Morgunblaðið - 08.11.1985, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 08.11.1985, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER1985 21 AP/Símamynd Er sjálfsmorð tengt Yurchenko-málinu? Toronto oc Moskvu, 7. nóvember. AP. KANADISK sjónvarpsstöð heldur því fram að tengsl séu á milli sjálfs- morðs sovéskrar konu í Kanada og flótta KGB njósnarans Vitaly Yurchenko. Stjórnvöld í Kanada neita að um nokkur tengsl sé að ræða þarna á milli. Konan, Svetlana Dedkova, lést á fimmtudaginn í síðustu viku eftir að hafa fallið til jarðar úr háhýsi. Hún var eiginkona sov- ésks viðskiptafulltrúa, en sögu- sagnir hafa verið uppi um það að Yurchenko hafi verið í tygjum við eiginkonu sovésks sendifull- trúa. Konan hafði þjáðst af þunglyndi og í bréfi sem hún skildi eftir sig er ekkert minnst á Yurchenko. Yurchenko heldur því fram að CIA, bandaríska leyniþjónustan hafi rænt sér, en hann hafi ekki flúið yfir, eins og CIA heldur fram. Markar upphaf geim- aldar í Þýskalandi — sagði Weizsácker um för bandarfsku geimferjunnar fyrir Vestur-Þjóðverja Bonn, 7. nóvember. AP. RICHARD von Weizsacker forseti bar lof á þýsku geimfarana tvo fyrir fyrir að hafa leyst vel af hendi „erfið verefni úti í geimnum". Hann óskaði þjóðverjunum Ernst Messerscmid og Reinhard Furrer góðs gengis eftir að þeir, ásamt sex öðrum geimförum, komu úr vikuiangri geimferð með geimferjunni Challenger á miðviku- dagskvöld. „Þessi geimferð markar upphaf geimaldar í Þýskalandi og við höfum sýnt hæfni Vestur—Þýska- lands í hagnýtingu hinnar nýju tækni," sagði hann. Þessi ferð bandarísku geimferjunnar, sem kostuð var af Vestur—Þjóðverjum að mestu leyti, er hin fyrsta þar sem tilraunir um borð voru ekki undir bandarískri stjórn. Bilanir í tækjum töfðu eða komu í veg fyrir margar tilraunir í förinni og yfir- menn í stjórnstöð Vestur—þýska- ERLENT lands hafa viðurkennt að áætlunin þessi hafi verið of metnaðarfull. Vestur—Þýskaland greiddi banda- rísku geimferðastofnuninni (NASA) 64 milljónir dollara fyrir að flytja þýska tilraunabúnaðinn út í geiminn. GENGI GJALDMIÐLA London, 7. nóvember. AP. Bandaríkjadollar lækkaði að- eins gagnvart flestum helstu gjaldmiðlum fram eftir degi en hækkaði aftur er fréttir bárust af áætlunum Japana um að halda jeninu fostu á núverandi gengi. Snemma á fimmtudag féll dollar- inn niður í 202.55 jen, sem er lægsta verð í fimm ár, en hækk- aði í 205.20 jen í London eftir að fréttin barst út. Gullverð lækkaði nokkuð. Síðdegis kostaði sterlings- pundið 1.4248 dollara (1.4362) er gjaldeyrirsmarkaðir lokuðu en annars var gegni dollarans þannig að fyrir hann fengust: 2.6035 vestur—þýsk mörk (2.6030) 2.1375 svissneskir frankar (2.1425) 7.9175 franskir frankar (7.9275) 2.9300 hollensk gyllini (2.9345) 1.752.00 ítalskar lírur (1.757.50) 1.37455 kanadíska dollara (1.37750) Karpov átti aldrei möguleika á að jafna Skák Margeir Pétursson Þrátt fyrir að fregnir hafi borist frá Moskvu í fyrradag, þess efnis að 23. einvígisskákinni yrði frestað vegna þjóðhátíðardags Sovétríkj- anna, var skákin tefld í gær og lauk með jafntefli eftir 41 ieik. Sem kunnugt er gaf Kasparov 22. skák- ina í fyrradag, eftir að hún hafði farið í bið. Frestun hefði því vafa- laust komið honum vel, en bæði hann og Karpov hafa nýtt sér allar þrjár frestanir sínar, þannig að komi ekkert óvænt uppá, verður síðasta skákin tefld á laugardag- inn. Staðan í einvíginu eftir jafn- teflið í gær er 12-11 Kasparov f vil. Eins og allir ættu að vera farnir að vita, nægir áskorandanum jafn- tefli í síðustu skákinni til að hreppa heimsmeistaratitilinn. Heims- meistarinn hefur hvítt í 24. skák- inni. Ef Karpov sigrar, heldur hann titlinum á jöfnu. Sá möguleiki var hreinlega aldrei fyrir hendi í 23. skákinni að Karpov tækist að jafna metin, því hann var í vörn allan tímann. Byrjunarval Kasparovs var skynsamlegt, hann tefldi af var- kárni, en náði samt að tryggja sér heldur hagstæðari vígstöðu. Karpov þráaðist skiljanlega við að skipta upp liði, en lenti við það í heldur leiðinlegri aðstöðu, þar sem hann gat ekkert gert annað en að valda veikleika sína. Það tókst honum, og eftir 41. leik Kasparovs, bauð hann jafntefli, sem Kasparov þáði. Uppgjörið mikla bíður því til laugardags, þá verður allt lagt undir. 23. einvígisskákin: Hvítt: Gary Kasparov Svart: Anatoly Karpov Drottningarbragð 1. d4 — d5, 2. c4 — e6, 3. Rc3 — Be7,4. Rf3 í 20.-22. skákinni var hér leikið 4. cxd5 — exd5,5. Bf4. 4. — Rf6, 5. Bg5 — h6, 6. Bxf6 — Bxf6,7. e3 — 0-0, Þessi staða hefur margsinnis komið upp í einvígjum Karpovs og Kasparovs. Venjulega hefur verið leikið 8. Dc2 eða 8. Dd2, en Kasparov velur mjög rólegt framhald 8. Hcl - c6, 9. Bd3 — Rd7, 10. 0-0 — dxc4, 11. Bxc4 — e5, 12. h3 — exd4, 13. exd4 — Rb6, 14. Bb3 — He8,15. Hel Að öðrum kosti leikur svartur 15. — Be6 og stendur sízt lakar. 15. — Bf5, 16. Hxe8+ — Dxe8, 17. Dd2 — Dd7,18. Hel - Hd8 Eftir 18. — He8 hefði svartur áreiðanlega náð að jafna taflið, en Karpov vill halda sem mestu liði á borðinu vegna stöðunnar í einvíginu. 19. — Rd5 Eftir þetta nær Kasparov að þvinga fram stöðu sem hann getur aldrei tapað, en heldur vissum stöðuyfirburðum. Það er þó alls ekki auðvelt að benda á betri úrræði fyrir svart, því hvít- ur ætlaði að bæta stöðu sína með 20. Re5 — Bxe5,21. Hxe5. 20. Rxd5 — cxd5, 21. Re5 Bxe5, 22. Hxe5 - Be6, 23. De3 - Kf8, 24. Dd3 — f6. Veikir kóngsstöðuna, en Karpov gat ekki beðið aðgerðar- laus eftir framrás hvíta f-peðs- ins, auk þess sem hann varð að svara hótuninni 25. Dh7. 25. Hel — Bf7, 26. Dc3 — Dd6, 27. Hcl — Be8, 28. Bdl — a6, 29. Bf3 — g6, 30. h4 — h5, 31. g3 — Bf7, 32. a4 — Hd7, 33. a5 — Kg7, 34. Db3 Hvítur á betri biskup og opnar línur, en svartur hefur ekki nægilega marga veikleika til að Kasparov komist eitthvað áfram. 34. — De6, 35. Db4 — De8, 36. Kg2 — Dd8, 37. Hc5 — De7, 38. Dc3 38. — g5! Karpov skapar sér mótspil á kóngsvæng, á meðan þungu menn hvíts eru hinum megin á borðinu. 39. De3 Stórmeistarar í Moskvu gagn- rýndu þennan leik harðlega. Til greina kom 39. hxg5 — fxg5, 40. Kgl. 39. — g4!, 40. Bdl — De4+, 41. Kgl og í þessari stöðu var samið jafntefli. (h) husqvarna HAUSTTILBOÐ! Gunnar Ásgeirsson hf. Suðurlandsbraut 16 Simi 9135200 SAUMIÐ FÖTIN SJÁLF. . . Það þarf ekki að sauma margar buxur og blússur til að borga upp Classica 100— hægri hönd heimilisins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.