Morgunblaðið - 28.05.1986, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 28.05.1986, Blaðsíða 31
Spáim MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. MAÍ 1986 Baskar hóta ferðamönnum öllu illu San Sebastian, Spáni. AP. AÐSKILNAÐARHREYFING Baska á Norður-Spáni, ETA, tilkynnti í dag, að allt kapp yrði lagt á að fæla ferðamenn frá áður vinsælum stöðum við Miðjarðarhaf nú i sumar. Við það myndi spánskur efna- hagur versna stórlega og þrýstingur yrði meiri á stjóraina að verða við kröfum ETA. Spánveijar hafa langmestar tekj- ur af ferðamönnum og á síðasta ári varð hagnaðurinn um átta millj- arðar dollara. í ár hefur bandarískum ferða- mönnum á Spáni fækkað til muna, eins og er raunar um alla Evrópu og margsinnis hefur verið sagt frá. Engu að síður hefur fram til þessa ekki verið útlit fyrir að ferðamenn til Spánar verði færri en undanfarin ár, en 43 milljónir útlendinga komu þangað árið 1985. Ef ETA lætur til skarar skríða og gerir alvöru úr hótunum sínum má þó búast við að margir ferðamenn kjósi aðra staði í leyfum sínum. Spassky Anatoli Karpov Jafntefli hjá Karpov og Spassky Bugojno, Júgfalaviu. AP. ANATOLY Karpov og Boris Spassky, sem eru báðir fyrrverandi heimsmeistarar í skák, gerðu jafntefli í fyrstu skákinni á alþjóðlegu móti í Júgóslavíu, sem sagt er hið sterkasta í heiminum á þessu ári. Spassky hafði hvítt. Samið var um jafntefli eftir 22 leiki. Anthony Miles frá Bretlandi sigr- umferð voru þau að skák Portisch aði Ljubojevic frá Júgóslavíu í tutt- frá Ungveijalandi og Sokolov frá ugu og tveimur leikjum, eftir að Sovétríkjunum fór í bið og sömu- Júgóslavanum höfðu orðið á mistök leiðis skák Yusopovs frá Sovétríkj- í 19. leik. Önnur úrslit í fyrstu unum og Timmans frá Hollandi. Frakkland: Bonner ræðir við forseta þingsins og fjóra ráðherra París. AP. YELENA Bonner, eiginkona sovéska andófsmannsins Andreis Sakharov, átti í gær fund með Jacques Chaban-Delmas, for- seta franska þingsins. Ræddu þau aðgerðir, sem ætlunin er að hrinda í framkvæmd til hjálpar eiginmanni hennar, að sögn Chaban-Delmas. Áætlað var, að Bonner hitti Francois Mitterand forseta að máli síðia dags í gær. Frú Bonner hefur verið til lækninga í Bandaríkjunum um sex mánaða skeið, en er nú á ferð um Frakkland, Noreg, Bretland og Ítalíu á leið sinni heim. Chaban-Delmas sagði á fundi með fréttamönnum eftir viðræð- umar við Bonner, að þau hefðu rætt „ákveðnar aðgerðir, sem miða að því að tryggja, að Andrei Sakharov falli ekki í gleymsku". „Sovéskum ráðamönnum verð- ur að skiljast, að við munum ekki gefa frá okkur vonina um að Sakharov hljóti frelsi, frelsi til að snúa aftur til Moskvu og til að taka þátt í vísindastörfum í Sovét- ríkjunum á nýjan leik, einkum á sviði kjamorkuvisinda, þar sem erfíðleikar steðja að um þessar mundir," sagði hann. Á mánudag hitti Bonner Jacq- ues Chirac forsætisráðherra, Claude Malhuret mannréttinda- málaráðherra, Francois Leotard menningarmálaráðherra og Mic- hel Noir utanríkisráðherra. Eftir fundinn með ráðherrunum sagði Bonner við fréttamenn, að óvarlegt væri að leggja trúnað á það, sem sovésk stjómvöld segðu um þau hjónin, „af því að það er í flestum tilfellum uppspuni". Hún sagði, að það væri hræði- leg tilfinning að vita af stöðugu eftirliti stjómvalda og leynilegum kvikmyndatökum. „Manni líður eins og örveru í smásjárskoðun," sagði hún. Kosningaloforð sjálfstæðismanna vegna borgar- stjórnarkosninga 1982 og hvenær þau voru efnd: SjálfstœÖismenn munu: EfnV ■ i.i. £. x • : i i s: LœKKa Tasieignagjoiam svo pau veroi sambærileg við það sem gerist í ná- grannasveitarfélögunum 1 00 o\ Samþykkja að fækka borgarfulltrúum. 1 mi 1 ■ Hætta við Rauðavatnsbyggðina og byggja meðfram ströndinni. 1 [982 Leggja niður framkvæmdaráð. 1 L982 Fella úr gildi ákvarðanir meirihlutans um „sfldarplön“ út í Reykjavíkurtjörn. ] L982 Leggja niður punktakerfið í áföngum og stefna að því að lóðaframboð full- nægi lóðaeftirspurn. ] L983 Beita sér fyrir því að hafin verði bygg- ing bifreiðageymsluhúss í miðbænum. ] L983 Selja Ikarus-strætisvagnana. ] L983 I Fella úr gildi ákvörðun vinstri meiri- hlutans um íbúðabyggð í Laugardaln- um. ] L982 Birta þessi loforð með skýrslu um efndirnar í lok næsta kjörtímabils svo menn geti þá borið saman orð og efndir. 28.5.’86 Sjálfstæðisflokkurinn lætur verkin tala x-D
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.