Morgunblaðið - 08.02.1986, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 08.02.1986, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR1986 Heilsugæsla í Hafnarfirði: 2.500 Garðbæ- ingar á skrá heimilislækna Höfum bent læknum á að segja þeim upp segir Einar I. Halldórsson bæjarstjóri „ÞAÐ er ekkert að heilsugæslunni hérna,“ sagði Einar Ingi Halldórsson bæjarstjóri í Hafnarfirði er Morgunblaðið innti hann álits á þeim ummælum Jóhanns Agústs Sigurðssonar hér- aðslæknis í Hafnarfirði hér í blaðinu á þriðjudag, að allt of mikið væri lagt á heimilislækna í Hafnarfirði. „Borgarar hafa ekki kvartað við mig, en ég get ekki neitað því að ég hef stundum heyrt kvartanir frá læknunum," sagði Einar, „en 2.500 Garðbæingar eru á skrá hjá heimil- islæknum hér í bæ og við höfum bent læknunum á að segja þeim upp. Það myndi létta á þeim.“ Er Einar var spurður að því, hvert þær 100 fjölskyldur, sem engan heimilislækni hafa, leituðu, sagði hann að þær fengju alla þjón- ustu á heilsugæslustöð bæjarins. heilsugæslu okkar utan þess ramma sem ríki og sveitarfélög hafa sett og ég tel að sú tilraun okkar hafi lánast mjög vel.“ Jón Gauti tók fram að sér þætti sjálfsagt, að gamalt fólk með þrá- láta sjúkdóma, sem væri í nánum tengslum við sinn gamla heimilis- lækni, væri áfram hjá þeim lækni, enginn yrði píndur til að skipta. Morgunblaóið/Sig. Sigm. Unnið við frágang kjötskrokka á Suðurlandi í sláturtíðinni í haust. ' v dff v | ji m %i | rmj <§ ■ Jp ** Wjm i ® í Fiskverð í Færeyjum: 33,60 fyrir stóran þorsk NÝTT fiskverð hefur verið ákveðið i Færeyjum og gildir það frá 1. febrúar til 31. maí. Sam- kvæmt því verður lágmarksverð á stórum fyrsta flokks þorski 33,60 íslenzkar krónur. Nýtt fis- kverð hefur enn ekki verið ákveðið hér, en síðasta gildandi lágmarksverð var 16,13 krónur fyrir stóran þorsk, en fiskverk- endur greiða fyrir hann 28,50, vegna ýmissa kostnaðarliða, sem á lágmarksverðið falla sam- kvæmt lögum. Nýtt fiskverð hér átti að liggja fyrir 1. f ebrúar. Verð á helztu fisktegundum í Færeyjum er nú sem hér segir, í öllum tilfellum miðað við stóran fyrsta flokks fisk: Ýsa 30,96, keila 21,12, langa 25,92, ufsi 21,60, steinbítur 24, lúða 86,40, karfí 21,84 og þorskhrogn 31,20 krónur. Lágmarksverð Verðlagsráðs sjávarútvegsins frá því í haust á helztu fisk tegundum er eftirfarandi (kaupendur greiða að meðaltali 77% ofan á verðið): Ýsa 16,87, ufsi 8, steinbítur 10,77, karfi 7,87, lúða 39,69, grlúða 9,25 og koli 13,08 krónur. Fimmmannanefnd viðurkennir ekki hækkanir kindakjötsverðs Deilt um það hver sé eigandi kjötsins og hvort bændur eigi rétt á viðbótargreiðslum vegna ársfjórðungslegra hækkana þess nefndarinnar að taka ekki tilliti til hækkunar kindakjötsverðs þann 1. desember síðastliðinn við ákvörðun vaxtagjalds til vinnslustöðv- anna. Einar sagði, að aðstaða þeirra sex lækna, sem ynnu við heilsu- gæslustöðina, væri góð svo langt sem hún næði. Unnið væri að við- byggingu við Sólvang, og þar væri heilsugæslunni ætlað rými, en framkvæmdir gengju hægt, ekki síst vegna þess að lítið fé kæmi frá ríkinu, sem lögum samkvæmt ætti að borga 85% byggingarkostn- aðar. Þegar hefði verið varið 12—14 milljónum króna til byggingarinnar. Morgunblaðið sneri sér til Jóns Gauta Jónssonar bæjarstjóra í Garðabæ og spurði hann hvort aðstaða væri fyrir hendi í Garðabæ til þess að veita læknisþjónustu þeim sem nú sækja hana til Hafnar- fjarðar. „Já, og hún mjög góð,“ sagði hann. „Við erum með alla heilsu- gæslu, tvo lækna og rúm fyrir þann þriðja á 240 m 2 , og fullkomna þjónustu. Við höfum byggt upp „Þetta tímabil hefur verið mikið framfaraskeið fyrir Selfoss og er það reyndar öllum hér að þakka hvort heldur þeim sem sitja í stjóm eða öðrum bæjarbúum. Mér finnast sveitarstjómarmál hafa tekið tölu- verðum breytingum í gegnum árin, til dæmis eru þau ekki eins persónu- leg eins og þau voru hér áður fyrr ef til vill vegna þess að fleiri menn og fleiri listar koma sífellt fram í dagsljósið," sagði Óli. Oli hefur annars verið skólastjóri gagnfræðaskólans á Selfossi síðan 1970 og var hann kennari við skól- ann 15 ár á undan. Hann sagði að ekki væri til betra starf þrátt fyrir launin. „Skattamir koma þó alls ekki jafnt niður á fólkið í landinu - það er einfaldlega bitur staðreynd. Ég er harður fylgismaður óbeinna skatta og ætti fyrir lifandi löngu að vera búið að taka upp virðisauka- skatt." Hann sagði húsakynni gagn- fræðaskólans vera góð, en 1. sept- ember nk. væri ráðgert að taka í notkun húsnæði fyrir 500 til 600 manna ijölbrautaskóla, sem brýn nauðsyn væri á. Reyndar var íjöl- Vaxtagjald var ákveðið 3,76 krónur á kíló á mánuði, en það er 25 aurum lægra en fulltrúar vinnslustöðvanna telja að það þurfi að vera. Að ákvörðuninni stóðu fulltrúar neytenda og verðlags- stjóri, sem er formaður nefndarinn- ar en fulltrúar vinnslustöðvanna voru á móti. Ríkissjóður borgar brautaskólinn stofnaður árið 1981 og sitja hann nú 400 nemendur víðsvegár um bæinn. Þá er ráðgert að opna hótel og félagsheimili á Selfossi 1. júní nk. auk þess sem þar verður afgreiðsla fyrir áætlun- arbifreiðar. „Við ætlum okkur að leggja ríka áherslu á ferðamanna- þjónustuna hér á Selfossi og munu þessar byggingar, sem nú eru að rísa, svo sannarlega auka atvinnu á staðnum." Hótelið hefur verið leigt til Samvinnuferða-Landsýnar, en félagsheimilið verður tekið í notkun að hluta í sumar. Eftir er að innrétta leikhússal og í einum áfanga hótelsins verður aðstaða fyrir útvarpsrekstur. „Bærinn hefur ekki hugsað sér að setja á stofn útvarpsstöð upp á eigin spýtur, en þó lítum við á það sem hlutverk bæjarins að koma á fót góðri að- stöðu til slíks reksturs þar sem lög um frjálsan útvarpsrekstur hafa tekiðgildi," sagði Óli. Þegar Óli tók sæti fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjóm árið 1962 var flokkurinn í minni- hluta. Síðan þá hefur ýmislegt breyst og í síðustu kosningum jókst vaxtagjaldið og með þessari ákvörð- un er það hátt í tveim millj. króna lægra á mánuði en vinnslustöðvam- ar telja að það þurfi að vera. Þessi ákvörðun er þó aðeins angi af stærra máli, sem snýst um það hver sé eigandi kindakjötsins frá síðustu sláturtíð og hvort bændur eigi að fá greiðslur vegna hækkana Óli Þ. Guðbjarteson fylgi flokksins úr 28% í 37% og mynduðu Sjálfstæðismenn meiri- hluta með Framsókn, að sögn Óla. Þó sagði hann að þeir í bæjarstjóm Selfoss væru það lýðræðislegir að á vikulegum þriggja manna bæjar- ráðsfundum væru tveir áheymar- fulltrúar frá minnihlutanum með tillögurétt, einn frá Alþýðuflokki og einn frá Alþýðubandalagi. Aðspurður um hvort hann væri hættur að skipta sér af stjóm- málum, sagði Óli Þ. Guðbjartsson að hann væri nú þriðji varaþing- maður fyrir sitt kjördæmi. „Nei ég er alls ekki leiður á stjómmálum - þykir reyndar nauðsynlegt að menn skipti sér af pólitík með öðmm störfum. Engum er hollt að verða óhultur um völd sín - menn verða að gæta að því að sveitastjómarmál em vandmeðfarin." þess löngu eftir að þeir hafa fengið gmndvallarverðið að fullu greitt. Viðbótargreiðslur á þriðja hundrað milljón krónur í búvömlögunum sem tóku gildi siðastliðið sumar em ákvæði um staðgreiðslu búvömverðs til bænda. Samkvæmt lögunum eiga bændur að fá greiðslur fyrir sauðfjárafurðir í þrennu lagi: Haustgmndvallarverð sem greiðist að hluta fyrir 15. október og að fullu fyrir 15. desem- ber. Síðan er ákvæði um að þeir fái viðbótargreiðslur vegna hækkana sem verða kunna við ársfjórðungs- legar breytingar verðlagsgmndvall- ar í hlutfalli við óseldar birgðir í landinu. Ákvæði um viðbótar- greiðslumar var ekki í þeim frum- varpsdrögum sem kom frá nefnd stjómarflokkanna sem samdi frum- varpið. Það kom inn við lokaaf- greiðslu málsins frá alþingi á vor- dögum. Kjötið var hækkað samkvæmt þessu þann 1. desember og á sú hækkun, sem nemur um 85-90 milljónum króna, að greiðast til bænda fyrir 15. mars næstkomandi. Á heilu ári em þessar greiðslur á þriðja hundrað milljónir kr. Það er sexmannanefnd sem ákveður verðið til bænda en fímmmannanefnd ákveður heildsöluverðið. Á fundin- um í gær lagði Brynjólfur Sigurðs- son dósent, annar fulltrúi neytenda í nefndinni, fram greinargerð þar sem hann gerir athugasemdir við þessar viðbótargreiðslur. Meirihluti nefndarinnar féllst á rök hans og tók þar af leiðandi ekki tillit til þessara hækkana við vaxtagjalds- ákvörðunina. „Stangast á víð rétt- lætiskennd mína“ í greinargerðinni segir Brynjólf- ur meðal annars: „Við slátmn sauð- flárafurða, sem að langmestu leyti á sér stað á haustin, er gert upp við bændur á haustverðlagi. Eign afurðanna færist þá frá bændum til afurðastöðvanna. Ef sauðfjár- bændur fá virði afurða sinna að fullu greitt á haustin, verður ekki séð, að greiða eigi viðbótargreiðslur umfram það, þótt almennar verð- breytingar eigi sér stað í landinu. Ávöxtun fjármagns, sem bændur fá greitt fyrir afurðir sínar, hlýtur að vera í höndum þeirra og á ábyrgð bænda sjálfra." Segist hann ekki geta fallist á viðbótargreiðslumar af þremur meginástæðum. í fyrsta lagi stang- ist slíkar greiðslur á við réttlætis- kennd hans. I öðm lagi vitnar hann í tilgang laganna þar sem segir að kjör bænda skuli vera í sem nánustu samræmi við aðrar stéttir og að stuðla beri að jöfnuði á milli fram- leiðenda. Viðbótargreiðslumar geri það að verkum að sauðfjárbændur beri meira úr býtum en viðmiðunar- stéttimar og meira en aðrir bændur, til dæmis mjólkurffamleiðendur. I þessu sambandi bendir hann á ákveðið misræmi i lögunum og segist ekki sjá hvers vegna fremur ætti að framfylgja ákvæðum um greiðslu afurðanna en tilgangi lag- anna sjálfra. í þriðja lagi segist Brynjólfur, sem fulltrúi neytenda, ekki geta bmgðist trúnaði með því að taka þátt í að stuðla að hækkuðu vömverði til neytenda. „Lagaákvæði ekki nógn skýr“ Georg Ólafsson verðlagsstjóri sagði að það væri ekki hlutverk fimmmannanefndarinnar að ákveða búvömverð til bænda en spumingin um viðbótarhækkanir snerti þó störf og ákvaðanir nefndarinnar í ýmsu og hefði því þótt rétt að taka málið upp á þeim vettvangi úr því það var ekki gert annarsstaðar. búvömlögin væm ekki nógu skýr hvað þetta varðaði kvaðst hann hafa talið rétt að standa að af- greiðslu málsins með neytendafull- trúunum til bráðabirgða, en áskildi sér rétt til að endurskoða afstöðu sína að fengnum svömm stjóm- valda. Margeir Daníelsson hagfræðing- ur, annar fulltrúi vinnslustöðvanna í fímmmannanefnd sagði að vinnslustöðvamar hefðu þegar tek- ið á sig skuldbindingar vegna hækkunar kindakjötsins og með þessari ákvörðun væri verið að ganga á hlut þeirra. Sagði hann að breyta hefði þurft lögunum til að fara þá leið sem meirihluti nefnd- arinnar ákvað að fara, og sagði allt í óvissu með framhaldið. Taldi hann að vinnslustöðvamar ættu kjötið með þeim skilyrðum sem lögin kvæðu á um, meðal annars hækkunum á verðlagsgmndvelli sem ákveðnar væm af sexmanna- nefiid hverju sinni. „Er alls ekki leið- ur á stjórnmálum — segir Óli Þ. Guðbjartsson, sem lætur af embætti bæjarfulltrúa á Selfossi eftir 24 ár ÓLÞI Þ. Guðbjartsson lætur nú af embætti bæjarfulltrúa i bæjar- stjóm Selfoss eftir 24 ára vera þar. Hann sagðist, í samtali við blaðamann, hafa ákveðið eftir síðustu sveitarstjóraarkosningar 1982 að hætta að kjörtimabilinu loknu. Segja mætti að ærin ástæða væri fyrir sig að hætta nú, þar sem árin i bæjarstóra væra orðin hátt á þriðja tug.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.