Morgunblaðið - 15.03.1987, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 15.03.1987, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. MARZ 1987 59 Minning’: Þórir Bergsson trygg- ingastærðfræðingur Fæddur 2.júlí 1929 Dáinn 7. marz 1987 Þórir Bergsson, tryggingastærð- fræðingur, lézt í Reykjavík þann 7. marz sl. Hann fæddist 2. júlí 1929, sonur hjónanna Bergs sýslu- manns og síðar bæjarfógeta í Hafnarfírði Jónssonar yfirdómara Jenssonar og Guðbjargar Lilju Jóns- dóttur. Þórir missti móður sína þegar hann var á þriðja ári, en Bergur kvæntist síðar Ólafíu Valdi- marsdóttur, er reyndist Þóri sem bezta móðir. Þórir lauk stúdentsprófí frá Menntaskólanum í Reykjavík 1949 og hélt síðan til náms við Hafnar- háskóla. Fyrstu þijú árin lagði hann stund á stærðfræði og eðlisfræði, en síðan tryggingastærðfræði og statistik og lauk prófi í þeim grein- um í janúar 1959. í desember 1950 kvæntist Þórir eftirlifandi eiginkonu sinni Björgu Hermannsdóttur erindreka Fiskifé- lags Islands Vilhjálmssonar og konu hans Guðnýjar Vigfúsdóttur. Björg starfar nú sem handritalesari hjá Alþingi. Þau eignuðust fjögur böm, Hjalta, féiagsfræðing og mennta- skólakennara, sem kvæntur er Guðrúnu Tómasdóttur, Hermann, stærðfræðing og háskólakennara í Gautaborg, kvæntan Rannveigu Sigurðardóttur, Lilju, leikkonu við Þjóðleikhúsið, gifta Torfa Magnús- syni, og Berg, sem er að ljúka námi í tölvunarfræði og er kvæntur Lauf- eyju Kristinsdóttur. Bamabörnin eru orðin átta. Fundum okkar Þóris bar fyrst saman snemma árs 1960 er ég leit- aði til hans eftir upplýsingum um nám í tryggingastærðfræði við Hafnarháskóla. Þórir tók mér hið bezta og fræddi mig rækilega um námið og hvatti mig mjög til þess að heija það að hausti. Við hittumst ekki aftur fyrr en í júlí 1964, er ég hafði lokið námi, en þá kom ég á skrifstofu hans til að ræða við hann um starfshorfur. Fundi okkar lauk þannig, að ég réðst til starfa á skrifstofu hans og starfaði þar um eins og hálfs árs skeið. Þessi tími reyndist mér dýr- mætur skóli, en Þórir fékkst við margvísleg verkefni og var lær- dómsríkt að vinna með honum. Hann nálgaðist viðfangsefnin oft á frumlegan hátt, en lagði jafnframt ríka áherzlu á, að allar forsendur væru sem traustastar. Eftir að ég hóf sjálfur rekstur skrifstofu leitaði ég oft til hans og alltaf var hann reiðubúinn að miðla af reynslu sinni og þekkingu og fleiri munu hafa sömu sögu að segja. Þórir hóf störf hjá Almennum tryggingum hf. er hann kom frá námi og starfaði þar til 1961 er hann setti á stofn ráðgjafaskrif- stofu í tryggingastærðfræði og statistik, sem hann rak síðan til dauðadags. Eins og áður sagði, fékkst hann við margskonar verkefni, en ég hygg, að mestan áhuga hafí hann haft á skaðabótaútreikningum, þ.e. útreikningum á fjártjóni vegna ör- orku eða fráfalls. Þórir hafði viðað að sér mikilli þekkingu á skaðabóta- rétti og sérstaklega því sviði hans er fjallar um bætur vegna líkams- tjóns og veitti mörgum góða ráðgjöf um hina lögfræðilegu hlið málsins. Hann ritaði mikið um þennan mála- flokk, m.a. greinaflokk í Úlfljót, tímarit laganema, þar sem mjög ítarleg grein er gerð fyrir flestum atriðum varðandi uppgjör bóta vegna líkamstjóns svo og forsend- um útreikninga á fjártjóninu sem slíku. Ég þykist vita, að skrif hans hafi hjálpað mörgum lögmönnum og dómurum við ákvörðunartöku í starfí og þau hafí haft áhrif á dóm- venju hér á landi. Þórir var á sjöunda áratugnum fulltrúi Sambands íslenzkra stúd- enta erlendis í stjórn Lánasjóðs jslenzkra námsmanna. Jafnframt vann hann mikið starf fyrir sjóðinn við að leggja grunn að mati á fjár- þörf námsmanna og breytingum á reglum sjóðsins um námslán. í tengslum við þetta verk sá hann um viðamikla söfnun upplýsinga um framfærslukostnað námsmanna í ýmsum löndum og úrvinnslu þeirra. Þórir var fyrsti skólastjóri Trygg- ingaskólans, sem Samband Grmdavíkurbær eiguast bæjarmerki Gríndavík. BÆJARSTJÓRN Grindavíkur samþykkti tillögu frá Auglýs- ingastofu Kristínar að bæjar- merki fyrir Grindavíkurbæ, á fundi sínum síðastliðinn fimmtu- dag. Fyrir fundinum lá álit nefndar, sem kjörin var á sínum tíma til að vinna með auglýsingastofunni að tillögugerðinni. I henni áttu sæti Eiríkur Alexandersson, Ólína Ragn- arsdóttir og Margrét Gísladóttir. Nefndin lagði til að teikning, sem sýnir svartan geithafur með gul horn og rauðar klaufir, á bláum og hvítum grunni, yrði samþykkt og samþykkti bæjarstjórnin það. í greinargerð með tillögunni seg- in „I Landnámabók kemur fram að Molda-Gnúpur Hrólfsson og syn- ir námu land í Grindavík. Synir Molda-Gnúps, Bjöm, Gnúpur, Þor- steinn hrungnir og Þórður leggjaldi, voru þá fulltíða. Bjöm dreymdi um nótt að bergbúi kæmi að honum og bauð að gera félag við hann, en hann þóttist játa því. Eftir það kom hafur til geita hans og tímgast þá svo skjótt fé hans að hann varð skjótt vellauðugur. Siðan var hann Hafur-Bjöm kallaður. Það sáu ó- freskir menn að landvættir allar fylgdu Hafur-Bimi t\\ þings, en þeim Þorsteini og Þórði til veiða.“ í nefdarálitinu kom einnig fram: Nefndin er þeirrar skoðunar að Morgunblaðið/Kr. Ben. Mynd af hinu nýsamþykkta bæj- armerki Grindavíkur. merkið sé ágætlega táknrænt fyrir þá byggð sem því er ætlað að þjóna og það mannlíf sem þar er lifað. Blár litur hafsins í grunni með hvítum ölduföldum sé sá grundvall- arveruleiki sem Grindavík byggist á, en hafurinn er tákn þeirrar fíjó- semi og búhygginda sem skilar Grindvíkingum til þroska og þróun- ar í fortíð, nútíð og framtíð. Hvítu rendurnar geta táknað fyrri hluta nafnsins í Grindavík. Kr. Ben. íslenzkra tryggingafélaga rekur fyrir starfsfólk félaganna. Hann sá þá m.a. um útgáfu á bókaflokki um sjórétt og sjótryggingar, en einnig kenndi hann við skólann og hélt þar fyrirlestra. Þá var Þórir ráðgjafí ýmissa lífeyrissjóða og vátryggingafélaga og annaðist m.a. gagnaúrvinnslu og skýrslugerð um afkomu frjálsra ábyrgðartrygginga um árabil. Eng- in vátryggingargrein byggði á betri tölfræðilegum grunni en þeim, sem þá var lagður af Þóri í samvinnu við Kr. Guðmund Guðmundsson, tryggingastærðfræðing og þáver- andi forstjóra íslenzkrar endur- tryggingar. Þórir var eindreginn andstæðing- ur misréttis og mismununar og tók oft upp hanzkann fyrir þá, sem hann taldi misrétti beitta. Ég minnist sérstaklega greinar, sem Þórir skrifaði á árinu 1973 um kjör á lánum Húsnæðismálastofnunar og bar þau saman við kjör annarra Iána. Gagnrýndi hann harðlega þá mismunun, sem í þessu fólst til óhags fyrir lánþega Húsnæðismála- stofnunarinnar. I kjölfar greinar- innar varð mikil umræða um þetta mál en því lauk þannig, að stjórn- völd breyttu lánskjörunum til verulegs hags fyrir þessa lánþega. í annað sinn reit hann grein þar sem hann gagnrýndi harðlega og réttilega þau ríkulegu lífeyrisrétt- indi, sem þingmenn hafa ákveðið sér og ráðherrum til handa. Greinin vakti mikla athygli almennings, en hins vegar náði hún ekki eyrum þingmanna, sem þá háðu harða kosningabaráttu, og enn sitja þeir við annað og betra borð í þessu efni en aðrir landsmenn. Þórir gegndi formennsku í Félagi íslenzkra tryggingastærðfræðinga frá árinu 1984 til dauðadags. Félag okkar er fámennt og við fráfall Þóris eru félagar færri en við stofn- un þess fyrir tuttugu árum. Ungt fólk hefur ai' einhveijum ástæðum veigrað sér við að fara í nám í tryggingastærðfræði. Það var Þóri mikið kappsmál að gera hér bragar- bót á, en til þess entist honum ekki aldur. Þórir var fríður sýnum, glæsileg- ur á velli, gæddur fjölhæfum gáfum, víðlesinn og fróður. Þórir ræddi oft um fjölskyldu sína og var auðfundið hve hlýjan hug hann bar til Bjargar og bamanna. Ég votta þeim og öðrum aðstand- endum innilega samúð mína. Bjarni Þórðarson Blómastofa FriÖjinns Suöurlandsbraut 10 108 Reykjavík. Sími 31099 0pi6 öll kvöld tll kl. 22,-einnig um heigar. Skreytingar við öll titefni. Gjafavörur. Kveðja frá Félagi íslenskra tryggingastærðf ræðinga A morgun verður til moldar bor- inn Þórir Bergsson tryggingastærð- fræðingur, sem lést hinn 7. þ.m. Við fráfall hans er höggvið stórt og tilfinnanlegt skarð í hinn fá- menna hóp íslenskra trygginga- stærðfræðinga. Lífsferill hans verður ekki rakinn hér í heild en aðeins getið sérstak- lega eins mikilverðs atriðis úr ævistarfi hans. Það eru útreikning- ar í sambandivið skaðabætur vegna líkamstjóns. Á því sviði var framlag hans mjög stórt, ekki aðeins að því er snerti fjölda þeirra mála, þar sem aðstoðar hans var leitað, heldur einnig í þróun slíkra útreikninga. Eftir hann liggja ýmsar greinar um það efni bæði í blöðum og lögfræð- itímaritum. Þótt útreikningar af þessu tagi hafí nú verið teknir upp í ýmsum löndum eru þeir ekki bein- línis kenndir í fræðum trygginga- stærðfræðinga. Og lítið hefur verið skrifað um þá erlendis enn sem komið er. Þeir hafa því orðið að þróast hér sjálfstætt, enda ísland eitt af fyrstu löndunum, þar sem þeir voru teknir í notkun. Að þess- ari þróun átti Þórir mjög mikinn hlut. Til þess að gera slíka útreikn- inga svo, að vel sé, er ekki nægjan- legt að hafa góða þekkingu á líftryggingastærðfræði. Til þess þarf þekkingu á mörgum öðrum sviðum, ekki síst lögfræði. Þar stóð Þórir vel að vígi. Hann hafði glöggt auga fyrir lögfræði eins og hann átti kyn til. Þijú síðustu ár var Þórir formað- ur í Félagi íslenskra trygginga- stærðfræðinga. Að leiðarlokum færum við honum þakkir fyrir störf hans í þágu félagsins. Við eigum á bak að sjá miklum hæfíleikamanni og góðum félaga. Fjölskyldu hans sendum við innilegar samúðar- kveðjur. Félag íslenskra tryggingastærðf ræðinga t Sonur minn, bróðir og mágur okkar, HALLDÓR GÍSLI ODDSSON, sklpstjóri, Háaleitisbraut 44, verðurjarðsunginnfrá Fossvogskirkju mánudaginn 16. mars kl. 13.30. Áslaug Guðjónsdóttir, Bjarni Oddsson, Elsa Friðjónsdóttir, Guðjón Oddsson, Gíslína Kristjánsdóttir. t Maðurinn minn og faðir okkar, ÞÓRIR BERGSSON, tryggingastærðfræðingur, sem lést laugardaginn 7. mars sl. verður jarðsunginn *rá Dóm- kirkjunni mánudaginn 16. mars kl. 15.00. Þeim sem vildu minnast hins látna er bent á líknarstofnanir. Björg Hermannsdóttir, Hjalti, Hermann, Lilja og Bergur. t Systir okkar og vinkona, HREFNA KRISTJÁNSDÓTTIR, frá Einholti, Hornafirði, lést á Borgarspítalanum 13. mars sl. Systkini og Helga Hansen. t Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og útför móður okkar, ELÍNAR SNORRADÓTTUR WELDING, Sigrfður Siguröardóttir, Guðbjörg M. Sigurðardóttir, Snorri W. Sigurðsson. t Hjartans þakkir fyrir sýnda samúð og vinarhug við andlát og útför GUÐRÚNAR SVEINSDÓTTUR, Hraunhóli 7, Nesjum. Ásmundur Gfslason og börn, Inga Valborg Einarsdóttir, Sveinn K. Sveinsson. t Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur hlýhug og vináttu við andlát og jarðarför eiginmanns míns, fööur okkar, tengdaföður og afa, ÁGÚSTS SIGURJÓNSSONAR, Múlavegi 10, Seyðisfirði. Jóhanna Sigurjónsson, Páll Ágústsson, Dagbjört Jónsdóttir, Axel Ágústsson, Hafdfs Edda Eggertsdóttir, Helgi Ágústsson, Lovfsa Gfsladóttir, Ásgerður Ágústsdóttir, Björgúlfur Kristinsson og barnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.