Morgunblaðið - 25.02.1986, Side 22
22
. MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR1986
Nýja-Sjáland:
Eggjum kastað í
Bretadrottningu
Auckland, Nýja-Sjálandi, 24. febrúar. AP.
MÓTMÆLANDI grýtti hráu eggi í Elísabetu II. Bretadrottn-
ingu er hún keyrði fram hjá þúsundum skólabarna í upphafi
vikulangrar opinberrar heimsóknar til Nýja-Sjálands.
Eitt egg hafnaði á bleikri kápu
drottningarinnar og ataðist hún
eggjarauðu. Annað egg brotnaði á
þakrúðu bifreiðarinnar, sem drottn-
ingin var í. Atvikið átti sér stað
þegar Elísabet ók ásamt hertogan-
um af Edinborg fram hjá 40 þúsund
skólakrökkum, sem safnast höfðu
saman til að sjá drottninguna, í
hafnarborginni Auckland.
Lögreglan handtók konuna, sem
henti egginu, og aðrar konur er
einnig hentu eggjum í átt að farar-
tæki drottningar. Konumar hróp-
ERLENT
Halastjarnan
Halley
sést á ný
Los Angeles, 24. febrúar. AP.
HALASTJARNAN Halley,
sem ekki hefur greinst frá
jörðu i nokkurn tíma sökum
sólarbirtu, hefur nú sést á ný
af stjömufræðingum. „Hala-
stjarnan er í nógu mikilli
fjarlægð frá sólu til þess að
hægt sé að greina hana sé
beitt réttum brögðum," segir
Chris Clark við Lick-s<jömu-
athugunarstöðina í San Jose,
Kaliforníu.
Hann sagði þó að nokkrir
dagar myndu líða þar til aðrir
stjömuskoðendur en atvinnu-
stjömufræðingar myndu koma
auga á halastjömuna. Halley
hvarf sjónum í síðasta mánuði
þegar hún hvarf bak við sólu.
Þó hún hafi raunverulega ekki
farið bakvið sólina, miðað við
jörðu, er sólarbirtan svo sterk
að ómögulegt hefur verið að
greina hana nema í stjömukíkj-
um, sem búnir eru sérstökum
ljóssíum. Halley hefur einnig
greinst með útfjólubláum mæl-
ingum frá Pioneer 12 sem er á
braut umhverfis Venus.
uðu ókvæðisorð er þær voru dregn-
ar á braut, en ekki var ljóst hveiju
þær vom að mótmæla.
David Lange, forsætisráðherra
Nýja-Sjálands, hefur fordæmt
eggjakastið og kveðst munu biðja
drottninguna formlegrar afsökunar
fyrir hönd ríkisstjórnarinnar og
Nýsjálendinga.
Breskir þingmenn em yfir sig
hneykslaðir á atburðinum og Harry
Greenway, þingmaður íhalds-
flokksins, ætlar að leggja til að
þingheimur fordæmi eggjakastið:
„Þetta er fyrirlitlegt athæfi og gert
af ráðnum hug til að niðurlægja
konungdæmið," sagði Greenway.
Ítalía:
Fjölskylda
ferst í
aurskriðu
Napólí, 24. febrúar. AP.
ÁTTA meðlimir sömu fjölskyldu
fórust er aurskriða féll á hús sem
þau voru í á laugardagskvöld.
Orsök aurskriðunnar eru miklar
rigningar á þessu svæði undan-
famar tvær vikur.
Húsið var í litlum dal um 30 kíló-
metra fyrir austan Napólí. Það hafði
verið byggt þama án leyfís, eins
og algengt er á þessu svæði sem
er mjög fátækt og vanþróað. For-
eldrar ásamt dætmm sínum tveim-
ur, 3ja ára og 16 mnaða létust, og
fjórar frænkur.
AP/Símamynd
Filippus prins hjálpar Elísabetu Bretadrottningu við að ná eggjaslettum úr kápu sinni eftir að eggi var
hent í hana í Auckland á Nýja-Sjálandi. Sjá má hvar taumar úr eggi leka niður þakrúðu bílsins.
Bandaríkin:
Hagfræðing’ar spá
aiiknum hagvexti
Washington, 24. febrúar. AP.
HAGFRÆÐINGAR búast lækkandi olíuverð hjálpi til
við auknum hagvexti í við að halda verðbólgunni í
bandarísku efnahagslífi á skefjum og segja að lítil
þessu ári vegna þess að hætta sé á afturkipp.
Farþegum boðið að fylgjast með
rannsóknum á flaki Titanic
New Orleans, 24. febrúar. AP.
VERIÐ er að undirbúa leið-
angur í New Orleans í Banda-
rikjunum til að kanna flak
Titanic og hyggjast leiðang-
ursmenn fjármagna leiðang-
urinn með því að taka farþega
með í djúpsjávarköfunina.
Leiðangurinn er í tengslum
við vísindamiðstöð Louisiana
og er ætlunin að kanna náið
hvað kom fyrir hið rísastóra
farþegaskip og gera um það
sjónvarpsmynd.
í ráði er að ná upp ýmsum
hlutum sem eru á hafsbotni
umhverfis flakið en hins vegar
verður flakið sjálft ekki snert.
Ætlunin er að fjármagna leið-
angurinn með því að taka um
40 farþega með í förina og verða
þeir að greiða um 50 þúsund
dollara hver fyrir fulla þátttöku.
Samtök bandarískra hagfræð-
inga gerðu könnun meðal 300
félaga sinna og voru þeir flestir
bjartsýnni nú á aukinn hagvöxt
en áður.
Eins og sakir standa eru 88
prósent aðspurðra hagfræðinga
þeirrar trúar, að þessi gróska
muni endast til ársins 1987, en í
könnun fyrir einu ári bjóst helm-
ingur þeirra, sem könnunin tók
til, við því að kreppa myndi að
þegar í upphafi þessa árs.
Meginástæðan fyrir þessari
nýtilkomnu bjartsýni meðal hag-
fræðinga er mikil lækkun olíu-
verðs undanfarið. Þeir telja að
lækkandi olíuverð muni auka
hagvöxt og halda aftur af verð-
bólgunni.
KENWOOD
TRAIIST MERKI MEÐ ÁRATUGA REYNSLU Á ÍSLANDI
Fullkomin varahluta- og viðgerðaþjónusta
BESTA
ELDtíÚSIlJÁLPM
TH0RN
HEIMILIS OG RAFTÆKJADEILD
VISA
HF
LAUGAVEGI 170 -172 SÍMAR 11687 - 21240