Morgunblaðið - 07.01.1986, Page 38

Morgunblaðið - 07.01.1986, Page 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR1986 Úrmeð kveikjara Þessi nýjung á eflaust eftir að koma sér vel fyrir reykinga- fó!k, því hve oft er það ekki að eldspýtumar eða kveikjarinn finnst ekki. Úr eins og þetta með kveikjara virðist ekki vera langt undan, því það var nýlega sýnt í einum af búð- argluggum Amsterdamborgar. Óvenjulegur leikfélagi Það eru nokkuð óvenjulegir leik- félagar sem hún Shirley Roy á og þeir gestir sem hafa komið á heimili foreldra hennar hafa vart trúað eigin augum, þegar þeir hafa séð þann félagsskap sem stúlkan er í, það er að segja íjögurra tígris- dýrsunga. Faðir stúlkunnar er læknir og hans tómstundagaman er að athuga allt sem viðkemur þessum dýrum og undanfarin ár hafa þau hjón átt tígrisdýrapar. Þegar móðir Shirley eignaðist hana vildi svo til að fjórir tígrisungar komu á sama tíma í heiminn. En ungamir eru fljótir að stækka og borða til dæmis 15 kíló af kjöti dag hvem, svo líklega eru þeir komnir í annað umhverfi núna þegar þessar línur em lesnar. En minning- una á Shirley trúlega eftir að eigaj um þessa bemskuvini. Þúsund lítrar af kampavíni í 3654 glös Þessir náungar á myndinni helltu í mörg glös um áramótin. Það vom eitt þúsund lítrar af kampavíni sem fóm í 3654 glös og vonir standa til að atburðurinn komist í heimsmetabókina ... Ilmurinn.. er svo lokkandi Það gerist æ algengara að þekktir herrar setji nafnið sitt á rakspíra og nú hefur John Forsythe sem leikur Blake Carr- ington gert líkt og Linda Evans eða Krystle en hún setti sína stafi á ilmvatn fyrir skömmu. Nú geta karlmenn semsagt farið að velja um lykt Björn Borg, Alain Delon eða Blake Carring- ton. COSPER IOÖI5' Þetta er mynd af mér þegar ég var á aldri dóttur minnar. fclk í fréttum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.