Morgunblaðið - 27.03.1987, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 27.03.1987, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MARZ 29 Stj órnarmyndun í Finnlandi: Valdabarátta milli Mið- flokks og Jafnaðarmanna Helsinki, frá Lars Lundsten, fréttaritara Morgunblaðsins. LÍKAST til munu Miðflokkurinn og jafnaðarmenn beijast um að komast í næstu stjórn Finnlands. Hægri menn unnu hlutfallslega mest á í þingkosningunum 15. og 16. mars og er því næsta víst að þeir muni silja í stjórn. Jafn- aðarmenn héldu flokksráðsfund í gær og ákváðu að stefna að því að komast i stjórn, þrátt fyrir að flokkurinn tapaði fylgi í kosn- ingunum. Jafnaðarmenn og miðflokksmenn eru nú helstu andstæðingarnir í Bretland: Hagstæður greiðslu- jöfnuður við útlönd London, AP. GREDDSLUJÖFNUÐUR Breta við útlönd var hagstæður um 376 milljón pund (yfir 24 milljarða ísl. kr.) i febrúar og því hagstæð- ari en nokkru sinni í 14 mánuði á undan. Skýrði brezka við- skiptamálaráðuneytið frá þessu í gær. Þessi hagstæði greiðslujöfnuður kom sérfræðingum mjög á óvart, en þeir höfðu spáð því, að hann yrði óhagstæður. Er þessi árangur þakkaður aukningu í útflutningi og samdrætti í innflutningi. Hlutabréf í eigu brezka ríkisins hækkuðu í verði, eftir að tilkynning- in um þetta var birt í gær. Jafn- framt hækkaði pundið og komst jrfir 1,60 dollara. Sérfræðingar gera nú ráð fyrir 0,5% vaxtalækkun í Bretlandi. Haft var þó eftir heimildum innan stjóm- arinnar í gær, að of snemmt væri að segja fyrir um, hvort þessi ár- angur ásamt með 73 millj. punda Gengi gjaldmiðla BANDARÍKJADOLLAR hækk- aði í gær gagnvart ýmsum helztu gjaldmiðlum heims. Verð á gulli lækkaði. Síðdegis í gær kostaði brezka pund- ið 1,6050 dollara (1,6070), en annars var gengi dollarans þannig, að fyrir hann fengust 1,8255 vest- ur-þýzk mörk (1,8270), 1,5275 svissneskir frankar (1,5285), 6,0950 franskir frankar (6,0800), 2,0670 hollenzk gyllini (2,0655), 1.304,50 ítalskar lírur (1.301,75), 1,3123 kanadískir dollarar (1,3120) og 149,45 jen (149,35). Gullverð lækkaði og kostaði það 411,00 dollara únsan (413,50). hagstæðum greiðslujöfnuði í janúar væru merki um þátttaskil á þessu sviði. í fyrra varð greiðslujöfnuður Breta óhagstæður um alls 1,600 millj. pund og hafði þá ekki verið óhagstæður síðan árið 1979. Lægra verð fyrir brezka olíu og aukning á innflutningi neyzluvamings leiddu til þess, að greiðslujöfnuðurinn var óhagstæð’ur í hvetjum mánuði frá maí til desember. fínnskum stjómmálum. Þessir flokkar hafa hingað til setið í stjóm saman. Jafnaðarmanna virðast fyrst og fremst vilja koma í veg fyrir að Miðflokkurinn fái að ráða lögum og lofum. Þegar eftir kosn- ingamar töluðu margir jafnaðar- menn um að fara í stjómarandstöðu og leyfa borgaraflokkunum að mynda stjóm. Á fundinum í gær var sú afstaða ríkjandi að stjómarsamstarf væri betri kostur en að leyfa hægri mönnum að mynda stjóm með Mið- flokknum. Leiðtogar jafnaðarmanna gagn- rýndu harðlega hægri menn og Sænska þjóðarflokkinn fyrir að láta Miðflokkinn stjóma sér í þessum efnum. Jafnaðarmenn leggja einnig mikla áherslu á að forsetinn eigi ákveði hveijir mynda stjóm. Mauno Koivisto forseti er í skíðafríi í Lapp- landi um þessar mundir og hann neitar að greina frá afstöðu sinni. Þegar fréttamenn sjónvarps höfðu upp á honum á skíðagöngu fyrir nokkrum dögum, kvaðst hann ekki einu sinni kæra sig um að íhuga málið að svo stöddu. Reuter Vantrauststillaga á Spáni Felipe Gonzales, forsætisráðherra Spánar, dottaði í gær þegar foringi hægri manna bar fram vantrauststiUaga á stjórn hans á spænska þinginu. Hægri menn eru í minnihluta og er þessi tilraun til að bola Gonzales frá dauðadæmd frá upphafi. Sósíli- staflokkur Gonzalez hefur meirihluta á þingi. Lokið viðræðum um meðaldrægar kjarnorkuflaugar: Enn deilt um eftirlit og skammdrægar flaugar _c \\i_i.* _* n T)_4 — Genf, Washington, AP, Reuter. VIÐRÆÐUM samninganefnda stórveldanna um útrýmingu meðaldrægra kjarnorkuflauga í Evrópu lauk í gær án samkomu- lags. Ríkin greinir enn á um skammdrægar kjarnorkuflaug- ar, sem eftir yrðu ef samið yrði um að uppræta hinar meðal- drægu, og eftirlit. Samninga- mennirnir voru sammála um að lítt hefði miðað en næsta lota viðræðnanna hefst liklega 23. apríl. „Enn eru flókin mál óleyst," sagði Maynard Glitman, helsti samningamaður Bandaríkjastjóm- ar, að fundinum loknum. Hann kvaðst þó telja að viðræðurnar hefðu verið gagnlegar og sagði að vinna þyrfti að lausn ýmissa ágrein- ingsefna og tæknilegra atriða áður en unnt yrði að ræða hugsanleg samningsdrög. Þessi lota viðræðn- anna hófst eftir að Mikhail Gorbac- hev féll frá kröfu sinni um að jafnframt yrði samið um takmörkun á tilraunum með geimvopn. Skammdrægar f laugar Glitman sagði að Bandaríkja- stjóm myndi ekki víkja frá kröfu sinni um að einnig yrði samið um - . ■ Wi Reuter OSPRUNGIN SPRENGJA Forvitnir afganskir flóttamenn, vopnaðir rifflum, virða fyrir sér sprengju, sem ekki sprakk, þegar flugvélar frá Afganistan gerðu loftárás á landamæraþorpið Terimangel í Pakistan fyrir nokkrum dögum. takmörkun skammdrægra kjam- orkuflauga. Bandaríkjamenn kveðast ekki ráða yfír þess háttar vopnabúnaði og hafa sett það skil- yrði að þeim verði tryggður réttur til að koma sér upp skammdrægum flaugum til mótvægis við eldflaugar Sovétmanna. Sovétmenn telja að semja beri fyrst um meðaldrægar flaugar áður en tekið er að ræða um hinar skammdrægu. Samninga- menn Sovétstjómarinnar vildu ekki tjá sig um viðræðumar. Á miðviku- (dagskvöld hvöttu utanríkisráðherr- ar Varsjárbandalagsríkja til þess að þegar yrði gengið til samninga um meðaldrægar flaugar í Evrópu. Maynard Glitman mun nú sækja leiðtoga Aðildarríkja Atlantshafs- bandalagsins í Evrópu heim og fræða þá um gang viðræðnanna. Vestrænir sendimenn í Genf sögðu að stjómir beggja ríkja hygð- ust bíða niðurstöðu fundar utanrík- isráðherra risaveldanna, þeirra Eduards Shevardnadze og Georges Shultz, í Moskvu 13. til 16. apríl. Þá fyrst yrði ljóst hvort unnt yrði að ná samkomulagi um Evrópu- flaugarnar. Þingnefnd samþykkir breytingatillögur Fjárveitinganefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, sem fjallar um ijárlagafrumvarp stjómarinnar fyr- ir næsta fjárlagaár, samþykkti á miðvikudagskvöld tvær tillögur varðandi afvopnunarmál. Nefndin samþykkti með 35 atkvæðum gegn 19 tillögu um að skylda stjóm Reag- ans Bandaríkjaforseta til að virða ákvæði SALT II samningsins frá árinu 1979. Bandaríkjaþing hefur ekki staðfest samkomulag þetta en stjómin ákvað að fara fram úr ákvæðum þess í nóvember á síðasta ári þar eð Sovétmenn hefðu þráfald- lega brotið gegn þeim. Nefndin samþykkti einnig tillögu um að kjamorkutilraunir skuli framvegis verða takmarkaðar við eins kílótonns sprengjur svo fram- arlega sem Sovétmenn framkvæma engar slíkar tilraunir. Breytingatil- lögumar munu verða lagðar fyrir fulltrúadeildina í næstu viku og telja þingmenn demókrata víst að þær verði samþykktar. Tillögumar verða einnig lagðar fyrir öldunga- deildina. Demókratar hafa meiri- hluta í báðum þingdeildum. Hljóti tillögumar samþykki beggja þing- deilda er búist við að Reagan forseti beiti neitunarvaldi sínu. Þurfa þá tveir af hveijum þremur þingmönn- um beggja deilda að samþykkja þær til að hnekkja neitunarvaldi forset- ans. Fulltrúadeildin samþykkti svipaðar tillögur á síðasta ári en horfíð var frá þeim þar eð forsetinn sagði að þær myndu veikja samn- ingstöðu hans er hann hélt til fundar við Mikhail Gorbachev í Reykjavík. Fiskflutningar í lofti: Samkomulag um þéttar umbúðir Washington, frá tvarí Guðmundssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. Samkomulag hefir náðst milli Alþjóðaf lugmálastof nunarinnar (IATA) og Fiskimálastofunar Bandaríkjanna (NFI) um umbúð- ir fisks í flutningum loftleiðis. Umbúðimar eiga að koma í veg fyrir leka. En lekar umbúðir hafa löngum staðið í vegi fyrir því, að flugfélög tækju að sér fískflutn- inga. Oft og tíðum hafa umbúðir farið að leka með þeim afleiðingum að vatn hefur komist að rafmagns- leiðslum. Þá er hætta á að öryggis- búnaður þeirra bili. Talið er, að svo vel sé um hnút- ana búið með samningnum, að bæði fiskseljendur og flugfélögin muni nota reglur hans í fískflutn- ingfum í framtíðinni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.