Morgunblaðið - 19.04.1983, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 19.04.1983, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 1983 7 Scarsdale 14 daga kúrinn í hádeginu í dag: Úrval af köldu kjöti aö eigin vali: (magurt kjöt, t.d. kjúklingur, nautatunga, magurt nautakjöt — sjá lista). Tómatar — sneiddir, bakaðir, eöa soönir. Kaffi/ te. Á kvöldin bjóöum viö rétti úr Scarsdale sælkerakúrnum. loríoti RESTAURANT AMTMANNSSTÍGUR 1 TEL. 13303 TS'ibamalka^unnn ^0-tettifýötu 12- 1S Ath.: Vantar nýlega bíla á staðinn. Sýningarsvæði úti og Colt QL 1980 Blásanz, 5 dyra, ekinn aöeins 2S þéa. km. Útvarp, snjódekk og sumardekk. V#rð kr. 125 þú*. Einnig Colt GLX 1981. Sjálfskiptur. Verö 165 þús. Chevrolet Suburban 1974, diesel Svartur og hvitur, 6 cyt. Trador diesel vél. (eklnn 15 þúa. km. á vél). Verö kr. 160 þúa. Toyota Corolla DL 1991 Brúnaanz. ekktn aOelna 1« þéa. km. VarO kr. 160 þúa. Honda Chric 1981 Brúnzans. 5 dyra, eklnn 21 þús. km. Verö kr. 155 þús. AMC Concord 1979 með vínyltopp Ekinn 56 þús. km. 6 cyl. Sjálfskiptur, meó öllu. 2 dekkjagangar á felgum, útvarp og segulband. DekurbM I eérflokki. Veró aóeins kr. 145 bús. M. Benz 230 E 1981 Grænsanz, 4 ayl (Beln Innapýtlng). S)álf- aklptur, aflstýrl. sóllúga og fl. Aukahlutlr. Verö kr. 610 þúa. Mazda 626 (1600) 1982 Gullsanz. 4ra dyra, eklnn 12 þús. km. Út- varp. segulband, sn)ódekk, og sumardekk. Verö kr. 185 þúa. Votvo 244 QL 1981 Ljðeblér. ekkm 30 þúa. S(álfaklptur, aflstýrl. útvarp og aegulband. Varð 205 þúa. Qatant QL 1982 Hvftur, ekinn 9 þús. Útvarp og segulband. Sem nýr bíll. Verö 215 þús. Óstjórnhæfir? .^^skriftar- siminn er 83033 |Kez0i)ml»Ifibib rtSSTUDAGUlt 15. APRfL 1983 Nidurstaóa Orkuatofnuiutr Rafinagnsverð mun hærra án samninganna við ÍSAL Skýrsla, sem iðnaðar- ráðherra birtir ekki________________ Skýringa krafist Athyglisvert er að Þjóðviljinn treystir sér ekki til að draga í efa niðurstöðu Orkustofnunar um raforkuverðið og Alsuisse í skýrsl- unni sem Hjörleifur Guttormsson sá þó ástæöu til að stinga undir stól. Hins vegar telur Þjóöviljinn plaggið ekki merkilegt, þar sem það sé ekki þóknanlegt hæstvirtum álráöherra. Þessar skýringar Þjóðviljans duga ekki. Hjörleifur Guttormsson verður afdráttarlaust að skýra frá því hvers vegna hann upplýsti almenning ekki um útreikninga Orkustofnunar. Hvaða fleiri skýrslur er snerta þjóðar- hag hefur ráðherrann falið? „Hin nýja stétt“ í Al- þýðubandalaginu stundar stjórnmál í því skyni að sitja ávallt við kjotkatla kerfísins og ráðskast með mál að eigin geðþótta í ráðherrastólum. I*ess vegna hefur það verið inn- takið í stefnu hennar, að víst sé Alþýðubandalagið „stjórnhæft" og menn skyldu bara sjá að forystu- menn flokksins væru til þess búnir að ieggja nokk- uð á sig til að halda þeirri rikisstjórn við völd þar sem þeir hcfðu hlotið sæti. Þeg- ar kommúnistar settust í ráðuneyti Ólafs Jóhannes- sonar 1. september 1978 sögðust þeir ætla að koma samningunum í gildi. llpp- haf þeirra aðgerða var 8.10% vísitöluskerðing 1. desember 1978. Þegar kommúnistar settust í ráðuneyti Gunnars Thor- oddsens 8. febrúar 1980 voru þeir búnir að hafa um það stór orö, að nú þyrfti að hefta framkvæmdir í tengslum við Keflavíkur- flugvöll. Þetta hefur |>eim tekist varðandi flugstöðv- arbygginguna sem er þó beinlínis til afnota fyrir Is- lendinga en framkvæmdir í þágu varnarliðsins hafa storáukist í tíð núverandi rikisstjórnar. Ólafur Jóhannesson hef- ur setið í þremur ráöuneyt- um með Alþýðubandalag- inu síðan 1971. f tveimur var hann forsætisráðherra; 1971-1974, 1978-79 og nú er hann utanríkisráðherra. í Þjóðviljanum 16. aprfl 1983 stendur: „—Það er ekki hægt að stjórna með Alþýðubandalaginu, sagði Ólafur Jóhanncsson utan- rikisráðherra og efsti mað- ur B-listans í Reykjavík á fundi í Landsbankanum í gær...“ Og Þjóðviljinn segir „Ólafur Jóhannesson var spurður að því hvort ekki væri nauðsynlegt að hafa Alþýðubandalagið með í stjórn en hann var skjótur til svars og kvað þvert á móti ekki hægt að stjórna með því þar eð það væri ekki tilbúið að taka á vanda í efnahagsmálum." Það er sérstakt íhugun- arefni hvers vegna Þjóð- viljinn sér ástæðu til að birta þessar yfírlýsingar um að Alþýðubandalagið sé óstjórnhæft. Undir frétt- ina af ummælunum eru stafír Einars Karls Har- aldssonar, ritstjóra, sem er fyrrum framsóknarmaður eins og Ólafur R. Gríms- son, en Ólafur telur nú vonlaust aó hann nái kjöri á þing. Er hann hvrjaður að setja sig í þá stellingar að tapið sé allt ráð- herrunum Svavari, Hjör- leifí og Ragnari að kcnna. Þeir hafí verið óstjórnhæfir eftir allt saman. Já, álráðherra Á fostudaginn birti Morgunblaðið frétt um skýrshi Orkustofnunar er sýndi að íslenskir raf- magnsnotendur hefðu orð- ið að borga mun hærra verð fyrir raforku síðasta áratug ef álverið í Straumsvík hefði ekki ver- ið byggt og gerður samn- ingur um orkusölu til þess. Ætla má að rafmagnsverð til almennra notenda hefði verið 20% hærra en nú án álbræðshinnar í Straums- vík. Þegar lljörleifur Gutt- ormsson, iðnaðarráðherra, fékk þessa skýrslu frá Orkustofnun lagði hann blátt bann við því að efni hennar opinberaðist og fól sérlcgum og flokkslegum erindrekum sínum að gera starfsmönnum Orkustofn- unar það Ijóst í eitt skipti fyrir öll aó nú skipti öllu aö þeir segðu ekki frá niður- stöðum sínum. í Þjóðviljanum á laug- ardag bregðast umboðs- menn álráðherrans skýrsluglaða en verklausa við með þeim hætti að þeir úrskurða útreikninga Orkustofnunar marklausa af því að Hjörleifur Gutt- ormsson telji þá „vinnu- plagg“ eða „innanhúss- plagg" í Orkustofnun. Þá segir Þjóðviljinn að niður- staða Orkustofnunar um hagkvæmni af orksusölu til álversins sé „upphaf athug- ana“ sem hæstvirtur iðnað- arráðherra standi fyrir. Gefur Þjóðviljinn þar með til kynna að það hafí ekki verið hcrra Hjörleifi Gutt- ormssyni þóknanlegt að birta almenningi þessar upplýsingar, af því að fólk- ið eigi aðeins að fá það í hcndur í þessu máli sem hinn kái álráðherra hafí sjálfur matreitt samkvæmt þeim kokkabókum sósíal- ismans að öllum umræðum fólksins skuli stjórnað af valdhöfunum. Eins og kunnugt er sárn- ar Hjörleifí Guttormssyni það mest, að Alusuisse hagi sér ekki eins og hin þögula sérfræðingahirð og segi: Já, álráðherra. Sagan endur- tekin Til að staðfcsta skoðana- leysi sitt í stjórnmálum hefur Dagblaðið-Vísir valið þann kost aö láta kosn- ingaleiðara sína fjalla um það, hvort skoðanakannan- ir vinni sigra í kosningum eða ekki. Þetta aukaatriði verður enn að aðalatriöi í „stjórnmálaskrifum" Dagblaósins-Vísis í gær. Þar segir að úrslit kosn- inganna séu Stóridómur um þaö hvaða aðferðir eigi að gilda um framkvæmd skoðanakannanna! Þetta er fráleit kenning. Eyrir liggja rannsóknir um þetta atriði og aðferðir við slíkar kannanir hafa verið þaul- reyndar og niöurstöður á þeim liggja fyrir. Úrslit kosninga á íslandi í aprfl 1983 breyta engu þar um og á grundvelli þeirra er ekki unnt að afsaka flaust- ur þeirra sem hafa hinar viðurkenndu aðferðir að engu. Feróaskrifstofan UTSÝN Reykjavík: Austurstræti 17. Sími 26611. Akureyri: Hafnarstræti 98. Sími 22911. „Dýrðar-dagar“ er ferðalag sem byggist á lágum flugfargjöldum og bílaleigubíl. Ford-umboðið Sveinn Egilsson hf. og Ferða- skrifstofan ÚTSÝN, geta nú aftur boðið, eins og sl. sumar, nýlegar bifreiðir frá Ford-verksmiðjunum á einstaklega lágu veröi. Flogið er til London með Flugleiðum á þriðjudögum og til baka eftir 2, 3 eða 4 vikur. Brottfarardagar: 12. og 26. apríl, 10. og 24. maí, 07. og 21. júní, 05. og 19. júlí, 02. og 16. ágúst, 10. og 24. september. Bílaflokkur: A. Fiesta 1,1 L C. Escort 1,6 L E. Sierra 1,6 L. saloon. saloon sjálfsk. Saloon sjálfsk. B. Escort 1,3 L D. Sierra 1,6 L F. Sierra 1,6 L saloon. Wagon sjálfsk. Wagon. 2 vikur verð kr. 8.525 4 í bíl. 3 vikur verð kr. 9.085 4 í bíl. 4 vikur verð kr. 9.595 4 í bíl. Innifalið: Flugfargjald, bíll í umsaminn dagafjölda, þ.e. 2—4 vikur m/ótakmörkuðum kílómetrafjölda, full skyldutrygging, kaskótrygging, vegaskattur, 15% viröisaukaskattur, hálfur bensíntankur og útvarp. Afsláttur fyrir börn 2—11 er kr. 3.000. Með UTSYN til Bretlands

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.