Morgunblaðið - 21.05.1985, Page 28

Morgunblaðið - 21.05.1985, Page 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 1985 Árið 2000 Ráðstefna á Selfossi um atvinnu og lífskjör Hvernig verður umhorfs á fs- landi um næstu aldamót? Hver veröa lífskjör á fslandi þá? Þess- um spurningum veltu menn fyrir sér á ráðstefnu um atvinnu og lífskjör, sem var haldin á Selfossi laugardaginn 11. maí sl. „Á undanförnum árum hefur komið fram ný tækni í málmiðn- aði í nágrannalöndunum, sem ís- lenskur málmiðnaður hefur að mjög litlu leyti tekið upp. Þessi tækni byggir á því að hún gerir framleiðslu á fáum stykkjum hag- kvæmari en áður. Hér er um að ræða tölvustýrðar iðnaðarvélar. Þær eru tengdar við tölvur, þar sem hönnunin fer fram. Þegar bú- ið er að hanna hlut einu sinni og skrifa forrit sér tölvan um að stilla framleiðsluvélarnar í hvert sinn þegar á að framleiða viðkom- andi hlut.“ Þannig komst dr. Ingjaldur Hannibalsson meðal annars að orði er hann ræddi um möguleika ís- lensks iðnaðar. Ef hagkvæmni stærðarinnar skiptir ekki eins miklu máli og áð- ur, eins og hinar nýju iðnaðartölv- ur boða, ættu íslensk fyrirtæki að geta framleitt með tiltölulega litl- um tilkostnaði. Gat Ingjaldur þess, að Svíar og ýmsir aðrir hefðu með álitlegum árangri lagt á þessa braut. Ingjaldur kvað samdrátt í hefðbundnum framleiðslugreinum óhjákvæmilegan. Á fslandi vinnur tíundi hver í byggingariðnaði. „Þetta hlutfall er helmingi hærra en hjá flestum öðrum iðnaðar- þjóðum," sagði Ingjaldur. Stóriðjukostir eru 5 eða 6 nefnd- ir, sagði Ingjaldur. Ef af öllum þessum fyrirtækjum yrði mundu um 1000 manns vinna í þessum greinum. Vaxtagreinar framtíðarinnar í heiminum eru einkum rafeindaiðn- aður, lífefnaiðnaður, fjarskiptaiðn- aður, framleiðsla nýrra efna og geimiðnaður. Ingjaldur taldi fslendinga eiga þó nokkra möguleika meðal ann- ars á sviði efnistækninnar. í þeirri grein eru menn að hanna efni sem fullnægja ákveðnum kröfum. „Sum þessara efna má framleiða með nýtingu jarðvarma," sagði Ingjaldur. Ingjaldur greindi frá því að meðal þeirra þjóða sem hafa best lífskjör, væru uppi mikl- ar áætlanir um eflingu upplýs- ingaiðnaðar. Ef við fylgdum for- dæmi Svía ættum við að verja 165 milljónum króna af opinberu fé næstu 3 árin til þessa. Svíar leggja megináherslu á þrjú svið: menntun, rannsóknir og þróunarstarfsemi. Á fslandi ættu tæplega 2.900 manns að vinna í upplýsingaiðn- aði í dag, ef við héldum sama hlutfalli og Svíþjóð. Hér vinna hins vegar um 500 manns um þessar mundir. Um aldamót má gera ráð fyrir að fyrir að um 18.000 störf verði í upplýsingaiðnaði og þetta verður þá ein aðal útflutn- ingsgrein okkar, taldi Ingjaldur. Skólakerfið þarf að aðalagast þessari byltingu. Trésmiðir þurfa að læra á tölvur. Nú framleiða þjóðir vörur sem eru „búnar til“ á tölvuskjám, tölvan stillir gömlu trésmíðavélina og framleiðslan er tiltölulega sjálfvirk. Hlutverk háskólans „Hlutverk Háskóla fslands er að minnsta kosti tvíþætt," sagði dr. Sigmundur Guðbjarnason, nýkjör- inn háskólarektor, í erindi sínu. „í fyrsta lagi að mennta og þjálfa starfsfólk fyrir atvinnulífið, og í öðru lagi vill Háskólinn stuðla að aukinni hagnýtingu rannsókna. Við höfum hug á að taka upp nán- ari samvinnu við atvinnulífið," sagði Sigmundur. Aðstaðan er fyrir hendi í há- skólanum og öðrum rannsóknar- stofnunum. Reynt verður að fá at- vinnufyrirtækin til að afla fjár. Við munum öðlast þekkingu á at- vinnulífinu í gegnum fyrirtækin. Sumar stofnanir háskólans eru öðrum þekktari, en Sigmundur kvað deildir innan Háskólans sem gætu aðstoðað í atvinnulífi miklu fleiri. Nefndi hann meðal annarra félagsvísindadeild, sem hann taldi að gæti veitt mikilvæga þjónustu með skoðanakönnunum og mark- aðsrannsóknum. Þá vék Sigmundur að matvæla- iðnaði, sem hann taldi vanþróað- an. Hann býður hins vegar upp á mjög mikla möguleika. Með sam- vinnu rannsóknastofnana mætti efla þessa grein. Margt gætum við framleitt innanlands, sem við flytjum inn í dag. Skólarnir þurfa að vera vakandi og námsefni og kennsluhættir í endurskoðun. Þróunin verður ennþá örari í framtíðinni en hún hefur verið undanfarna áratugi. Menn eru að hverfa frá sérhæfingunni og yfir í almennari og breiðari grunn menntunar. Að lokum minntist dr. Sig- mundur á skýrslu sem gerð var fyrir 8 árum um vinnslu verðmæta úr sláturúrgangi. Hér er hráefni þetta grafið í stórum mæli, en í öðrum löndum er það nýtt. Hversu mikið fellur til í landinu? Páll Lúðvíksson gerði áætlun um stofnkostnað og rekstur kjöt- mjölsverksmiðju á Selfossi og hugsanlega víðar. Þetta væri fróð- legt að skoða, þó að tölur síðan 1977 séu úreltar. Fóðurefnaiðnað- ur á fslandi hlýtur að eflast. Að lokum sagði Sigmundur Guðbjarnason: „Eg vil kynnast ykkar þörfum, ykkar óskum. Á hvern hátt getur Háskóli íslands komið til móts við þessar þarfir og veitt upplýsingar og aðstoð sem að gagni mætti korna." Orkan veitir möguleika Næstur á mælendaskrá var dr. Ágúst Valfells, verkfræðingur. Hann minntist í upphafi á að fyrir 7 árum hefði hann skrifað skýrslu fyrir Landsvirkjun, skýrslu sem hét ísiand 2000. Ágústi var tíðrætt um þau tæki- færi sem fslendingar ættu í ónytj- aðri orku. „Maðurinn lifir ekki á þjónustu einni saman,“ sagði Ág- úst, og Island er ekki á sama báti og þær þjóðir sem núna leggja á braut upplýsingaiðnaðar. Þar er orkan dýr, þjóðirnar mjög iðnvæ- ddar og efnaðar, og þar eru vaxt- armöguleikar í hefðbundnum ið- naði takmarkaðir. Við þurfum að flytja inn bensín, landbúnaðarvélar ... þess vegna verðum við að flytja út. Þess vegna ber okkur að nýta alla möguleika. Við höfum forskot í ónytjuðum orkulindum, í ódýrri orku. Um- reiknum fallvötnin, orku þeirra sem ekki er nýtt. Hvert megavatt- ár er 100.000 dollarar. Góð lífskjör byggjast á því að tiltölulega fátt fólk myndi mikil verðmæti í und- irstöðugreinunum. Þessi störf leiða svo aftur af sér aukin störf í þjónustugreinum. Eitt starf í und- irstöðugrein skapar 4—5 störf í Sigmundur Guðbjarnason þjónustustörfum, rakara, bakara, ráðherra og smiði. Hér gætu búið 300.000 manns á helmingi betri kjörum. En það er undir okkur komið. Við eigum að bregðast skjótar við. Við misstum t.d. af tækifærinu fyrir nokkrum árum er til stóð að byggja þunga- málmverksmiðju í Hveragerði. Við vorum svo lengi að taka ákvörðun. Á sama tíma hefur ónytjuð gufuhola staðið úti í Hveragerði síðan 1959. Yfir 170 ný störf á ári Þorstcinn Garðarsson iðnráðgjafi var síðasti framsögumaður. Hver er staða Suðurlands í dag? Um al- damótin síðustu bjuggu 17% íbúa andsins á Suðurlandi, núna um 8,4%. Hafnleysi Suðurlands skýrir íbúaþróunina hvað best. Margfeldisáhrif starfa í frum- greinum verða ekki hin sömu í Reykjavík og úti á landi. Með stofnun Iðnþróunarsjóðs Suður- lands er skref stigið í atvinnu- þróun. Á sviði nýiðnaðar má nefna límtrésverksmiðju, álsteypu og kertaverksmiðju. Af verkefnum sem enn eru ekki í höfn má nefna álrækt, kísilkarbíð, C-vítamín- framleiðslu og rannsóknir á hita- þolnum efnum. En það tekur tím- ann að skila árangri í orkufrekum iönaði. Hvers vegna hafa hin stærri fyrirtæki ekki tekist á við veiga- meiri verkefni en raun ber vitni? Sum fyrirtæki eru ekki nógu sterk stjórnunarlega, t.d. eru fjölskyldu- fyrirtækin oft veikburða, þegar kemur til árekstra. En hvernig lítur mannlíf út á Suðurlandi um 2000? Gert er ráð fyrir að íbúum fjölgi um 10%. En í atvinnumálum blasir alvaran við. Hvað þarf að skapa mörg störf að aldamótum? í dag eru um 9.300 störf í kjördæminu. Um aldamót er áætlað að við þurfum að hafa tæp 12.000 störf. Yfir 170 störf að jafnaði á hverju ári. Ef hvert starf í iðnaði kostar 1—1,5 milljónir króna má sjá hvað þarf að fjárfesta á komandi árum. „Við höfum enga patentlausn í atvinnumálum á Suðurlandi," sagði Þorsteinn. Hvernig náum við okkar markmiðum? Gætu stjórnvöld ekki verið meira bisnesssinnuð? Gætum við fengið hjálparsveit ráðgjafa eða einn mann? í stað þess að ráða slíkan í Reykjavík yrði hann að vera búsettur úti á landi. Fjörugar umræöur Að framsöguræðum loknum á ráðstefnunni í Inghóli á Selfossi urðu frjálsar umræður og enn- fremur svöruðu frummælendur fyrirspurnum. Fulltrúum stjórn- málaflokkanna var boðið á fund- inn. Fyrstur þeirra talaði Sigurgeir Jónsson fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Kvað hann áhuga beinast aftur að stóriðju og nefndi hann álbræðslu í Þorlákshöfn sem einn kost. Þá svaraði Sigurgeir fyrirspurn Jóns Guðbrandssonar um gengi krón- unnar. Taldi Sigurgeir ekki gefið að gengi yrði mikið annað, þó að það yrði gefið frjálst. Jón Helgason, ráðherra, ræddi möguleika í landbúnaði, auknar kröfur til menntunar í samfélag- Þorsteinn Garðarsson kvenna og minnkandi launa," sagði Kristjana. Strákarnir verða smiðir samkvæmt sömu leið og áð- ur, en það er verið að útiloka stelpur frá störfum sem þeim buð- ust áður. Aðeins langskólanámið gildir fyrir stúlkur og þess vegna mismunar menntakerfið kynjun- um í dag. Björn Þórhallsson, varaforseti ASI, sagði það nauðsynlega undir- stöðu að búa svo um hnútana í samfélaginu, að fyrirtæki gætu borgað hærri laun. Það er gagns- laust að rýra kaupmáttinn í það óendanlega. Ríkisstjórnin má fara að taka sig á. Jón Guðbrandsson, dýralæknir á Selfossi, taldi tæknilega vankanta vera í úrvinnslu úrgangs frá slát- urhúsum. Hann kvað það hlut- skipti stjórnmálamanna að sjá um jarðveginn, grundvöll atvinnulífs. Ævar Már Axelsson úr Hvera- gerði upplýsti að þrátt fyrir marg- endurteknar fyrirspurnir til yfir- valda orkumála í landinu, fengjust engin svör við því hvort nýta Ágúst Valfells inu og harðnandi samkeppni. Á komandi árum mun kannski þekk- ingin fremur en fjármagnið skipta máli. Magnús H. Magnússon var full- trúi Alþýðuflokksins. Undirstaða byggðar hér um slóðir er samteng- ing Árborgarsvæðisins. Með því móti verður til einhver stærsti byggðakjarni utan Reykjavíkur- svæðisins. Þá verður stóriðja I Þorlákshöfn aftur raunhæf. Brú á Ölfusárósa er á dagskrá vegagerð- ar og tilbúin 1987—1988. Þjónust- an fylgir framleiðslunni, ekki öfugt, sagði Magnús meðal ann- ars. Kristjana Sigmundsdóttir, full- trúi Samtaka um kvennalista, benti á að auknar menntunarkröf- ur bitnuðu á stúlkun. „Mennt er máttur og góð menntun er undir- staða atvinnulífsins og þjóðlífsins, en það er of mikið ósamræmi á milli aukinnar menntunarkröfu til mætti borholuna í Hveragerði, sem hefði staðið ónotuð síðan 1959. Sigríður Ólafsdóttir, formaður Verslunarmannafélags Árnes- sýslu, innti fulltrúa atvinnumála- nefndar á Selfossi eftir úrræðum í atvinnumálum unglinga. Ármann Ægir Magnússon, tré- smiður, mælti með frekari full- vinnslu landbúnaðarafurða heima í héraði. „Auðurinn verður ekki til í Seðlabankanum," sagði Ármann Ægir. Jón Vilhjálmsson, varaformaður atvinnumálanefndar á Selfossi, sagði nefndina hafa ýmislegt á prjónunum. Ráðstefnan Árið 2000 var haldin á vegum Neytendafélags Selfoss og nágrennis, Verkalýðsfélagsins Þórs og Alþýðusambands Suður- lands. Haukur Gíslason Bach í Laugar- neskirkju Tónlist Jón Ásgeirsson Fjórðu Bach-tónleikarnir voru haldnir í Laugarneskirkju sl. sunnudag og að þessu sinni var flytjandinn einn, Gústaf Jóhann- esson, en á efnisskránni voru fimm sálmforleikir, ein prelúdía og fúga, þriðja sónatan og passa- kaglían fræga í c-moll. Gústaf J6- hannesson hefur um langan tíma gegnt starfi sem orgelleikari Laugarneskirkju og tekið þátt í tónleikahaldi hér í borg undanfar- in ár, en þetta er í fyrsta sinn sem undirritaður hlýðir á Gústaf Jó- hannesson leika heila tónleika. Ekki veit undirritaður mikið um orgelið í Laugarneskirkju, en þó það sé ekki stórt í gerð eða bjóði upp á margbreytilega „registra- sjón“ var raddskipanin samkvæmt því sem vera ber hjá manni er þekkir sitt orgel til hlítar. Tón- leikarnir hófust á Prelúdíu og fúgu í c-moll sem var ágætlega leikin. Þar næst komu fórir sálm- forleikir úr Litlu orgelbókinni og voru þessar æfingar, eins og meistari Bach kallaði verkin í þessari bók, vel leiknar. Auk þess var á efnisskránni enn einn for- leikur yfir sálminn Schmucke dich o liebe Seele, er mun að líkindum vera eftir G.A. Homilius, er var nemandi Johanns Sebastians Bach á árunum 1735—42. Þessi Homili- us keppti við Wilhelm Friede- mann Bach um stöðu orgelleikara við Frúarkirkjuna í Dresden og hafði betur, þó Wilhelm Friedem- ann væri á þessum tima talinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.