Morgunblaðið - 07.03.1984, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 07.03.1984, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 1984 43 Fógetaskrifstofa opnuð í Ólafsvík Ólafsvík, 29. feforúar. Á DÖGUNUM var formlega opnuð skrifstofa bæjarfógeta í Ólafsvík á Olafsbraut 34. Neðri hæð hússins er í eigu ríkisins og var á síðastliðnu ári innréttuð að nýju til að koma þar fyrir skrifstofu þessari ásamt lög- reglustöðinni, sem hefur lengi verið þarna til húsa. í ræðu, sem Jóhannes Árnason, bæjarfógeti, hélt við þetta tæki- færi, kom fram að samkvæmt lög- um um kaupstaðarréttindi fyrir Ólafsvík, skal sýslumaður Snæ- fellsnes- og Hnappadalssýslu jafn- framt vera bæjarfógeti í Ólafsvík. Þess vegna er eftir sem áður eitt embætti héraðsdómara í umdæm- inu, sýslu og kaupstað. Skrifstofa bæjarfógeta verður opin mánudaga til föstudaga kl. 13—17. Fer þá fram almenn af- greiðsla, allt eftir því sem lög heimila og aðstæður leyfa á hverj- um tíma. Er hér um að ræða ýmiss konar þjónustu, sem yfirleitt er veitt á sýsluskrifstofum og lög- fræðingar þurfa ekki beinlínis að fjalla um. Aðalbókari embættisins mun svo verða í Ólafsvík á fimmtu- dögum kl. 13—17. Þá verða teknir upp fastir viðtalstímar bæjarfóg- eta, eða fulltrúa hans, á þriðjudög- um kl. 10—12 og 13—17. Geta menn þá mætt í móttöku og borið upp sín mál, hvort sem þau eru lögfræði- legs eðlis eða varðandi opinber gjöld, tryggingar og þess háttar. Loks má geta þess, að opnaður hefur verið sérstakur reikningur fyrir embættið í Landsbanka ís- lands í Ólafsvík. Framvegis getur fólk því greitt hin ýmsu gjöld til embættisins inn á þennan reikning. Hér mun því, auk hins fasta starfsmanns á skrifstofunni og lögreglumanna á vakt á stöðinni, verða til viðtals fógeti eða fulltrúar hans tvo daga í viku, eða sem svar- ar nær annan hvern dag miðað við hina föstu vinnudaga vikunnar. Þessa daga fara sendingar skjala og fleiri gagna á milli skrifstofunn- ar hér í Olafsvík og í Stykkishólmi og hljóta þar afgreiðslu. Fógeti kvaðst vilja bera fram þá ósk, að rekstur skrifstofu bæjar- fógeta hér í Ólafsvík mætti verða Ólafsvíkingum að því gagni, sem að er stefnt. Kvað hann starfsmenn embættisins munu leggja sig fram um að svo mætti verða. - Helgi. Mörgblöð med einni áskrift! eru þciu bestu, sem Flugleiðir hgfg noteteru sinni boðið Þau dlm bestu! Dæmi um verð: Fyrir4 manna fjölskyldu í 2 vikur: Flug, sumarhús og rútuferðlr frá og til Lux /wk 48-612- Fluglelðír kvnna nýjan sumarleyfisstað í Þýskalandi: Daun i Eifel-héraði, skammt frá Mósel og Rín. Bílaleigubílllnn biður þin i Luxemborg, og þaðan ekur þú sem leið liggur til Daun, - þar sem þú og fjölskyldan dveljið í góðu yfirlæti i glæsilegu sumarhúsi. Dægradvöl og skemmtanir við allra hæfi. Bílaleigubíll f viku kostar frá kr. 2.760 - Þú borgar bensínið, en allur annar kostnaður er inni- falinn. Eifel-hérað er rómað fyrir náttúrufegurð, og allt i kring eru skemmtilegir staðir, - smábæir og borgir, s.s Trier, Koblenz, Köln og Frankfurt. Fjölbreytt og skemmtilegt sumarleyfl allrar fjöl- skyldunnar. A söluskrifstofum Flugleiða, hjá umboðsmönnum og á ferðaskrifstofum eru myndbönd frá Daun- Eifel, bæklingar, og þar færðu allar frekari upp- lýsingar. I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.