Morgunblaðið - 03.05.1984, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 1984
1. maí í Moskvu
Leiðtogar flokks og ríkis í Sovétríkjunum fylgjast hér með 1. maí hátíðahöldunum í Moskvu frá grafhýsi
Lenins. Þeir eru frá vinstri: A. Yepishev, V. Kulikov, N. Ogarkov, D. Ustinov, K. Chernenko, forseti
Sovétríkjanna og leiðtogi kommúnistaflokksins, N. Tikhonov, V. Grishin, A. Gromyko, M. Gorbachev og
G. Romanov.
1. maí í Chile:
Fjölmennir útifundir
stjórnarandstæðinga
Santiago, 2. maí. Al*.
LÖtíREGLAN í Santiago í ('hile bcitti
í gær gúmmíkúlum, táragasi og
vatnsslöngum gegn hundruðum and-
ófsmanna, sem svöruöu með áköfu
grjótkasti. Gerðist þetta á útifundi
andstæðinga herstjórnarinnar, sem
haldinn var í tilefni verkalýðsdagsins
I. maí.
Af hálfu stjórnvalda var skýrt frá
því, að 30 manns hefðu særst og 80
verið handteknir í þessum átökum,
sem stóðu yfir í þrjár klukkustundir.
Miklar truflanir urðu á 1. maí göngu
Miklar aðgerðir
gegn skæruliðum
San Salvador. 2. maí. AP.
HERLIi) stjórnarinnar í El Salvador
hóf í dag miklar aðgerðir gcgn skæru-
liðum í norðausturhluta landsins. Nýt-
ur stjórnarherinn aðstoðar bæði
herflugvéla og stórskotaliðs. Helzta
markmiðið með þessum aðgerðum er
að friða Capanashéraðið fyrir forseta-
kosningarnar á sunnudag, svo að íbúar
þar geti kosið óhindraðir.
í þessu herliði eru um 3.000 manns
og á það að leggja til atlögu við upp-
reisnarmenn á svæðinu milli borg-
anna Tejutepeque og Jutiapa rúm-
lega 60 km fyrir norðaustan höfuð-
borgina. Skýrði Jaime Flores, yfir-
maður stjórnarliðsins, frá þessu á
fundi með fréttamönnum í dag.
Hann sagðist álíta, að um 900
skæruliðar væru á þessu svæði. 1 dag
gerðu skæruliðar þessir árásir á
margar minni varðstöðvar stjórn-
arhersins á þessu svæði og felldu þá
tvo hermenn í grennd við Ilobasco.
verkamanna, þeirri fyrstu sem fram
hefur farið í Chile, síðan herstjórnin
komst til valda þar í landi fyrir 10
árum. Gangan fór þó ekki út um þúf-
ur, enda tóku þátt í henni yfir
100.000 manns. Er útifundurinn, sem
haldinn var í kjölfar göngunnar, tal-
inn einhver sá áhrifaríkasti, sem
andstæðingar herstjórnarinnar hafa
nokkru sinni haldið.
Til mikilla mótmælaaðgerða kom
einnig í borginni Concepcion og
mörgum öðrum borgum landsins og
beitti lögreglan þar óspart vatns-
slöngum og táragasi gegn andófs-
mönnum.
Pinochet, forseti herstjórnarinn-
ar, sagði á útifundi með 4.000 verka-
mönnum, sem vinna að því að reisa
raforkuver um 300 km fyrir sunnan
Santiago, að á næsta ári yrðu sett
lög til undirbúnings almennum þing-
kosningum f landinu. Hópar verka-
manna, sem í væru kommúnistar
undir áhrifum frá Sovétríkjunum,
reyndu hins vegar að spilla fyrir öll-
um áformum um að koma á frjálsum
kosningum í landinu.
Mondale er
óstöðvandi
Washington, 2. maí. AP.
WALTER F. Mondale bar sigurorð af
Gary Hart í forkosningum demókrata í
Tennessee í gær, þriðjudag, og telur nú
miklar likur á því, að honum takist að
gera út um keppnina eftir útnefningu
flokksins áður en að landsfundi kemur
í júlí. Jesse Jackson vann sinn fyrsta
sigur í forkosningunum í District of
('olumbia.
Mondale fékk 42% greiddra at-
kvæða í Tennessee og kom næstur á
eftir Jackson í DC, District of Col-
umbia, sem er höfuðborgin, Wash-
ington, og héraðið um kring og nýtur
ekki ríkisréttinda. Mondale þarf nú
aðeins að fá helming þeirra kjör-
manna sem eftir er að kjósa um til
að vera öruggur um útnefningu í
fyrstu umferð á landsþingi. Hart
þarf hins vegar að fá 91% kjörmann-
anna sem eftir eru, til að setja
Mondale stólinn fyrir dyrnar.
Á laugardag verða forkosningar í
Texas og enn einu sinni er sagt um
Hart, að nú verði hann að sigra eða
leggja upp laupana ella. Hart er hins
vegar borubrattur og segir, að bar-
áttan haldi áfram og ljúki ekki fyrr
en með landsfundinum.
Indland:
Sikhar fella
þrjá hindúa
Amrit.sar, Indlandi, 2. maí. AP.
HRVÐJUVERKAMENN sikha í Punjab
Kongress-flokknum, flokki Indiru Gandhi
rnanna, sem þeir felldu þcgar þeir skutu á
dag.
Stjórnin í Nýju-Delhi hefur fram-
lengt um tvö ár bann við tveimur
aðskilnaðarhreyfingum meðal sikha
en þær berjast fyrir sjálfstæðu ríki
sikha, sem kallast „Khalistan",
„Land hinna hreinu". Stjórnin hefur
itrekaö við þingið, að hún muni aldr-
ei fallast á þessar kröfur sikha.
Lögreglumenn sitja enn um must-
eri fyrir utan borgina Amritsar en
á Indlandi hafa myrt frammámann í
, forsætisráðherra, auk tveggja annarra
hóp hindúa. Skýróu yfirvöld frá þessu í
það er mikill helgidómur í augum
sikha. Þar leituðu tveir sikhar hælis
eftir að hafa myrt uppgjafa lög-
regluforingja, eiginkonu hans og
lífvörð sl. mánudag. Fimm æðstu
prestar sikha hafa varað stjórnvöld
við og segja að ef umsátrinu ljúki
ekki brátt muni þeir neyðast til að
skera upp herör gegn yfirvöldunum.
--^
■ pva m mm*. Æl
FIORDA
FYRIRTVO!
auk þess eru 25 aukavinningar,
hver þeirra kassi af Svala 1 /4 Itr. fernum
Svar:
D “> s§r7oo
B ?! éfn-ooo
■II
j aPPels?nusa7aTbvímathreinum |
I Sva/a, sem srsfhf ?agni af
| niarsi984? ■ sQldi á íslandi í \
Svar:
n aJ 2756
H b\ 27.560
U c) 275.600
Ertu ekki til í Svalandi Sumarferð til Flórída í tvær vikur?
Vertu með í Svala sumargetrauninni, það veitir þér möguleika á að dveljast á
Flórída í tvær vikur með ...? þú ræður.
Nafn:.
Heimili:.
Sími:
Sendið svörin til: Sól hf. „Svala sumargetraun" Þverholti 19 105 Fteykjavík
Svörin þurfa að berast okkur fyrir kl. 5 e.h. þriðjudaginn-8. maí n.k.
Hva6 voru "“jjjf “ágma’ísva'.a
1984?
Svar:
n a) 4 490
n b) 44 900
Q c) 449-000
w ■ aw m ■ » • « ^
| || ■ ■■ 1
\ j sval\Zn°ul há°mSíUdrykkt
■ sinn? márnarkaðinní‘
Svar:
n mars 82
n bJr mars 88
L- - ' c) rrtars '84