Morgunblaðið - 03.05.1984, Síða 28
fr8€r ÍAM .8 HUOAOUTMMI'? .GIGA iaMIIOííOM
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 1984
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Lagerstarf
Óskum aö ráöa mann til lagerstarfa.
Brauö hf.
Skeifunni 11.
Tónlistaskólinn
í Grindavík
óskar eftir skólastjóra.
Upplýsingar um starfið gefa Ástbjörn Egils-
son, formaður skólanefndar og Jón Hólm-
geirsson, bæjarritari.
Umsóknarfrestur er til 1. júní nk.
Tónlistarskóli Grindavíkur.
Afgreiðslumaður
Óskum eftir afgreiðslumanni í verslun okkar.
Framtíðarstarf.
Uppl. gefur verslunarstjóri.
Ræsir hf.,
Skúlagötu 59.
Tónlistarskóli
Skólastjóra vantar við Tónlistarskóla á
Hólmavík frá og með 1. september nk.
Upplýsingar veitir Gunnar Jóhannsson í síma
95-3180 á kvöldin.
Allrahanda
starf er laust í heildverslun fyrir hraustan og
reglusaman mann við lager, sendistörf, af-
greiðslu og fleira.
Umsóknir sendist á augl.deild Mbl. merkt:
„Allrahanda — 3082“.
Sumarstörf í
Garðabæ
Eftirtalin störf eru laus til umsóknar.
Störf flokksstjóra við vinnuskóla Garöabæjar.
Starf forstööumanns íþróttanámskeiðs.
Störf 3ja leiðbeinenda við íþróttanámskeið.
Upplýsingar hjá bæjarritara í síma 42311 og
hjá æskulýðsfulltrúa í síma 44220.
Umsóknum skal skilað til bæjarritara eigi
síðar en 10. maí nk.
Bæjarritarinn í Garöabæ.
Frá Menntamálaráðuneytinu
Lausar
kennarastöður
Við Fjölbrautaskóla Suðurnesja í Keflavík
eru lausar til umsóknar kennarastöður í ís-
lensku, erlendum tungumálum, bókfærslu,
vélritun, eðlisfræöi, efnafræöi, liffræöi,
stæröfræði og sérgreinum í rafiðna- og tré-
iðnabrautum.
í einstaka greinum er ekki um fulla stööu að
ræða og þurfa umsækjendur þá að geta
kennt fleira en eina grein.
Viö Fjölbrautaskóla Akraness eru lausar
kennarastöður í stærðfræði, efnafræði og
eðlisfræði.
Viö Vélskóla íslands er laus staða stærö-
fræðikennara.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf skal senda til Menntamálaráðu-
neytisins, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík fyrir
26. maí næstkomandi.
Menntamáiaráöuneytiö.
Rafvirki
óskast til afgreiöslustarfa.
Umsóknir með upplýsingum um aldur og fyrri
störf sendist augl.deild Mbl. merkt: „Rafvirki
— 977“.
Tæknifræðingur
óskast til starfa fyrir Grindavíkurbæ.
Umsóknum verði skilaö til undirritaðs fyrir
15. maí nk.
Bæjarstjórinn í Grindavík.
Stúlka óskast
Viljum ráða stúlku, helst 17—19 ára til að sjá
um tvö börn og heimili frá 1. júní til 4.
september.
Upplýsingar í síma 95-1012.
Stúlkur
Getum bætt við nokkrum stúlkum til starfa í
verksmiðju okkar.
Kexverksmiöjan Frón hf.,
Skúlagötu 28.
Norðurlandaráð óskar eftir að ráða
ritara samgöngu-
málanefndar
Norðurlandaráðs
Forsætisnefnd Norðurlandaráðs auglýsir
lausa til umsóknar stöðu ritara samgöngu-
málanefndar Norðurlandaráðs. Staðan er
laus frá 1. september 1984.
í Noröurlandaráði starfa saman ríkisstjórnir
og þjóðþing Norðurlanda.
Samgöngumálanefnd Norðurlandaráðs fjall-
ar meðal annars um samstarf landanna um
samgöngu- og flutningsmál, ferðamál, um-
ferðarmál, fjarskiptamál og tölvutækni innan
þessara málaflokka.
Ritara nefndarinnar ber aö undirbúa nefnd-
arfundi, semja drög að nefndarálitum og
ályktunum um þau mál, sem fyrir nefndinni
liggja. Auk þess ber honum að sinna almenn-
um ritarastörfum fyrir nefndina . Ritarinn hef-
ur aðsetur í Stokkhólmi og starfsaðstöðu á
skrifstofu forsætisnefndar Norðurlandaráðs,
sem er við Tyrgatan 7, Stockholm.
Ritarastaðan er veitt til fjögurra ára, en
mögulegt er í vissum tilvikum að fá ráðn-
ingarsamning framlengdan. Ríkisstarfsmenn,
sem starfa hjá Norðurlandaráði, eiga rétt á
fjögurra ára leyfi frá störfum í heimalandi
sínu.
Föst laun ritara samgöngumálanefndar verða
á bilinu 10.286—12.851 sænskar krónur á
mánuði auk staðaruppbótar. Við ákvörðun
um launakjör er tekið tillit til fyrri starfa,
hæfni og reynslu. Staða þessi er einungis
auglýst á íslandi. Góð kunnátta í dönsku,
norsku eða sænsku er nauðsynleg.
Nánari upplýsingar um stöðuna veita Friðjón
Sigurösson, skrifstofustjóri Alþingis, í síma
15152, Snjólaug Ólafsdóttir, ritari íslands-
deildar Norðurlandaráðs, í síma 11560,
ásamt llkka-Chrisian Björklund, aðalritara
forsætisnefndar Norðurlandaráðs og Birgi
Guðjónssyni, ritara samgöngumálanefndar
Norðurlandaráðs, í síma 8/143420 í Stokk-
hólmi.
Umsóknarfrestur rennur út 15. maí 1984.
Umsóknum skal beina til forsætisnefndar
Norðurlandaráðs og skulu þær sendar til
Nordiska rádets presidiesekretariat, Box
19506, S 104 — 32 Stockholm.
Hótelstörf
Starfskraftur óskast til afleysinga í gesta-
móttöku og fleira frá 7. maí. Góð málakunn-
átta nauösynleg, t.d. enska, þýska og eitt
norðurlandamál.
Einnig vantar starfskraft til ræstinga á her-
bergjum og fleira.
Upplýsingar á staðnum í dag frá kl. 16—19.
City Hótel, Ránargötu 4.
Kaupfélag
Árnesinga
Starfsfólk óskast í verslun okkar í Þorláks-
höfn.
Uppl. gefur verslunarstjóri í síma 99-3666 —
3876.
Kaupfélag Árnesinga, Þorlákshöfn.
Skrifstofustarf
Óskum eftir að ráða stúlku vana skrifstofu-
störfum til starfa strax. Góð vélritunarkunn-
átta nauðsynleg. Æskilegt að umsækjandi sé
ekki yngri en 25 ára.
Uppl. veitir starfsmannastjóri á staðnum milli
kl. 9—12, uppl. ekki veittar í síma.
Tölvuritari
Óskum eftir að ráða nú þegar tölvuritara
hálfan daginn (f.h.) Allar nánari uppl. á
skrifstofu okkar, Haga við Hofsvallagötu,
ekki í síma.
Verksmiðjan Vífilfell hf.
VISA ÍSLAND
Lausar stööur
til umsóknar
Staða fulltrúa
Þarf að hafa verslunarpróf og reynslu aö al-
mennum skrifstofu- og/eða bankastörfum.
Laun skv. 9. flokki kjarasamnings starfs-
manna bankanna.
Staða
aðstoðarfulltrúa
Þarf að hafa reynslu að almennum skrifstofu-
störfum og/eöa bankastörfum. Góð vélritun-
arkunnátta áskilin.
Laun skv. 8. flokki kjarasamnings starfs-
manna bankanna.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf sendist framkvæmdastjóra fé-
lagsins á starfsumsóknablööum bankanna
fyrir 10. maí.
VISA ÍSLAND,
Austurstræti 7,
Pósthólf 1428, 121 Reykjavík.