Morgunblaðið - 23.01.1986, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR1986
Fjármögnun námslána
námsársins á undan hvað varðar
Qölgun og dreifingu náms-
manna, þar sem úthlutun
haustsins 1985 var ekki komin
í gang og rauntölur um fjölda
og upphæðir ekki orðnar kunn-
ar.
Um fjárhagsáætlanir Lánasjóðs íslenskra námsmanna
eftir Guðmund
Sæmundsson
Umræða síðustu daga gefur til-
efni til þess að gerð sé nokkur grein
fyrir fjármálum Lánasjóðs íslenskra
námsmanna, §árhagsáætlanagerð
og þeim atriðum sem áhrif geta
haft á ijárþörf hans. Undirritaður
hefur starfað hjá Lánasjóði sl. eitt
og hálft ár, m.a. við fjárlagsáætl-
anagerð, og telur sig því þekkja
betur til þeirra mála en ýmsir sem
hafa haft um þau stór orð að undan-
fömu.
Ábyrgð stjórnar
í upphafi skal það aðeins áréttað
hér sem komið hefur fram í fjölmiðl-
um að starfsmenn sjóðsins verða
ekki dregnir til ábyrgðar fyrir gerð
Qárhagsáætlana, hvorki fram-
kvæmdastjóri né aðrir sem hjá
sjoðnum starfa. Það er afdráttar-
laust í lögum og reglugerð um sjóð-
inn (5. g r. laga nr. 72/1982, og
8. gr., 11. gr. og 12. gr. reglugerðar
nr. 578/1982) að öll slík vinna er
á ábyrgð stjómar sjóðsins og skal
unnin undir eftirliti og umsjón
hennar. Formenn sjóðsstjómar hafa
líka staðið við sinn hlut í því máli
með því að taka fullan þátt í áætl-
anagerðinni. Það vekur hins vegar
athygli í umræðum síðustu daga
að meirihluti núverandi sjóðsstjóm-
ar veigrar sér við að taka á sínar
herðar þá ábyrgð sem hún ber á
fjárhagsáætlunum vegna ársins
1985. Tók þó núverandi formaður
fullan þátt í þeirri áætlanagerð sfð-
ari hluta ársins. Fulltrúar fjármála-
ráðherra hafa þó lýst yfír ábyrgð
sjóðstjómar á áaetlunum.
Helstu þættir
fjármálanna
Fjárþörf sjóðsins er ofín úr tveim
meginþáttum:
A) Úthlutun námsaðstoðar skv.
lögum um námslán og náms-
styrki (sem Alþingi setti síðast
árið 1982), reglugerð (sem
menntamálaráðherra setur og
breytir) og úthlutunarreglum
(sem stjóm sjóðsins gerir tillögu
um og menntamálaráðherra
staðfestir árlega), —
B) Afborgunum og vöxtum af lán-
um (aðallega erlendum) sem
sjóðurinn hefur verið látinn taka
síðustu 7 árin fremur en að
veita til hans nægu fé á fjárlög-
um.
Þessu til viðbótar má nefna
launa- og rekstrarkostnað sjóðsins,
sem talsvert hefur verið ræddur að
undanfömu. En þar sem sá þáttur
nemur ekki nema litlu broti heild-
áify'árþarfarinnar (innan við 2%)
verður honum sleppt í þessari
umQöllun, einnig innheimtu náms-
lána, sem er helsta tekjulind sjóðs-
ins, að ríkisframlagi slepptu.
Námslánin
Aðalútgjöld sjóðsins eru að sjálf-
sögðu fólgin í veitingu námslána.
Við áætlanagerð um fjárþörf vegna
námslána verður að byggja á fyrri
reynslu og reyna að spá í líklega
þróun, t.d. varðandi verðlag, gengi,
tekjur námsmanna, félagslega
skiptingu, fjölda námsmanna, dreif-
ingu á námslönd, námslengd o.fl.
Hins vegar má alltaf búast við því
að þessar forsendur breytist, ein
þeirra, tvær eða jafnvel allar. Þegar
slíkt gerist er auðvitað við engan
að sakast, heldur verður að taka
staðreyndunum eins og þær eru.
Og staðreyndimar eru að sjóðnum
er skylt að úthluta lánum skv. þeim
reglum sem æðra sett stjómvöld
hafa ákveðið. Þegar sjóðurinn hefur
sent frá sér áætlanir hefur þess
alltaf verið gætt að taka skýrt fram
áhættuna af því að taka tölur
hennar of bókstaflega. Þéss ber þó
að geta sem vel er gert. Fyrir til-
stilli nýja tölvukerfísins hjá sjóðnum
hefur á árinu 1985 verið unnt að
fylgjast miklu nánar með öllum
hreyfíngum útlána en áður. Þar
með hefur verið lagður grunnur að
enn betri áætlanagerð en áður hjá
sjóðnum. Auk þess stendur til að
sameina þau forrit sem annars
vegar reikna út lánin og hins vegar
gefa út skuldabréf fyrir þeim. Þegar
sú skipan verður komin á, verður
öll áætlanagerð miklu auðveldari
en áður.
Skuldir sjóðsins
Frá árinu 1979 hefur sú vonda
venja verið tekin upp að láta sjóðinn
taka stórar fúlgur að láni. í upphafí
var þetta gert vegna þess að fjár-
framlög nægðu ekki, og var þá fyllt
upp í skarðið með lántökuheimild.
Síðar varð þetta að venju, þ.e. að
gera frá upphafí ráð fyrir að veitt
yrði of lítið fé til sjóðsins á fjárlög-
um, en bæta svo við með lántökum.
Ljóst er að þetta er slæm ráðstöfun
og ákaflega óhagkvæm, bæði fyrir
sjóðinn og ekki síður fyrir stjómvöld
og þjóðina alla, því að auðvitað
þarf að greiða öll þessi lán. Féð til
að greiða af þessum lánum er ekki
tekið af öðru en því fé sem veitt
er til sjóðsins og gætu annars
gengið til útlána. Þar sem svo
skammt er um liðið frá því að lán
frá sjóðnum voru gerð verðtryggð
er þess engin von að sjóðurinn geti
næstu árin haft nægar eigin tekjur
til að greiða af þessum lánum. Þetta
er unnt að staðhæfa þótt. mikið starf
hafí verið unnið í innheimtumálum
sjóðsins, þau séu nú með fullum
skilum og innheimtan skili sjóðnum
nú þegar margföldu því sem hún
gerði fyrir 3—4 árum. Auk þess
býður manni í grun að verðtrygging
námslánanna hafí ekki verið hugsuð
til að standa undir erlendum lánum,
heldur til að koma fjárhagslegum
fótum undir sjoðinn, þannig að hann
yrði minni byrði á skattborgurun-
um.
Bókhald sjóðsins er ekki fært af
starfsmönnum hans sjálfs, heldur
er það verkefni Veðdeildar Lands-
banka íslands. Þær tölur sem sjóð-
urinn hefur sett fram í áætlunum
sínum um afborganir lána, eru því
byggðar á upplýsingum frá Veð-
deildinni. Því miður hafa þessar
upplýsingar ekki reynst nægilega
traustar. Þá hefur bæst við að Rík-
isábyrgðarsjóður (sem hefur milli-
göngu um allar lántökur sjóðsins)
hefur látið sjóðinn greiða vexti af
sumum lánum sínum strax á því
ári sem þau eru tekin. Þessu hefur
sjóðurinn ávallt mótmælt, því að
slíkar greiðslur hljóta að minnka
raungildi lántökuheimilda ársins.
Ákveðið var að bæta yfírlit sjóðs-
ins yfír skuldir, vexti og afborganir
á árinu 1985. I febrúar var skrifað
bréf til Ríkisábyrgðarsjóðs og óskað
eftir nákvæmum skuldalista frá
þeim og áætlun um greiðslur ársins.
Þeirri beiðni var ekki sinnt. Á
grundvelli upplýsinga Veðdeildar-
innar var þá settur upp skuldalisti
með áætlun um afborganir alls árs-
ins. Þetta tókst þó ekki betur en
svo að í nóvember kom í ljós að
upplýsingar Veðdeildarinnar voru
svo ónákvæmar að munaði talsvert
miklu. Þá var ákveðið að taka málið
frá rótum. Skuldabréfín voru þá
sótt til Veðdeildar og farið nákvæm-
lega yfír þau hvert og eitt, ásamt
öllum kvittunum ársins (sem einnig
voru sóttar til Veðdeildar). Þetta
verk skilaði þeim árangri að nú
hefur sjóðurinn góða yfírsýn yfír
skuldir sínar. Hins vegar verður að
spá um þróun verðlags og gengis
til að áætla afborganir og vexti á
næstaári, og slfkar spár eru víst í
ótryggara lagi.
Fjármálaskrifstofa
menntamálaráðu-
neytisins
Allar áætlanir sjóðsins fara um
fjármálaskrifstofu Menntamála-
ráðuneytisins og þaðan til Fjárlaga-
og hagsýslustofnunar.
Endurskoðun Fjárlaga-
o g hagsýslustofnunar
Allar beiðnir sjóðsins um fjár-
framlög og aukafjárveitingar eru
endurskoðaðar í Fjárlaga- og hag-
sýslustofnun. Það skal viðurkennt
að stjóm sjóðsins og starfsmenn
hafa ekki alltaf verið hrifnir af
aðferðum þessarar stofnunar, t.d.
þegar hún leyfír sér að breyta for-
sendum áætlana sjóðsins stórlega
og á óraunsæjan hátt í þeim tilgangi
að Qárveitingar fjárlaga skuli
nægja.
Tiimælum um að starf sjóðsins
skuli miða við íjárveitingar hefur
Fjárlaga- og hagsýslustofnun kom-
ið á framfæri við menntamálaráðu-
neytið. Sjóðstjómin hefur alltaf litið
svo á að hún verði að fylgja lögum,
reglugerð og gildandi úthlutunar-
reglum og hefur talið að aukafjár-
þörf vegna breyttra forsendna yrði
mætt með aukafjárveitingum. Hef-
ur um nokkurt skeið verið togast á
um þetta atriði án endanlegrar
lausnar.
Við höfum treyst endurmati Fjár-
laga- og hagsýslustofnunar, hvað
varðar vaxtagjöld og afborganir
sjóðsins, enda hefur sá skilningur
ríkt milli sjóðsins og Fjárlaga- og
hagsýslustofnunar að ef afborganir
skulda færu fram úr áætlunum,
yrði því mætt með viðeigandi ráð-
stöfunum.
Gangur fjármálanna
vegna ársins 1985
Við skulum nú líta á hvemig
áætlanagerð sjóðsins gekk fyrir sig
vegna fjárhagsársins 1985. Allar
upphæðir í töflunni hér að neðan
era í milljónum króna. Þess verður
sérstaklega að geta að hér er aðeins
gerð grein fyrir þrem þáttum fjár-
málanna, þ.e. þeim veigamestu.
Liðir sem ég hef kosið að láta liggja
milli hluta í þessari stuttu grein era
gjaldliðir eins og ferðastyrkir, flár-
festingar og rekstur og tekjuliðir
eins og innheimtur námslána og
vaxtatekjur. Loks ber þess að geta
að áætlun sjóðsins í ágúst 1984 var
upphaflega miðuð við verðlag 1984,
en hefur hér verið hækkuð til verð-
lags á miðju ári 1985 til samræmis.
LÍN: Fjárbeiðni f. 1985
Alþingi: Fjárl.frumvarp
LÍN: Endursk. í nóv. 1984
Alþingi: Fjárlög
LÍN: 27. ágúst 1985
LÍN: 5. des. 1985
Það sem hlýtur að vekja einna
mesta athygli við þessa töflu er að
áætlanir Alþingis virðast lengst frá
veraleikanum, en áætlanir sjóðsins
era furðu líkar, a.m.k. hvað varðar
ríkisframlag og útlán. Mismunur
fyrstu og síðustu áætlunar sjóðsins
er t.d. ekki nema 52. m. kr. hvað
framlagið varðar, eða 4,2% heildar-
þarfar. Mismunur áætlananna í
sept. og des. 1985 er ekki nema
45 m.kr. eða 3,6% heildarþarfar.
Þetta verður að teljast vel að verki
staðið, sé haft í huga hvers konar
starfsemi hér er um að ræða, nefni-
lega lögbundna aðstoð sem daglegir
stjómendur sjóðsins hafa engin
áhrif á.
Við skulum nú líta á aðstæður
þegar hver áætlun um sig er gerð:
1) Fjárlagabeiðni vegna ársins
1985. Sumarið 1984 lagði sjóð-
urinn fram fyrstu ijárlaga tillög-
ur sínar fyrir árið 1985. Þær
vora hreinar spár, byggðar á
árinu 1983 og því sem vitað var
um vormisserið 1984.
2) Fjárlagafrumvarpið vegna
1985. Fjárlaga- og hagsýslu-
stofnun endurskoðaði þessar til-
Guðmundur Sæmundsson
„Áætlanagerð sjóðsins
hefur tekið miklum
framförum undanfarin
misseri. Við lauslega
athugun á gangi fjár-
málanna síðustu árin
kemur í ljós að munur-
inn er minni nú á áætl-
unum sjóðsins og end-
anlegri niðurstöðu árs-
ins en áður.“
lögur sjóðsins og birtust niður-
stöður hennar í flárlagafrum-
varpinu fyrir árið 1985, sem lagt
var fyrir Alþingi haustið 1984.
3) Endurskoðuð fjárlagabeiðni i
nóv. 1984. Upphæð fjárlaga-
framvarpsins var alltof lág.
Hinn 14. nóv. 1984 sendi sjóður-
inn því endurskoðaða fjárlagatil-
lögu til Qárveitinganefndar Al-
þingis. Þessi endurskoðaða til-
laga byggðist á sömu forsendum
og maítillögumar, nema hvað
nú vora forsendur vorsins 1984
komnar inn og haustsins 1984
að nokkra leyti.
4) Fjárlög fyrir 1985. Fjárlög
fyrir árið 1985 vora svo afgreidd
skömmu síðar.
5) Fjárhagsspá í maí 1985. Strax
í upphafí ársins 1985 var farið
að vinna að því að gera nákvæm-
Framlög fráríki Afborganir ogvextir Veitt námalán
1.288 110 1.156
781 95 679
1.178 104 1.059
1.009 106 895
1.191 138 1.069
1.236 159 1.098
ari fjárhagsáætlanir en áður
höfðu tíðkast. Hinn 21. maí var
menntamálaráðherra svo sent
bréf, þar sem varað var við því
að ljárveiting fjárlaga mundi
ekki duga nema rétt fram á
haustið. Áætlun þessi byggðist
aðallega á forsendum ársins
1984 og þeim tölum sem kunnar
vora orðnar um námsárið
1984-85.
6) Fjárhagsáætlun 27. ágúst.
Menntamálaráðuneytið fór ekki
að takast á við þann vanda sem
fyrirsjáanlegur var vegna
haustlánanna fyrr en í ágúst,
þegar nýr stjómarfonnaður var
tekinn við í sjóðnum, Árdís Þórð-
ardóttir. í nánu samstarfí við
Árdísi var nú gerð ný áætlun,
þar sem reiknað var með að
útgjöld sjóðsins ykjust um 200
m. kr., en á móti kæmi u.þ.b.
18 m. kr. hækkun tekna af
innheimtu eða aukinni fjárþörf
um 182 m. kr. frá fjárlögum.
Var áætlunin send ráðherra
menntamála í byrjun september
1985. Varðandi námslánin var
þessi áætlun byggð á tölum
7) Aukafjárveitingabeiðni í des-
ember 1985. Þótt tækist að
koma út september-lánum, var
ljóst að nóvember-greiðslur var
ekki hægt að inna af hendi,
nema til kæmi aukafjárveiting.
Nýr menntamálaráðherra var
nú tekinn við. Hann brást snar-
lega við og vora nú útvegaðar
kr. 176.500.000, þ.e. 5,3 m. kr.
minna en farið hafði verið fram
á. Var þar fylgt tillögum Fjár-
laga- og hagsýslustofnunar, sem
endurreiknaði okkar útreikn-
inga. Þetta nægði til að koma
nóvember-greiðslum á áfanga-
staði. Við endurmat á stöðu
námslána í lok nóvember kom í
ljós að þau höfðu hækkað um
30 m. kr. frá þeirri áætlun sem
gerð hafði verið áður en haust-
misseri hófst. Einnig vora nýjar
upplýsingar komnar frá Veð-
deild, sem sýndu að mismunur
annarra liða, svo sem afborgana
og vaxtagjalda mánaðanna
ágúst—desember var um 15 m.
kr. Niðurstaðan varð sú að enn
vantaði 45 millj. kr. eða 3,6%
af heildarveltu sjóðsins árið
1985, auk þess sem ekki hafði
fengist öll sú íjárveiting sem
beðið hafði verið um í septemb-
er-byijun.
8. Árið 1985 í höfn. Menntamála-
ráðherra brást mjög ókvæða við
þessum upplýsingum sem til
hans komu fyrst símleiðis frá
stjómarformanni en síðan í bréfi
dags. 5.12. 1985. Vissulega er
það skiljanlegt, þegar þess er
gætt að hann var þá nýkominn
í embætti og alls ekki búinn að
átta sig á gangi mála hjá sjoðn-
um, né við hvaða erfíðleika hann
ætti að etja í áætlanagerð sinni.
Og vafalaust hafa samráðherrar
hans ekki verið neitt hressir með
þessa nýju fjárþörf. En féð barst
frá fjármálaráðherra eftir við-
ræður hans við tvo stjómar-
menn, Auðun Svavar Sigurðsson
og Ólaf Amarson. Gáfu þeir þar
fjármálaráðherra loforð um að
gera ráðstafanir til að minnka
fjárþörf sjóðsins á árinu 1986
um sömu upphæð.
Staðan í áætlanagerð
sjóðsins nú
Viðbótarfjárþörf í lok ársins
hefur verið nokkuð föst regla síð-
ustu árin, og stafar hún m.a. af
því að Fjárlaga- og hagsýslustofnun
telur sig geta minnkað ijárþörfína
með því að veita til okkar minna
fé en við teljum þörf á. Árið 1984
vantaði t.d. í desember um 45 m.
kr., en það var um 6,4% af heildar-
þörfþessárs.
Áætlanagerð sjóðsins hefur tekið
miklum framföram undanfarin
misseri. Við lauslega athugun á
gangi fjármálanna síðustu árin
kemur í ljós að munurinn er minni
nú á áætlunum sjóðsins og endan-
legri niðurstöðu ársins en áður.
Áætlun 1986
Áætlun sjóðsins fyrir árið 1986
hefur nú verið- söxuð í smátt við
afgreiðslu Qárlaga. Ýmsar tilraunir
era nú uppi varðandi minnkun fjár-
þarfar vegna námslána á árinu
1986. Fjárveitingar til annarra liða
era ekki í samræmi við áætlanir
sjóðsins. Vantar þar nokkuð á. Hér
er um sama vandamáiið að ræða
eins og síðustu ár og verður sjóður-
inn enn á ný að vona að úr rætist.
Mjög nákvæmt módel með áætl-
unum um gengis- og verðlagsþróun
og sundurliðun allra þátta í starfí
sjóðsins er fyrirliggjandi hjá sjóðn-
um vegna fjárþarfar 1986. Það er
því engin ástæða til að örvænta um
áætlanagerð sjóðsins. Hins vegar
er flármögnunarvandamálið óleyst
nú í ársbyijun. — Hvað sem síðar
verður.
Höfundur starfar itjá L&naajóði
ísl. nimsmanna.