Morgunblaðið - 07.01.1986, Síða 18

Morgunblaðið - 07.01.1986, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 7. JANÚAR1986 VERZLUNARSKOLIISLANDS FLYTUR í NÝTT HÚSNÆÐI Áleið í nýja skólann Verslunarskólanemar, kenn- arar og skólanefnd ganga Eskihlíð á Ieið frá gamla skól- anum við Grundarstíg 24 að nýjum skóla við Ofanleiti 1. Fyrstir fara klukkuberar en hringt var út úr siðustu kennslustundinni kl. 12.40 í gær í gamla skólanum og inn aftur í fyrstu kennslustund- ina kl. 15.00 í þeim nýja. Það gerði lítið til þótt umferð um götur borgarinnar tefðist örlítið Jón R. Björnsson hringjari vegna flutninganna þar sem langþráður draumur var nú loks að stóð sig í stykkinu. rætast. Þorvarður Elíasson skólastjóri VÍ ávarpar nemendur sina og skóla nefhd í nýja húsinu eftir gönguna miklu í gær. 4. bekkur h í nýju kennslustofúnni sinni sem ber nafnið Hafskip. Klukkuberarnir Guðni Geir Jónsson og Magnús Bernharðsson kvöddu gömlu húsin við Grundarstig með klukknahljómi á meðan nemendur báru út i bílana. Fluttu inn átta mánuðum á undan áætlun NÝTT 7.500 fermetra skólahús- næði Verslunarskóla íslands að Ofanleiti 1 var afhent sl. laugar- dag, en fyrstu skóflustunguna tók borgarstjóri Reykjavíkur, Davíð Oddsson, fyrir tveimur árum og átta mánuðum. Framkvæmdir hafa farið fram úr áætlun og flyt- ur nú skólinn átta mánuðum fyrr en ráð var gert fyrir. Byggingin kostar 142 milljónir króna. Ragnar Halldórsson, formaður Verslunarráðs íslands bauð gesti velkomna við athöfnina á laugardag- inn og að því búnu flutti Sverrir Hermannsson, menntamálaráðherra, ávarp. Sigurður Gunnarsson, formað- ur skólanefndar, afhenti Verslunar- skóla íslands kennsluhúsnæðið til afnota, rakti sögu skólans í stórum dráttum auk byggingarsögu nýja hússins. Hann sagði m.a.: „Bygging skólahússins hefur verið fjármögnuð með eigin fé Húsbyggingasjóðs, með sérstakri fjáröflun, og með lánsfé frá Lífeyrissjóði Verslunarmanna í gegnum Verslunarlánasjóð Verslun- arbanka Islands. Einnig stendur til að selja húseignir og lóðir skólans á Grundarstígssvæðinu hið fyrsta. Hin sérstaka fjáröflun, sem ég nefndi hér áðan, var tvíþætt. Annars vegar skipaði stjóm Verslunarráðs Islands nefnd til að afla framlaga meðal meðlima Verslunarráðsins. Formaður nefndarinnar var Gísli V. Einarsson. Hins vegar fór fram fjár- öflun meðal fyrrverandi nemenda skólans á vegum stjóma Nemenda- sambands og Stúdentasambands Verslunarskólans, sem þeir Kristinn Hallsson og Magnús Gunnarsson veittu formennsku. Árangur fjáröfl- unarinnar varð mjög góður, sérstak- lega hjá félagsmönnum Verslunar- ráðsins, sem gáfu skólanum allt að andvirði heillar kennslustofu eða vinnuherbergis kennara. Alls söfnuð- ust um 15 milljónir með þessari sér- stakri fjáröflunarleið, eða um 10% kostnaðarverðsins," sagði Sigurður. Þá þakkaði Sigurður Stjórn Lífeyr- issjóðs Verslunarmanna og Bankar- áði Verslunarbankans dyggilega aðstoð. Skólanefndin réð Stanley Pálsson, verkfræðing, sem bygging- arstjóra í nóvember 1982 og hefur hann ásamt þeim Steindóri Guð- mundssyni, verkfræðingi og Gunnari Karlssyni, tæknifræðingi, haft yfir- umsjón með smíði hússins. Sigurður afhenti síðan Þorvarði Elíassyni, skólastjóra VÍ, lykil hússins og þakk- aði Þorvarður stjórn Verslunarráðs íslands og skólanefnd sérstaklega Þorvarður Ellasson skólastjóri VÍ tekur við lykli nýju byggingarinnar úr hendi Sigurðar Gunnarsson. formanns skólanefndar sl. laugardag. ..4WHUtf *&*■■■■■

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.