Morgunblaðið - 13.03.1985, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 13.03.1985, Blaðsíða 1
64 SIÐUR STOFNAÐ 1913 60. tbl. 72. árg. MIÐVIKUDAGUR 13. MARZ 1985 Prentsmiðja Morgunblaðsins Spádómar bandarískra sérfræðinga um málefni Sovétríkjanna; Gorbachev við stjórn- völinn fram til aldamóta Hinn nýi leiðtogi Sovét- ríkjanna, Mikhail S. Gorbachev, í miðið, við kistu Konstantins Chernenko í Höll verka- lýðsins í Moskvu í gær. Gorbachev á hægri hönd stendur Nikolai A. Tikh- onov forsætisráðherra. AP/Símamynd Washington, Moskvu, 12. marz. AP. BANDARÍSKIR sérfræðingar um málefni Sovétríkjanna spá því að Mikhail Gorbachev verði við stjórnvölinn út þessa öld, haldi hann rétt á spilunum og im af leynimakk í Kreml. Ýmsir leiðtogar, stjórnmálamenn og fjölmiðlar létu í Ijós bjartsýni vegna valdatöku Gorbachevs, sem sagður var kyndilberi nýrrar kynslóðar í sovézkum stjórnmálum. Ronald Reagan Bandaríkjaforseti kvaðst mundu „ganga með opnum huga“ til allra viðræðna og samninga við hinn nýja sovézka leiðtoga. Þjóðarleiðtogar og fulltrúar ríkja streymdu til Moskvu, þar sem þeir verða viðstaddir útför Konst- antins Chernenko á morgun, mið- vikudag. Strax eftir útförina mun Mitterrand Frakklandsforseti eiga fund með Gorbachev, og vonast var til að Margaret Thatcher forsæt- isráðherra Bretlands, Helmut Kohl kanzlari V-Þýzkalands, George Bush varaforseti Bandaríkjanna og Li Peng aðstoðarforsætisráðherra Kína myndu einnig hitta Gorbach- ev á morgun eða fimmtudag. Loft var þrútið í Moskvu í dag, þykkir svartir skýjabólstrar grúfðu yfir borginni, meðan hundruð þús- unda Sovétmanna streymdu fram hjá líkbörunum í höll verkalýösins og vottuðu Chernenko hinztu virð- ingu. Finnar öðrum þjóðum fremur eiga mikið undir góðum samskipt- Arásar heftit Zrariye, Líhanon, 12. marz. AP. KÁDIST var á stöðvar ísraelskra her- manna í dag og féllu a.m.k. tveir þeirra. Árásin var í hefndarskyni fyrir hefndarárás ísraela á þorpið Zrariye í gær, þar sem 37 menn týndu lífi. Yitzhak Rabin varnarmálaráð- herra Israels sagði að atburðir á svæðum shíta i Libanon síðustu daga kynnu að veröa til þess að flýta fyrir brottflutningi ísraelska herliðsins frá Líbanon. um við Sovétríkin og létu ýmsir stjórnmálaleiðtogar og fjölmiðlar þar í landi í Ijós vonbrigði með að Reagan forseti færi ekki í eigin persónu til útfararinnar. Slík ferð á mikilvægum tímamótum í sam- skiptum stórveldanna hefði orðið til að draga stórum úr spennunni, að þeirra sögn. Bush varaforseti verður við útförina og kom hann til Moskvu í dag, færandi Gorbachev sérstök „friðarskilaboð" Reagans. Jaruzelski, leiðtogi pólska kommúnistaflokksins, sendi Gorb- achev hamingjuóskir í dag, og af hálfu pólskra yfirvalda var sagt að hinn nýi leiðtogi Sovétríkjanna mundi taka á málefnum Póllands af vinsemd og þekkingu. Gorbachev er yngstur sovézkra leiðtoga frá því Stalín komst til valda og gæti hann stjórnað Sov- étríkjunum fram á næstu öld, lifi hann af leynimakk og haldi hann vel á málum. Gorbachev er ólíkur fyrri leiðtogum að því leyti að hann hefur skilning á nauðsyn almanna- tengsla og áróðurs, og að halda góðu sambandi við fólkið. Banda- rískir sérfræðingar um málefni Sovétríkjanna spá að næstu ár skeri úr um hvort Gorbachev takist að ná alræðisvaldi og sitji þá að völdum a.m.k. til aldamóta, eða hvort hann verður að sætta sig við að stjórnmálaráðið móti stefnuna, eins og búast má við, þar til hann hefur raðað í kringum sig skoðana- bræðrum. í stjórnmálaráðinu eru nú margar Iausar stöður og má bú- ast við að Gorbachev ráði miklu um val í þær. Ljósritaði Treholt skjöl Evensens? Osló, 12. mars. Frá fréttaritsra Mbl. JENS Evensen, sem var áður haf- réttarráóherra í norsku stjórninni og yfirmaður Arnes Treholt, var vitni í dag í réttarhöldunum yfir fyrrum undirmanni sínum. I>ótti framburður hans allur vera Treholt mjög í óhag. Evensen forðaðist að líta til Treholts og talaði aðeins um hann sem hinn ákærða. Var fundur þeirra í réttarsalnum með ólíkum hætti en áður var þegar sambandi þeirra var líkt við samband föður og sonar. Kvaðst Evensen ekki hafa vitað um fundi Treholts með Gennady Titov, sovéska sendi- manninum, sem Evensen sagði um, að allir hefðu litið á sem njósnara KGB. Evensen sagði að Treholt hefði haft aðgang að ýmsum trúnað- arskjölum, en aldrei hefði verið gert ráð fyrir að hann tæki með sér skjölin heim eins og þó kom í ljós eftir handtökuna að hann hafði gert. Svo virðist einnig sem Treholt hafi ljósritað skjöl Even- sens sjálfs án hans vitundar. Sjá ennfremur „Enginn efað- ist... “ á bls 29. Símamynd/Verdens Gang-Per Nygaard Jens Evensen, fyrrum hafréttarráðherra, kemur út úr réttarsalnum að loknum vitnaleiðslum í Treholt-málinu { gær. íranir hernema Borgirnar sex, sem írakar segj- ast hafa ráðist á, eru Teheran, Zenjan, Arak, Bushehr, Dezful og Masjed Suleiman. Herþotur hefðu skotið á „valin skotmörk" í fjórum þeim fyrstnefndu í nótt, en eld- flaugum að tveimur síðasttöldu. Árásarferðin hefði heppnast full- komlega og þoturnar allar snúið heilu og höldnu til baka. Sömu- leiðis hefði eldflaugaárásin verið árangursrík. trakar kváðu aðgerðirnar í dag í hefndarskyni fyrir loftárásir Ir- ana í gær. tranir tilkynntu að fimm menn hefðu týnt lífi og fjór- ir særst í loftárásinni á Teheran, sem gerð var á íbúðarhverfi, að þeirra sögn. íranir sögðu traka hafa gert árásir á Khorramabad og Bouroujerd, auk framan- greindra borga. Sjálfir kváðust ír- anir hafa gert eldflaugaárás á olíuborgina Kirkuk í írak, en því neituðu Irakar. Eins og oft áður bar yfirlýsingum stríðsaðila ekki saman. mikilvæg svædi Bafdad, 12. marz. AP. ÍRAKAR skýrðu frá því í kvöld að íranir hefðu hertekið hluta Huwa- izah-flæðilendisins í frak, sem er mikilvægt svæði, sem liggur að þjóð- veginum frá Basra til Bagdad. Skor- uðu írakar á írani að draga friðar- fána að hún og hverfa friðsamlega til baka til að forðast „hryllilegt blóðþað" í Huwaizah. Fyrr í dag kváðust trakar hafa gert loft- og eldflaugaárás á sex borgir í íran í dag, þar á meðal höfuðborgina, Teheran, og hrund- ið sókn íranshers á Huwaizah- flæðilendinu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.