Morgunblaðið - 05.10.1986, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 05.10.1986, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDÁGUR 5. OKTÓBER 1986 Fyrir ári hófst undir- búningur að viðamikilli bókasýningu sem og bóka- og bókasafnsþingi í Gautaborg, þvi fjölskrúð- ugasta sem hér hefur verið haldið. Hugmyndin var að leiða saman fjóra aðila: Útgefendur, höf- unda, bóksala og bóka- verði, I þeim tilgangi að þeir bæru saman ráð sín og reynslu meðal annars með spurninguna hvernig helst bókin lifandi leiðar- ljósi. Bókasýning og þing það sem haldið var dagana 21. til 24. ágúst síðastliðinn ber að hluta til svarið í sjálfu sér. Það haft sam- band við höfunda héðan og þaðan úr heiminum, einkum þá sem „selja“. Höfundarnir eru meðal þeirra sem halda fyrir- lestra um verk sín og ýmis málefni þeim tengd. I kjölfarið eru umræður, þar sem bæði lærðir og leikir hafa möguleika á að koma með fyrirspurnir og geta athugasemdir. &é***ááu* noruk Frá bókasýningu. „Bara hluti af sannleikanum" Heyrt og séð á bókaþingi í Gautaborg Fjögur hundruð og sjötíu fyrirtæki Ætli sé ekki öruggara að mæta á spariskónum, sagði vinkona mín áður en við lögðum upp til að kynna okkur sem biaðakonur á hinu mjög svo vel kynnta og virðulega þingi. Til enn frekara öryggis tróðum við þægilegri skónum í skjóðuna, ef ske kynni að við yrðum sárfættar af að ramba um hina víðáttumiklu bókasýningu. Sýningar- og þing- staðurinn „Svenska Mássan" er nefnilega engin smásmíði. Þar eru haldnar hinar ýmsu sýninga allt árið um kring á þijú þúsund fer- metra svæði á fýrstu hæð bygging- arinnar og á efri hæðinni eru ráðstefnusalimir, vinnuherbergi blaðamanna og móttaka þinggesta. Þar gerist margt í senn og raunar útilokað að ætla sér að fylgjast með öllu, þó svo maður hafi hlaupaskó á fótnum. Það er engin tilviljun hve vel er búið að blaðamönnum í þessu húsi, hvað snertir ritvélar, síma, upplýsingaþjónustu og húspláss fyrir blaðamannafundi. Allar sýn- ingar, sem og bókasýningar, eru að sjálfsögðu fyrst og fremst sölu- sýningar. Sýningaraðilar gera flest til að kynna sína vöru. Strax á fyrsta degi bókasýningarinnar vom á annað hundrað blaðamenn mætt- ir. Fyrirtæki sem tóku þátt í sýning- unni vom 470 talsins, útgefendur í meirihluta, að kynna nútíma Norð- urlandabókmenntir og þýddar heimsbókmenntir. Auglýst var að áttatíu og þrír höfundar yrðu við- staddir almenningi til handa að árita bækur og kynna verk sín. Meðal höfunda sem tóku þátt í þing- inu var Bandaríkjamaðurinn Ken Foliett, sem er meðal mest lesnu spennubókahöfunda á Vesturlönd- um í dag. Hann sió fyrst í gegn með bókinni „The Eye of the Needle" (1978). Upphaflega mun hann hafa skrifað undir höfundar- nafninu „Simon My-les“ og hans fyrsta bók í spennusagnabransan- um, „The Big Black", kom út undir því nafni árið 1974. En „Simon My-les“ . náði engum meiriháttar vinsældum. Hins vegar var síðasta bók Kens Follett, „Lie Down with Lions", númer eitt á bandaríska vinsældalistanum seinnihiuta vetrar 1986. Og faðir Drekans var mættur í eigin persónu, þ.e.a.s. Lee Falk, höfundur teiknimyndasögunnar um Dreka (sem áður var kallaður Skuggi). Anthony Burgess var einnig meðal fyrirlesara. Margir muna eflaust mynd Stanieys Kubrick „A Clockwork Orange" sem gerð var eftir samnefndri bók Burgess. Á síðustu tuttugu og fimm árum hefur Anthony Burgess sent frá sér ijörutíu bækur. Hann er einnig kunnur tónlistarmaður og tónskáld og byijaði rithöfundarferil sinn 42 ára að aldri, eftir að lækn- ar tilkynntu honum að hann væri haldinn banvænum sjúkdómi. Sein- ustu bók sína nefnir hann „The Pianoplayers". Doris Lessing, sem var gestur Listahátíðar sl. sumar, var meðal þátttakenda á ráðstefnunni, en seinasta bók hennar, „The God Terrorist", kom út í sænskri þýð- ingu í haust. Austurríski barna- bókahöfundurinn Christine Nöstlinger var einnig mætt. Hún hefur hlotið ýmsar viðurkenningar fyrir verk sín, m.a. Nóbelsverðlaun barnabókmenntanna og H.C. And- ersen-heiðursmerkið. Hún er án efa einn mest lesni bama- og unglinga- bókahöfundurinn í Svíþjóð. Régine Deforges kom frá Frakk- landi en bók hennar, „Stúlkan á bláa hjólinu", hefur hingað til selst í fimmtán löndum, þar á meðal ís- landi, þar sem hún kom út í íslenskri þýðingu 1985. Innan Skandinavíu telur Régina sig eiga stærstu les- endahópana í Noregi og Danmörku, þeim löndum sem voru hemumin á seinni stríðsámnum. í Frakklandi einu hefur tríólógía hennar um seinni stríðsárin selst í sex milljón- um eintaka og kvikmynd er í undirbúningi. I persónulegu viðtali er Régine spurð að því hveija hún telji ástæð- una fyrir velgengni sinni. __ „Nútímaleg Gone with the Wind (Á hverfanda hveii) með djarfri kvenhetju, hættulegum, fögrum karlmanni, stjómmálum, stríði, harmleikjum, erótík, sögu — já, ein- faldlega góð saga sem megnar að hrífa lesendurna," álítur þessi fimmtíu og eins árs gamla skáld- kona, sem annars tekur það að sauma krosssaum fram yfir allt annað. „Krosssaumurinn var fyrsti listræni tjáningarmáti kvenna," segir Régine Deforges, sem ólst upp hjá strangtrúuðum nunnum í Suð- ur-Frakklandi. Hvemig henni tókst að finna tón sem snerti milljónir lesendagetur hún ekki útskýrt. Hún svarar því til að margir, að minnsta kosti í Frakklandi, séu með slæma samvisku og síðan lýsir hún því sem hún sjálf minnist úr stríðinu. Régina er sjálf bókaútgefandi í París ásamt elsta syni sínum og eiginmanni, Pierre Wiazemski. Hún segist daglega fá 5-10 handrit til yfirlestrar. Einkum hefur hún áhuga á að styðja við bakið á yngri höfundunum. Sjálf hafði hún skrif- að tug bóka og unnið alls kyns störf áður en hún sló í gegn með Bláa hjólinu, en þriðji og síðasti hluti tríólógíunnar kom út síðastliðið ár. Hún er enn að borga sektir fyrir að hafa gefið út klámfengnar gleði- sögur eftir Aragon árið 1968, í sínu nýstofnaða forlagi. En helst vill hún ná að skrifa sjálf eins mikið og möguiegt er — minnsta kosti 30 skáldsögur í viðbót, segir þessi ung- lega skáldkona á sextugsaldri, iðandi af lífí. „Það erfíðasta við að skrifa er líkamsáreynslan. Ég verð fljótt þreytt, verð að hvíla mig mik- ið, verð aum af spennu í kroppnum." Talandi bækur og teygjanleg hugtök Úr einu í annað. Þannig er það á bókaþingi, svo margt gerist og er sagt í kringum mann og á neðri hæðinni „tala verkin". Ég tek mér góðan tíma til að ráfa um sýningar- svæðið, ákveð að láta það fyrir augu berast sem vill. En það eru ekki bækur sem eru frekastar á athygli mína til að bytja með. Það eru alls kyns skilti, myndir, jafnvel bómullarbolir með áletrun eins og „Það var nú ekkert grín fyrir Kafka heldur". Ég fæ bijóstmerki með mynd af eyra sem er auglýsing frá nýstofnaðri hljóðbókaútgáfu og á merkinu stendur: Ekki trufla! Ég er með bókina í eyranu. — Já, það er augljóst að hljóðbókin á að ryðja sér til rúms, hugsa ég, ekki bara fyrir blinda og sjóndapra, heldur einnig fyrir þá sem vilja nýta tímann meðan þeir vaska upp, vinda úr leppum sínum eða yfírleitt vinna þau störf sem ekki truflast af góðri sögu. Útgáfufyrirtækið er að sjálf- sögðu með auglýsingabækling, eins konar leiðbeiningar um það hvemig njóta megi góðra bókmennta á ferð og flugi, og auðvitað í biðröðunum — hvað sem er. Það sem kemur mér næst mest á óvart á sýningunni er allur sá töivubúnaður sem kynntur er og það sem kemur mér mest á óvart er að sjá sýningarbás með skóm mitt í öllu saman. Hvað hafa skór með bækur að gera? Sænskumælandi Finni varð fyrir svörum, sagði að skósmiðurinn í fyrirtækinu léti sér meira annt um þá sem skrifuðu bækurnar en bæk- umar sjálfar og þá einkum um fætur höfundanna. Þar sem ég sá að skómir sem verið var að kynna voru þægindaskór fremur en tísku- skór, tók ég skýringuna góða og gilda. Skógerðarmaðurinn ÓIi Wa- age kraup fyrir framan viðskiptavin meðan á samtalinu stóð og áður en ég kveð átta ég mig á því að þar er Islendingur á ferð, sonur Steinars Waage, skósmíðameistara, að kynna fyrirtæki sitt, „01e-Skor“. „Yfírleitt er ég kallaður Óli skór,“ sagði svo íslendingurinn sem lét sig hafa það að kynna skó á bókasýn- ingu. Ég held áfram rambi mínu og tek að furða mig á því hvað bækur em í rauninni yfírlætislaus vara í sjálfu sér. Mitt í öllu auglýsingadót- inu í básunum liggja þær hjálpar- vana og umkomulausar. Eins og bækur geta verið fullar af lífí séu þær Iesnar. Án efa er það persónu-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.