Morgunblaðið - 28.05.1986, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 28.05.1986, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVTKUDAGUR 28. MAÍ 1986 7 Þýskaland: 52 krónur fyrir kílóið af karfa ÞRJU fiskiskip seldu afla sinn erlendis í upphafi þess- arar viku. Gott verð fékkst fyrir karfa í Þýzkalandi, en verð er lægra nú í Bretlandi en að undanförnu. Snorri Sturluson RE seldi 263,8 lestir af karfa í Bremerhaven á mánudag. Heildarverð var 13,7 milljónir, meðalverð á kíló 51,98 krónur. Guðmundur Kristinn SU seldi 74,2 lestir, mest þorsk og ýsu á þriðjudag í Grimsby. Heildarverð var 3,5 milljónir króna, meðalverð 47,28. Gæðum var nokkuð ábóta- vant. Ljósafell SU seldi 155,1 lest, mest fyrsta flokks þorsk og ýsu í Grimsby sama dag. Heildarverð var 8,4 milljónir króna, meðalverð 54,32. Talið var að mikið framboð á físki úr gámum hefði dregið verð í Bretlandi nokkuð niður. Loðnuveið- in má hefj- ast20. júlí Hlutur Islands í sumar- veiðinni 562.000 lestir NÆSTSÍÐASTA , SYNINGARHELGIA IBROADWAY N.K. FÖSTUDAGS- OG LAUGARDAGSKVOLD Söngbókin er einhver glæsilegasta tónlistarhátíð sem sviðsett hefur verið hér á landi þar sem allir okkar bestu tónlistarmenn fara á kostum með Gunnari Þórðarson í fararbroddi. Enn gefst tækifæri til að upplifa þessa stórkostlegu skemmtun í Broadway föstudags- og laugardagskvöld. Hinn sívinsæli píanisti Ingimar Eydal leikur létta dinnertón- list fyrir matargesti. Miða- og borðapantanir daglega ísíma 77500 Sjávarútvegfsráðuneytið hefur nú ákveðið að hefja megi loðnuveiðar þann 20. júlí í sumar. Er það fjrrr en undanfarin ár. Skipting loðnukvótans milli ein- stakra skipa verður með sama hætti og undanfarin ár, 67% skiptast jafnt milli allra og 33% í hlutfalli við burðargetu. Hlutur íslands í sumarveiðiloðnunni verð- ur að öllu óbreyttu 652.000 lestir. í frétt frá ráðuneytinu segir meðal annars, að loðnuveiðar verði bannaðar sunnan 68 norðlægrar breiddar fyrst um sinn, en fylgzt verði með ástandinu á svæðinu og það opnað, lejrfí stærð loðnunnar það. Norðmenn og íslendingar ákváðu fyrir nokkru að skipta með sér sumarloðnunni eftir fyrri að- ferðum, þar sem ekki náðist sam- komulag við Grænlendinga um hlut þeirra. Ákveðið var að leyfa í upphafí veiði á 800.000 lestum. 85% koma í hlut íslendinga og 15% 'í hlut Norðmanna. Við skuldum Norðmönnum hins vegar 28.000 lestir frá síðustu vertíð, og verður hlutur okkar því 652.000 lestir og Norðmanna 148.000. Rætt hefur verið við Færeyinga um veiðiheimildir þeirra hér við land, en þær hafa síðustu ár tengzt nokkuð loðnuveiðum þeirra með leyfum frá EB og Grænlandi. Þeir hafa undanfarin ár veitt með samþykki þeirra, en vegna þess hafa íslenzk yfírvöld minnkað botnfískkvóta þeirra úr 17.000 lestum í 8.000 tvö síðustu ár. Á þessu ári hafði Færeyingum verið úthlutað 3.000 lestum til og með fyrsta ágúst en á fundi með þeim nýlega var samþykkt að auka það magn upp í 5.000 lestir. Enn liggur ekkert fýrir um loðnuveiðar Fær- eyinga og verður endanleg ákvörð- un um botnfiskkvóta ekki tekin fyrr en í ljós kemur hvort þeir fara í loðnuna eða ekki. TJöfóar til 11 fólks í öllum starfsgreinum! ECCADWAr 20. og 21. júní spunnið í Petulu Clark en topplög, kvikmyndahlut- verk og margverðlaunaðir sjónvarpsþættirgefa það til kynna. Hún ert.d. hvorki meira né minna en „heims- manneskjan meðal stjarn- anna", konan sem Charlie Chaplin, Frank Sinatra frægustu kvikmyndaver og helstu leikhús hafa leitaö til þegar mikið hefur legið við, enda er hún fjölhæf listakona og hefur hún fengist við marga athyglis- verða hluti síðan hún var fræg barnastjarna í kvik- myndum ó fimmta áratug- num. Þá var hún svo vinsæl í Englandi að blöðin birtu reglulega teiknimyndaser- íur um hana. Síöan óx hún úr grasi og var hún fengin til að leika í kvikmyndum þar sem mótleikarar henn- ar voru ekki ómerkari menn en Sir Alec Guinnes, Ant- hony Newley og Peter Ustinov. Svo sló hún all rækilega í gegn fyrir svona 20 árum með laginu „Dow- ntown“. Síðan hefurhún fengið fleiri gullplötur en nokkur önnur bresk söng- kona fyrir lög eins og „Colourmy world" „Casa- nova“ A Sign Of The Ti- mes“, „Sailor" „My Love" og auðvitað „This Is My Song“ sem hún söng fyrir síðustu kvikmynd Charlie Chaplin. Hér er þó aðeins stiklað á stóru þar sem plötur hennar hafa selst i meira en 30 milljónum ein- taka. Sumir muna kannski eftir allt öðrum lögum með henni, enda er lagaval hennar mjög fjölbreytt. Hún hefurtugi verðlauna í bak og fyrir. Til dæmis hefur hún tvisvar fengið eftirsóttustu músíkverð- laun heimsins: Grammy verðlaunin (fyrir plöturnar DOWNTOWN og IKNOW A PLACE) og verðlaunin, „Grand prix national du disque Francais" fyrir óhemju miklar vinsældir í Frakklandi, enda gengur hún undir gælunafninu „Edit Piaf Englands" meðal músíkgagnrýnenda í Bandaríkjunum. Af þeim fjölda kvikmynda sem hún hefur leikiö í má t.d. nefna „Goodbye mr. Chips" þar sem Peter O’Toole lék á móti henni og mynd Francis Coppola, „Finian’s Rainbow" þar sem hún dansaði m.a. á móti Fred Astaire. Og það er ekkert lát á kvikmynda- leik hennar. Nýjasta mynd hennar „Never never land" er ekki nema nokkurra vikna gömul og þvi ekki enn komin til íslands. Hún hefur líka verið önnum kafin við að leika í söngleikjum t helstu leikhúsum Lundúna og koma fram í sjónvarps- þáttum beggja vegna Atl- antshafsins. Af og til hefur hún stjórnað eigin þáttum og yfirleitt hafa þeir fengið mikið hrós gagnrýnenda. En þar fyrir utan hefur hún gefið sér tíma til hljómleika- ferða. Fram að þessu hefur hún þó aðeins komið fram á fínustu stöðum, s.s. The Royal Albert Hall í London og Waldorf Astoria í New York þar sem hún hefur slegið öll aðsóknarmet. Að sjálfsögðu hefur hún einnig komið fram á bestu stöðum í París, Hollywood og Las Vegas. í dag er hún einn eftirsótt- Heimskonan PETULA CLARK ÁTÓNLEIKUM í BROADWAY 20. og 21. júní nk. asti næturklúbbaskemmti- kraftur heimsins enda sagði hún eitt sinn: „Ég býst við að ég hafi meiri ánægju af að koma á per- sónulegum söngskemmt- unum en af nokkru öðru sem ég geri. Það jafnast ekkert á við það að vera í beinu sambandi við áheyr- endur því þá fær maður strax viðbrögð um hvernig maðurstendursig." Og nú er Petula Clark væntanleg til íslands. Margir hafa furðað sig á því hvað hún sé að vilja hingað — en Reykjavík er að verða nokkuð vel þekkt sem menningarborg er- lendis. Petula mun koma i Broadway ásamt stór- hljómsveit sinni. Petula kemur líka til með að skemmta í Broadway þar sem ekki ómerkari skemmtikraftar en The Platters, Rod Stewart, Fats Domino, RayCharles, poppsveitirnar Hollies, Searchers og Tremeloes hafa komið fram. Drottning allra breskra hljómsveita, The Shadows, ætlar að enda, að öllum lík- indum, þriggja áratuga langan feril sinn á Broad- way svo að líklega finnst jafn mikilhæfri söngkonu og Petulu Clark við hæfi að koma þarfram líka. Auk þess finnst henni áhuga- vert að reyna stöðugt eitt- hvað nýtt. Ekkert er fjær henni en stöðnun. Miðasala og borðapantanir í Broadway daglega. Sími77500 B.H. HLJÓÐFÆRI BRQ^O/W
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.