Morgunblaðið - 23.01.1986, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 1986
51
^3
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 10—11.30
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
UM ENDURHOLDGUN
Svar við athugasemdum Þorsteins Guðjónssonar
Síðari hluti
Á eftir „degi“ kemur nótt hvfldar
og ánægju í heimahögum. Hin
hærri svið eru heimkynni sálarinnar
en jörðin aðeins vettvangur skóla-
göngu hennar. Það er aldrei eilífð
nætur og hvfldar, heldur víxlun af
einu tíðnisviði yfir á annað með
vissu millibili og hvenær sem birtir
að morgni á sér stað endumýjun
ytri starfsemi.
Við vitum að flókin iíkamleg og
líffræðileg form eru ailtaf byggð
hægt og sígandi upp af einfaldara
formi. Hugleiddu þá hina geysilega
margflóknu sálaruppbyggingu vel
þroskaðs siðmenntaðs manns. Þó
við lítum framhjá spumingunni um
andann i bili og athugum aðeins
það sem snýr að vitsmununum,
virðist þá ekki vera ógerlegt að
maður geti byijað með tvær hendur
tómar við getnað eða fæðingu og
þróað síðan á tuttugu til þijátíu
ámm hina flóknu uppbyggingu sem
hinn siðmenntaði maður er? Hugs-
aðu síðan um þau tilfelli sem eru
ofar meðalmanninum, snillingana
sem eru jafnvel flarlægari hugsviði
villimannsins en villimaðurinn er
frá apanum. Hugsaðu út í þá stað-
reynd að þegar snillingar eiga í
hlut sjáum við stundum fjögurra
eða fimm ára böm sem hafa til að
bera einbeitingargetu sem er meiri
en hjá mörgu fuliorðnu fólki. Hvem-
ig gæti hugurinn þroskast og vaxið
upp úr engu í þetta stig á örfáum
árum?
Skrifið eða
hringið til
Velvakanda
Velvakandi hvetur lesendur til
að skrifa þættinum um hvaöeina,
sem hugur þeirra stendur til —
eöa hringja milli kl. 10 og 11.30,
mánudaga til föstudaga, ef þeir
koma því ekki við aö skrifa.
Mcöal efnis, sem vel er þegið,
eru ábendingar og orðaskipti,
fyrirspurnir og frásagnir, auk
pistla og stuttra greina. Bréf
þurfa ekki aö vera vélrituö, en
nöfn, nafnnúmer og heimilisföng
veröa að fylgja öllu efni til þáttar-
ins, þó aö höfundar óski nafn-
leyndar.
Sérstaklega þykir ástæða til
aö beina því til lesenda blaösins
utan höfuöborgarsvæöisins, að
þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja
hér í dálkunum.
Hin foma heimspeki setur ffarn
þá skýringu að til staðar sé fram-
þróun vitundar og innra lífs ná-
kvæmlega eins og í efnisheiminum.
Lífið notar form sem iagað er að
þörfum þess en leggur síðan frá sér
þegar það er úr sér gengið. Seinna
birtist það í eilftið fullkomnari lík-
ama. Þegar heilagur andi umvefur
sig „efni“ á leið sinni í þéttari form
er í fyrstu engin niðurgreining í
einstakar sálir. Lífskjaminn skilur
sig hægt og sígandi í mismunandi
tegundir eða hópa sem síðar skipta
sér niður í minni hópa, nákvæmlega
eins og safi trésins smýgur upp
bolinn, síðan út í greinar og að
lokum í undirfiokka smágreinanna.
Sál jurtar eða dýrs er hluti af hóp-
sál og þegar einstök planta eða dýr
deyr og lífskjarni þess skilur við
formið fer þéssi lífskjami aftur til
og sameinast hópsál viðeigandi
tegundar eða afbrigðis. Hvem þann
lærdóm sem hlutaðeigandi líf hefur
numið, t.d. að öm geti drepið
hænuunga, mun á einhvem hátt
mótast í hina sameiginlegu undir-
vitund hópsins og samansafn íjölda
tilvika svipaðrar reynslu frá ein-
stökum einingum tegundarinnar
mun sýna sig sem myndun ákveð-
innar eðlishvatar dýrs. Allar síðari
einingar sem fæðast inn í þá dýra-
tegund munu hafa til að bera ómeð-
vitað minni allra fyrri eininga teg-
undarinnar.
Það er ekki fyrr en við komum
að mannlega stiginu sem séreðlis-
myndun (individualisation) á sér
Mig langar til að þakka Hrafni
Gunnlaugssyni og sjónvarpinu fyrir
það fyrir það, sem mér finnst vera
best heppnaða áramótaskaup f
mörg ár. Þá ekki síður hinn
skemmtilega dansleik í sjónvarpssal
á nýársnótt, ég skemmti mér svo
vel við sjónvarpstækið að ég gat
ekki slitið mig frá því fyrr en dans-
inum lauk.
Því snerti það mig óþægilega,
þegar ein frú, sem var að tala um
þessa ágætu sjónvarpsþætti í út-
varpinu á laugardegi rétt eftir ára-
mótin, sagði eitthvað á þessa leið:
„að hún vonaðist tíl að fjölmiðl-
arnir færu ekki að mata fólk á
öllu, sem skeði og stöðva það í
þvi að taka þátt í sjálft." Greini-
stað. Allar þær mannssálir, sem nú
eru til (hvort sem er í jarðnesku lífi
eða lífi í hinum efnisfínni heimum),
séreðlismynduðust á einhverju
tímaskeiði í Qarlægri fortíð, tíma-
setningin mismunandi í hinum
ýmsu tilvikum, þannig að sumar
sálir eru tiltölulega ungar en aðrar
eldri og nokkrar sem eru þó nokkuð
miklu eldri. Við séreðlismyndun
verður það sem áður var manndýr
mannleg vera með sjálfstæða sál.
Mannssálin gengur í gegnum flölda
endurholdgana sem mannvera, með
hvfldartímabilum á hinum fínni
sviðum, og þroskast hægt og síg-
andi frá villimennsku til siðmenn-
ingar og blómstrar síðan sem hinn
fullkomni maður sem ekkert hefur
meira að læra af lífi á jörðu, heldur
er „útskrifaður" frá skóla mannlegs
lífs eftir að vera orðinn hæfur til
að ganga inn í ríki ofar hinu mann-
lega.“
Ég vona að Þorsteinn sé, eftir
lestur þessarar greinar, nokkru
fróðari um endurholdgun, sem hann
telur vera „eitt þeirra orða er menn
nota án þess að leiða hugann að
merkingu þeirra", og ennfremur
vona ég að hann sjái af lestri grein-
arinnar að endurholdgunarkenning-
in er að engu leyti ókristileg eins
og hann fullyrðir í grein sinni. í
sambandi við tilvitnanir hans í
kenningar Helga Fjeturss þá er það
eitt að segja að sjaldnast hefur
mönnum famast vel á því að kasta
steinum úrglerhúsi.
Omar Sveinbjörnsson
lega þótti henni ofrausn hjá sjón-
varpinu að færa fólki áramóta-
brennu inn á heimilin. Eins kom
framhjá henni sá misskilningur að
svona ball í sjónvarpssal stuðli að
stéttaskiptingu.
Mér finnst nefnilega að hver
maður ætti að vita að fjöldi fólks
er í þeim sporum að vera áratugum
saman fyrirmunað að taka þátt í
svo mörgu, sem aðrir geta veitt sér.
Þessu veldur bæði aldur, bæklun
og svo margt, — að ekki sé nefnt
fólkið í dreifbýlinu.
Þess vegna kærar þakkir til allra,
sem áttu þátt í þessari frábæru
sjónvarpsdagskrá, sem vonandi
verður áfram í sama dúr.
María Markan
Þakkir til Hrafns
og sjónvarpsins
Þessir hringdu . .
Góð þjónusta hjá Iðnó
Bára hringdi: „Mig langar til
að koma á framfæri þakklæti fyrir
einstaklega góða þjónustu í Iðnó.
Ég hringdi þangað síðdegis sl.
sunnudag til að panta miða fyrir
fjölskylduna. Við erum sex og tvö
sjá fremur illa, og urðum við því
helst að fá sæti framarlega í saln-
um. Konan sem svaraði í símann
hjá þeim í Iðnó var alveg einstak-
lega liðleg og gaf sér góðan tíma
til að finna fyrir okkur sæti, sem
alls ekki var auðvelt. Vildi hún
allt fyrir okkur gera og lagði sig
mjög fram til við fengjum sæti
saman. Ég hef oft hringt í miða-
sölur en aldrei áður fengið svona
góða þjónustu."
Endursýnið Kastljós
frá 13. des.
Anna hringdi: „Mig langar til
að fara þess á leit við sjónvarpið
að það sýni aftur Kastljós sem
var á dagskrá hinn 13. des. sl. í
þessum þætti var rætt við tvö
ungmenni sem bæði höfðu hlotið
varanlega fötlun eftir slys. Ég
held að margir hafí misst af þessu
vegna jólaanna og svo voru stór-
markaðir opnir frameftir þetta
kvöld."
Bifreiðastöð Steindórs
rétt yfirskrift
Jóhann G. Guðjónsson
hringdi: „Kristinn nokkur Snæ-
land skrifar pistil í Velvakanda
sl. þriðjudag þar sem hann fjallar
um grein sem ég skrifaði í Velvak-
anda fyrir nokkru. Ég vil að það
komi fram að yfirskrift greinar
minnar, „Bifreiðastöð Steindórs",
er í fullu samræmi við efni henn-
ar, og er ekkert við Velvakanda
eða blaðamenn Morgunblaðsins
að sakast í því efni. Sendibflar
hf. hafa afgreiðslu hjá Bifreiða-
stöð Steindórs, svo einfalt er nú
það. Að öðru leyti nenni ég ekki
að leiðrétta skrif Kristins."
Sendibíla^^l
hf. ekki Bif- I
reiðastöð V
Steindórs
Kristinn Snœland skrifan
. Velvakandi hefur ekki verið vel H
vaknaður þegar hann setti „Bifreiða- Hj
stöð Steindórs“ sem yfirskrift við H
skrif Jóhanns G. Guðjónssonar í H
dálki sínum 9. janúar sl. Hin hvim- H
leiða staðreynd er sú, að bIaðamenn_B
Hann er
f allegur þægilegur
og vandaður
Larvik hornsófinn
HVS6A6NAB0LLIN
BÍLDSHÖFÐA 20 - 110 REYKJAVÍK* 91-81199 og 81410
Larvik hornsófi — 6 sæta
— ljós eða lútuð fura. —
B:195 X L 250.
Útb. 10.000 — afb. 6 mán.
Mundu að við tökum greiðslukortin bæði sem
staðgreiðslu með hæsta afslætti og sem út-
borgun á kaupsamning.
MICROLINE 182/192 /193
Þeir hafa
slegið í gegn!
Skýringin er augljós:
★ Fróbœrir nótuprentarar.
★ Fullkomlega aöhœföir IBM PC og
sambœrilegum tölvum.
★ Geta auk þess tengst td. Flewlett
Fbckard, Wang PC, Digital, Apple og
öörum tölvum.
★ Fallegir, fyrirferöarlitlir og sérlega hljóölótir.
★ Notandi getur sjölfur hannaö eigin leturgeröir.
★ Fullkomin varahluta og viöhaldsþjónusta.
★ Til ö lager.
Nýjungarnar koma alltaf fyrst frö MICROLINE.
Þaö er því engin furöa,
aö MICROLINE eru
mest seldu tölvuprentarar á íslandi I
ÍMÍKROl
Skeifunni11 Sími 685610