Morgunblaðið - 03.05.1984, Page 19
Nú bjóöum vió tréstiga trá stœrstu stigaverksmiöju á
Noröuflörvdum, Trðtrappor, i Noröur-Sviþjóö. Stigar
sem standast hœstu gaBöakrötur á veröi sem þú
ræöur viö.
EDA EIGANDI HÚSNÆDIS
SEM ÞARFNAST VIOHALDS?
ÞÁ LIGGUR LEIDIN TIL OKKAR.
ÞVl A 300 FERMETRA GRUNN-
FLETI SÝNUM VIÐ HINAR
VIDURKENNDU
KALMAR-INNRÉTTINGAR
ASAMT FJÖLDA ANNARRA
VÖRUFLOKKA SEM TENGJAST
HÚSBYGGINGUM OG VIÐHALDI
HÚSNÆDIS ÞÍNS.
, ERT ÞU
HUSBYGGJANDI?
Líttu Inn — Sjón er sögu ríkarl
Kalmar-eidhúsiö hefur löngum veriö í öndvegi haft.
Urvaliö er mikiö og veröiö kemur þór á óvart.
Raforkuverð á
Suðurnesjum
lækkar um 15%
RAFVEITIFR á Suöurnesjum lækk-
uöu taxta sína aö meðtaltali um u.þ.b.
15% frá og með 1. maí. Sagði Sævar
Sörensson, rafveitustjóri í Keflavík
og formaður stjórnar Rafveitu
Reykjaness, að erfitt væri að henda
reiður á meðaltalslækkun en ofan-
greind tala væri nærri lagi. Lækkunin
væri þó ekki alls staðar hin sama hjá
rafveitunum sex á Reykjanesi. Sumar
lækkuðu taxtana eilítið meira, aðrar
aðeins minna.
Að sögn Sævars er þessi lækkun
m.a. afleiðing af mikilli uppstokk-
un gjaldskráa rafveitna á Suður-
nesjum. Upphaflega átti að sam-
ræma taxtana en þegar til kast-
anna kom voru ekki allir á eitt
sáttir. Frávikin frá meðaltalinu
sagði hann þó vera lítil. Hvað Rafv-
eitu Keflavíkur snerti sagði hann
t.d., að hæsti taxtinn, sem verið
hefði kr. 18,80 á Kw-stund, færi nú
niður í kr 4,20. Hér væri um 77%
lækkun að ræða, en dæmið væri
óvenjulegt. Heimilstaxtar lækkuðu
úr kr. 4,77 á Kw-stund í 4,20. Með-
altalslækkun til heimila væri þó
ekki nema um 5% þegar allt væri
tekið með í reikninginn, fastagjald,
mælaleiga o.fl.
Um ástæðu þessarar lækkunar
sagði Sævar, að rafveitur á Suður-
nesjum hefðu einfaldlega verið mef
hærri taxta en víða um land. „Þeii
hæstu voru hreinlega óforsvaran-
legir,“ sagði Sævar. Sökum minni
útþenslu í raforkukerfinu í Kefla-
vík og breyttra efnahagsaðstæðna
hefði nú loks gefist tækifæri til
lækkunar.
Landsvirkjun hækkaði heildsölu-
taxta sinn um 5% þann 1. maí og
Rafmagnsveitur ríkisins gerðu
slíkt hið sama. Hvorki Rafmagns-
veitur ríkisins né Rafmagnsveita
Reykjavíkur ætla þó að að hækka
smásöluverð raforku til hins al-
menna kaupanda.
Kalmar-baöinnréttlngar eru fáanlegar i þremur mis-
munandi geröum Skemmtileg hönnun og létt yfir-
bragö. Hér kemur veröió þér einnig þœgilega á óvart.
System Flex-innréttingar fyrlr hreyfihamlaöa eru viö-
urkennd vara sem uppfyllir allar kröfur sem geröar
eru tH slíkra innréttinga.
Kalmar
SKEIFAN 8 -108 REYKJAVÍK - SlMI 82011
Perstorp System 080 er eitt hentugasta veggjakerfiö
tll þess aö stúka af snyrtiaöstööu, búningsklefa og
ýmislegt fleira í stœrri byggingum og féiagsaöstööu
Weland-hringstigarnír eru framleiddir af stœrsta
hringstigaframleiöanda í Evrópu og eru fáanlegir í
mörgum mismunandi geröum til notkunar innanhúss
og utan
Þórshöfn, Færeyjum:
íslendingur opnar
fyrstu fiskbúðina
UM MIÐJAN marzmánuð var
opnuð í Þórshöfn í Færeyjum
fyrsta eiginlega fiskbúðin í Færeyj-
um, Fiskabúðin. Eigendur hennar
eru Rosa Winther og Vigfús Jóns-
son, en eins og nafnið ber með sér
er Vigfús íslenzkur að uppruna, en
hann hefur dvalið í Færeyjum í um
8 ár.
Vigfús Jónsson sagði í samtali
við Morgunblaðið, að það væru
um 8 ár síðan hann hefði komið
til Færeyja og nær allan tímann
hefði hann unnið í fiski hjá
Bacalao. Hann hefði verið orðinn
heldur leiður á því og því gripið
til þess ráðs að stofna fiskbúð
með konu sinni. Hann sagði
verzlunina ganga vel og fólk
ánægt með að fá þessa þjónustu,
sem legið hefði niðri síðan Baca-
lao hætti að selja ferskan fisk.
Hins vegar yrði ekki aðeins
ferskur fiskur til sölu í Fiska-
búðinni, heldur einnig saltaðar
kinnar, siginn fiskur, fugl og
grind, svo eitthvað væri nefnt.
Þá yrðu einnig seldar þar kart-
öflur og fleira sem málsverði
heyrði til.
Vigfús sagði, að búðinni hefðu
þau komið á fót í samstarfi við
frystihúsið Bacalao, Fiskasöluna
og Heilsufröðiligu Starvsstov-
una, en vörurnar fengi búðin frá
Fiskasölunni, Bacalao, Samm-
Fisk og smáum dagróðrabátum.
Vigfús sagðist bjartsýnn á fram-
tíðina og bað að lokum að heilsa
heim til íslands.
Vlftuháfar, hvitlr, svartir og úr kopar. Fáanlegir á
vegg eöa fritt hangandi Margar geröir
Múrsteinaklaaöningin frá Kalmar er einstök klaBÖning
sem gefur húsinu sérstakt útlit. Viöhaldslaus, einföld
randi
klæön
Perstorp-gólfiö fer sigurför um heiminn Þægiiegt aö
leggja. viöhaldslaust og níösterkt. 9 tegundir
Kalmar-fataskáparnir eru fáanlegir í mörgum geröum
og stæröum, sem aölaga má hvaóa rými sem er.
Akureyri:
Lionsmað-
ur bitinn af
hundi lög-
reglumanns
Akureyri, 30. apríl.
LIONSMAÐUR einn á Akur-
eyri varð fyrir óskemmtilegri
reynslu í gærkvöldi þegar hann
var að bera út blað, sem
Lionsmenn gefa út í tilefni af
landssöfnun sinni til kaupa á
augnlækningatækjum til fjórð-
ungssjúkrahússins.
Er hann kom með blaðið að
húsi einu innarlega í bænum
tók húsbóndinn þar, sem
reyndar er aðstoðaryfirlög-
regluþjónn bæjarins, vel á
móti honum en það gerði hins
vegar ekki tík mikil, sem til-
heyrir embættinu. Hún réðst
að blaðburðarmanninum og
beit hann í handlegginn svo
úlpa hans rifnaði án þess þó
að hann slasaðist og lá við að
tíkin skellti manninum til
jarðar. Hann lagði á flótta,
komst inn í bíl sinn og ók á
brott. Málið mun vera komið
til tryggingarfélags hundsins
sem greiða verður skaðabæt-
ur vegna skemmda á fatnaði.
— GBerg.
Hinir vinsœlu handklœða- Nýi Topp-ofninn, gæða
ofnar í mörgum stærðum. ofn á góðu verði.
Þil-ofninn, fallegurog vandaður.
H/F OFNASMIÐJAN
HÁTEIGSVEGI 7, S: 21220
SMIÐJUBÚÐIN
HÁTEIGSVEGI 7, S: 19562-21220
m