Morgunblaðið - 25.10.1983, Blaðsíða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 1983
„ AndaJ2>u djú-pt og V\oí,f<5u Snögjt ó-
rcjknÍKg'irvn."
Viðgerðin tefst bersýnilega, því við Hefur þá hreint enginn neitt við
kunnum ekki að opna vélarhlífina. þetta að athuga!
HÖGNI HREKKVlSI
HtýTUI? AP\/ei2A KlCKJU-VlOS.
B-salur Stjömubíós:
Tugir þúsunda komið og
átt þar ánægjustundir
Úr kvikmyndinni Gandhi: Nehru (Seth), Gandhi (Kingsley) og Jinnah (Pad-
amsee) á fundi.
Þorvarður Þorvarðarson skrifar:
„Ágæti Velvakandi!
Vegna furðulegs skrifs í dálkum
þínum 21. þ.m. frá Matthildi
Ólafsdóttur vill forstjóri Stjörnu-
bíós taka eftirfarandi fram:
Frúin segir fyrst, að salurinn sé
„ekki stærri en rúmgott herbergi".
Um þetta er það eitt að segja, að
frúin hlýtur að hafa rúmt um sig,
því þetta „rúmgóða herbergi" er
þó á annað hundrað fermetra. Má
segja að aðrar öfgar hennar séu
eftir þessu.
B-salurinn var tekinn í notkun í
júlí á síðasta ári. Á þeim fimmtán
mánuðum, sem liðnir eru síðan,
hafa tugir þúsunda manna komið
og átt þar ánægjustundir. Hefur
stjórn bíósins aldrei orðið þess
vör, að neinum hafi orðið meint af
veru sinni þar eða kvartað um
vanlíðan, sem kenna mætti að-
stæðum í salnum. Frúin tekur
hins vegar sérstaklega fram, að
hún hafi aðeins verið þar 2—3 mín-
útur, áður en hún fann til lasleika
síns, sem stóð lengi á eftir, að því
er best verður skilið, og sonur
hennar virðist ekki hafa verið fær
um að aka bifreið, að því er hún
segir, og er slíkur akstur rann-
sóknarefni út af fyrir sig.
Það eina, sem gestir Stjörnubíós
hafa talið B-salnum til óþæginda
er, að þangað sé langur tröppu-
gangur. Það skal játað, en tröppu-
fjöldi er þó litlu meiri en úr and-
dyri upp í efstu tröppu í aðalsal,
sem enginn kvartar yfir. Hins veg-
ar ber öllum saman um, að sæti og
rými milli bekkja í B-sal sé sér-
staklega þægilegt og bæti hitt upp
fullkomlega. Fulltrúi Warner
Brothers, sem kom hér á sl. ári og
skoðaði salinn, kvað hann vistleg-
asta og besta smásal, sem hann
hefði séð eða haft spurnir af. Þeir
menn kynna sér slíka sali um
heim allan, enda eru þeir að verða
eitt helsta einkenni nýrra kvik-
myndahúsa. það skal tekið fram,
að stærð sýningartjaldsins er mun
meiri en tíðkast í minni sölum
kvikmyndahúsa almennt. Er það
vegna nýrrar gerðar af sýn-
ingartjöldum, sem eru saumlaus
perlutjöld. Eru þau þannig gerð,
svo hægt sé að sitja nær þeim en
venjulegum tjöldum án óþæginda
frá myndgæðum.
Hin vinsæla mynd Tootsie var
sýnd í B-sal í margar vikur, og dró
það ekki úr aðsókn, þótt hún væri
sýnd þar. Um Gandhi er það hins
vegar að segja, að hún var sýnd f
60 daga samfleytt í aðalsal og síð-
ustu 10 dagana var tilkynnt að nú
yrði myndin senn flutt í B-sal og
kvartar enginn nema frú M.ó.
Um þá fullyrðingu frúarinnar,
sem á að vera höfð eftir dyraverði,
að „annað fólk hefði þurft að yfir-
gefa salinn af sömu ástæðu og
ekki fengið peningana sína aftur",
skal þetta sagt: Dyravörður bíós-
ins hefur aldrei látið sér slíkt um
munn fara, enda enginn kvartað
um veikindi af neinu tagi, eins og
þegar er sagt. Hér er því um hel-
ber ósannindi frúarinnar að ræða
og virðast veikindi hennar hafa
orsakast af öðru en dvöl f bíóinu,
hafi um einhvern kvilla verið að
ræða."
Gangbraut vantar
yfir Skúlagötu
Jóhann Sigurðsson hringdi og
hafði eftirfarandi að segja: — Mig
langaði til að koma með smáábend-
ingu til lögreglunnar og gatnamála-
stjóra varðandi Skúlagötuna, eina
af fjölförnustu götum borgarinnar.
Eins og kom fram í bréfi sem ég
skrifaöi f Velvakanda 1. sept. sl. er
gangbraut yfir Skúlagötuna á móts
við Rauðarárstíg, en haldi maður
austur götuna, fram hjá öllum stóru
fjölbýlishúsunum, f áttina að
Höfðatúni og Laugavegi, er enga
gangbraut að finna yfir Skúlagötu
alla þessa leið. Einn og hálfur metri
er frá íbúðarblokkunum út að þessu
hættusvæði. Barn, sem kemur út úr
húsunum, hyllist því til að hlaupa
stystu leið yfir götuna og hef ég oft
séð muna mjóu, að illa færi. Margt
býr þarna af gömlu fólki og verður
það oft að bíða langtímum saman
eftir að einhver ökumaður sé svo til-
litssamur að stöðva bfl sinn og
hleypa þvi yfir. Um þessa götu aka
menn oft á 80—90 km hraða og er
því nauðsynlegt að þarna verði
framkvæmdar hraðamælingar.
Takmarkið er að við fáum nýja
gangbraut (t.d. á móts viö Ræsi eða
þar nálægt) og hraðamörk verði
auglýst á skiltum við götuna. Eg
skora á ráðamenn borgarinnar að
skoða þessi tilmæli vel, þvf að það er
of seint að byrgja brunninn, þegar
barnið er dottið ofan í.
Alveg jafnklúr
Guðrún hringdi og hafði eftir-
farandi að segja: — Ég ætlaði að-
eins að minnast á stöku sem farið
var með í útvarpsþættinum Dag-
legt mál í gærkvöldi (fimmtud. 20.
okt.). Umsjónarmaður hafði vís-
una svona:
Presturinn í stólinn sté,
stökk síðan út og pissaðe.
Allt fólkið óð f kné,
og eitt sveinbarn drukknaðe.
Þetta er nú óttalega klúr vísa,
en ég hef aldrei heyrt farið svona
með hana, heldur hefur annað
vísuorðið verið: stökk síðan út og
mé. Ég kann því illa, að verið sé að
breyta svona vísu þó að hún sé
klúr. Hún verður alveg jafn klúr
þótt sagt sé „pissaðe".
Áskorun til forráða-
manna sundstaðanna
Sundlaugagestur skrifar:
„Velvakandi.
Ég veit, að ég tala fyrir munn
margra, þegar ég bið þig nú að
koma þeirri áskorun á framfæri
við forráðamenn sundstaða, bæði í
Reykjavík og annars staðar, að
þeir gangi á undan með góðu for-
dæmi og banni algerlega reykingar
innanhúss á sundstöðum.
Þetta eru þeir staðir, sem fjöl-
margir sækja reglulega til að
viðhalda heilsu sinni og bæta
hana, og því mætti ætla, að það
væri sjálfsagður hlutur, að gest-
um þeirra væru tryggð þau
mannréttindi að þurfa ekki að
anda að sér menguðu lofti að
óþörfu.“