Morgunblaðið - 19.04.1983, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 19.04.1983, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI 87. tbl. 70. árg. ÞRIÐJUDAGUR 19. APRIL 1983 Prentsmiðja Morgunblaðsins Hryðjuverk við bandaríska sendiráðið í Beirút: Öflug sprengja varð tugum manna að bana ” w m Hér má sjá framhlið sendi- ráðsbyggingarinnar, hvernig hæðirnar hafa hrunið saman. Flestir hinna látnu og slösuðu voru líb- anskir starfsmenn sendi- ráðsins, a. m.k. fimm þeirra voru þó Bandaríkjamenn. Símamynd AP. Boirút, Líbanon, 18. apríl. AP. GEYSILEGA öflug sprengja sprakk við bandaríska sendiráðið í Beirút klukkan 11.05 í gær með þeim af- leiðingum að minnst 32 létu lífið og 105 slösuðust meira eða minna. Bandaríski sendiherran Robert I)ill- on var í hópi þeirra sem sluppu lif- andi, hann slasaðist lítið. Aðkoman var hryllileg, t.d. mátti sjá í hendur og fætur á líki sem var skorðað á fimmtu hæð hinnar sjö hæða byggingar. Draup blóðið í taumum niður á jörðina. Lögreglu- þjónn sagði að sprengjan hefði verið um 150 kg og verið i líbönskum lög- reglubíl sem stóð sjávarmegin við sendiráðsbygginguna. Var sprengjan fjarstýrð og er hún sprakk, tættist miðhluti hússins í sundur þannig að hæðirnar hrundu hver ofan á aðra. Ein af þremur álmum hússins var gereyðilögð, en hinar tvær voru stór- skemmdar. Skömmu eftir sprenginguna sagði útvarpsstöðin „Kristna rödd Liban- ons“ að sjálfsmorðshryðjuverkamað- ur úr röðum múhameðstrúarmanna hafi ekið bifreið með sendiráðsmerkj- um að sendiráðinu og sprengt sprengjuna. Hópur sem kallar sig „heilagt stríð múhameðstrúarmanna" hafði síðan samband við líbanska blaðið A1 Liwa og sagðist bera ábyrgð á verknaðinum. Sagði ónefndur talsmaður heilaga striðsins m.a. eftirfarandi: „Sprengingin var hluti af írönsku byltingunni sem beinist gegn heimsvaldasinnum um heim allan. Við munum halda áfram að höggva að nærveru heimsvalda- sinna í Líbanon, þ.m.t. friðargæslu- sveitunum." Öfgaflokkur þessi hefur áður borið ábyrgð á árásum á friðar- gæsluliðið alþjóðlega. Ronald Reagan Bandaríkjaforseti hitti fréttamenn að máli í Washing- ton er fregnir um verknaðinn höfðu borist. Hann lýsti hryðjuverkinu sem „viðurstyggilegu athæfi og heiguls- hætti". Hann bætti því einnig við að atburðurinn breytti engu um viðleitni Bandaríkjanna til að ná endum sam- an varðandi brottflutning erlendra herja frá Líbanon og varanlegan frið í löndum fyrir botni Miðjarðarhafs. Hann sagði loks að Amin Gemayel forseti Líbanons hafi haft samband við sig og tjáð sér samhryggð sína, en jafnframt beðið um að atburðurinn yrði ekki til þess að Bandaríkin hættu þátttöku sinni í friðarviðræðunum. Sji: „Friðarviðleitninni verður haldið áfram" bls. 18. Víetnamar saka Kínverja um að fella saklaust fólk Bangkok, Thailandi, IH.apríl. Víetnamar sökuðu Kínverja í gær um að halda uppi stórskotahríð á víetnömsk þorp við landamærin með þeim afleiðingum að 17 óbreyttir ví- etnamskir borgarar féllu eða særð- ust og eignatjón varð mikið. Að sögn Víetnama beindist skothríð Kínverja fyrst og fremst að tveimur þorpum. I öðru þeirra féll einn maður, en alvarlegri þðtti Víetnömum útkoman í hinu þorp- inu, þar féllu eða særðust 16 manns, aðallega konur og börn. Auk þessa segja Víetnamar að hvað eftir annað að undanförnu hafi kínverskir herflokkar skund- að yfir landamærin með skothríð og eyðileggingu. Hin opinbera fréttastofa Hanoi-stjórnarinnar sagði í gær, að Víetnamar hefðu í öllum tilvikum „refsað“ hinum Björgunarmenn hlaupa á brott með lík eins hinna mörgu sem létust f sprengingunni. Símamynd AP. óboðnu kínversku gestum. En út- varpsstöðin fór ekki nánar út í með hvaða hætti þeim var refsað. Tiltölulega rólegt hefur verið á landamærum Kambódiu og Thai- lands að undanförnu, þó hefur ekki verið með öllu skærulaust. í gær sakaði thailenska stjórnin víetnamska herflokka um að hafa skotið að thailensku landamæra- þorpi með þeim afleiðingum að tveir óbreyttir þorpsbúar særðust. Fulltrúar ríkisstjórna Víetnam og Sovétríkjana undirrituðu í gær samkomulag um vaxandi efna- hags-, menningar- og hernaðarleg samskipti landanna, sama dag og Hanoi-stjórnin fordæmdi Kín- verja fyrir skothríðina á landa- mærunum. Kínverjar hafa síður en svo neitað að hafa skotið á víetnamskar landamærabúðir, en hafa sagst vera að svara Víetnöm- um í sömu mynt. Sovétmenn hafa ekki tekið undir mótmæli Víet- nama, enda eru risaveldin tvö í austri í óða önn að slétta úr sam- búðarerfiðleikum sínum. Walesa færður til yfirheyrslu á ný Varsjá 18. aprfl. AP. LECH WALESA, leiðtogi Samstöðu, var í gær handtekinn og færður til yfirheyrslu í annað skiptið á tæpri viku. Seint í gærkvöldi var honum svo slcppt og hafði þá verið í haldi í um níu klukkustundir. Walesa var á ferð í bíl ásamt séra Henryk Jankowski, leikaranum Wojciech Duryasz og bílstjóra. Voru þeir einnig teknir höndum og presturinn yfírheyrður. Séra Jankowski var sleppt um eftirmiðdaginn í gær og sagði hann fréttamönnum að hann hefði verið spurður um „alit og ekkert". Þegar honum var sleppt var honum jafn framt sagt að Walesa yrði sleppt innan tíðar. Lögreglumenn á lög- reglustöðinni í Olsztyn, þar sem fjórmenningarnir voru í haldi, sögðu að Walesa væri ekki í þeirra vörslu og hefði ekki verið handtek- inn. Talsmaður innanríkisráðu- neytisins sagði að hann hefði ekki umboð til að tjá sig um málið. „Ég hvorki játa né neita að Walesa hafi verið færður i yfirheyrslu,“ sagði hann. Sjá nánar: „Höfum verið auð- mýktir" bls. 18.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.