Morgunblaðið - 21.05.1985, Side 20

Morgunblaðið - 21.05.1985, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 21. MAÍ 1985 Hvar ertu, Che? Kvikmyndir Sæbjörn Valdimarsson Hvernig ég var kerfisbundið lagð- ur í rúst af fíflum — How I Was Systematically Destroyed By Idiots ★'/> Leikstjóri: Slobodan Sijan. Hand- rít: Sijan, Moma Dimic. Kvik- myndataka: Milorad Glusica. Að- alhlutverk: Daniel Stojkovc, Jel- isaveta Sabljic, Rade Markovic. Júgóslavnesk. Enskur texti. Þessi óvanalega, á köflum súrrealíska kvikmynd, fjallar um roskinn götuspeking, mis- lukkað skáld, utangarðmanninn Stojkovc. Hann uppveðrast allur við lát byltingarmannsins Che Guvera og hyggst nú halda merki hans á lofti. Flytur inn- blásnar ræður sem fæstir leggja eyrun við. Við fylgjumst síðan með stefnulausum flækingi þessa manngarms vítt og breitt um Júgóslavíu og þeirra utan- garðsmanna sem hann eignast að félögum. Sijan skýtur á báða bóga — í austur og vestur. Vaðall þessa einkabyltingarmanns er gagn- rýni á kapítalisma, þó svífst hann einskis til að komast yfir jörð föður síns, þegar sá gamli fellur frá. Og það hlustar enginn á marxistann. Stojkovc gerir þessa hornreku þjóðfélagsins einkar forvitnilega og gæðir hana talsverðum sjarma og tæpast er hægt að ímynda sér að myndin hefði orð- ið til ef hans hefði ekki notið við. Rustafyndni myndarinnar á einkar vel við þennan ábúðar- mikla stríðsmann Marxs. Að öðru leyti verða aðrir að hæla þessu einstaka myndverki sem að mörgu leyti virðist sótt í smiðju meistara Bunuel. Vonir og veruleiki Kvikmyndir Sæbjörn Valdimarsson Silver City — Skýjaborgir irk'h Leikstjóri: Sophia Turkiewicz. Ilandrit: Turkiewicz og Rhomas Keneally. Kvikmyndataka: John Seal. Tónlist: William Motzing. Aóalhluterk: Gosia Dobrowolska, Ivar Kants, Anna Jemison. Seawell Films, 1984. Áströlsk. 100 mín. Skýjaborgir á það sammerkt með mörgum myndum á yfirstandandi kvikmyndahátíð, að vera þrungin tilfinningum. Þessi nýja, ástralska mynd er frumraun leikstjórans Sophiu Turkiewicz, sem komin er af pólsk- um flóttamönnum sem flykktust til landsins í seinna stríði, og um þá fjallar myndin. Þó fyrst og fremst um stúlkuna Ninu, sem á að baki erfiða reynslu í gamla landinu. En örlögin halda áfram að vera óvæg- in við þessa velgerðu stúlku, en hún verður ástfangin af einum ferðafé- laganum, Julian, á hinni löngu leið yfir hafið til fyrirheitna landsins. En sá er giftur vinkonu hennar. Gagnkvæm hrifning þróast í ást- arbál. Julian yfirgefur konu sína og hefur sambúð með Nínu. Hún end- ar hörmulega. Skýjaborgir er yfirlætislaus mynd, mikið til borin uppi af pólsku leikkonunni Gosiu Dobrow- olsku í aðalhlutverkinu. Þar er stórkostleg, hrífandi leikkona á ferð. Undir niðri finnur maður fyrir söknuði og einsemd flótta- mannanna, ráðvillu þeirra í nýja landinu sem býður þeim uppá held- ur ömurlega tilveru, stirð sam- skipti við íbúana, nöturleg bragga- hverfi. Áströlsk yfirvöld þessa tíma eru gagnrýnd fyrir að líta þetta lánlitla fólk sem aðskotadýr. Myndin er táknræn fyrir umkomu- leysi landslauss fólks, hvar sem er í heiminum og vekur með áhorfand- anum samúð og væntumþykju. Fuglaveiðarinn og Alsino litli í Gamminum. Gammurinn flýgur sinni gegn uppreisnarmönnum, sem halda sig á slóðum Alsino litla. Táknmál myndarinnar er mikið. Alsino þráir það heitast að geta flogið eins og gammur- inn, sem kemur viða við í myndinni og er samnefnari kúgaranna, (Somosa og Banda- ríkjanna). Drengurinn reynir að þreyta flugið, árangurinn er örkuml. Veigamikið atriði er kynni Alsino af fuglamanninum, sem hagnast vel á að hneppa frjálsa fugla himinsins í búr og selja hverjum sem vill. Þessi kafli, sem og margir aðrir, er marg- slunginn og verðugt umhugsun- arefni. En Littin skýtur yfir markið í ofleiknu og ofhlöðnu atriði þegar bandarísku hernaðar- ráðgjafarnir reyna að komast til botns í hvað þeir eru að gera. Þar er Kaninn knésettur með of rniklu offorsi. Sá yfirdrifni áróðursþáttur er ljóður á ann- ars einkar áhrifaríkri og umhugsunarverðri mynd. 9 Kvikmyndir Sæbjörn Valdimarsson Gammurinn — Alsino Y EI Cond- or ★★★ Leikstjóri Miguel Littin. Handrit: Littin, Isidora Aguirre, Tomas Peres-TurrenL Kvikmyndataka: Jorge Herrera, Pablo Martinez. Tónlist: Léo Brower. Framleiðandi: C.C. Costa Rica, Productora L.A. Mexico, Institua Nicaragua, Instituta C.A. Cuba. Nicaragua, Mexico, Cuba, Costa Rica 1982. 89 mín. Enskur texi. 1 Gamminum erum við hrifin inní stríðshrjáða veröld Mið- Ameríkubúa. í upphafi fylgj- umst við með átakalítilli æsku drengsins Alsino. Áður en varir breytist hún í martröð vígvall- arins, því stjórn Somosa er orð- in full örvæntingar í baráttu OG NOTAÐI HJÁLM. Þaö var 19. mars sl. aö togarinn Drangey SK-1 var í rannsóknarleiðangri á vegum Hafrannsóknarstofnunar ásamt fleiri togurum. Þegar verið var að hífa inn trollið og fyrstu bobbingarnir komnir upp í skutrennuna, er talið að keðja milli bobbinga hafi fest í falsi fyrir fiskilúgu. Við það opnaðist krókur á húkkreipi og slóst í höfuðið á Þresti Haraldssyni 2. stýrimanni, þar sem hann var að setja höfuðlínuna inn fyrir skeifuna. Þröstur var annar tveggja skipverja á Drangey SK-1, sem notaði öryggishjálm við vinnu sína um borð. Þröstur höfuðkúpubrotnaði og var siglt með hann inn til Neskaupstaðar og síðan flogið með hann til Reykjavíkur þar sem gert var að meiðslum hans. Fullyrða má að öryggishjálmurinn sem Þröstur var með JaaíLdre svo úr högginu að hann hafi bjargað lífi Þrastar? REYNSLAN SÝNIR AÐ EKKERT KEMUR í VEG FYRIR SLYS A SJÓ NEMA ÁRVEKNI, DÓMGREIND OG KUNNÁTTA SJÓMANNA SJÁLFRA *> 9 ÖRYGGISMÁLANEFND sjómanna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.