Morgunblaðið - 27.10.1984, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 27.10.1984, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 1984 13 Léttur í spori Leiklist Bolli Gústavsson Leikfólag Akureyrar Einkalíf Höfundur: Noel Coward Leikstjóri: Jill Brooke Árnason Hönnun leikmyndar og búninga: Una Collins Lýsing og leikhljód: Alfreó Alfreðsson Þýðing: Signý Pálsdóttir og Jill Brooke Árnason. Þann 14. september sl. hóf Leikfélag Akureyrar nýtt leikár með frumsýningu á gamanleikn- um Einkalífi, „Private lives", eftir Noel Coward. Þessi létti skemmtunarleikur hefur notið fádæma vinsælda i meira en hálfa öld; sérstaklega í hinum enskumælandi heimi. Raunar er það mesta furða um jafn létt- vægan skáldskap og lítt frum- legt sviðsverk, en sennilega hef- ur það notið meðbyrs af a.m.k. þremur ástæðum. í fyrsta lagi var leikritið nýstárlegt í upp- hafi, þá drógu vinsældir höfund- arins ekki úr gengi þess, en hann var í meira lagi fjölhæfur, og í þriðja lagi vegna þeirra mörgu frægðarleikara, er hafa leikið í því, bæði austan hafs og vestan. Fyrst skal fræg telja Noel Cow- ard sjálfan og leikkonuna Ger- trude Lawrence. Með þeim léku þá sir Laurence Olivier og Adri- anne Allen. Var leikritið þá bæði sýnt í London og New York. Síð- an hafa vinsældir þess ekki dvin- að og óteljandi stjörnur sýnt hlutverkum Elyot og Amöndu áhuga. í maí 1983 var Einkalíf enn frumsýnt á Broadway og þá með Elizabeth Taylor í hlutverki Amöndu og Richard Burton í hlutverki Elyots. Þeir, sem þekkja efnisþráð leikritsins, skilja, hversu ágætlega það hef- ur hentað þeim frægðarhjúum. En, sem fyrr segir, þá nýtur þetta verk ekki síst vinsælda höfundar síns, sem setti mjög svip á skemmtana- og leikhússlíf á þriðja áratugnum og miklu lengur. Auk þess átti hann eftir að koma við í heimi kvikmynd- anna og má geta þess i leiðinni, að Einkalíf var tvisvar kvik- myndað á fjórða áratugnum. Þá má geta þess, að þau leikrit sem Danir kalla „salonkomedie", og helst er hægt að kalla ein- skonar stofuskopleiki, blómstr- uðu mjög á millistríðsárunum. Þau verk voru yfirleitt sneydd skáldlegu ívafi. Tækniþróun og áhrif nýrra uppgötvana settu svipmót sitt á menningarlífið og þá ekki síst á leiklist líðandi stundar. Bifreið og simi urðu almenningseign. Þá færðist öfgakennt fjör í sam- kvæmishætti þeirra stétta, sem betur máttu sín og nefndust „fínar“. Viðmót fólks varð frjáls- íegra. Þetta leiddi til þess, að auðveldara varð fyrir höfunda að móta frjálsleg og eðlileg sam- skipti persóna á leiksviði, og margir sömdu þá verk, sem bæði voru raunsæ og athyglisverð. Þeim, sem þekkja til verka Noel Cowards, ber saman um, að þótt þau risti hvorki mjög djúpt i hugsun eða tilfinningum, veki þau eigi að síður áhorfendur til umhugsunar og megi teljast líf- ræn leikhússverk. Og menn hika ekki við, að nefna hann í sömu andrá og listamennina Evelyn Waugh, Huxley og Somerseth Maugham. Þótt hann þoli engan vegin samanburð við þá sem rit- höfundur, hefur persónuleikinn sennilega bætt það upp; töfrar, sem ekki gleymast og settu sannarlega svip á ákveðið tíma- bil í sögu þjóðar hans. Sýning Leikfélags Akureyrar á þessu kunna verk nýtur þess, að leikstjórinn, Jill Brooke Árnason, skilur það og hefur þar að auki með sér samlanda sinn og Noel Cowards, Unu Collins, sem hannað hefur leikmynd og búninga eins og best verður á kosið. Gengur allt liðlega á svið- inu, snuðrulaust og með hröðu „tempói“, sem er nauðsynlegt í þessu tilviki. Leikritið hefur ver- ið endurþýtt af þeim Signýju Pálsdóttur og Jill Brooke Arna- son. Er ekki að heyra annað, en vel hafi verið að því verki staðið, málfarið slétt og fellt eins og hæfir leikritinu. Það er ástæða til þess að taka það fram, að menn fara í leikhús i þetta sinn, til þess eins að skemmta sér og nema hugblæ liðinna daga. Fer einkar vel á því, að í hléum er leikin tónlist af plötunni „Noel Coward í Las Vegas“. Að þessu sinni er ekki að tala um minnistæða leiksigra, en handbragð leikaranna er gott, þegar á heildina er litið. Mikil áhersla lögð á svipbrigði og hreyfingar, sem þeir ráða yfir- leitt við. Mikið veltur á góðum samleik þeirra Sunnu Borg og Gests E. Jónssonar í hlutverkum Amöndu og Elyots. Þeim tekst oft vel upp, ekki síst, þegar þau sitja saman til borðs með Vikt- ori og Sibyl, sem leikin eru af Theodóri Júlíussyni og Guðlaugu Maríu Bjarnadóttur. Þar var vel haldið á svipbrigðum og við- brögðum. Patrisía Jónsson leik- ur Louise, franska þjónustust- úlku, með miklum ágætum. Ekki var annað að heyra, en leikhúsgestir á Akureyri skemmtu sér vel á frumsýningu. Löngum hefur þótt skynsamlegt að halda hægt og hóglega úr hlaði, þegar lagt er í ferðalag. Þann kost hefur LA tekið nú, enda bíða framundan átaka- meiri verkefni, sem fróðlegt verður að sjá. 43307 Opið kl. 1—4 í dag Furugrund mjög góö 2ja herb. íbúð á 1. hðBÖ. Verö 1500 þús. Birkihvammur Goö 3ja herb. neöri hæö i tvibýll. Góöur staöur. Verö 1750 þús. Kársnesbraut 3ja herb. íbúö á 1. hæö í nýlegu fjórbýl- ishúsi ásamt 25 fm bílskúr Ásbraut 4ra herb. ca. 100 fm íbúö á 1. hæö ásamt bílskúr. Verö 2050 þús. Kjarrhólmi 4ra herb. ca. 105 fm íbúö á 3. hæö. Verö 1900 þús. Laufás Góö 140 (m 4ra—5 harb. neöri sérhæö ásamt 40 fm bilskúr. Möguleik! á aö taka minni eign upp í. Arnartangi Gott 160 fm einbýli á einni hæö ásamt 30 fm bilskúr. Möguleg útb. 60%. Verö 3.5 millj. Hvammar Kóp. Gott 250 fm einbýtt á tveimur hæöum ásamt bilskúr. Sæbólsbraut Fallegt 270 fm raöhús ásamt bílskúr. Ýmsir möguleikar. Afh. fokhelt nú þeg- ar. Atvinnuhúsnæði viö Dalbrekku i Kóp. Vmsir möguleikar. KIÖRBÝLI FASTEIG N ASALA Nýbýlavegi22 lllhæól (Dalbrekkumegin) Sími 43307 I Sölum. Sveinbjörn Guðmundsson. Rafn H. Skúlason, Iðgfr. I MIÐBÆNUM Til sölu einstaklingsíbúðir við Tryggvagötu í hinu nýendurgerða Ham- arshúai. Allar (búðirnar afhendast málaðar, með parketi á gólfum. Nýtt rafmagn. Danfoss. Einstaklingsíbúöir frá kr. 880.000,00 1. Fyrir næstu áramót 200 þús. 2. Jan.—des. 1985 225 þús. 3. Jan.—apríl 1986 75 þús. 4. Lán seljenda til 11 ára 380 þús. Samtals 880 þús. Upplýsingar kl. 1—3 Blönduhlíð — sérhæð Snyrtileg efri sérhæð í góðu húsi. Hæðin er 130 fm. Tvær stórar samliggjandi stofur. Rúmgott eldhús. Stórt hol. Yfir hæöinni er stórt manngengt ris. Bíl- skúrsréttur. Ákveðin sala. Gæti losnaö strax. Útb. samkomulag. Verö 2,8—2,9 millj. BÚSTAÐIR — fasteignasala. Opiö í dag og sunnudag frá kl. 13—17. Sími 28911. Jóhann Daviösson Björn Arnason. Helgi H. Jónsson v ff BJARG FASTEIGNAMIÐLUN Goðheimum 15 •íma' 68-79-66 68-79-67 Opið í dag frá kl. 12—4 2ja herb. ÁLFHEIMAR 55 fm góð íbúö á jarðhæö. Laus strax. Verð 1350 þús. LAUGARTEIGUR Glæsileg íbúö á jarðhæð, ca. 75 fm. Ný eldhúsinnrétting. ibúö í sérflokki i grónu hverfi. 3ja herb. MÁVAHLÍÐ 70 fm íbúö. Laus tljótlega. Verð 1550—1600 þús. HRAUNBÆR Ca. 100 fm íb. á 2. haBÖ. Tvö stór svefnherb., góö stofa. Stórt aukaherb. á jaröhæö. Verö 1700 þús. Skipti á stærri eign æskil. Góöar greiöslur í milligjöf. HRAUNBÆR 90 fm góö íbúö á 2. hæð. Verö 1800 þús. ÞANGBAKKI Glæsileg íbúö á 2. hæö i lyftu- húsi. Rýming samkomulag. BUGÐULÆKUR 100 fm góð íbúö. Verö 1850 þús. 4ra—5 herb. HRAUNBÆR Ca. 140 fm góð ibúö, 5—6 herb. Þvottah. innifaliö eldh. Verð 2,3 millj. HRAUNBÆR Ca. 110 íb. ásamt herbergi i kjallara. Verö 2 millj. Sérhæðir SELVOGSGRUNN 130 fm efri sérhæö. 3 svefn- herbergl, góö stofa, cef. 40 fm svalir. Verð 2,7 millj. HAFNARFJÖRÐUR Ca. 140 fm góö efri sérhæð. 5 svefnherb., stór stofa, þvottah. á hæðinni. Bilsk. Verö 3,2 miilj. HRAUNBÆR 146 fm gott raöhús. Stór stofa, 4 svefnherbergi. Uppsteyptur bílskúr. Verö 3,2 millj. KAMBASEL Sérhæö með 3 svefnherbergj- um. Stór stofa, sér þvottahús og geymsla. Raðhús HRAUNBÆR Fallegt raöhús ca. 146 tm. Stór stofa, 4 svefnherb. Þvottahús innaf eldhúsl. Góöur bílskúr. Skipti möguleg á 3ja herb. ibúö. KLEIFARSEL Vandað 160 fm raöhús. Góö stota, 4—5 svefnherb. Inn- byggöur bílskúr. Skiptl möguleg á 4ra herb. íbúð. STEKKJARHVAMMUR HAFN. Glæsilegt 180 fm raöhús. Fal- legar stofur, 3 svefnherb., baöstofa i risi. 20 fm bílskúr. Einbýlishús HRYGGJARSEL Glæsilegt einbýlishús í Selja- hverfi. Stórar stofur og góöar innréttingar. Séribúö i kjallara. Stór, tvöfaldur bílskúr. Höfum kaupendur að eftirtöldum eignum: 4ra herb. íbúö í Seljahverfi. Raöhús eöa einbýli í Austur- borginni. Sérhæö í góöu hverfi. Opiö alla daga frá kl. 10—21. Skúli Bjarnason hdl.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.