Morgunblaðið - 08.02.1986, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 08.02.1986, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR1986 Minning: SigríðurH. Stefáns dóttír, Ólafsvík Fædd 13. mars 1912 Dáin 28. janúar 1986 Þegar fréttin barst okkur að morgni 28. janúar sl. að Sigríður mágkona mín væri látin kom það okkur ekki á óvart. Aðdragandi þess var búinn að vera allnokkur og harðnandi eða allt frá því í ágúst- mánuði sl. Frá þeim tíma hafði hún legið rúmfost í Landspítalanum þar sem hún fékk alla þá bestu umönn- un sem hægt var að láta henni í té. Fyrir u.þ.b. þremur árum tók Sigríður þann sjúkdóm, sem flestum skilar á sama áfangastað, en sjúk- dómurinn var hægfara og aðgerða- lítill. Snemma á síðasta ári tók hann breytta og óvægilega stefnu. Þess utan bjó Sigríður við skerta heilsu sem var afleiðing af veikind- um árið 1965. Upp úr þeim veikind- um vann hún sig með miklum dugnaði, þannig að hún gat haldið áfram kennslustörfum í 6—7 ár eftir það áfall, en verulega hreyfi- hömluð og með skert jafnvægis- skjm. Hún var því vel að hvfldinni komin. Sátt við alla með óvenjufar- sælan starfsferil að baki. Undan- farin 12 ár hefur hún dvalið í Há- túni 10 í Reykjavík. Sigríður var dóttir sæmdarhjón- anna Svanborgar Jónsdóttur og Stefáns Kristjánssonar, sjómanns og bátaformanns og síðar vega- verkstjóra, frá Uppsölum í Ólafsvík. Sigríður var elst 6 bama þeirra hjóna. Hin eru: Fríða, íþrótta- og leikfimikennari, búsett í Reykjavík, Þorgils, fyrrverandi yfirkennari, búsettur á Akranesi, Alexander, alþingismaður og ráðherra, búsett- ur í Olafsvík, Gestheiður, verslunar- maður, búsett í Ólafsvík, og Erla, kennarí, búsett í Kópavogi. Foreldrar þeirra systkina voru mikið mannkostafólk. Móðir þeirra, Svanborg, var mikilhæf húsmóðir, hófsöm og orðvör, hrein listakona í handmennt og saumaskap, sem margir hér í Ólafsvík nutu góðs af utan íjölskyldunnar. Faðir þeirra, Stefán, var glað- beittur hugsjóna- og félagsmála- maður, sem bar með sér hugsjóna- glóð aldamótamanna. Hann var og drifkraftur í leiklistar- og sönglífi hér í Ólafsvík. Æskuheimilið að Uppsölum var því góð umgjörð uppvaxandi efnisbömum þeirra hjóna. En lífsbarátta annars og þriðja áratugarins var óvægin. Allir urðu að leggjast á eitt, strax og kraftar leyfðu svo að heimilin kæmust af. Um annað var tæplega að ræða. Við þessar kringumstæður myndaðist hin sterka ábyrgðar- kennd elsta barasins á Uppsölum. Abyrgðarkenndin og skylduræknin við fjölskylduna varð ríkasti þáttur- inn í fari Sigríðar, vék aldrei frá henni meðan hún lifði. Þessir þættir ásamt fágaðri framkomu vom höf- uðkostir hennar f lífi og starfí og skipuðu henni sérstakan sess hjá öllum, sem henni kynntust og með henni störfuðu. Snemma árs 1929, þá tæplega 17 ára, lagði þessi glæsilega stúlka upp í sína fyrstu brottför að heiman sem verkakona við fiskverkun hjá stóm útgerðarfélagi í Reykjavík. Hér var um einhveija þá erfiðustu vinnu að ræða sem hugsast gat fyrir óharðnaða stúlku, nánast ungling. Þetta var við saltfískverk- un þeirra tíma. Það var næstum ofætlun að ætla unglingsstúlku að vaska fisk um hávetur, þar sem bijóta þurfti ísinn af vaskakömnum kl. 6 að morgni þegar vinna hófst en hún stóð svo til kl. 7 á kvöldin. Starfskonur bjuggu í íbúðarskála í Rauðarár- holtinu og þurftu sjálfar að mat- reiða fyrir sig og hita húsnæðið. Þegar togarar fyrirtækisins komu inn til löndunar var oft bætt við vinnudaginn 5—6 klukkustundum. Kaupið fyrir slíka vinnu var þá um 80 aurar á klukkustund. Þessi fyrsti vetur við hin erfiðu vinnuskilyrði við vöskun á saltfiski hjá Kveldúlfi hf. var stúlkunni Sigríði Stefánsdóttur frá Uppsölum í Ólafsvík mikil eldskím, sem hún stóðst reyndar með prýði, varð upphafið að mjög farsælli og marg- þættri starfsævi. Þessi saga um atvinnu og aðbúnað ungrar stúlku frá árinu 1929 mætti vera ungu fólki í dag nokkurt íhugunarefni og ekki síður hitt, að nánast hvem eyri af Iaunatekjunum sendi hún heim til foreldra til styrktar heimil- ishaldi og framfærslu hinna yngri systkina. um nokkurt skeið stundaði Sig- ríður umrædd fiskvinnslustörf að vetri en var í kaupavinnu að sumr- inu. Kynntist hún þá einnig því hver munurinn var á húsbændum og hjúum á hinum stærri býlum þeirra tíma. Árið 1933—34 stundaði hún nám við Kvennaskólann að Staðarfelli. Afrakstur þess náms varð mikill, bæði bóklegur og ekki síður í hand- mennt og handavinnu, og hafði það mikil áhrif á framtíð hennar. Frá árínu 1935 fór Sigríður að starfa sem matráðskona hjá föður sínum á sumrin við vegafram- kvæmdir. Við það starfaði hún um eða yfir 20 sumur. En árið 1940 hófst nýr kafli í ævi hennar er hún hóf farkennslu í Fróðárhreppi en því starfi gegndi hún til ársins 1947. Það sama ár hóf hún kennslu við Bamaskólann í Ólafsvík, sem hún gegndi síðan að einu ári undan- skildu, en veturinn 1952—53 stund- aði hún nám í Handíðaskólanum og lauk þaðan handavinnukennara- prófi en sérkennslugrein hennar var handavinnukennsla stúlkna. Enginn vafi er á því að kennslu- störf Sigríðar, fyrst í Fróðárhreppi og síðar ( Bamaskólanum í Ólafs- vík, er mikilvægasti kaflinn í far- sælli starfsævi þessarar mikilhæfu konu. Fljótlega ícomu í ljós hæfileik- ar hennar til kennslustarfa. Hin fágaða framkoma hennar og góð- vild, sem var jöfn til allra, opnuðu henni leið til allra sinna mörgu nemenda í áratugi. Agavandamál þekkti hún ekki og alkunna var það í Ólafsvíkurskóla að hinir erfiðustu í hópi piltanna voru bljúgir og auðsveipir í umgengni við hana og fara ekki dult með þakkir í hennar garð æ síðan. í kennslustörfum naut Sigríður sín til fulls. Af hinum miklu og flölþættu mannkostum gat hún gefið öðrum ótæpilega og stór er sá hópur húsmæðra og sjósóknara hér heima og heiman, sem er henni þakklátur fyrir allt það er hún gaf þeim af mannkostaauðlegð sinni. Það var henni því mikil lífsfylling að finna á merkum tímamótum í lffi sínu alla þá vináttu og hlýju, sem til hennar streymdi frá þessu fólki. í lífi Sigríðar sátu skyldumar við æskuheimilið og fjölskylduna ávallt í fyrirrúmi. Uppsalaheimilið var alltaf hennar heimili, allir sem þaðan komu vom hennar flölskylda, systkinaböm og systkinabamaböm vom hennar böm, gleði þeirra var einnig hennar gleði. Sigríður giftist aldrei eða stofn- aði eigin fjölskyldu. Lífshamingja hennar fólst í því að gleðja, gefa og hjálpa öllum f hinni stóm flöl- skyldu sinni og að halda heimili með foreldmnum af fullri reisn meðan faðir hennar lifði og hún og móðir hennar höfðu heilsu til að búa þar heima. Sigríður stundaði kennslustörf frá árinu 1940 til ársins 1971, alls 31 ár og þar af 24 ár við Bama- skóla Ólafsvíkur. Hún leysti af sem skólastjóri í ijarveru skólastjóra 1957—58 og fórst það vel úr hendi eins og allt er hún tók sér fyrir hendur. Á kveðjustund þessarí em þeir eflaust margir sem hafa þakkir að flytja hinni mætu manneskju. Ekki hvað síst er það hinn stóri hópur frændsystkina, sem kveður frænk- una góðu og gjafmildu. Sjálfur kveð t Elskuleg dóttir mín, ANNA EGGERTSDÓTTIR, lést í Landakotsspítala 6. febrúar. Fyrir hönd aðstandenda, Hallfríður Eiðsdóttir. t Eiginkona mín, rhóðirokkar, tengdamóðir og amma, KRISTÍN SIGURÐARDÓTTIR, Selvogsgötu 18, Hafnarfirði, lést þann 6. febrúar síöastliðinn. Ólafur Frimannsson, börn, tengdabörn og barnabörn. t Föðurbróðir okkar, JÓHANNES KRISTJÁNSSON, fulltrúi, Skeiðarvogi 127, lést á heimili sínu þann 6. febrúar. Kristján Sigurðsson, Jón Sigurðsson, Elfn Sigurðardóttir, og aðrir aðstandendur. t Útför konunnar minnar, móður okkar og tengdamóður, ERNU GUÐMUNDSDÓTTUR, sem andaðist 29. janúar sl. fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudag- inn 11. febrúar kl. 13.30. Stefán Pétursson, Gunnar Jones, Hildur Eysteinsdóttir, Rosa Jones, Jónas Jóhannesson. t Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við fráfall eiginmanns míns, föður okkar, fósturföður, tengdaföður og afa, EIRÍKS G. BRYNJÓLFSSONAR, Norðurgötu 48, Akureyri. Guð blessi ykkur öll. Kamilla Þorsteinsdóttir, Edda Eiríksdóttir, Auður Eirfksdóttir, Jóhann Þ. Halldórsson, Þorsteinn Eirfksson, Arndfs Baidvinsdóttir, Guðríður Eiríksdóttir, Gunnar Ragnars Hafsteinn Andrésson, og barnabörn. t Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför föður, stjúpföður, tengdaföður, afa og langafa, HALLGRÍMS LÚTHERS PÉTURSSONAR. Sverrir Hallgrfmsson, Rósa Óskarsdóttir, Fjóla Halldórsdóttir, Ingvar Guðjónsson, Anna Lorange, barnabörn ög barnabarnabörn. Legsteinar gramt - - marmari Opió alla daga, i einnig kvóld ó.j-. Unnarbraut 19, Seltjarnarnesi, og helgar. símar 620809 og 72818. ég ekki bara elskulega mágkonu heldur og einnig góðan vin, sem ég bar djúpa virðingu fyrir. Öll kveðj- um við hér konu, sem verður okkur ógleymanleg fyrir það að hún hafði til að bera allt það besta sem prýða má eina manneskju. Blessuð sé minning hennar. Eiinbergur Sveinsson í dag verður jarðsett frá Ólafs- víkurkirkju Sigríður Hulda Stefáns- dóttir sem lést í Landspftala íslands 28. janúar sl. eftir langa og erfiða sjúkrahúslegu. Sigríði, eða „frænku" eins og hún var kölluð á mínu heimili, kynntist ég fyrst 1972 í Ólafsvík er ég naut einstakrar gestrisni á heimili henn- ar í örfáa daga það sumar. Þá þegar fann ég hlýjuna og góðvildina sem ríktu á því heimili og hvemig hún stjómaði og stjanaði af ást og umhyggju og mikilli ósérhlífni, til þess að allir hefðu það sem best og allir væm sáttir. I plássinu, þar sem hún bjó lengst af, var hún sér- lega vel kynnt og vinsæl jafnt meðal fullorðinna og ekki síður meðal bama. Það vom flestir Ólafsvíking- ar svo lánsamir að fá að kynnast Sigríði, því hún kenndi í íjölda ára við skólann og naut þar sem annars- staðar virðingar og ástar samstarfs- manna og nemenda. „Frænka" var sterk og eftir henni var tekið sökum reisnar og óvenju mikils sálarstyrks. í henni sá maður allt það góða sem fólk vill svo gjaman sjá hvert hjá öðm, en verður svo oft fyrir vonbrigðum með að finna ekki. Frænku- og frændaböm Sigríðar fundu öll það sama hjá frænku sinni, ást, óþijót- andi þolinmæði og hlýju, og bám því öll sömu Ijúfu tilfinningar til frænku sinnar. Ég veit bara hversu mikils virði það var bömunum mfn- um að fá að kynnast frænku sinni, kjmnast því sem þau ekki kjmnast hjá hverri manneskju. Þessum góðu minningum munu þau seint glejrma. Þar sem góðir menn ganga em guðs vepr, og hún hefur gengið sinn veg á enda með einstakri reisn og sóma. Fari hún í friði, friður guðs hana varðveiti, og hafi hún þökk fyrir það sem hún kenndi okkur um lífið og bróðurkærleika. Arni Guðmundsson Birting afmælis- og minningar- greina ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningar- greinar verða að berast blaðinu með góðum fyrir- vara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði, að berast i síð- asta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. í minn- ingargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess skal einnig getið, af marg- gefnu tilefni, að frumort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíðum Morgunblaðsins. Jarðarfarar- skreytingar Kistuskreytingar, krans- ar, krossar. Græna höndin Gróðrarstöð við Hagkaup, sími 82895. 'oí

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.