Morgunblaðið - 09.03.1985, Síða 44

Morgunblaðið - 09.03.1985, Síða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. MARZ 1985 Eldridansaklúbburinn ELDING Dansað í Félagsheimili' Hreyflls í kvöld kl. 9-2. Hljómsveit Jóns Sigurðssonar og söngkonan Kristbjörg Löve. Aögöngumiöar i síma 685520 ftirkl. 18. N G Ó! r{ ‘° si »*\ Hefst kl. 14.00 Fjöldl vinninga 60 Verömœti vinningq kr.100 þús. Hœsti vinningur að verömœti 'V‘ \ kr. 30 þús <ukablaö 6 vinningar TEMPLARAHÖLLIN EIRIKSGÖTU 5 — SIMI 20010 Bín90 Lukku-Binfló Bingó í Glæsibæ í dag kl. 13.30. Hæsti vinningur 35.000 kr. Heildarverömæti vinninga yfir 100.000 + aukaumferö. Hádegisjazz íBlómasalnum Vegna mikilla vinsælda mun Hótel Loftleiöir halda áfram meö hádegisjazz fyrir alla fjölskylduna. Sambland af morgun- og hádegisverði meö léttri og lifandi tónlist. Þeir sem koma og leika í sunnudagshádeginu: Kvintett Friðriks Theódórssonar. Gestur: Reynir Sigurösson víbrafónleikari. Hressið upp á sunnudagstilveruna meö léttum jazz og Ijúffengum réttum í Blómasalnum. Borðapantanir í símum 22321 og 22322. Verið velkomin HÚTEL LOFTLEIÐIR FLUGLEIDA HÓTEL Morgunblaöið/ólafur Nemendur léku á hin margvíslegustu hljóðfæri á kynningarfundi Tónskólans nú fyrir helgina. Egilsstaðir: Samhljómur í Tónskóla Kgilwrtöóum, 17. febrúar. FORRÁÐAMENN Tónskóla Fljótsdalshéraðs hafa tekið upp þann góða sið að efna til svonefndra músíkfunda nokkrum sinnum á hverju skólaári — þar sem starfsemi skólans er kynnt foreldrum nemenda og öðrum áhuga- mönnum um skólastarfið. Nú skömmu fyrir helgi var einn slikur fundur hald- inn og var hann vel sóttur að vanda. Þar komu fram nemendur á hin margvislegustu hljóðfæri og Irku einir sér ellegar fleiri saman. Að lokum lék lúðrasveit skólans nokkra létta marsa og var samhljómur sveit- arinnar góður. Tónskóli Fljótsdalshéraðs tók til starfa haustið 1971. Nemendur skólans eru nú um 100 og fastir kennarar tveir auk skólastjórans, Magnúsar Magn- ússonar, og nokkurra stundakennara. - Ólafur Fastir kennarar Tónskólans, Árni fsleifsson og Davíd Knowles, ásamt skólastjóranum, Magnúsi Magnýssyni. Fangar mánaðarins — mars 1985 Mannréttindasamtökin Amnesty International vilja vekja athygli al- mennings á máli eftirtalinna sam- viskufanga í mars. Jafnframt vonast samtökin til að fólk sjái sér fært að skrifa bréf til hjálpar þessum fóng- um og sýna þannig í verki andstöðu við að slík mannréttindabrot eru framin. Búlgaría. Kiril Spasov verður 21 árs i þessum mánuði. Hann bjó hjá fjölskyldu sinni í Sofiu í Búlg- aríu þegar hann var handtekinn í byrjun maí 1983, stuttu eftir að hann lauk menntaskólanámi. Kir- il Spasov var dæmdur í þriggja ára fangelsi af herrétti í Sofíu fyrir að hafa ætlað að yfirgefa landið ásamt vini sínum án heim- ildar yfirvalda. Líbýa. Átta rithöfundar og blað- amenn: Idris Juma’ Al Mismari, Sa’ad A1 Sawi Mahmoud, Khalifa Sifaw Khaboush, Muhammad Mu- hammad Ai Fgih Salik, Ali Mu- hammad Hadidan Al Rheibi, Omar Belgassim Sheiig A1 Kikli, Idris Mu- haramad Ibn Tayeb og Ahmed Mu- hammad A1 Fitouri. Þau voru öll handtekin í desember 1978 ásamt fleira fólki við eða eftir fund sem haldinn var í Benghazi til minn- ingar um líbýskt skáld. Þeim var gefið að sök að hafa stofnað marxískan kommúnistaflokk og voru dæmd í ævilangt fangelsi ár- ið 1980 samkvæmt lögum sem banna alla stjórnarandstöðu. Sagt er að þau hafi hlotið slæma með- ferð í varðhaldinu, m.a. verið bar- in og haldið í einangrun í yfir þrjá mánuði. Paraguay. Heriberto Alegre Ortiz er 42 ára gamali lögfræðingur. Hann var handtekinn í september 1984 þegar hann heimsótti hóp bænda sem voru í haldi í lögreglu- stöð í borginni Puerto Presidente Stroessner. Heriberto Alegre er meðlimur í tveimur innlendum mannréttindasamtökum, Comite de Iglesias para Ayudas de Emerg- encia, sem veitir föngum lögfræði- lega aðstoð og Programa de Ayuda Cristiana, sem aðstoðar bændur í austurhluta Paraguay sem m.a. eiga í deilum um landsyfirráð. Heriberto Alegre er sakaður um að hvetja bændur til að taka land ólöglega og er talið að byggt sé á framburði bænda sem voru beittir þvingunum við yfirheyrslur. Amnesty-samtökunum hafa bor- ist upplýsingar um mörg önnur tilfelli þar sem lögfræðingar í Paraguay eru ofsóttir af yfirvöld- um. Þeir sem vilja leggja málum þessara fanga lið, og þá um leið mannréttindabaráttu almennt, eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við skrifstofu íslands- deildar Amnesty, Hafnarstræti 15, Reykjavík, sími 16940. Þar fást allar nánari upplýsingar sem og heimilisföng þeirra aðila sem skrifa skal til. Skrifstofan er opin frá 16.00—18.00 alla virka daga. MELÓDÍUR MINNINGANNA HAUKUR MORTHENS og félagar skemmta. Kristján Kristjánsson leikur á orgel frá kl. 20. ■Bl FLUGLEIDA mr hótel

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.