Morgunblaðið - 07.06.1986, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAU G ARDAGUR 7. JÚNÍ 1986
37
Stjörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
„Til stjömuspekiþáttarins.
Ég er feedd 2.3. 1945 kl. 4 um
nótt. Ég væri mjög þakklát ef
þú vildir segja mér frá því
helsta sem þú sérð í stjömu-
korti mínu. Með fyrirfram
þakklæti."
Svar:
Þú hefur Sól og Merkúr í Pisk-
um, Tungl í Vog, Venus í Hrút,
Mars í Vatnsbera, Bogmann
Rísandi og Sporðdreka á Mið-
himni.
Ljúfogmjúk
Heildartilfinningin sem kortið
gefur er sú að þú sért ljúf og
mjúk manneskja. Þú ert já-
kvæð og verkar þægilega á
annað fólk. Þó er í þér ákveðin
spenna sem gerir að þú ert
einnig hressileg.
Draumlynd
Þú hefur Sól og Merkúr í Fisk-
um. Það táknar að þú sért
draumlynd og næm. Þú tekur
tillit til umhverfisins og vilt ná
til sem flestra. Þú reynir að
vera skilningsrfk og umburðar-
lynd. Þér getur hætt til að vera
utan við þig.
Réttlœtiskennd
Tungl ( Vog táknar að þú sért
félagslynd og reynir að hafa
jafnvægi á tilfínningalífí þínu.
Þú vilt skilja sjónarmið ann-
arra, vega og meta og gæta
réttlætis. Þú ert dagfarsprúð
og vingjamleg í hegðun.
Áhrifagjörn
Það getur verið varasamt að
hafa Pisk og Vog saman I
korti, því þeim hættir til of
mikillar kurteisi og tillitssemi.
Þetta em merki sem vilja skilja
og ná til annarra og því getur
þeim hætt til að slá af eigin
kröfum, fóma sér fyrir aðra
og láta misnota góðvild sfna.
Ég er ekki að segja að þú sért
svona, heldur að hér sé um
hættu að ræða sem getur verið
gott fyrir þig að hugleiða.
Viltspennu
Úranus er f andstöðu við Rís-
andi merki og í spennuafstöðu
við Sól. Það táknar að þú viljir
spennu og nýjungar í líf þitt
og verður óþolinmóð og leið
með vanabindingu. Þú þarft
einnig ákveðið frelsi. Þú getur
því átt til að springa, ijúka upp
og breyta til þegar þú finnur
til leiða. Ef þú finnur ekki
málamiðlun milli þessa þáttar
og framangreinds Fiska- og
Vogarþáttar getur líf þitt orðið
brokkgengt: Þú tekur of mikið
tillit til annarra og slærð af
eigin kröfum. Það þolir þú ekki
til lengdar og rýkur skyndilega
upp og gerir uppreisn. Þeir
aðilar sem uppreisnin beinist
gegn skilja sfðan ekkert í því
sem er að gerast og þú getur
lent í deilum. Til að forðast það
flýrð þú í burt og eyðileggur
kannski samband sem var að
mörgu leyti gott!
Hress framkoma
Bogmaður Rfsandi táknar að
þú sért hress og jákvæð í fasi
og framkomu. Þú hefur
ánægju af ferðalögum og ættir
að gæta þess að hreyfa þig.
Bogmaðurinn er eirðarlaust
merki.
Rannsóknar-
hœftleikar
Sporðdreki á Miðhimni í
spennuafstöðu við Plútó sem
er í mótstöðu við Mars táknar
að þú hafir rannsóknarhæfi-
leika og myndi falla vel að
vinna við slfk störf. Ferðamál
eru einnig á áhugasviði þínu,
svo og listir og andleg máí.
X-9
9ronSky /mjt/r sfr/ft 'Rasko*' ofursta, v.efna f/ótta fti/V
fr stcJoA a/f fctTd. 'fö}// ofje/'j fioonasf /w/afrt^
' TfaSHbw ofVRsrr t/SR/R
sj/f/fftp aAr/fí/R
' \/faRA.//£/? SR
(fj//VR,y///i/R"MMlY\^J£FS/e HFfU,
Fc//vo/& FbR/?/&>// Fóouí/ ,
06 S7ÍS/JSO/S/R.. fisc/CFtc/R
!?!!!!!!!!!!!!!!!! !T 1!!!!!!!!!!!!!!!!!!
!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!?!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
DYRAGLENS
/-2o
( EKIO VElf
ÉS H\/AB-
AN PÓ
FÆfZÐ
AlíA pESíA
OKKU
LJOSKA
TOMMI OG JENNI
' HósebNPi \/
þlNN ER 'A Y
viÉ>£KtprA-|
Féfee>A- /
pu
Æ me ap
HPINGJA ri
HANS
fBÍDDO PAhlGAD
TIL éú KEVl HEnyi
AU Ll J/A
'■..j:■jjj'yj::..-. :::jj\:j:::j 'j::j:\..j:...::::::
T;;;;;;;;:;;TTrr‘;;;;;;TTrir......
FERDINAND
I MISSED SCHOOL
YESTERDAY BECAUSE
I MAP A COLP...
THERE MU5T BE
S0METHIN6 60IN6 AROUNP.
LOTS OF KIP5 HAVE
BEEN 6ETTIN6 COLPS...
MINE UOAS A
LOT W0R5E,
TM0U6H...
Ég komst ekki í skólann ( Það hlýtur að vera að Mitt kvef var samt ntiklu Af því það lenti á mér!
gaer af því að ég var kvef- ganga... það hafa margir verra... Af hverju?
uð. krakkar kvefast. *.
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Hér er óvenjuleg spuming: í
hvaða slag lagði Pietro Forquet,
einn af liðsmönnum hinnar sögu-
frægu ítölsku Bláu sveitar, upp
í sex tíglunum hér að neðan?
Hann fékk út spaðaáttuna:
Norður
♦ 9753
♦ Á742
♦ ÁG9
♦ 53
Vestur
♦ 8
♦ D10986
♦ 54
♦ K7642
Austur
♦ D10642
♦ 5
♦ 1032
♦ G1098
Suður
♦ ÁKG
♦ KG3
♦ KD876
♦ ÁD
Forquet drap spaðadrottningu
austurs f fyrsta slag og tók
þrisvar tígul og endaði í blindum.
Svinaði svo hjartagosanum.
Vestur fékk á drottninguna og
spilaði meira hjarta. Nú tók
Forquet spaðakóng og . . . lagði
upp. I áttunda slag, sem sagt.
En hvers vegna. A hann nema
11 slagi?
Forquet sá að það var sama
hvor andstæðinganna ætti lauf-
kónginn, hann hlyti alltaf að
koma í leitimar í lokastöðunni.
Það var orðið upplýst að vestur
þyrfti að gæta hjartans og aust-
ur spaðans. Hvoragur gat því
haldið eftir meira en einu laufi.
Staðan myndi líta þannig út
þegar fjögur spil væra eftir á
hendi:
Vestur Norður ♦ 9 ♦ Á7 ♦ - ♦ 5 Austur
♦ - ♦ D10
♦ 98 li ♦ -
♦ - ♦ -
♦ K7 Suður ♦ G10
♦ - ♦ 3 ♦ 6 ♦ ÁD
Til að halda valdi á hjartanu
verður vestur að fara niður á
iaufkóng blankan þegar síðasta
trompinu er spilað. Þá fer hjarta-
sjöan úr blindum. Austur má
missa spaða í þennan slag, en
þegar hjarta er spilað á ásinn
verður hann að Iáta annað laufið
fara. Þar með era báðir and-
stæðingamir komnir niður á eitt
lauf, svo það skiptir ekki máli
hvoru megin kóngurinn er.
SKAK
Umsjón Margeir
Pétursson
Stórmeistaramir Murray
Chandler (fæddur og uppalinn á
Nýja-Sjálandi) og lan Rogers
(Ástralíu) tefldu nýlega fjögurra
skáka einvígi í Wellington á Nýja-
Sjálandi. Chandler hafði hvftt og
átti leik í þessari stöðu, svartur
lék síðast 18. — Ha8-a6??
* ■
■iBA
Hi! A IÉll wm
Aa m mm.
KHA£K m,
•mjj MJ, wm
n, X m®
M&m Hfil
^ v
19. Hxa4! — bxa4 (Eða 19. —
Dxa4, 20. Db8+) 20. Bxa6 -
bxa6, 21. Rc6 - Bxc6, 22.
Dxc6+ — Ke7, 23. Dd6+ og
Rogers gafst upp, því 23. — Ke8
er svarað með24. Hbl.
Einvfgi þessu lauk. með sigri
Chandlers 3—1. Þótt. hann hafi
teflt einvígið undir merki .Nýja-'
Sjálands er hann fluttur alfarinn
til Englands og hefurtvfvegis teflt
í enska Ólympíuliðinu.