Morgunblaðið - 03.05.1984, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 1984
5
Cieselskifeðgum vísað
úr landi árið 1978
eftir fimm daga
eltingarleik víðs
vegar um landið
í JÚNÍ 1978 var feðgum að
nafni Cieselski frá Köln í
V-I>ýzkalandi vísað úr landi eftir
mikinn eltingarleik, sem stóð í
fimm daga. Engin fálkaegg, né
ungar fundust í bifreið þeirra þó
þeir hefðu legið undir grun að
ætla að ræna fálkahreiður. I*eir
höfðu fullkominn sigbúnað,
tæki til þess að geyma egg og
fóru um kunnustu fálkasvæði
landsins. Feðgar þessir hafa ver-
ið mikill þyrnir í augum ís-
lenzkra stjórnvalda. Grunur lék
á að Cieselski hafi komið við
sögu þegar fimm fálkaungar
fundust í tösku á Keflavíkur-
flugvelli í júní 1976.
Svo mjög hafa íslenzk
stjórnvöld verið á varðbergi,
að þegar sonurinn Lothar Ci-
eselski kom hingað til lands
árið 1982 ásamt konu sinni, þá
var gerð leit í farangri þeirra.
Við leit fannst sigbúnaður,
fullkomin tæki til þess að
varðveita egg og kort þar sem
helstu fálkaslóðir voru merkt-
ar inná. Þeim var ekki vísað úr
landi, en yfirgáfu landið eftir
að þeim varð Ijóst að íslenzk
stjórnvöld myndu fylgjast ná-
ið með ferðum þeirra hér á
landi.
Nú leikur grunur á að þýzku
Fálkaungarnir fimm sem fundust á Keflavíkurflugvelli 1976. Cieselski-
feðgar voru grunaðir um að hafa verið þá á ferð.
hjónin, sem úrskurðuð hafa
verið í gæzluvarðhald í Saka-
dómi Reykjavíkur, séu á snær-
um feðganna í Köln. Fyrir
skömmu fundust þrír ungir ís-
landsfálkar hjá feðgunum í
Köln, samkvæmt heimildum
Mbl. Hjónin komu hingað til
lands í fyrra og leikur grunur
á að þau rænt hreiður hér á
landi og haft með sér egg eða
fálkaunga.
Flaggað með rauðu hjá Nýja Garði.
Morgunblaðið/ÓI.K.M.
Flaggað með rauðu á fyrsta maí
RAUÐUR FÁNI blakti við hún hjá Nýja Garði á haráttudegi verkalýðsins, hinn 1.
maí, og vakti athygli vegfaranda, sem leið áttu um háskólasvæðið þennan dag.
Að sögn umsjónarmanns Háskólans, Elísabetar Jónsdóttur, var ekki flaggað að
undirlagi háskólayfirvalda og sjálf kvaðst hún ekki hafa vitað um fánann fyrt en
eftir á. Taldi hún líklegt að íbúar Nýja Garðs eða þá cinhverjir aðilar úr
Stúdentaráði hefðu átt frumkvæðið að því að minnast verkalýðsbaráttunnar með
þessum hætti.
Finnbogi Magnússon
látinn
FlNNBOGl Helgi Magnússon, skip-
stjóri, á Patreksfirði er látinn 52 ára
að aldri.
Hann fæddist á Hlaðseyri við
Patreksfjörð 28. maí og var sonur
hjónanna Magnúsar Jónssonar
bónda þar og Kristínar Finnboga-
dóttur. Finnbogi hóf sjómennsku og
trilluútgerð með bræðrum sínum 14
ára gamall og var eftir það nánast
óslitið á sjó og skipstjóri frá 1952.
Hann lauk hinu meira fiskimanna-
prófi frá Stýrimannaskólanum í
Reykjavík 1958. Mörg seinni árin
var hann jöfnum höndum úrgerðar-
maður og skipstjóri og landskunnur
aflamaður. Hann var fjögur ár í röð
aflahæstur yfir landið á vertíðum.
Finnbogi var skipstjóri á 9 bátum,
meðal annarra Helga Helgasyni og
Helgu Guðmundsdóttur.
Eftirlifandi kona Finnboga er
Dómhildur Eiríksdóttir.
MEST SELDIBÍLL Á ÍSLANDI
Frá því FIAT UNO var kynntur á miöju s.l. ári hefur hann selst meiia en nokkur annar
sinstakur Jbíli hér á landi.
FRÁBÆRT VERÐ
FIAT UNO er fullur aí gœðum
og glœsileika. Samt getum viö
boðið hann á sérlega góðu
verði, írá
kr. 229.000.-
KJÖR VTÐ ALLRA HÆFI
Aí viötökunum sem UNO heíur íengiö er ljóst aö allir viljc
eignast þennan metsölubíl. Viö viljum leggja okkar af
mörkum til þess aö svo megi veröa og reynum því aö
sveigja greiðslukjörin aö getu sem flestra.
JEGILL
r VILHJÁLMSSON HF.Á
SmiOjuvegi 4, Kópavogi. Simar 77200 - 77202.