Morgunblaðið - 03.05.1984, Qupperneq 2
3*
MWQuyBHnip, Ftiwvm<«W 3,MAl,^
Flugleiðir hefja Detroit-flug síðari verkfallsdaginn:
Meðallaun flug-
manna Flugleiða
rúm 63 þúsund
— ein krafan um greiðslu eins aukamánaðar árlega
Kolbrún Jónsdóttir, verslunarstjóri, sýnir einum áhugasömum viðskipta-
vini kálgarðsdúkku. Ljósm. KÖE.
„Kálgarðsbörnin“
KALGARÐSBÖRNIN svonefndu,
sem ollu heilmiklu írafári í Banda-
ríkjunum fvrir síóustu jól, eru nú
komin til Islands, og hefur Leik-
fangaverslunin K. Einarsson á
Laugavegi í Reykjavík hafió sölu á
dúkkum þessum.
Dúkkurnar eru bandarísk upp-
finning og voru þær settar á
markað þar á síðasta ári og urðu
svo vinsælar að menn lögðu á sig
að ferðast langar vegalengdir í
því skyni að komast yfir kál-
garðsdúkku. Það sem átti meðal
annars þátt í vinsældum dúkk-
anna var að engar tvær dúkkur
voru eins og þar að auki fylgdu
þeim ættleiðingarskjöl þannig
að þeir sem keyptu dúkkurnar
ættleiddu þær einnig.
Kálgarðsbörnin sem hér eru
til sölu eru framleidd á Ítalíu og
eru seld í innsigluðum blómkáls-
höfðum þannig að kaupandinn
veit ekki hvort hann fær hár-
prúðan strák eða sköllótta stelpu
til ættleiðingar.
Kvíslaveita og Þórisvatnsmiðlun:
Hagvirki með lægstu tilbod
FJÓRDI sáttafundurinn í kjaradeilu
Félags íslenskra atvinnuflugmanna
og Flugleióa hefur verió boóaður hjá
ríkissáttasemjara kl. 9:30 í dag. Þar
verður reynt til hins ítrasta aö af-
stýra tveggja daga verkfalli flug-
manna, sem boðað hefur veriö um
aöra helgi, 11. og 12. þessa mánaöar.
Þann 11. maí ráðgerir Flugleiðir
fyrsta áætlunarflugið til Detroit í
Bandaríkjunum. Sæmundur Guð-
vinsson, blaðafulltrúi Flugleiða,
sagði í samtali við blaðamann
Mbl., að flugið myndi hefjast á til-
settum tíma þótt af verkfallinu
yrði; tekin yrði á leigu vél með
áhöfnum. Að öðru leyti mætti
gera ráð fyrir, að farþegar félags-
ins — sem væru bókaðir um 3.000
þessa tvo daga, þar af um 2.000 á
N-Atlantshafsleiðinni — verði
færðir yfir á önnur flugfélög. Um
Evrópuflugið sagði Sæmundur að
farþegum yrði væntanlega ráðlagt
að reyna að ferðast dagana á und-
an og eftir boðuðu verkfalli.
{ tilkynningu, sem stjórn Flug-
leiða sendi frá sér í fyrradag, segir
m.a. að vegið meðaltal launa flug-
manna hjá félaginu sé rúmlega 63
þúsund krónur. Byrjunarlaun séu
32.924 krónur og hæstu laun
81.221 króna. Þar kemur einnig
fram, að félagið hefur boðið Félagi
íslenskra atvinnuflugmanna sömu
grunnkaupshækkanir og samið
hefur verið um milli ASI og VSÍ,
eða 13,6% á samningstímanum.
Sú grunnkaupshækkun ein kosti
Flugleiðir 15,6 milljónir á ári.
Þá segir að kröfur FÍA í samn-
ingaviðræðunum séu í 29 liðum.
Fyrstu ellefu liðirnir myndu þýða
42,6—70,9% launahækkanir. Sam-
kvæmt upplýsingum, sem Mbl.
hefur aflað sér, felst t.d. í kröfun-
um, að !aun verði jöfnuð þannig að
byrjunarlaun flugmanna á Fokk-
er-vélum hækki úr 32.924 upp í lið-
lega 42 þúsund krónur. Aðrar
kröfur eru um hærri dagpeninga,
símagjald, ökutæki, næturálag á
laun, viðbótarflokk fyrir þá, sem
hafa lengstan starfsaldur, og að
greiddur verði einn aukamánuður
árlega.
Sinfóníu-
hljómleikar
FIMMTÁNDU áskriftartónleikar
Sinfóníuhljómsveitar íslands verða í
Háskólabíói í kvöld og hefjast
klukkan 20.30.
Á tónleikunum verður frumflutt
verk eftir Áskel Másson; konsert
fyrir lágfiðlu og hljómsveit, sem
Unnur Sveinbjarnardóttir leikur
einleik í. Önnur verk á tónleikun-
um eru svíta nr. 5 eftir Bach og
sinfónía eftir Dvorák, Úr nýja
heiminum.
Stjórnandi á tónleikunum verð-
ur Jean-Pierre Jacquillat.
Sjá nánar um verk Áskels á
bls. 4.
IIAGVIRKI gerði lægstu tilboð í
gerð 4. áfanga Kvíslaveitu og undir-
búning á stíflugrunnum vegna fyrir-
hugaðrar stækkunar á Þórisvatns-
miðlun, en tilboðin voru opnuð hjá
Landsvirkjun á miðvkudaginn 2.
maí sl. Tilboð Hagvirkis í Kvísla-
veitu er rúmum 72 milljónum króna
undir kostnaöaráætlun verkfræöi-
legra ráðunauta Landsvirkjunar og
rúmum 2 milljónum króna undir
kostnaðaráætlun við undirbúning
stíflugrunna við Þórisvatn, en þeir
skilmálar fylgja, að tilboðum Ilag-
virkis sé tekið í bæði verkin.
Alls bárust 5 tilboð í 4. áfanga
Kvíslaveitu og virðast þrjú lægstu
tilboðin vera þessi: 1. Hagvirki hf.
kr. 123.575.672,- (enda sé tilboðum
þess tekið í bæði verkin). 2. Ellert
Skúlason hf. kr. 126.650.400,-. 3.
Hagvirki hf. kr. 127.397.600,-.
Kostnaðaráætlun verkfræðilegra
ráðunauta Landsvirkjunar, Verk-
fræðistofa Sigurðar Thoroddsen
hf kr. 195.920.000,-.
I undirbúning stíflugrunna við
Þórisvatn bárust alls 6 tilboð og
þrjú lægstu tilboðin virðast vera
þessi: 1. Hagvirki hf. kr. 8.669.700,-
(enda sé tilboðum þess tekið í bæði
verkin). 2. Suðurverk sf. kr.
9.445.500,- 3. Hagvirki hf. kr.
9.633.000,-. Kostnaðaráætlun verk-
fræðilegra ráðunauta Landsvirkj-
unar, Verkfræðistofa Sigurðar
Thoroddsen hf., kr. 10.860.000.-.
Tilboðin verða nú könnuð nánar
með tilliti til útboðsgagna og bor-
in endanlega saman. Að því búnu
mun stjórn Landsvirkjunar taka
afstöðu til þeirra og skýra frá
niðurstöðum sínum í því efni, seg-
ir í frétt frá Landsvirkjun.
Stjórnarfrumvarp um Húsnæðisstofnun ríkisins:
Búseta
reglum
Lánveitingar til
eftir almennum
— segir í meirihlutaáliti félagsmálanefndar neðri deildar
„MEIRIHLUTI nefndarinnar telur að húsnæðissamvinnufélagið Búseti falli
hvorki undir ákvæði um félagslegar íbúðir né Byggingasjóð verkamanna
heldur fengi lán samkvæmt almennum reglum," sagði Halldór Blöndal,
alþingismaður, í gær, er hann flutti álit félagsmálanefndar neðri deildar
Alþingis á stjórnarfrumvarpi félagsmálaráðherra um Húsnæðisstofnun ríkis-
ins. Félagsmálaráðherra, Alexander Stefánsson, telur, að reynist álit meiri-
hluta nefndarinnar rétt, komi til greina að flytja sérstakt frumvarp þess
efnis, að byggingasamvinnufélög öðlist hliðstæðan rétt til lána og til félags-
legra fbúða.
Halldór Blöndal var inntur eftir
því á hverju álit meirihluta nefnd-
arinnar byggðist, og svaraði hann
á þessa leið: „Eins og húsnæðis-
samvinnufélagið Búseti er byggt
upp, er gert ráð fyrir því, að leigj-
andi standi undir vöxtum, afborg-
unum af lánum, viðhaldi og öllum
sameiginlegum kostnaði, eða
greiði með öðrum orðum jafnmik-
ið og kaupandi íbúðar í verka-
mannabústað. Munurinn er ein-
ungis sá, að sá sem er í verka-
mannabústað eignast sína íbúð
smátt og smátt meðan hinn fær
óskilgreindan búseturétt án
neinnar tryggingar fyrir því hver
staða hans verður, verði viðkom-
andi húsnæðissamvinnufélag
gjaldþrota. Það er ekki hugsun
Sjálfstæðisflokksins að þessi
óskilgreindi búseturéttur leysi
verkamannabústaðakerfið af
hólmi, en meginkostur þess er ein-
mitt sá, að viðkomandi lágláuna-
maður fær tækifæri til að eignast
íbúð á viðunandi kjörum.
1 þeim tölulið, sem oft er vitnað
til af misskilningi varðandi Bú-
seta, eru opnaðir möguleikar á því,
að unnt sé að veita rífleg lán til
þeirra sem vilja byggja leiguhús-
næði fyrir aldraða eða öryrkja, þó
þannig að fullt endurgjald komi
ekki fyrir, en eins og allir vita
skortir mikið á að húsnæðismál-
um þessa hóps þjóðfélagsins hafi
verið komið í viðunandi horf. Mað-
ur getur hugsað sér, að sveitarfé-
lög, stéttarfélög eða Dvalarheimili
aldraðra sjómanna nýttu sér
þennan rétt. Eins er opnuð sú leið,
að fá fé úr félagsmálakerfinu til
byggingar hjónagarða fyrir fram-
haldsskóla- eða háskólanemendur,
enda séu þeir reknir með svipuðu
sniði og stúdentagarðarnir.
Sjálfstæðisflokkurinn er síður
en svo á móti þvf að leiguíbúðir
fyrir almennan markað séu reist-
ar, en þeir, sem það gera, verða að
vera reiðubúnir til að starfa á
jafnréttisgrundvelli. Að öðrum
kosti eru þeir að fara fram á lána-
fyrirgreiðslu, sem hlýtur að bitna
á öðrum, og það sjá allir að út í
slikt er ekki hægt að fara.“
Meirihluti félagsmálanefndar
neðri deildar flytur breytingartil-
lögur þess efnis við frumvarp fé-
lagsmálaráðherra, að víkkaðar
verði heimildir til útrýmingar
heilsuspillandi húsnæðis, þannig
að lánveitingar í því skyni verði
ekki bundnar við sveitarfélög og
að félagsmönnum í byggingarfé-
lagi verkamanna, sem annast við-
hald á íbúðum félagsmanna sé
heimilt að stofna húsfélög í sam-
ræmi við ákvæði laga um fjölbýl-
ishús, þannig að húsfélögin taki
sameiginlegt viðhald í sínar hend-
ur.
Stjórnarfrumvarp
um ríkisfjármál:
Skólaskylda
verði áfram
átta ár
f stjórnarfrumvarpi um ráðstafan-
ir í ríkis- og lánsfjármálum, sem for-
sætisráðherra sagði í viðtali við blm.
Mbl. í gærkvöldi, að lagt yrði fram á
Alþingi í dag, er sérstök grein sem
heimilar stjórnvöldum að fresta enn
lengingu skólaskyldu úr átta árum í
níu, eins og hin nýju grunnskólalög
segja til um.
Allt frá samþykkt grunnskóla-
laganna hefur heimilda verið afl-
að til að fresta því að skólaskyldan
verði lengd í níu ár úr þeim átta,
sem skólaskylda er í nú. í stjórn-
arfrumvarpinu, sem forsætisráð-
herra flytur, er enn á ný gert ráð
fyrir að afla umræddrar heimild-
ar.
Skákmótið í New York:
Browne fórnaði
drottningu
þegar Helgi
bauð hrókinn
JÓHANN Hjartarson vann Banda-
ríkjamanninn DeFirmian í 7. umferð
alþjóðlega skákmótsins í New York,
en Helgi Olafsson tapaði fyrir Walt-
er Browne í spennandi skák. Helgi
fórnaði hrók, en Browne bætti þá
um betur og fórnaöi drottningu sinni
og vann og Helgi tapaði þar með
sinni fyrstu skák í mótinu, en Jó-
hann hefur unnið tvær skákir í röð.
Þeir hafa báðir hlotið 4 vinninga, en
efstur eru Portisch og Kurevic með
5Vz vinning.
„Aðstæður til taflmennsku eru
ákaflega slæmar. Mun verri en við'
eigum að venjast á íslandi. Þannig
er teflt með plasttaflmönnum af
ódýrustu gerð. Mjög þröngt er um
keppendur, hávaði í skáksal mikill
og engin lýsing, dagsbirta er látin
nægja," sagði Jóhann í samtali við
blm. Mbl. í gær. „Verðlaunin eru
mjög há, fyrstu verðlaun 18 þús-
und dalir og 2. verðlaun 10 þúsund
dalir og það er eins og annað
skipti ekki máli fyrir bandaríska
skákmenn. Ef verðlaunin eru nógu
há, þá skipta aðstæður engu. Það
hefur vakið athygli að fimm skák-
menn hafa hætt keppni, sjálfsagt
verið óánægðir með eigin frammi-
stöðu og ekki talið ástæðu til að
tefla frekar. Þetta eru Lombardy,
Bisguier, Shirage, Byrne og
Weinstein," sagði Jóhann
Hjartarson.
Jóhann vann Ree
JÓHANN Hjartarson vann hol-
lenska stórmeistarann Hans Ree i
8. og næstsíðustu umferð alþjóð-
lega skákmótsins í New York í
Bandaríkjunum. Þar með hefur
Jóhann unnið þrjár skákir í röð,
Bandaríkjamennina Shirage og
DeFirmian og Ree nú. Helgi
ólafsson gerði jafntefli við Zuck-
erman.
Jóhann Hjartarson hefur hlotið
5 vinninga og Helgi 4'k. Efstir eru
Portisch, Ungverjalandi, Gurev-
ich, Bandaríkjunum og Dzhindzi-
hashvili, ísrael, með 6 vinninga.
Embætti ríkislögmanns:
Tveir
sóttu um
TVEIR menn sóttu um embætti
ríkislögmanns. Annar óskaði nafn-
leyndar, hinn er Gunnlaugur Claes-
sen.
Um leið og staða ríkislögmanns
var auglýst laus til umsóknar var
staða ríkisbókara einnig auglýst.
Nöfn umsækjenda um þá stöðu
liggja ekki fyrir fyrr en í vikulok.