Morgunblaðið - 03.05.1984, Qupperneq 46
wöí ».ak .s M'iOAafnmvs ,ajaAjavío;>soM
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 1984
46
Einar setti
mótsmet og
vallarmet
• Stúdentar lögðu Þrótt að velli í úrslitaleik bikarkeppni karla í
blaki fyrr í vor og var þesai mynd tekin viö það tækifæri. Fremri
röð frá vinstri: Kjartan Páll Einarsson, Haukur Valtýsson, Friðjón
Bjarnason, Friöbert Traustason, Páll Svansson. Aftari röð:
Björgólfur Jóhannsson, þjálfari, Indriði Arnórsson, fyrírliði,
Ómar Geirsson, Stefán Magnússon, Þóröur Svanbergsson og
Þorvarður Sigfússon.
„Þetta var mjög glæsilegur
árangur hjá Einari, því aöhlaups-
brautin var oröin eitt moldarbeð
eftir rigningar um nóttina," sagði
Oddur Sigurösson spretthlaupari
um árangur Einars Vilhjálmsson-
ar UMSB á móti í Des Moines í
lowa um helgina, þar sem Oddur
setti glæsilegt met í 400 metra
hlaupi.
„Einar kastaði 85,02 metra og
Sambandsstjórnarfundur ISI:
Styrkur til 16 sérsambanda
innan ÍSÍ nemur 4 milljónum
Sambandsstjórnarfundur ÍSÍ
var haldinn á Hótel Loftleiðum 31.
mars sl. Meðal gesta við setningu
fundarins voru Gísli Halldórsson,
heiöursforseti ÍSÍ, Reynir G.
Karlsson, íþróttafulltrúi ríkísins,
og Gunnlaugur J. Briem, heiöurs-
félagi ÍSÍ.
Forseti ÍSÍ, Sveinn Björnsson,
minntist í upphafi tveggja heiö-
ursfélaga ÍSÍ, Hermanns Stef-
ánssonar, íþróttakennara frá Ak-
ureyri, og Guðjóns Einarssonar,
fyrrv. varaforseta ÍSÍ, sem látist
höfðu frá síðasta sambands-
stjórnarfundi. Vottuöu fundar-
menn hinum látnu virðingu sína
með því aö rísa úr sætum.
i setningarræðu sinni rakti
Sveinn Björnsson helstu mál er
höföu komið til afgreiöslu hjá
framkvæmdastjórn ÍSÍ frá síðasta
sambandsstjórnarfundi 16. apríl
1983. Ennfremur lagöi fram-
kvæmdastjórnin fram vandaöa
skýrslu yfir framangreint tímabil.
Styrkir til
unglingaþjálfara
Eins og undanfarin ár mun
unglinganenfd íþróttasambands
íslands veita styrki til unglinga-
þjálfara sem hyggjast sækja
námskeið erlendis. Að þessu
sinni veröa veittir tveir styrkir að
upphæð 8.000 krónur hvor. Um-
sóknir um styrki þurfa að berast
skrifstofu ÍSÍ fyrir 15. maí nk.
Mörg mál lágu fyrir fundinum og
gerðar voru ýmsar ályktanir og
samþykktir og veröur getið þeirra
helstu:
1. Samþykkt var skipting á út-
breiöslustyrk ÍSl til sérsamband-
anna, en samtals nemur styrkurinn
til 16 sérsambanda ÍSÍ kr.
4.000.000. íþróttasamband fatl-
aöra nýtur sérstaks styrks á fjár-
lögum.
2. Samþykktar voru nokkrar
breytingar á dóms- og refsiákvæö-
um ISl, en sérstök nefnd haföi
unniö aö þeim breytingum.
3. Samþykktar voru samnor-
rænar reglur um lyfjaeftirlit og
breytingar á reglugerö ÍSÍ um þaö
efni.
4. Skýrt var frá nýjum eyöu-
blöðum fyrir starfsskýrslur
(kennsluskýrslur) íþrótta- og
ungmennafélaga, sem taka á í
notkun á næsta ári. Ennfremur var
kynntur sameiginlegur bókhalds-
lykill fyrir íþróttahreyfinguna.
5. Lagt var fram álit nefndar um
almenningsíþróttir. I því kom m.a.
fram, aö í löndum þeim sem Island
hefur mest íþróttaleg samskipti
viö, hefur átt sér stað markviss
þróun á sviöi almenningsiþrótta.
Sú starfsemi er skipulögó meö
ýmsum hætti og m.a. hefur íþrótta-
nefnd Evrópuráösins í Strassborg
(CDDS) unniö sérstaklega aö
þessu verkefni og er meö í deigl-
unni sáttmála Evrópuríkja um þaö
Nefndin hefur á fundum sínum
rætt hinar ýmsu hliöar almenn-
ingsíþrótta og er þeirrar skoóunar,
aö hagkvæmt sé aö stofna sér-
samband innan ISÍ til aö annast
þessi mál. Nefndin fékk heimild til
aö starfa áfram aö undirbúningi
þessa máls og mun skila endan-
legri skýrslu á Iþróttaþingi ISl í
september nk.
6. Samþykkt var aó halda
næsta íþróttaþing ÍSÍ 29.—30.
september 1984 í Reykjavík.
7. Samþykkt var tillaga frá
framkvæmdastjórn ISl um heimild
fyrir inngöngu íþróttadeildar
Hestamannafélagsins Fáks í
Iþróttabandalag Reykjavíkur, aö
því tilskildu aö ákvæöi í sérlögum
íþróttadeildarinnar brjóti eigi í
bága viö lög og reglur ISÍ eöa IBR.
Áöur haföi veriö gengiö úr skugga
um, aö hestaíþróttir, eins og þær
eru skýröar í lögum og keppnls-
reglum íþróttadeildarlnnar, séu
viöurkennd íþróttagrein.
8. Gunnlaugur J. Briem, for-
maöur stjórnar Getrauna, flutti er-
indi um rekstur talnahappdrættis
(lotto).
9. Hannes Þ. Sigurösson, vara-
forseti ÍSÍ, hafði framsögu um fjár-
hagslegan stuóning aöila atvinnu-
lífsins viö íþróttahreyfinguna og
samvinnu þessara aöila.
10. Staöfestar voru lagabreyt-
ingar sem geröar höföu veriö á
lögum Badmintonsambands ís-
lands, Lyftingasambands Islands,
Körfuknattleikssambands Islands
og íþróttasambands fatlaöra.
I kaffihléi skoöuóu fulltrúar viö-
byggingu, sem er í smíöum viö
fþróttamiöstöö ISi f Laugardal.
• Húsavíkurstúlkurnar voru sigursælar í blakinu í vetur, unnu
bæði íslandsmótið og bikarinn. Vöisungar hafa ekki leikið með
í mótum undanfarin ár en hófu að leika aftur í vetur. Þessi mynd
var tekin af þeim eftir aö þær höfðu iagt UBK að velli í úrslitaleik
bikarkeppninnar.
setti bæöi vallarmet og mótsmet.
Aðhlaupsbrautin var á grasi og
var einn forarpyttur eftir rign-
ingar. Miðað við aðstæður jafn-
gildir 85 metra kastið því miklu
lengrí vegalend við góö skilyrði,"
sagöi Oddur.
Þórdís Gísladóttir ÍR og íris
Grönfeldt UMSB kepptu einnig á
mótinu í Des Moines og sigruöu
báöar i sínum greinum. Þórdís
stökk 1,84 metra i hástökki og íris
kastaöi spjóti 160 fet og eina
tommu, eöa tæpa 49 metra.
— ágás.
• Einar Vilhjálmsson, t.v. ásamt
þjálfara sínum, Danny Kniffin.
Einar hefur veriö sigursæll á
fyrstu mótum sínum.
• Sveinn Björnsson forseti ÍSÍ sæmdi hinn kunna frjálsíþróttaþjálfara
Guömund Þórarinsson ÍR æösta heióursmerki ÍSÍ á Sambandsstjórn-
arfundinum.
• Þátttakendur á Sambandsstjórnarfundi fsf voru mjög margir.
„Fegnir að lyfja-
prófunum er lokið
„Við erum fegnir aö þessu skuli
lokiö, þaö tekur vissa pressu af
okkur, sem komin er til vegna
blaöaskrifa heima,“ sagði Oddur
Sigurðsson spretthlaupari úr KR í
samtali við Mbl. eftir methlaup
sitt í Des Moines í lowa. Á mótinu
var mættur Páll Eiríksson trúnað-
arlæknir lyfjanefndar ÍSf og tók
hann þvagprufu af íslenzkum
keppendum á mótinu vegna lyfja-
prófs.
Auk Odds gengust Einar VII-
hjálmsson UMSB, Þórdís Gísla-
dóttir ÍR, íris Grönfeldt UMSB og
Óskar Jakobsson ÍR undir prófiö,
en sá síöastnefndi geröi sér sér-
staka ferö tii lowa vegna prófsins,
en hann keppti ekki í mótinu. Síöar
hélt Páll til Alabama og gengust
þar undir lyfjapróf Þráinn og Vé-
steinn Hafsteinssynir HSK og Sig-
urður Einarsson Ármanni.
„Þetta var allt mjög tæknilegt og
mikil skriffinska i kringum þetta
próf. Páll haföi sér til aðstoðar
bandarískan kunningja sinn, Tom
Ecker, sem er kunnur þjálfari,“
sagöi Þráinn Hafsteinsson.
„Þaö er gott aö þessu er lokiö,
viö höfum legið undir grun eftir
skrif eins blaösins heima á islandi
að undanförnu. Þaö liggja reyndar
allir íslenzku frjálsíþróttamennirnir
undir grun í framhaldi af þeim, og
sú ósk okkar aö allir yröu prófaöir
var ekki tekin til greina. Ég baö
formann lyfjanefndarinnar um aö
allir yröu prófaöir, en því var svar-
aö að prófaö vær i samkvæmt
beiöni Ólympíunefndar islands,
sem óskaöi aöeins aö ólympíu-
kandidatar yröu prófaöir. Að-
spuröur kvaöst Páll engar skýr-
ingar hafa á því hvers vegna aö-
eins hluti hópsins hér og í Texas
væri prófaöur og hvers vegna
hann færi ekki til Kaliforníu, þar
sem fimm frjálsíþróttamenn æfa,“
sagöi Þráinn.
Þvagsýnin, sem tekin voru
vestra, veröa send til rannsóknar í
Stokkhólmi og liggja niöurstöður
ekki fyrir fyrr en aö nokkrum vikum
liönum.
— ágás.