Morgunblaðið - 19.06.1985, Síða 70

Morgunblaðið - 19.06.1985, Síða 70
>70 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNl 1985 Næstsíðasti fundur sýslunefnd- ar Austur-Skaftafellssýslu Hluti fundarmanna — íbyggnir á svip. HINN árlegi aðalfundur sýslunefnd- ar Austur-Skaftafellssýslu var hald- inn dagana 14. og 15. þ.m. í Gömlu búð á Höfn í Hornafirði. Samkvæmt upplýsingum Benedikts Stefánsson- ar hreppstjóra var fundur þessi með hefðbundnu sniði. Aðalviðfangsefnið var að út- hluta fjárveitingum og fór aðal- fjárveitingin að þessu sinni — eins og undanfarin ár — til elli- heimilisins. Sagði Benedikt það mál æði þungt í vöfum. Fjár- hagsáætlunin hljóðaði upp á 3 milljónir króna og næmi hækkun- in frá fyrra ári því einum 30%. Aðspurður kvað Benedikt allt á huldu með framtíðarstörf nefnd- arinnar. Væru menn ekki á eitt sáttir um réttlæti þess að hver sveit skyldi eiga einn fulltrúa í nefndinni — án tillits til íbúa- fjölda. Sagði hann að samkvæmt drögum að nýjum sveitarstjórnar- lögum, sem liggja nú fyrir alþingi, sé gert ráð fyrir að héraðsþing komi í stað sýslunefndanna. Verð- ur með því brotið blað í sögunni því sýslunefndirnar voru stofn- settar árið 1872 og hafa starfað síðan. „Hafa allar hreppsnefndir skilað áliti hvað lagabreytingu þessa snertir," sagði Benedikt, „og hefur tillit verið tekið til flestra athugasemdanna." Kvaðst hann þó varla búast við að hin nýju lög CUPRIIMOL alvörufúavarnarefnið sem fegrar og fyrirbyggir Um allangt skeið hafa verið til alls kyns undraefni, fúavarnarefni, sem áttu að verja timbur fyrir rotnun. í Ijós hefur komið að aðeins örfá þeirra rísa undir nafni. Vandinn er því sá að velja rétta efnið og nýta það skynsamlega. Vísindalegar kannanir sýna ótvírætt að Cuprinol er með bestu fúavarnarefnum sem framleidd hafa verið. Þetta er reynslan, hún er ólygnust. Cuprinol fúavarnarefni greinist í 4 aðalflokka: 1. Grunnfúavarnarefni án yfirborðsfilmu. 2. Hálfgagnsætt litað fúavarnarefni f fjölda viðarlita. 3. Þekjandi lituð fúavörn í 7 litum. 4. Grænt fúavarnarefni f vermireiti og á gróðurhús. 1-2 yfirferðir af Cuprinol grunnfúavarnarefni með 1-2 yfirferðum af hálfgagnsæju eða þekjandi Cuprinol. Cuprinol þjónar tilgangi sínum við hinar ólíkleg- ustu aðstæður - allt frá vermireitnum upp í háfjalla- skálann. Umboðsmenn um land allt! S/ippfélagið í Reykjavík hf Málningarverksmiöjan Dugguvogi Simi 84255 Friöjón Guðröóarson, sýslumaður í ræðustól. yrðu afgreidd á þessu þingi heldur látin bíða þess næsta — svo enn væri sennilega eftir einn aðal- fundur. Lík finnst LÍK Reynis Smára Friðgeirsson- ar, sem hvarf þann 14. apríl síð- astliðinn, fannst um helgina á Gagnheiði, milli Hvalvatns og Ármannsfells, skammt fyrir aust- an Súlnaberg. Bifreið Reynis heit- ins fannst í Hvalfirði þann 14. apríl síðastliðinn og fór fram um- fangsmikil leit að honum. Ekki Akur- eyri heldur Akranes ÞAU mistök urðu í blaðinu föstu- daginn 14. júní að í fyrirsögn á frétt um sóvéska bóka- og list- munasýningu sem opnuð var á Akranesi síðastliðinn laugardag stóð að sýningin væri haldin á Ak- ureyri. Eru hlutaðeigendur beðnir afsökunar á þessum mistökum. Mót og kristni- bodsþing í Vatnaskógi SAMBAND íslenskra kristniboðsfé- laga stendur fyrir árlegu móti í Vatnaskógi síðustu helgina í júní. Ber mótið yfirskriftina „Treystu Drottni af öllu hjarta“. í fréttatilkynningu frá sam- bandinu segir ennfremur að Jónas Þ. Þórisson og kona hans, Ingi- björg Ingvarsdóttir, sem verið hafa við kristniboð í Afríku, muni koma fram á sérstakri kristni- boðssamkomu sem haldin verði sunnudaginn 30. júní. Kristniboðsþing hefst að mót- inu loknu og stendur til 3. júlí. Slíkt þing er haldið á tveggja ára fresti og fara þar fram aðalfund- arstörf Sambands islenskra kristniboðsfélaga.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.