Morgunblaðið - 23.01.1986, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 1986
55
XrstVEAi
■poftrswem
AEðvarð Þór Eðvarsson, Oleg Gavrilenko og Georgy Mikalev.
Morgunblaðið/KB
QPR kaupir
Frá Bob Hennessy, fróttamanni Morgunblaðsins á Englandi
QPR hefur keypt danska leik-
manninn Kurt Bakeolt, sem lók
með Vejle í Danmörku. Liðið
hefur gert tveggja ára samning
við þennan 22 ára gamla Dana
sem leikið hefur 12 landsleiki
með undir 21 árs liði Dana. Hann
þótti besti miðvallarleikmaður 1.
deildarinnar f Danmörku á sfð-
asta ári.
Mark Higgins hefur gert tveggja
ára samning við Manchester Unit-
ed. Higgins var tólf ár hjá Everton
en meiddist 1983 í leik gegn West
Ham. Eftir það var sagt að hann
mundi aldrei leika knattspyrnu
aftur. En Higgins var ekki á sama
máli. Hann gekk til margra sér-
fræðinga og náði góðum bata og
hóf æfingar af fullum krafti sjálfur.
Oxford áfram
hin liðin verða að reyna með sér aftur
Frá Bob Hennessy, fróttamannl Morgunblaðslns á Englandl.
XFORD tryggði sér réttinn til
að leika í undanúrslitum ensku
mjólkurbikarkeppninnar er þeir
sigruðu Portsmoth, 3-1, f gær-
kvöldi. Aston Villa og Arsenal
gerðu jafntefli, 1-1, og sömuleiðis
QPR og Chelsea.
Charlie Nicholas skoraði fyrst
fyrir Arsenal gegn Aston Villa,
þetta var 7. mark hans í 8 leikjum
í röð. Dean Glover jafnaði svo fyrir
Aston Villa á 75. mínútu. Arsenal
var mun betra í þessum leik og
áttu m.a. stangarskot.
John Byrne kom QPR yfir strax
á 12. mínútu gegn Chelsea. Pat
Nevin náði síðan að jafna rétt fyrir
hálfleik. Þessi lið verða því að leika
aftureftir hálfan mánuð.
Garry Briggs skoraði strax á 2.
mínútu fyrir Oxford og kom þeim
á bragðið. Rétt fyrir hálfleik bætti
Les Filleps við öðru markinu og
um miðjan seinni hálfleik gerði
Neil Flatter út um leikinn með
þriðja markinu. Garry Stanley náði
síðan að minnka muninn með
marki á síðustu mínútu leiksins.
Oxford er því komið í undanúrslit
og mætir þar annaðhvort Arsenal
eða Aston Villa.
250boltar enneftir
NÚ HAFA 150 manns náö aö
safna handboltalandsliöi og hafa
þvf 150 boltar þegar varið af-
hentir hjá HSÍ, en alls veröa 400
boltar afhentir, þannig aö 250
boltar eru enn eftir.
HSÍ fær ákveðna upphæð af
seldu bensíni hjá OLÍS, og hafa
þeir þegar greitt HSÍ 450 þúsund
krónur. Þetta er verulegur stuðn-
ingur við hið mikla undirbúnings-
starf landsliðsins fyrir heimsmeist-
arakeppnina.
Dana
Hann reyndi að komast að hjá
Everton aftur en þeir vildu hann
ekki og sögðust ekki hafa pláss
fyrir hann. Þá skrifaði hann Ron
Atkinson, framkvæmdastjóra
Man. Utd. og hann tók honum vel
og bauð honum að koma á æfing-
ar. Það var til þess að geröur var
tveggja ára samningur við kapp-
ann, sem leikur stöðu miðvarðar.
18. mark Walsh
Paul Walsh, framherjinn hjá
Liverpool, skoraði sitt 18. mark í
22 leikjum, e'r hann skoraði fyrsta
mark Liverpool gegn Ipswich í
mjólkurbikarnum á þriðjudags-
kvöld. Walsh er þó enn á sölulista
hjá liðinu og skal margan undra.
Breiðablik
sigraði
12. deild
BREIÐABLIK tryggöi sér sigur í
2. deild karla f handknattleik er
þeir sigruöu Aftureldingu aö
Varmá f gærkvöldi meö 30 mörk-
um gegn 21. Staðan f hálfleik var
14-10 fyrir Breiðablik.
Breiðablik hafði frumkvæðið í
leiknum allt frá upphafi. Svafar
Magnússon var markhæstur
þeirra með 8 mörk, Jón Þ. Jónsson
og Kristján Halldórsson gerðu sex
mörk hvor. Erlendur Davíðsson var
markahæstur Mosfellinga með 7
mörk.
Breiðablik hlaut því 22 stig og
í öðru sæti var Ármann með 21
stig. Þessi tvö lið flytjast því upp
í 1. deild að ári.
Eðvarð á verð-
launapallinum
EÐVARÐ Þór Eðvarðsson á verö-
launapallinum eftir aö hann varð
í þriðja sæti í 100 m baksundi á
Golden Cup-sundmótinu í Stras-
bourg um helgina. Sovétmaöur-
inn Oleg Gavrilenko var fyrstur í
mark á 0:58,01 mín. og hampar
hann hér sigurglaður bikar sín-
um. Georgy Mihalev frá Búlgaríu
var annar á 0:58,53 mín. og Eö-
varö synti á 0:58,90 mín.
Þremenningarnir komu í sömu
röð í mark í 200 m baksundi,
Gavrilenko á 2:04,88 mín., Mihalev
á 2:04,91 mín og Eðvarð á 2:06,95.
Gavrilenko átti 11. besta tímann í
100 m og 13. besta í 200 m bak-
sundi á heimslistanum yfir sund-
menn á síðasta ári og hann og
Mihail eru meðal 10 bestu bak-
sundsmanna Evrópu. Eðvarð varð
23 í 100 m baksundi á heimslistan-
um 1985. Skotinn Neil Cochran
varfjórði í sundinu á 2:08,32. Hann
er vel frambærilegur fjórsunds-
maður og átti 5. besta tíma í heimi
hér í 200 m i þeirri grein á síðasta
ári.
Eðvarð átti einnig þátt í að setja
íslandsmet á mótinu í Frakklandi
ásamt Magnúsi Ólafssyni, Arnþóri
Ragnarssyni og Ragnari Guð-
mundssyni í 4x100 m skriðsundi.
Þeir syntu á 3:46,29 mín. og bættu
gamla metið, sem var 3:48,70
mín., um rúmartvær sekúndur.
#John McEnroe er orðinn þreyttur og ætlar aö hvfla sig á keppnum
næstu 60 daga.
McEnroe ætlar
að hvíla sig
— keppir ekki í tvo mánuði
TENNISSTJARNAN skapstóra,
John McEnroe, segir aö hann
þurfi að hvfla sig frá tennismótum
atvinnumanna í minnst 60 daga.
Hann hefur ekki náð sér vel á
strik f sföustu mótum og hefur
skapið oft hlaupiö með hann f
gönur. „Ég þarf tfma til aö hvfla
mig til aö ná upp fyrri einbeit-
ingu,“ sagði McEnroe f gær.
i siðustu viku sagði McEnroe,
eftir leik sinn við franska tennis-
leikarann Yannick Noac, að hann
ætlaði ekki að leika tennis aftur
fyrr en barnið væri fætt. Hann á
von á barni eins og kunnugt er
meö leikkonunni, Tatum O’Neal
og á hún von á sér í maí. Fyrr í
þessum mánuði sagði eitt dag-
blaðanna í London að þau skötu-
hjú ætluðu að gifta sig 17. febrúar,
en McEnroe segir sjálfur að brúð-
kaupsdagurinn hafi ekki enn verið
ákveðinn.
Þótt McEnroe ætli ekki að taka
þátt í atvinnumannamótum á^
næstunni, mun hann æfa af fullum
krafti og leika æfingaleiki. Hann
hefur fjórum sinnum unnið banda-
ríska meistaramótið, þrívegis unn-
ið Wimbledon-mótið og hann var
besti tennisleikari heims í mörg
ár. Hann hrapaði úr fyrsta sæti
heimslistans í annað í lok ársins.
Tékkinn Ivan Lendl er nú efstur.
„Ég er ekki í eins góðri æfingu
nú eins og oft áður. Uppgjafir mín-
ar eru ekki eins góðar, ég hitti
ekki boltann eins vel og geri of„
mörg mistök. Jafnvægi mitt er ekkn
nógu gott til að ná góðum árangri,"
sagði McEnroe við fréttamenn í
NewYorkígær.
Hann lék 80 leiki á síðasta ári
og vann 71 en tapaði 9 og þénaði
meira en eina milljón doilara.