Morgunblaðið - 28.05.1986, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 28.05.1986, Blaðsíða 33
32 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. MAÍ1986 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. MAÍ 1986 33 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aöstoöarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Agúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, simi 10100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 450 kr. á mánuöi innanlands. f lausasölu 40 kr. elntaklö. _ •• Enn um Olfusvatn Allir andstöðuflokkar sjálf- stæðismanna og Dagblaðið-Vísir (DV) hafa sam- einast um að gera kaupin á jörð- inni Ölfusvatni að helsta árásar- efni á meirihluta sjálfstæðis- manna í Reykjavík. Er gerð krafa til þess, að kjósendur hafni meiri- hlutanum í höfuðborginni vegna þeirrar ákvörðunar að kaupa þetta land við suðurenda Þing- vallavatns fyrir Hitaveitu Reykja- víkur. Það er síður en svo eins- dæmi, að andstæðingar Sjálf- stæðisflokksins gagnrýni hann vegna kaupa á jörðum til framtíð- arafnota fyrir Reykvíkinga. Reynslan sýnir, að þessir gagn- rýnendur falla jafnan á eigin bragði; þeir reyna að nota sér jarðakaup til að sverta einstakl- inga í hita kosningabaráttu. Einmitt þetta hefur gerst nú. Strax að kosningunum loknum munu vinstrisinnar og DV vona, að borgarbúar gieymi Ölfusvatni sem fyrst og þeim óhróðri, sem ausið var vegna þess. Eins og bent var á í Reykjavík- urbréfí Morgunblaðsins á sunnu- dag, fer ekki hjá því, að allir skynsamir menn, sem kynna sér hagsmuni Reykvíkinga og raunar allra, sem njóta Hitaveitu Reykja- víkur, og það verð, sem gefíð var fyrir Ölfusvatn, hljóta að átta sig á því, að hér er síður en svo um óráðsíu að ræða. Hvort unnt er að rugia menn í ríminu með því að æsa upp í þeim öfundina, skal ósagt látið. Til hennar hefur að sjálfsögðu verið höfðað af þeim, sem stjóma Þjóðviljanum og er furðulegt að sjá, hve vinstri flokkamir og DV voru fljót að bíta á það agn. Dr. Gunnlaugur Þórðarson, sem var um áratugi einn af frammámönnum Alþýðuflokks- ins, bendir á það í Morgunblaðs- S-ein í gær, að kaupverðið á lfusvatni sé svipað og ca verð 5 einbýlishúsa. Hann minnir á, að fyrir tæpum 60 ámm hafí samsvarandi meirihluti í Reykja- vík keypt hluta Elliðavatns fyrir sambærilegt verð. Þá gat borgin komið upp eigin rafvirkjun og eignaðist vemlegan hluta Heið- merkur. Þá segir dr. Gunnlaugun „Eftirminnilegasta dæmið um afglöp minnihlutaflokkanna í bæjarstjóm Reykjavíkur fyrr og síðar var þegar bærinn keypti jarðhitasvaeðið að Reykjum í Mosfellssveit nokkm eftir 1930. Þau kaup em eitt merkasta afrek bæjarstjómar Reykjavíkur. Jarð- hitasvaeðið að Reykjum hefur verið meginundirstaða reksturs Hitaveitu Reykjavíkur og blessun borgarbúa. Það er sorglegt til afspumar fyrir minnihlutaflokk- ana og þó einkum Alþýðuflokk- inn, sem þá var helsti minnihluta- flokkurinn í bæjarstjóm Reykja- víkur, hvemig þá var lagst gegn þeim kaupum." Bendir greinar- höfundur á, að jarðhitasvæðið að Reykjum hafí kostað jafnvirði 4-5 einbýlishúsa. Mikill ungæðisháttur setur svip sinn á baráttu andstæðinga Sjálfstæðisflokksins. Hann og ábyrgðarieysið er mest hjá kosn- ingasveit Alþýðubandalagsins, þótt Alþýðuflokkurinn hafí gert sitt besta til að slá Alþýðubanda- lagsmönnum við. Þessi bama- skapur ræður ferðinni í Ölfus- vatnsmálinu; andstæðingar Sjálf- stæðisflokksins vilja ekki læra af sögunni og verða því að reyna það enn á ný, hveraig ekki á að láta stjómast af skammsýni og stundarhagsmunum við mat á jarðnæði handa Reykjavík. Morg- unblaðið gerir orð hins gamal- reynda frammámanns Alþýðu- flokksins að sínum: „Það er spá mín varðandi þessi jarðakaup, að innan örfárra ára muni hvert mannsbam átta sig á að þessi ráðstöfun hafí ekki aðeins verið réttmæt heldur frábær og að þá myndu ýmsir, sem nú fara villir vegar, vilja geta státað af því að hafa átt fmmkvæðið að þessum þýðingarmiklu kaupum á jörðinni Olfusvatni." Samkeppni olíufélaga Hér hefur það verið gagnrýnt, að olíufélögin kepptu ekki sín á milli í sölu á bensíni og olíu. Fundið hefur verið að þvf, að vegna skorts á samkeppni ein- kenndi hið sama olíufélögin og bankana á sínum tíma, að leitast er við að lokka viðskiptavini til sín með glæsilegum útibúum en ekki með því að veita þeim bætta þjónustu við sölu á helstu söluvör- unni. Olís hefur reynt að feta nýjar brautir í þjónustu við viðskipta- vini sína. Nýlega varð dálítill hvellur út af því, að Olfs hóf sölu á gæðabensíni. Nú hafa keppi- nautamir fylgt á eftir og segjast raunar gera betur með því að bjóða sterkt bensín, eins og það er kallað. Fyrir hönd viðskiptavina olíu- félaganna fagnar Morgunblaðið því merka skrefí, sem stigið er með þeirri ákvörðun olfufélag- anna að hefja innflutning á betra bensfni; þetta gæti orðið upphaf nýrra tíma í olíuverslun á íslandi, ef rétt er á málum haldið. AF INNLENDUM VETTVANGI Eftir HALLDÓRU J. RAFNAR Atak í holræsa- gerð í Reykjavík Hreinsun sjávar og fjöru við borgina verði lokið á 8 árum MENGUN hefur verið fylgifiskur mannsins um aldaraðir. Á síðustu árum hefurýmis konar tækni til þess að koma í veg fyrir mengun fleygt fram jafnframt því sem áhugi manna á hreinu umhverfi hefur vaxið. í borgarráði Reykja- víkur var í aprílmánuði kynnt stórátak í holræsagerð, þar sem gert er ráð fyrir að á næstu 8 árum verði fjara og sjór við Reykjavík hreinsuð. í stað 35 útrása (holræsa), er nú renna í sjó fram, komi 3 hreinsistöðvar og frá þeim verði lögð plaströr langt út í sjó. Er áætlað að heildarkostn- aður við þessa hreinsun verði 525 milljónir króna. Búið er að bjóða út fyrsta áfangann sem tekur til holræsa við Sætún og Skúlagötu, frá Ingólfsgarði út í Laugames og eru framkvæmdir þar þegar hafnar. Fyrsta holræsi í Reykjavík var skýrslu um þær haustið 1967. lagt í Ægisgötu árið 1902, beint í sjó fram, en um allan heim hefur sá kostur að velja stystu leið til sjávar yfírleitt verið hagnýttur til þess að losna við skolp. Með vaxandi byggð jókst óhreinkun sjávarins og jafiiframt því sem hreinlætiskröfur urðu meiri var farið að endurskoða og framlengja stærstu ræsin, þann- ig að þau næðu fram í stórstraums- flöru. Á árunum 1956-57 var leitað til finnskra sérfræðinga um úr- lausnir vegna óhreinkunar sjávar- ins, þeir lögðu m.a. til að reistar yrðu dælu- og hreinsistöðvar innst í Fossvogi og við Gelgjutanga og að lagðar yrðu langar trélagnir í sjó fram út af Eiðsgranda, Örfirisey og Laugamesi. Þessar hugmyndir náðu ekki fram að ganga þar sem þær þóttu of kostnaðarsamar. Upp úr 1960, var tekin sú stefnumark- andi ákvörðun að lagnir skyldu vera tvöfaldar, önnur fyrir skolp, en hin fyrir regnvatn, þannig að vatns- magn það er hreinsa þyrfti minnk- aði. Fossvogsræsið var lagt um þetta leyti, en segja má að sú fram- kvæmd hafi gert byggðimar í Foss- vogi, Árbæ og Breiðholti möguleg- ar. Umfangsmiklar straumrann- sóknir og aðrar athuganir í Foss- vogi og Skeijafírði hófust árið 1967, til að kanna hvort óhætt væri að leggja aðalholræsi út í fjörðinn, án þess að skaða baðstaðinn í Naut- hólsvík. Orkustofnun undir umsjón Jónasar Elíassonar, prófessors, sá um þessar rannsóknir og skilaði Samið var við ráðgjafarfyrirtækið „Isotopcentralen" í Kaupmanna- höfn árið 1970 um samstarf við mengunarrannsóknir í sjónum í kring um borgarlandið vegna ákvarðana um framtíðarlegu hol- ræsaútrásanna frá höfuðborgar- svæðinu. Þessar rannsóknir fóru fram sumarið 1970 og skýrsla með niðurstöðunum kom út síðsumars 1971. Rannsóknin sýndi ástand sjávarins í kring um borgarlandið og á grundvelli hennar var spáð um ástandið árið 2000 miðað við að engar ráðstafanir væru gerðar. (Sjá kort.) í skýrslunni var bent á nokkra kosti til lausnar mengunar- vandan, sem velja mætti á milli, eftir því hve strangar kröfur ætti að gera. Næstu árin var unnið að ýmsum rannsóknum og fram- kvæmdum s.s. vegna bygginga á Eiðsgrandasvæðinu og hreinsun við Nauthólsvík og Elliðaárvog. Miklar framkvæmdir 1982-1986 Eftir borgarstjómarkosningam- ar 1982 hófust miklar framkvæmd- ir f holræsamálum. Í júni ’82 sam- þykkti borgaretjóm Reykjavíkur að taka svokallað Grafarvogssvæði undir nýbyggingar, þar sem sýnt þótti m.a. að byggð við Rauðavatn yrði kostnaðarsamari hvað holræsa- gerð varðaði. Var þegar hafist handa við skipulagningu og hönnun hverfísins og þar sem voru móar og melar fyrir 4 ámm er nú risin um 1.000 íbúa byggð. Umfangs- miklar rannsóknir vom gerðar og flókin tölvuvinnsla unnin, er verk- fræðistofan Vatnaskil annaðist, til þess að hægt væri að gera sér grein fyrir hvar bráðabirgðaútrásir út í voginn myndu valda minnstri mengun. Em þessar íslensku gmndvallarrannsóknir merkilegt framlag. Verður á þessu ári lokið við holræsi er duga munu þremur fyrstu byggingarsvasðunum f Graf- arvogi og einnig gerð bráðabirgða- útrás út af Gufuneshöfðanum, en sfðar er reiknað með að aðalútrás verði lögð langt í sjó fram út af Geldinganesi. Mjög mikilvægt er að vel verði að málum staðið á þessu svæði, þar sem nú er áætlað að í Eiðsvík verði starfræktar fiskeldis- stöðvar. Á þessu kjörtfmabili hefur einnig verið lokið við hreinsun strandlengj- unnar fyrir botni Elliðaárvogs. Skolpdælustöð sem hönnuð var af fslenskum tæknimönnum og reist á Gelgjutanga var tekin í notkun árið 1985. Er hún fyrsta stöð sinnar tegundar, en áður höfðu litlar dælu- stöðvar verið byggðar í Breiðholti og Selási. Tekur hún við skolpi frá um 8.000 manna byggð, dælir því upp um 9 metra og síðan rennur það út í gegn um bráðabirgðaútrás við Holtabakka. Áður hafði Ólafur Guðmundsson, yfirverkfræðingur gatna- og holræsadeildar, gert mjög nákvæma útreikninga á því vatns- magni, sem í gegnum stöðina fer. Hreinsuninni lokið á 8 árum Áætlunin um framtíðarlausn frá- veitumála í Reykjavík sem kynnt var í aprílmánuði sl. gerir ráð fyrir að á næstu 8 árum verði lokið því verki sem nú er hafið við hreinsun sjávar og fjöru umhverfis borgina. Áætlunin er unnin og undirbúin af starfsmönnum gatnamálasljóra, en ákveðinn þáttur hinnar flóknu tölvuúrvinnslu í samvinnu við Tækniháskólann í Þrándheimi og verkfræðistofu þar. Til þess að fullur árangur náist, þurfa sveitar- félögin í nágrenni borgarinnar einn- ig að gera átak í þessum málum svo komið verði í veg fyrir mengun. Leggja á niður þær 35 útrásir sem nú eru notaðar í Reykjavík og tengja þess f stað saman holræsa- kerfið í þijár meginsafnleiðslur, sem hver og ein rennur út í gegnum hreinsistöð. Þar verður skólpið gróf- hreinsað, þannig að frá stöðvunum fer aðeins vökvi, er dælt verður í plastlögnum út á verulegt dýpi, þar sem sjávarstraumar blanda hann og bera burt. Nútímatækni gerir það að verkum að auðveldara og ódýrara er að leysa þetta verkefni en hingað til hefur verið og er nú áætlað að framkvæmd þessi muni kosta 525 milljónir króna. Miklar framfarir í hugbúnaði tölva gera alla útreikninga nákvæmari og ______________________________________________ öruggari, plastlagnir í útrásir neð- Þessi mynd er tekin úr flugvél 4. apríl 1985 með fjölrófsskanna. Hún sýnir mengað útstreymi frá tveim ansjávar, sem nú eru á markaðnum holræsum við Skúlagötu. MENGUN SJAVAR Ástandið 1970 eru til muna ódýrari en þær lagnir er áður var reiknað með og botn- vinna er mun minni. Staða borgar- sjóðs er einnig góð um þessar mundir og horfur í efnahagsmálum almennt betri en verið hefur um langt skeið. Því er eðlilegt að meiri- hluti sjálfstæðismanna f borgar- stjóm telji að nú sé lag til fram- kvæmda. Árin 1986-1988 er ráðgert að tengja holræsin frá Geirsgötu að Laugamesi, gera 2 dælustöðvar á leiðinni, þar sem um mjög langa safnleiðslu er að ræða og gera út- rás með hreinsistöð í Laugamesi. 1988-1990 á að tengja ræsin við Ægissfðu, gera þar dælustöðvar og útrás út í Skeijaíjörð. 1990-1991 munu ræsin við Eiðsgranda- Ánanaust tengd, gerðar dælustöðv- ar og útrás í Orfirisey. 1991 verður lokið við holræsi við Sundahöfn. 1992-1993 verður lagt holræsi frá Sundahöfn í Laugames, gerð dælu- stöð og viðbótarhreinsibúnaði kom- ið upp í dælustöðinni þar. Ráðgert er að hreinsibúnaði verði komið fyrir við útrásimar í Skeijafirði og Orfirisey. Hér er um mjög viðamikla framkvæmd að ræða, en biýnt er orðið að leysa fráveitumál RÍeykja- víkur til frambúðar og raunar höf- uðborgarsvæðisins alls. Því er full ástæða til að vænta þess, að yfirvöld í nágrannasveitafélögunum fylgi í fótspor borgarstjómar Reykjavíkur og gangi frá sínum fráveitumálum. Dælustöðin á Gelgjutanga við Elliðavog. Þar er skólpinu dælt upp um 9 metra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.