Morgunblaðið - 04.03.1982, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 04.03.1982, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. MARZ 1982 37 Einar Steindórsson Hnífsdal — Kveðja Fæddur 20. ágúst 1896 Dáinn 6. febrúar 1982 Það var hringt til mín til Reykjavíkur að kvöldi 6. febrúar og mér tilkynnt lát Einars Stein- dórssonar fyrrum oddvita í Hnífs- dal. Mig setti hljóðan, því fyrir nokkrum dögum voru við að sam- mælast um að minnast látins sveitunga okkar, Péturs Jónatans- sonar í Engidal, en minning hans birtist í Morgunblaðinu 24. janú- ar. Var Einar þá hress og kátur eins og hans var venja. Einar Steindórsson var fæddur á Leiru í Jökulfjörðum í Norður- ísafjarðarsýslu 20. ágúst 1896. Foreldrar hans voru Sigurborg Márusdóttir, ættuð úr Hvamms- sveit í Dalasýslu, og Steindór Gíslason, ættaður úr Nauteyr- arhreppi í Norður-ísafjarðarsýslu, samkvæmt því sem Einar tjáði mér sjálfur fyrir mörgum árum, en ég er jafnan forvitinn um upp- runa og ættir manna. A síðast liðnu sumri dvöldum við hjónin nokkra daga norður í Leirufirði. Beni ég þá á fæð- ingarstað vinar míns, Einars Steindórssonar, og ræddum við um erfiðleika þeirra kynslóða sem þarna hafa búið, harðræði náttúr- unnar og baráttu við aðdrætti alla þarna á þessum stað í nágrenni Drangajökuls, sem rís í stórfeng- legri tign sinni fyrir botni fjarðar- ins. Staddur þarna í þessum eyði- firði reikar hugurinn til þeirra horfnu kynslóða, er þarna hafa al- ið aldur sinn um aldir og barist við óblíða náttúru og hörðustu lífskjör, sem samtíðin getur alls ekki skilið, enda ekki von, því að svo gjörólíkt er það öllu sem þekk- ist nú á tímum. Foreldrar Einars áttu 5 börn. Elst var Ágústa, sem lengst af átti heima í Hnífsdal og dó á tíræðis aldri. Hún var röskleikakona, er sagði mér margt úr bernsku sinni. Gísli, sonur þeirra dó ungur. En önnur börn þeirra voru Hjörleifur, sem einnig bjó í Hnífsdal og starf- aði lengi með okkur Einari í hreppsnefnd Eyrarhrepps, faðir Steindórs leikara, og loks Bene- dikt Rósi, skipstjóri á Fagranes- inu, Djúpbátum, sem við köllum vestra. Vorið 1908 brugðu foreldar Ein- ars búi, líklega vegna nýrra fræðslulaga, og fluttu í Hnífsdal, er síðar átti eftir að verða leikvöll- ur og starfssvið Einars og þeirra systkina um langa ævi. Einar sagði mér svo frá þessum búferlaflutningum: „Mér fannst það mikið ævintýri að koma í Hnífsdal úr fásinninu að norðan og fá að ganga þar í barnaskóla í tvo vetur." En vorið 1909 verða önnur þáttaskil í lífi Einars. Þá fer hann 12 ára gamall alfarinn úr föður- húsum og í fóstur hjá merkishjón- unum Guðbjörgu Kristjánsdóttur og Guðmundi Sveinssyni kaup- manni, bónda og útgerðarmanni í Hnífsdal. Fyrst var hann smali og sat yfir ánum á sumrum, því þá voru fráfærur ekki aflagðar. Ein- ar sagði mér margt frá þessum smalaárum, en þá strax vann hann sér traust fyrir þá samvisku- semi og dugnað að láta aldrei vanta af ánum. Seinna lá leið hans í Núpsskóla og þar varð hann fyrir hollum og góðum áhrifum hjá þeim mikla skóla- og kennimanni, sr. Sig- tryggni Guðlaugssyni. Þessu næst fer hann í Verslunarskóla íslands og útskrifast þaðan árið 1920. Heim kominn í Hnífsdal fer hann fljótlega að takast á við fjöl- breyttari viðfangsefni í byggðar- laginu. En hér er fljótt farið yfir sögu og næst staðnæmst við árið 1946, er Einar verður fram- kvæmdastjóri við Hraðfrystihúsið í Hnífsdal og þar starfaði hann í 30 ár. Þar eð ég var aðfluttur í sveit- ina hófust kynni okkar Einars ekki að marki, fyrr en ég tók sæti í hreppsnefnd Eyrarhrepps, þar sem Einar var'fyrir. Þá komst ég fljótlega að raun um, hversu Einar var traustur, vandaður og mikill drengskaparmaður og velviljaður sínu byggðarlagi. Einar var 40 ár í hreppsnefnd- inni og þar af 21 ár oddviti. Þá var hann sýslunefndarmaður í 24 ár eða þar til Eyrarhreppur var sam- einaður ísafjarðarkaupstað árið 1973. Hann átti sæti í sóknarnefnd Hnífsdalssóknar um árabil og góð- ur liðsmaður var hann Ung- mennafélaginu Þrótti í Hnífsdal. Má því með sanni segja að Einar kom víða við byggðarlagi sínu til uppbyggingar og eflingar, sem hann unni svo mjög. Ég á margar góðar og skemmti- legar endurminningar um sam- starf okkar Einars í hreppsnefnd- inni. Við vorum ekki samflokks- menn, en aldrei minnist ég þess, að ég fyndi það í tilsvörum hans eða handtaki, þó að eitthvað skær- ist í odda. Enda tók ég alltaf málstað Einars, þegar á hann var deilt af ósanngirni. Einar kvæntist 3. desember 1938, Ólöfu Magnúsdóttur, mikilli ágætiskonu og mannkostamann- eskju, frá Hóli í Bolungarvík. Hún lést 1968 fyrir aldur fram eftir mjög erfiða sjúkdómslegu. Þau hjón tóku stúlkubarn á fyrsta ári í fóstur og ættleiddu síðan, Hansínu Einarsdóttur, sem nú er gift á ísafirði, Kristjáni Jónssyni, framkvæmdastjóra, og eiga þau 5 börn. Til þeirra flutti Einar árið 1973. Þau Einar og Ólöf ólu upp Einar Val, elsta son Han- sínu og Kristjáns, til 12 ára aldurs og einnig tóku þau í fóstur dreng, Ágúst Jónsson, nú búsettur í Nes- kaupstað, kvæntur Birnu Geirs- dóttur, og eiga þau 3 börn. Mjög létu þau, hjónin, sér annt um öll þessi börn, og þar sem Ein- ar var vanur að drífa mig heim með sér í mat og kaffi, kynntist ég því vel, hversu hans ágæta kona bjó honum hlýlegt heimili. Nú þegar ég lít yfir farinn veg, verður mér efst í huga þakklæti og virðing fyrir þessum ágæta sam- ferðamanni, sem var svo heiðar- legur og traustur í öllu sem hon- um var trúað fyrir og gekk með áhuga og eldmóði að hverju verki án þess að hugsa um launin að kvöldi. Einar var trúmaður, tilfinn- ingaríkup bg vinfastur. Með slík- um mönnum er gott að eiga sam- leið. Við hjónin sendum Hansínu og Ágústi og fjölskyldum þeirra ásamt öðrum ættingjum innilegar samúðarkveðjur. Hjörtur Sturlaugsson, Fagrahvammi. Benco 01 — 600A C.B. 40 rásir AM/40 rásir FM. Sérsmíðuð fyrir ísland. Fullur styrkur. Verö kr. 1.970,- Benco, Bolholti 4, sími 91-21945. 1i Þolplast i nýtt byggingaplast- varanleg vöm gegn raka nýtt byggingaplast sem slær öðrum við Plastprent hetur nú hafið framleiðslu á nýju byggingarplasti, ÞOLPLASTI, í sam- ráði við Rannsóknarstofnun byggingar- iðnaðarins. Framleiðsla á ÞOLPLASTI er árangur af auknum kröfum sem stöðugt eru gerðartil byggingarefna. ÞOLPLAST hefur aukið endingarþol gegn langtímaáhrifum Ijóss, lofts og hita. ÞOLPLAST ersérstaklegaætlað sem raka- vörn í byggingar, bæði í loft og veggi. ÞOLPLAST ervarið gegn sólarljósi og því einnig hentugt í gróðurhús, vermireiti og í glugga fokheldra húsa. ÞOLPLAST er framleitt fyrst um sinn 280 sm breitt og 0,20 mm þykkt. Plastprent hff. HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 85600 BOSCH Um þaö hafa hinir fjölmörgu eig- endur sannfært okkur og um þaö getiö þér einnig sannfærst. ÖLLBOSCH verkfæri eru al- einangruö sem er mikiö öryggis- atriöi og eingöngu'^ á kúlulegum. Fjölbreytt úrval af BOSCH iðnaöarverkfærum. Kaupiö verkfæri sem endast. Þaö borgar sig. þjonustan er i sérflokki. Umboðsmenn um allt land. Gunnar Ásgeirsson hff., Suðurlandsbraut 16, sími 91-35200. BOSCH heimilisborvélar og fjöldi fylgi- hluta. BOSCf verkfærii eru ótrúlegj sterk og fjölhæl

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.