Morgunblaðið - 08.02.1986, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 08.02.1986, Blaðsíða 23
23 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR 1986 AP/Símamynd Aðmíráll myrtur Lögreg-Iumenn breiða yfir lík Cristobais Colon y Carvajal aðmiráls, sem myrtur var í Madríd. Bíl- stjóri hans beið bana i skotárás á bifreið aðmírálsins og foringi i spænska sjóhemum slasaðist. Bretland: Mútubrigsl í W estland-máli London, 7. febrúar. AP. MARGARET Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, neitaði því í dag, að ríkisstjómin hefði reynt að múta iðjuhöldi til að láta af andstöðunni við bandariskt kauptilboð í hlutabréf Westland-þyrlu- verksmiðjanna. Alan Bristow, sem á flest hluta- bréf einstaklinga í Westland-fyrir- tækinu, hefur skýrt svo frá, að tveir menn, sem sæti eiga í Lávarðadeild- inni, hafí tjáð sér, að ef hann hætti að berjast gegn tilboði Sikorsky- verksmiðjanna bandarísku og Fiat á Ítalíu í hlutabréfin yrði honum umbunað á ýmsan hátt. Yrði hann þá aðlaður, fengi sæti í stjóm Westland-fyrirtækisins og meira en markaðsverð fyrir hlutabréfín. Stjómarandstaðan á þingi krafð- ist skýrra svara frá Thatcher um þetta og í dag lýsti hún því yfir, að hvorki hefðu ráðherrar ríkis- stjómarinnar, embættismenn henn- ar eða nokkur fyrir hennar hönd boðið Bristow eitt eða annað. Bristow sagði í dag, að hann hefði aldrei gefið í skyn, að mála- leitanin hefði verið frá stjómvöldum komin en ummæli hans hafa þó orðið til að kynda undir deilunum um Westland-málið. Höft á ferðafrelsi eins og í Rússlandi Breytingarnar í Evrópubandalaginu: Enginn frestur á undirrituninni Haag, Kaupmannahöfn, 7. febrúar. AP. LÖGIN um breytingar á sáttmála Evrópubandalagsins verða und- irrituð 17. febrúar nk. og verður ekki sinnt óskum Dana um að undirrituninni verði frestað. Kemur þetta fram í tilkynningu frá hollenska utanríkisráðuneyt- inu í dag. Utanríkisráðherra Dana sagði f dag, að á þjóðarat- kvæðagreiðslunni 27. febrúar nk. ylti hvort Danir undirrituðu lög- in. í tilkynningu hollenska utanríkis- ráðuneytisins sagði, að lögin um endurbætur á sáttmála EB-ríkjanna yrðu undirrituð 17. febrúar eins og fyrirhugað hefði verið og væri ekki hægt að verða við óskum Dana um að fresta því í hálfan mánuð. Sovétríkin: Veiðimenn á hálum ís Moskvu, 7. febrúar. AP. MÖRG hundruð veiðimenn voru hætt komnir á laugardag þegar sprunga kom í íshellu, sem þeir voru að veiðum á, og hana rak frá eynni Sak- halin, að því er segir í dag- blaðinu Kosmolskaya Pravda í dag. Allir komust lífs af og sakaði engan. Um tíu þúsund áhugamenn voru að veiðum á nokkurra fer- kílómetra svæði þegar skjmdi- lega myndaðist nokkurra metra breið sprunga. Hundrað manns var bjargað í þyrlum. En bróður- hluti björgunarstarfsins fór fram á jörðu niðri. Þeir veiði- menn, sem ekki rak frá landi, komu strandaglópunum til hjálpar. Þeir köstuðu til þeirra reipum og gerðu brýr af skíðum, röftum og öðrum munum til þess að veiðimennimir kæmust í örugga höfn. í blaðinu sagði að ísinn gæti hafa brostið-vegna jarðslgalfta skammt undan japönsku eynni Hokkaido. Meginefni breytinganna er, að af- numin verður sú regla, að allar ákvarðanir innan bandalagsins verði að fá einróma stuðning aðild- arþjóðanna, en með þeim er einnig stefnt að greiðari flutningi vöru og þjónustu milli landanna. Uffe Ellemann-Jensen, utanríkis- ráðherra Danmerkur, sagði í dag, að ef breytingamar yrðu sam- þykktar í þjóðaratkvæðagreiðslunni 27. febrúar yrði ekki beðið boðanna Bandarísk mannréttindanefnd skilar áliti Washington, 7. febrúar. TALSMAÐUR bandaríska utanríkisráðuneytisins neitaði í dag að bandarísk yfirvöld synjuðu útlendingum um vegabréfsáritun vegna stjóramálaskoðana þeirra. Hann kvað flestar umsóknir um áritun hljóta samþykki eftir að athugað hefði verið hvort um njósnara eða hryðjuverkamenn væri að ræða, eða hagsmunir umsækjandans samræmdust hagsmunum Bandarikjamanna. með að undirrita lögin en ef þær yrðu felldar, ættu Danir á hættu að missa aðildina að EB. í fyrradag sagði Ellemann-Jensen, að hann teldi sig sem þingmann ekki bund- inn úrslitum þjóðaratkvæðagreiðsl- unnar og ollu þau ummæli hans nokkrum úlfaþyt meðal stjómar- andstöðunnar. Sökuðu jafnaðar- menn hann um að óvirða þjóðarat- kvæðagreiðsluna áður en hún væri haldin. Gagnrýnendur á þingi og úr mannréttindasamtökum halda fram að hér sé verið að niðurlægja umsækjandann og slíkar aðferðir séu ekki við hæfi í frjálsu landi. Þessi mál voru til umfjöllunar á fundi bandarísku Helsinki-nefiidar- innar. í henni sitja þingmenn. Stjóm Ronalds Reagan stofnaði nefndina til að hafa eftirlit með sáttmála austur- og vesturveldanna frá 1975 um öryggismál og sam- vinnu í Evrópu. „Það er kominn tími til að rýmka McCarran-W alter-innflytjendalög- in, vegna þess að bálkurinn um ferðamenn og erlenda gesti er of óljós," segir Steny H. Hoyer, þing- maður demókrata og varaformaður nefndarinnar. Hoyer og Paul Simon, öldunga- deildarþingmaður demókrata, segja að lögin setji Bandaríkjamenn á bás með Sovétmönnum. „Við virðum ekki ferðafrelsi, sem við viljum að Varsjárbandalagsríkin og önnur einræðisríki geri skilyrðislaust. Malcolm Wallop, öldungadeildar- þingmaður repúblikana, hefur mót- mælt. Hann segir að nefndin sé með undarlegar æfíngar í að refsa sjálfri sér og þessar æfingar verði vatn á myllu áróðursvélar Sovét- BOKAFJOLL AVILDARKJORUM I tileíni þess aó fyrirtœkið á 20 ára afmœli nœsta haust heíjum við afmœlisárið með því að eína til stórútsölu á bókum. Það mun kenna margra góðra grasa í hlíðum þessara bókafjalla alveg upp á efstu tinda. Úrvalsbœkur á ótrúlega lágu verði Þeir sem leita góðra bóka verða ekki fyrir vonbrigðum í BÓKAFJALLGÖNGUNNI, hvorki með verð né vörugœði. Nýjar og nýlegar bœkur Það verða ekki eingöngu gamlar baekur sem við bjóðum, heldur einnig nýjar og nýlegar, oetlaðar þeim sem hyggjast byggja upp góð heimilisbókasöin. SVELTUR SITJANDl KRÁKA EN FUÚGANDIFÆR Frá og með 7. - 22. febrúar i verslun okkar að Slðumúla 11. Opið frá 9-18. nema á laugardogum 10 - 16. Lítið útlitsgallaðar bœkur verða einnig á boðstólum. Sumar þeirra eru nánast nýjar en seldar með ótrúlegum afslœtti vegna smávœgilegra útlitsgalla. Döggin og sólin Bókaíjöllin okkar eru ekki hœrri en svo að þau munu án efa hvería eins og dogg fyrir sólu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.