 7 árum, áttu samleið í rúma hálfa öld, og eignuðust þau þrjú börn, Ingu Halldóru, Vilhjálm og Andrés. Þá var kreppan mikla óg erfiðleikarn- ir blöstu hvarvetna við svo óþarft reyndist að búa þá til. Pabbi kunni tökin á vélinni, sem knúði fleyið hans um soliinn sæ og þangað var björgin sótt, þar réði hann. Mamma breytti björginni í fæði og skæði enda var heimilið hennar vettvangur og þar réði hún ríkjum. Hvort um sig þekkti og virti hæfni hins. Hann var hraustmenni, hún skörungur. Mörgum smælingjanum hyglaði hún á leið sinni um veginn, því sumir troðast undir og aðrir drag- ast aftur úr eins og gengur. Kannski urðu matarbitarnir í soltna maga ekki þyngstir á met- unum en hitt fær hún sín laun fyrir, hversu oft hún huggaði hrellda sál og kveikti nýja von í brjósti hinna smáu og vanmetnu sem á vegi hennar urðu. Að geta gefið frá sér gleði, birtu og von hlýtur að komast næst hinu æðsta. Enn aðra tók hún sér hreinlega við hönd og studdi, hlúði og verndaði þar til fleygir urðu. Er sú sem þessar línur ritar ein þeirra, og ég bið góðan Guð að launa henni gæskuna. Eins var með Halldór Guðmundsson, sem nær allslaus varð á vegi þeirra pabba og mömmu fyrir rúmum 50 árum. Þeir sem einhverntímann hafa lesið Guðsorð þekkja söguna um miskunnsama Samverjann og svar Jesúm um hver er náungi þinn. En sjaldan held ég að góðverk nokkurra manna hafi skilað sér jafnríkulega. Þegar þau gerðust göngumóð og sjúk, og niðurlæging ellihrörnunar sótti að, var Halldór þeim allt. Hann hugsaði um pabba af þvílíkri snilld að ekki varð á betra kosið og öll hjálp veitt þann- ig að hvorki særðist viðkvæmt stolt né stórbrotin sál. Og í bana- legu mömmu, sem stóð í rúma 7 mánuði, stóðu hann og Inga Dóra dóttir hennar í því nótt og dag, hvern einasta sólarhring, allan þann tíma að létta henni iífið og hjúkra henni í stóru og smáu. Megi góður Guð styrkja þau í sorginni, launa þeim miskunnsem- ina og láta breytni þeirra verða öðrum til fyrirmyndar. Villa, Andrés, eiginkonur þeirra og þá ekki síður öll barna- og barna- barnabörnin bið ég Guð að styrkja og blessa. hljóðfæraleikari, fæddur 16. júlí 1933, kvæntur Hermínu Jónsdótt- ur, þau eiga 3 börn. Óskar var að- albókari Sparisjóðs Reykjavíkur, fæddur 1. júlí 1938. Óskar andað- ist um aldur fram, 27. maí 1970. Og Dagný Hulda, fædd 28. desem- ber 1948. Dagný Hulda er gift Erni Jóhannssyni fulltrúa hjá Ríkisskattstjóra. Þau eiga 2 börn. Theodór átti við veikindi að stríða síðari árin, þó einkum sl. tvö ár, er sjóndepra ágerðist mjög. Hulda hjúkraði manni sínum og annaðist hann heima af alúð og nærgætni, þar til fyrir tveim mánuðum að Theodór var fluttur á hjúkrunar- heimilið í Hafnarbúðum. Þar and- aðist hann 25. nóvember sl., rösk- lega áttræður að aldri. Það hafði Ég, eiginmaður minn og börnin okkar óskum mömmu fararheilla með ástarþökk fyrir allt og allt. Hvíli hún í friði. Sonja Sveinsdóttir Mig langar í fáum orðum að minnast ömmu minnar, Rebekku Ingvarsdóttur, í þakklætis- og kveðjuskyni. Hún var fædd 2. júní 1901, yngst þriggja barna hjónanna Halldóru Þorgilsdóttur og Ingvars Guð- mundssonar. Aðeins 1 árs gömul missti hún móður sína og fór þá fyrst til föðurforeldra sinna Ing- unnar Magnúsdóttur og Guð- mundar Eyjólfssonar að Hlíð í Garðahverfi, en er Ingunn lést skyndilega ári seinna fór amma aftur til föður síns og móður- ömmu, Rebekku Tómasdóttur. Seinna kvæntist langafi Guðrúnu Andrésdóttur og eignuðust þau 4 börn. 18. september 1920 giftist amma afa mínum Jóni Andréssyni vél- stjóra og bjuggutþau saman í 54 mikið reynt á krafta Huldu að annast Theodór í veikindum hans, einkum seinustu mánuðina, sem hann var heima. Enda var hún þrotin að kröftum og var lögð inn á Landspítalann daginn eftir að Theodór var fluttur á hjúkrunar- heimilið. Þar liggur Hulda sjúk og getur ekki fylgt ástríkum eigin- manni til hinstu hvíldar. Ég óska af einlægni að Hulda fái skjótan bata og auðnist að njóta jólahátíð- arinnar í faðmi barnanna og fjöl- skyldna þeirra. Ég sendi Huldu, börnum, tengdabörnum og barnabörnum innilegustu samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Theodórs Lilliendahl. Hafsteinn Þorsteinsson ár, eða þar til afi dó 3. nóvember 1974. Þau eignuðustu 3 börn, Ingu Halldóru, Vilhjálm og Andrés. Þá ólu þau upp fósturdóttur, Sonju Sveinsdóttur. Einnig kom til þeirra sem unglingur Halldór Guðmundsson og hefur hann dval- ið á heimilinu síðan og var hann þeim sem besti sonur. Mest allan sinn búskap bjuggu afi og amma á Merkurgötu 7 í Hafnarfirði og þar var ríki ömmu í 60 ár, en afi var lengst af til sjós. Nú er tómlegt á Merkurgötunni, en ég heyri fyrir mér með hlátur- inn og kátínuna sem þar ríkti svo oft. Ég sé ömmu fyrir mér með handavinnuna sína, en allt slíkt lék í höndum hennar. Ég minnist einnig ömmu í blómaræktinni, í janúar með lítil fræ, sprota um vorið og fallegan blómagarð um sumarið, enda fékk hún oft verð- laun og viðurkenningar fyrir garð sinn. Amma var glaðlynd kona og létt í lund, en siðavönd og guðhrædd. Hún lét óhrædd skoðanir sínar í ljós og víst er, að maður vissi hvað henni fannst um hlutina. Hún las mikið sér til ánægju og fróðleiks og var mikill fagurkeri. Ekki get ég minnst ömmu án þess að minnast þess fólks sem oft kom til hennar og maður heyrði spjalla um lífið og tilveruna. Þetta fólk hafði ekki mikla menntun á okkar mælikvarða og hafði ekki gert víðreist um ævina, en það gladdist yfir litlu og hver sá sem á það hlýddi varð fróðari og forvitn- ari en áður. Þetta fólk var eins og tengiliður við liðinn tíma, flest er það nú horfið af sjónarsviðinu. Og nú er amma farin líka. Einhvern veginn fannst mér að hún yrði alltaf til staðar, jafnvel þegar hún lá veik heima trúði ég ekki í eig- ingirni minni að hún færi líka. Og nú kveð ég ömmu með þakklæti og söknuð í huga. Þakklæti fyrir hvernig hún alla tíð reyndist mér vel og syni mínum sem hún fóstr- aði í 9 ár þótt hún væri komin á áttræðisaldur. Söknuð eftir sam- verustundunum, þar sem hlegið var og skrafað, í gamni og alvöru, eftir því sem tilefni gáfust. En minningin um samverustundirnar og ömmu munu lifa um ókomin ár. Rebekka Árnadóttir Afmælis- og minningargreinar ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í sendibréfsformi. Þess skal einnig getið, af marggefnu tilefni, að frumort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíðum Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili. Hans Víum Vilhjálms- son — minning Rebekka Ingvars- dóttir - Minningarorð

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.