Morgunblaðið - 15.03.1987, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 15.03.1987, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. MARZ 1987 27 Það er enginn hægðarleikur að komast inn í Óman. Þeir hleypa ekki ferðamönnum inn, veita kaup- sýslumönnum að vísu áritun ef þeir fá uppáskrift á stjómarskrifstofu. Þeir hafa töluvert af fólki frá Ind- landi, Pakistan og Filippseyjum, sem vinnur aðallega í hótelbransan- um og Evrópubúa, sem eru að vinna við uppbyggingu og skipulagningu hins splúnkunýja háskóla Quaboos- ar súltans. Þeir leyfa stöku kvik- myndagerðarhópum og áhuga- mönnum um fomleifarannsóknir að koma og stundum blaðamönnum. Vegna þess, að þeim er áfram um að kynna það, sem er verið að gera í landinu.Palestínumenn fá ekki að koma til landsins. Sérstaklega em þeir lítið hrifnir af svokölluðum „túristum" enda hefðu þeir svo margt annað að gera. „Auk þess held ég ekki að við höfum neitt gott af því að fá yfír okkur fjölda- túrisma," sagði einn ómanskur kunningi minn, Ghanem. Upplýs- ingamálaráðuneytið lagði mér til bíl og bflstjóra í allri ferðinni og Ghanem var bflstjórinn minn og elskulegur ferðafélagi í þriggja daga ferð til Salalah, næst stærstu borgar Ómans. Ghanem sagði mér' líka, að súltaninn hefði gert tíu ára. áætlun í sambandi við framkvæmd- ir. Eftir áratug ættu Ómanir að vera fleygir og færir og þá vildu þeir losna við útlendinga, altjendl ekki hafa þá búsetta. Og súltaninni gerir það ekki endasleppt, hann villl hafa Ómani hreinræktaða og þvíi hefur hann sett lög, sem bannai Ómönum að giftast útlendingum.. Ghanem segir mér, að yfírleitt sérn menn sammála um, að þetta séi bara viturleg ráðstöfun. Landið séi stórt og þjóðin tiltölulega fámenn,. varla meira en hálf önnur milljón., „Og ef við lítum í kringum okkur“: segir hann,„ sjáum við hvarvetna. að þjóðir eru að týnast vegna of mikiilar blöndunar. Óman fyrir' Ómani og ekkert kjaftæði. Khal- ash.“ Svo strýkur hann saman Iófunum, harla ánægður með þetta. En spyr mig nokkru síðar, hvað ég myndi nú segja, ef hann kæmi til íslands og yrði ástfanginn af dóttur minni og vildi jafnvel ganga að eiga hana. Eg sagðist sjálfsagt verða himinlifandi yfír að fá hann sem tengdason, en það væri ekki víst að súltaninn yrði jafn dús við til- hugsunina. „Það er kannski rétt, þetta hefur ákveðna ókosti," sagði Ghanem dapurlega. Við vorum að koma frá Mirbat, litlum bæ ekki ýkja langt frá Sal- alah. Eg hafði sagt Ghanem, að ég hefði áhuga á að hitta einhveijar konur til skrafs og ráðagerða. Það var því efnt til skyndifundar í kven- félaginu á staðnum. Fimm stjómar- konur, svartklæddar og með blæjur sögðu mér, að aðalverkefni félags- ins væri að leiðbeina konum um bamauppeidi, hreinlæti og matar- gerð. Þær sitja þama f bækistöðvum félagsins, tignarlegar eins og drottningar og tala hægt og virðu- lega. Segja mér að nú séu 160 manns í félaginu sem var stofnað af 20 konum fyrir fáeinum ámm. Þær halda fundi, fá fyrirlesara og leiðbeinendur. Og þær safna göml- um skartgripum og listmunum. Eg dáðist óspart að gripunum og þegar ég bjóst nú til að fara buðu þær mér, hvort ég vildi ekki máta skart- gripina. Ég var síðan klædd upp í kyrtil, hlaðið á mig gulli og gim- steinum, Ghanem tók mynd og kvenfélagið hrópaði húrra, húrra. Ég spurði Ghanem seinna, hvað hann héldi að skartið kostaði. Ná- lægt 15 þúsund dollurum hélt hann. Ég hef víst ekki verið dýrari í ann- an tíma. Eins og áður segir leyfði súltan- inn landsmönnum að syngja og nota gleraugu. Þeir mega reykja og þótt þeir séu í heildina góðir og gildir Múhammeðstrúarmenn, er ekkert sagt við því þótt þeir smakki dulítið vín. Svona stöku sinnum og ekki mjög mikið í einu. Áfengi er aðeins selt á stærstu hótelunum og Ómanir sem vilja bregða sér á bar- inn verða að hafa til þess sérstakt leyfí. Eitt kvöldið mitt í Múskat fór ,ég upp á barinn á efstu hæð A1 Falaj hótelsins, þar sem ég hafði ljúft aðsetur. Þaðan er stórkostlegt útsýni yfír,hvar borgin blasir við, ofan í þessum djúpu dalbotnum sem eru umvafðir k'ettum og svo fjöllin, hijúf og hnarreist í fjarska. Það var létt yfír liðinu á bamum, flestir voru þeir Ómanir. Klæddir sínum hefðbundna síða hvíta búningi, með vafðan klút um höfuðið. Þeir voru niðursokknir í að gæða sér á bjór og eftir að ég hafði fallið í stafí yfír útsýni um hríð, settist ég niður og leit í blað og lagði drög að því að fá mér bjór. Eftir augnablik kom bjórinn. Ég var varla búin að dreypa á fyrsta sopanum, þegar annað glas barmafullt stendur á borðinu. Frá bamum veifaði til mín hress og glaðbeittur Ómani, þetta er frá honum. Ég skálaði auðvitað í þakk- lætisskyni, en leizt ekki almenni- lega á blikuna, þegar enn bættust við fleiri glös og ég ekki hálfnuð með það fyrsta. Það kemur í ljós, að enginn getur, kurteisinnar vegna verið eftirbátur annars: fyrst einn bauð gesti upp á einhveijar góð- gerðir verða þeir allir að gera það. Þótt ég standi mig eins og hetja við bjórdrykkju, var þetta einum of mikið af því góða. Það endaði með því að ég leysti málið, endur- galt kurteisina og bauð þeim öllum upp á bjór - þann sama og þeir höfðu verið að senda til mín. Þar með var málið farsællega til lykta leitt og allir undu glaðir við. í Óman er alls staðar eitthvað að gerast. Alltaf og hvert sem litið er. En úti í Wahibaeyðimörkinni ríkti kyrrðin, sólin, sandstormurinn og myrkrið. Og þangað mætti fara í næstu grein. Texti og myndir: Jóhanna Kristjónsdóttir Verðlækkun-Verðlækkun-Verðlækkun-Verðlækkun-Verðlækkun Einstakt tilboð I Nú getum við boðið fáeinarcanonA-200 PC tölvur á einstaklega lágu verði. SKIPHOLTI 19 SÍMI 29800 10 Mb harður diskur, 640 K innra minni, 1 X 360 Kb diskettu drif, einlitur skjár Aðeins er um að ræða örfáar vélar og þetta tilboð verður ekki endurtekið Verðlækkun-Verðlækkun-Verðlækkun-Verðlækkun-Verðlækkun SKÝRSLUTÆKNIFÉLAG ÍSLAN0S Pósthólf 681 Simi 82500 121 REYKJAVÍK sET-daguL Skýrslutæknifélag íslands boðar til hálfs dags ráðstefnu um ET (einmennings- tölvu)-notkun á Hótel Loftleiðum, Kristalssal, fimmtudaginn 19. mars næstkom- andi. Ráðstefnan hefst kl. 13.15 og gert er ráð fyrir að henni Ijúki kl. 17.30. Ráðstefnan er ætluð þeim sem vilja kynna sér það nýjasta sem er að gerast í notkun einmenningstölva núa. PC og Macintosh. Meðan á fyrirlestrum stendur fer fram sýnikennsla í hliðarsal þar sem notaður verður nýr búnaður sem gerir kleift að sýna skjámyndir á tjaldi. f lok hvers erindis er gert ráð fyrir umræðum og fyrir- spurnum. Dagskrá er þannig gerð að meöan á fyrirlestrum um eitt svið stendur fer fram sýnikennsla á hinum tveimur. Þannig geta þátttakendur valió saman fyrirlestra og sýnikennslu á þeim sviðum sem áhuga vekja. Salur 1 DAGSKRÁ: Fyrirlestrar: 13.15 Setning ráðstefnunnar Páll Jensson, formaður SÍ Salur 2: Sýnikennsla, samhliða fyrirlestrum: 13.30 Ritvinnsla, þróun og horfur Anna Kristjánsdóttir, lektor Tölvuteiknun og grafík 14.00 Einkaútgáfa Halldór Kristjánsson, verkfr. Bókhald og tölvuumhverfi. 14.30 Bókhald og viöskiptahugbúnaöur Gtmnar Om Kristjánsson, vskfr. Ritvinnsla og einkaútgáfa. 15.00 Tölvuumhverfi Magnús Óskarsson, tölvunarfr. Tölvuteiknun og grafík. 15.45 Töivuteiknun Sigurður E. Hjaltason, verkfr. Bókhald og tölvuumhverfi 16.15 Tölvugrafík Jón Bergmundsson, verkfr. Ritvinnsla og einkaútgáfa 16.45 ET í fortíö, nútíö og framtíö Gunnar M. Hansson, forstjóri IBM á íslandi. 17.15 Yfirlit og umræður 17.30 Ráóstefnuslit Páll Jensson, formaður SÍ. Fundarstjóri: Bergur Jónsson tölvunarfræöingur Þátttökugjald er kr. 1600,- (25% afsl. fyrir félagsmenn). Vinsamlegast tilkynnið þátttöku til Skýrslutæknifélagsins í síma 82500 (Sjóvá hf.), eigi síðar en þriðju- %* daginn 17. mars. Skýrslutæknifélag íslands
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.