Morgunblaðið - 23.01.1986, Page 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR1986
ÚTVARP / SJÓNVARP
Til varnar
Dallas
Hinrik Bjamason, einn dag-
skrárstjóra Sjónvarpsins,
mætti í kaffi hjá þeim morgunút-
varpsmönnum í gærmorgun og upp-
lýsti að senn hyrfi Dallasið af skján-
um. Ekki vildi nú dagskrárstjórinn
upplýsa hlustendur um hvort hin ást-
kæra, samlynda stórfjölskylda á
Southfork-búgarðinum væri að eilífu
horfin frá íslandsströndum, en ég er
ekki alveg viss um að Hinrik og félag-
ar geri sér grein fyrir hversu alvarleg
ákvörðunin um að hvfla sjónvarps-
glápendur á Dallas er í raun og veru.
Eg hef að vísu engar tölfræðilegar
staðreyndir að styðjast við er ég
fullyrði að hinn vikulegi Southfork
skammtur sé nánast sáluhjálparatriði
fyrir fjölda fólks, en ég vil minna á
sfmaspjall Páls Þorsteinssonar á
dögunum en þar létu sjónvarpsáhorf-
endur óspart í ljós álit sitt á dag-
skránni. Þegar ég lít yfir dagbókina
frá þeim útvarpsdegi þá sé ég að
Dallas átti hugi fjölmargra og að
lokum sönn saga úr hversdagslífinu
er sannar hin níu líf Dallasdellunnar.
Miðaldra kona hér í bæ átti afmæli
á dögunum. í tilefni dagsins bauð
hún bömum sínum til dýrindis kvöld-
verðar á ónefndu veitingahúsi.
Yngsta dóttirin (17 ára gömul) lauk
ekki við eftirréttinn því hún mátti
ómögulega missa af Dallas!
Naflastrengurinn
Ég er sum sé hræddur um að
ákvörðunin um að skera á nafla-
strenginn góða er liggur milli íslands
og Dallasborgar geti haft ófyrirsjáan-
legar afleiðingar enda best það kjöt,
sem beini er næst. Ég er til dæmis
viss um að Flosi lítur afar alvarlegum
augum á þetta mál því hvaðan á
hann að heyja efni í sinn: Viku-
skammt þegar Dallasdellan hverfur
af skjánum? Máski hringir hann í
Ingmar Bergman er kvað sitja þessa
stundina á eyju sinni vel birgur af
Dallasmyndböndum?
Lausnin fundin?
Ég sé aðeins eina lausn á þessu
máli og hún er nú að við framleiðum
sjálfír okkar Dallas. Af nógu er að
taka. Hvað til dæmis um þá staðreynd
að hér hanga á herðatrjám í óneftid-
um sölubúðum pelsar er kosta árslaun
verkamanns, þá á ég við brúttóárs-
laun áður en skattar og skyldur við
samfélagið er hvfla náttúrulega fyrst
og fremst á verkamönnum þessa
lands koma til sögunnar. Einhvers
staðar finnast Súellenur til að bera
slíka pelsa. Nú og eigum við ekki
sætustu dúkkur heimsins á lager slík-
ar er passa prýðilega í sólstóla inni-
sundlauganna? Þær geta ekki allar
með tölu verið háðar einkaleyfislög-
unum? Það er svo aftur stór spuming
hvort við eigum slíkan bóg í leikara-
safninu er veldur J.R. Máski fengist
þessi eini sanni til að hlaupa í skarðið
svona til að byija með og geta ekki
meðleikaramir babblað á ensku rétt
eins og popparamir sem hafa margir
hveijir lýst því yfir að þeir eigi auð-
veldara að tjá sig á því máli en hinu
ástkæra ylhýra? Ég held að slíkir
þættir þyrftu ekki að kosta svo mikið
í það minnsta hvað varðar sviðsbúnað
því eigum við ekki nóg af „South-
forkum" og ekki þarf einu sinni að
breyta skiltum sumra matsölu- og
veitingastaðanna og ekk’i skortir
okkur Benza, eða BMWaffa, og ég
hef gmn um að hér finnist jafnvel
Rolls ef vel er að gáð. Ég sé aðeins
eitt ljón í veginum og það er hún
Teresa blessunin er svífur eins og
ósýnilegur engill yfir Ewingteppin.
Og þó, er ekki nóg af slíkum stúlkum
er pússa hér glös utan texta? Þá er
bara að hefjast handa Hinrik eða
sýnist þér ekki allt til reiðu?
Ólafur M.
Jóhannesson
Gesta-
gangur
■■■■ Eftir að vin-
Ol 00 sældalisti hlust-
1 — enda rásar 2 er
kunnur í kvöld, kemur
Ragnheiður Davíðsdóttir
með þátt sinn, Gestagang,
kl. 21.00. Gesturinn að
þessu sinni verður Sveinn
Sæmundsson sölustjóri hjá
Flugleiðum og fyrrum
blaðafulltrúi sama fyrir-
tækis. Þá hefur Sveinn
einnig fengist við bókaút-
gáfu, m.a. ritað tvö bindi
um Guðmund Kjæmested
skipherra sem komið hafa
út fyrir jól tvö undanfarin
ár.
Sveinn Sæmundsson
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir í hópi þriggja meðlima hljómsveitarinnar „Commodores" í Sydney í Ástral
iu í desember sl. Frá vinstri eru auk hennar: D.J. Nicolas sem er Breti og kom í stað Lionel Richie, þá
Wiliiam King og Milan Williams.
Spjall og spil
— viðtal við Commodores
■■■■ Þáttur Ástu
-| a 00 Ragnheiðar Jó-
hannesdóttur,
„Spjall og spil“, er á dag-
skrá rásar 2 í dag milli kl.
14.00 og 16.00. Asta ræðir
við meðlimi bandarísku
hljómsveitarinnar
Commodores, en þá hitti
hún í desember sl. á hóteli
i Sydney, Ástralíu.
Commodores vom á
hljómleikaför um Ástralíu
og Asíu fyrr í vetur til að
fylgja hljómplötunni
„Nightshift" úr hlaði en
hljómsveitin er aðallega
þekkt fyrir svokallaða
„Tamla Motown“-tónlist
eða blökkumannatónlist.
Hljómsveitin hefur starfað
saman í ein 17 ár og sagði
Ásta að þeir virtust enn í
fullu Qöri. Hinn þekkti
sólóisti Lionel Richie starf-
aði með Commodores fram
til ársins 1982 og kom þá
í staðinn breskur hljómlist-
armaður, D.J. Nicolas.
Hinir fjórir em þó allir
Bandaríkjamenn. Viðtalið
snýst m.a. um feril þeirra,
breytingar á hljómsveitinni
í gegnum árin og viðhorf
hlustenda í hinum mismun-
andi heimshlutum.
Hljómsveitin hefur
áunnið sér 22 gullplötur og
sex platínum plötur, en það
em hvor tveggja tónlistar-
verðlaun, sem veitt em í
Bandaríkjunum. Hljóm-
sveitin sló í gegn í fyrra
með lagi sínu „Nightshift"
og flestir muna eflaust eftir
lagi þeirra „Three times a
lady“ auk þess sem þeir
gerðu tónlist í kvikmyndina
„Thanks God it’s Friday".
Poppgátan
■■■■ Poppgátan hefst
09 00 á rás 2 kl. 23.00
£ð—■ í kvöld, en það
er spumingaþáttur um tón-
list í umsjá Jónatans Garð-
arssonar og Gunnlaugs
Sigfússonar.
Keppendur í þættinum
em þeir Skúli Helgason
háskólanemi og þáttagerð-
armaður á rás 2 og Halldór
Ingj Andrésson eigandi
Plötubúðarinnar. Eftir
þennan þátt verða tveir
þættir eftir í undanúrslit-
um keppninnar.
UTVARP
FIMMTUDAGUR
23. janúar
7.00 Veðurfregnir. Fréttir
Bæn.
7.15 Morgunvaktin
7.20 Morguntrimm
7.30 Fréttir. Tilkynningar
8.00 Fréttir. Tilkynningar
8.15 Veöurfregnir
9.00 Fréttir
9.05 Morgunstund barn-
anna: „Fílsunginn" eftir
Rudyard Kipling, Kristín Ól-
afsdóttir les fyrri hluta þýð-
ingar Halldórs Stefánsson-
ar.
9.20 Morguntrimm. Tilkynn-
ingar. Tónleikar, þulur velur
og kynnir.
10.00 Fréttir
10.05Málræktarþáttur. Endur-
tekinn þáttur frá kvöldinu
áður sem Helgi J. Halldórs-
son flytur.
10.10 Veðurfregnir
10.25 Lesið úrforystugreinum
dagblaöanna.
10.40 „Ég man þá tíð" Her-
mann Ragnar Stefánsson
kynnir lög frá liðnum árum.
11.10 Morguntónleikar
a. Þrjú lög op. 81 fyrir
strengjasveit eftir J.P.E.
Hartmann. Emil Temanyi
stjórnar strengjasveit.
b. Sænsk rapsódía eftir
Hugo Alfén. Fíladelfíuhljóm-
sveitin leikur; Eugene Or-
mandy stjórnar.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar
c. „Finlandia", tónaljóð eftir
Jean Sibelius. Fíladelfiu-
hljómsveitin leikur; Eugene
Ormandy stjórnar.
d. Tveir sinfónískir dansar
eftir Edvard Grieg. Hljóm-
sveit Bolshoj-leikhússins í
Moskvu leikur; Fuat Mans-
urov stjórnar.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir
12.45 Veöurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.30 »l dagsins önn - Neyt-
endamál. Umsjón: Siguröur
Sigurðarson.
14.00 Miðdegissagan: „Ævin-
týramaöur", - af Jóni Ólafs-
syni ritstjóra
Gils Guðmundsson tók
samanogles(16).
14.30 Áfrívaktinni
Sigrún Sigurðardóttir kynnir
óskalög sjómanna. (Frá
Akureyri.)
15.15 Frá Suðurlandi. Um-
sjón: Hilmar Þór Hafsteins-
son.
15.40 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Tónlist tveggja kyn-
slóöa. Sigurður Einarsson
sér um þáttinn.
17.00 Barnaútvarpið
Stjórnandi: Kristín Helga-
dóttir.
17.40 Listagrip. Þáttur um list-
ir og menningarmál. Um-
sjón: Sigrún Björnsdóttir.
Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.40 Tilkynningar.
19.50 Daglegtmál.
Siguröur G. Tómasson flytur
þáttinn.
20.00 Islenskur tónlistarmað-
ur i Danmörku. Gísli Helga-
son ræðir við Kristin Vil-
helmsson. (Áður útvarpaö
17. september í haust.)
20.30 Tónleikar Sinfóníu-
hljómsveitar íslands í Há-
skólabiói - Fyrri hluti.
Stjórnandi: Jean-Pierre
Jacuillat. Einleikari: Guðný
Guðmundsdóttir.
a. Tvær rómönsur eftirÁrna
Björnsson.
b. „Poem" eftir Ernest
Chausson.
c. „Tzigane" eftir Maurice
Ravel. Kynnir: Jón Múli
Árnason.
21.25 „Vertu Ijóðinu góöur''
Símon Jón Jóhannsson tek
ur saman þátt um Ijóðskáld-
ið Stefán Snævarr.
21.50 Tónleikar
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orð kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir. Tónleikar
22.25 Fimmtudagsumræöan
- Launþegahreyfing: Sam-
staða eða sundrung. Um-
sjón Elías Snæland Jónsson
23.25 Kammertónleikar.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
án
FIMMTUDAGUR
23. janúar
10.00 Morgunþáttur
Stjórnendur: Ásgeir Tómas-
SJÓNVARP
i
19.10 Ádöfinni
Umsjónarmaður Karl Sig-
tryggsson.
19.20 Sagaafsnyrtingunni
(En do-historie)
Stutt barna- og unglinga-
mynd.
Þýðandi Jóhanna Jóhanns-
dóttir.
(Nordvision — Danska sjón-
varpiö.)
19.30 Litlu ungarnir
(Smá fágelungar)
Finnskur barnaballett sem
sýnir fyrstu ferð nokkurra
fuglsunga út í heiminn með
ungamömmu.
Tónlist: Pirjo og Matti
Bergström.
Dansar: Margaretha von
Bahr.
Ungir ballettnemar dansa
FOSTUDAGUR
24. janúar
ásamt tveimur fullorðnum
dönsurum.
(Nordvision — Finnska sjón-
varpiö.)
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingarogdagskrá
20.40 Skonrokk
Innlendur poppannáll 1985
— siðari hluti.
Umsjón: Pétur Steinn Guð-
mundsson.
21.45 Kastljós
Þátturum innlend málefni.
Umsjónarmaður Einar Örn
Stefánsson.
22.20 Derrick
Lokaþáttur.
Þýskur sakamálamynda-
flokkur.
Aðalhlutverk: Horst Tappert
og Fritz Wepper. Þýðandi
Veturliði Guðnason.
23.20 Seinni fréttir
23.25 Steingeit eitt
(Capricorn One)
Bandarísk bíómynd frá
1978.
Leikstjóri Peter Hyams.
Aðalhlutverk: Elliott Gould,
James Brolin, Hal Holbrook,
Karen Black, Telly Savalas
og fleiri.
Fyrsta mannaða geimflaug-
in á að lenda á Mars og
allt virðist ganga samkvæmt
áætlun. Reyndar er geim-
ferðin aöeins blekking og
fréttamaður einn leggur sig
í lífsháska til að afhjúpa
hana.
Þýðandi Bogi Arnar Finn-
bogason.
01.30 Dagskrárlok.
son og Kristján Sigurjóns-
son.
12.00 Hlé
14.00 Spjallogspil
Stjórnandi: Ásta R. Jóhann-
esdóttir.
16.00 (gegnumtíöina
Þáttur um íslenska dægur-
tónlist i umsjá Jóns Ólafs-
sonar.
17.00 Einusinniáðurvar
Bertram Möller kynnir vin-
sæl lög frá rokktímabilinu,
1955-1962.
18.00 Hlé
20.00 Vinsældalisti hlustenda
rásar tvö
Páll Þorsteinsson kynnir tíu
vinsælustu lög vikunnar.
21.00 Gestagangur
hjá Ragnheiði Davíösdóttur.
22.00 Rökkurtónar
Stjórnandi: Svavar Gests.
23.00 Poppgátan
Spurningaþáttur um tónlist
í umsjá Jónatans Garðars-
sonar og Gunnlaugs Sig-
fússonar. Keppendur í
þessum þætti eru Skúli
Helgason og Halldór Ingi
Andrésson.
24.00 Dagskrárlok.
Fréttir eru sagöar i þrjár
mínútur kl. 11.00, 15.00,
16.00 og 17.00.
SVÆÐISÚTVÖRP
Svæöisútvarp virka
daga vikunnar frá mánu
degitilföstudags.
REYKJAVÍK
17.03—18.00 Svæöisútvarp
fyrir Reykjavík og nágrenni
— FM 90,1 MHz.
AKUREYRI
17.03—18.30 Svæðisútvarp
fyrir Akureyri og nágrenni
FM 96,5 MHz.