Morgunblaðið - 22.11.1987, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 22.11.1987, Blaðsíða 20
20 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. NÓVEMBER 1987 FALL YEITSINS Fórnariamb GLASNOST-stefnunnar VÖLD Mikhail Gorbachevs sovétleið- toga hafa í fyrsta skipti komizt í hættu, en hann bjargaði sér úr klípunni með því að neyða skjólstæðing sinn, Boris Yeltsin, sem átti sök á vandanum, til að láta af starfi leiðtoga Moskvudeildar kommún- istaflokksins. Þar með friðaði hann íhaldssama andstæðinga undir forystu Yegors Ligachevs, sem hafa aukið áhrif sín og munu halda áfram að ógna svokall- aðri glasnost- eða opnunarstefnu. En þótt hún hafi beðið hnekki og almenning- ur beri minna traust til hennar en áður verður henni haldið áfram. Erfiðleikar Gorbachevs munu hafa áhrif á viðræður hans við Ronald Reagan forseta í Was- hington í næsta mánuði og e.t.v. auka áhuga hans á því að ná árangri. Gorbachev: gat ekki bjargað vinsœlum stuðningsmanni. Yeltsin varð að víkja á fundi í Moskvudeildinni vegna framkomu hans á fundi mið- stjómarinnar 21. október. Þar gagnrýndi hann Ligachev og fleiri íhaldsmenn fyrir að standa í vegi fyrir umbótastefn- unni, sem hann fullyrti að hefði ekki komið almenningi að notum, og beindi einnig skeytum sínum að Gorbachev. Ligachev svaraði hon- um fullum hálsi, Gorbachev studdi hann og Yeitsin bauðst þá til að segja af sér. Engu var líkara en Yeltsin hefði mætt á fund miðstjómarinnar til að fremja pólitískt sjálfsmorð. Þó virðist hann hafa vonað allt þar til fundurinn í Moskvudeildinni hófst að hann þyrfti ekki að standa við hótunina um að segja af sér. Fyrir hefur komið að flokkurinn hafi neit- að að taka lausnarbeiðni til greina, hann hafði ekki fyrir því að semja slíka beiðni og vinir hans sögðu honum að hann væri ómissandi. Honum mun því hafa brugðið þegar 24 menn kvöddu sér hljóðs á Moskvufundinum til að gagnrýna hann. Gorbachev gat ekki bjargað skjólstæðingi sínum og snerist gegn honum á fundinum í Moskvu. Hann sakaði Yeltsin um að hafa „sett ijersónuiegan metnað ofar flokks- hagsmunum" á miðstjómarfundin- um 21.okt. Ummæli hanB þá hefðu verið „ábyrgðarlaus og siðlaus" og sýnt að hann væri of vanstilltur til að geta stuðlað að nauðsynlegum breytingum með þvf að starfa af skynsemi og öryggi. Hann hefði talið nóg að hrópa vígorð og birta áskoranir, en orðið ósjálfbjarga, fyllzt óeirð og kvíða og misst stjóm á sér, þegar hann hefði þurft að standa við orð sín og láta verkin tala. Aðrir ræðumenn vönduðu honum ekki kveðjumar og eins illa hafði ekki verið talað um nokkum mann I flokksforystunni í áraraðir. Við- kvæðið hjá mörgum var að hann hefði „vísvitandi rekið hnffinn f bakið á flokknum með sviksamleg- um hætti.“ Fýrrverandi undirmaður hans sakaði hann um að hafa drýgt „glæpi gegn flokknum" með því að gefa f skyn að „deildin f Moskvu þyrfti ekki að taka sömu afstöðu og miðstjómin." Annar ræðumaður fordæmdi hann fyrir „fordild, lýð- skrum, pólitfska ævintýramennsku og bónapartisma." Sá þriðji taldi „slíkan mann“ ekki „verðugan þess að vera miðstjómarritari og taka þátt í pólitfsku 8tarfi.“ Aðrir töluðu um sambandsleysi og kváðu engan mun á honum og Brezhnev og öðr- um gömlum leiðtogum, sem hann hefði fordæmt. Eftir þessar skamm- arræður neyddist Yeltsin til að stíga sjálfur í ræðustólinn. „Ég er mjög sekur,“ sagði hann, „eitt helsta ein- kenni mitt, metnaðargimd, hefur gert vart við sig upp á síðkastið. Eg hef reynt að halda henni í skefj- um, en því miður hefur mér ekki tekist það.“ Vamarræða hans þótti minna á sýniréttarhöld Stalínstím- ans. Á sjúkrahúsi Hjartveiki hefur hrjáð Yeltsin og gagnrýnin á fundi miðstjómarinnar fékk svo mikið á hann að hann var fluttur f sjúkrahús. Á mánudaginn gekk hópur stuðningsmanna hans fylktu liði til aðalstöðva flokksdeild- arinnar til að kreflast upplýsinga um lfðan hans, en lögregla stöðvaði þá. Daginn eftir sá sovézkur tals- maður sig tilneyddan að bera til baka sögusagnir um að hann hefði fengið hjartaáfall eða reynt að fyrir- fara sér og sagði að honum liði vel eftir atvikum. Nokkrar minningagreinar um látna stjómmálamenn og embættis- menn hafa birzt í sovézkum blöðum síðustu daga með undirskriftum valdamestu leiðtoga eins og venja er, en undirskrift Yeltsins hefur vantað. Að nafninu til er hann enn aukafulltrúi í stjómmálaráðinu, en hann verður lfklega rekinn á næsta fundi. Ferli hans f flokknum er lok- ið, en hann hefur verið skipaður varaformaður byggingaráðs Sov- étríkjanna sem jafngildir ráðherra- stöðu. í Ijós hefur komið að Yeltsin bauðst fyrst til þess að segja af sér í bréfí til Gorbachevs í sumar. Gorbachev bað ’nann að 'nugsa mál- ið þar til eftir byltingarafinælið 7. nóv. til að valda ekki fjaðrafoki. Yeltsin taldi sig ekki geta beðið svo lengi og Gorbachev mun hafa sám- að það. Ólík afstaða þeirra iýsti þeim vel: Gorbachev er „háttvís, hófsamur, ftamsýnn og snillingur í valdatafli," en skjólstæðingur hans „óþolinmóður, hispurslaus f tali, óvæginn í gagnrýni og ekki f nógu mikilli snertingu við veruleikann." „Maður fólksins“ Yeltsin, sem er Rússi í húð og hár, var ötulasti, litrfkasti og öfga- fyllsti frömuður glasnost og persónugervingur þeirra breytinga, sem Gorbachev hefur beitt sér fyr- ir. Hann er fæddur 1. febrúar 1931 (fæðingarstað hans er haldið leynd- um) og gerðist byggingaverkfræð- ingur að Ioknu tækniskólanámi f Sverdlovsk í Úralflöllum. Hann var leiðtogi flokksins þar um slóðir frá 1976, þar til Gorbachev kvaddi hann til Moskvu einum mánuði eft: ir að hann náði völdunum 1985. í desember það ár tók Yeltsin við stjóm flokksdeildarinnar f Moskvu og tveimur mánuðum síðar varð hann aukafúlltrúi f stjómmálaráð- inu. Hann hafði átt sæti f miðstjóm frá 1981 og hlaut það starf f henni að fara með stjóm byggingamála. Eftir komuna til Moskvu gerði Yeltsin sér far um að kynnast kjör- um 'oorgarbúa, m.a. með jjví að ferðast með neðanjarðaijámbraut- arlestum og fara f matvöruverzlan- ir, og fékk orð fyrir að vera „maður fólksins." í janúar 1986 sakaði hann fyrirrennara sinn, Yiktor Gris- hin, um að bera ábyrgð á því að Moskvubúar fengju ekki nógu góða þjónustu. Þremur mánuðum sfðar bar hann Grishin á brýn að eiga sök á óstjóm og spillingu og kvað flokksbrodda „vaða í forréttindum." Síðan rak Yeltsin 70% borgar- ráðsfulltrúa og fjölda borgarstarfs- manna úr „Grishin-klfkunni." Hann réðst til atlögu gegn spilltum verzl- unarstjórum og fyrirskipaði auknar lögregluaðgerðir gegn áfengis- og eiturefnaneyzlu, gagnrýndi þjón- ustu neðanjarðarlestarkerfisins, kvartaði yfir því að heilbrigðis- þjónustan gæti aðeins sinnt 2/3 borgarbúa, kvað húsnæðismálin í ólestri, átaldi að smíði aðeins 8% nýbygginga lyki á tilsettum tíma og sakaði lækna og kennara um mútuþægni og diykkjuskap. Gagn- rýni hans vakti litla hrifningu flokksstarfsmanna, en verst þótti þeim að hann setti út á forréttindi þeirra, m.a. aðgang þeirra að sér- verzlunum, sérskólum og opinber- um bifreiðum, sem þeir notuðu m.a. til að aka konum sfnum f vinnuna og bömunum í skólann. Yeltsin bannaði slíkt og benti þeim á að nota strætisvagna. Vinnuþjarkur Ólíkt ráðamönnum af gamla skólanum hafði Yeltsin gaman af að ræða við almenning og tók á móti óboðnum sendinefndum, m.a. húsmæðra sem kvörtuðu yfir sprungnum holræsum og ólykt í kjöllurum og buðu honum í „vett- vangsrannsókn." Vinnudagur hans var frá kl. 6 að morgni til miðnætt- is. Hann neitaði að klæðast erlend- um fötum og var fijálslyndur í menntamálum. Hann rejmdi að hlúa að samvinnufélögum og einkafyrir- tækjum. Að minnsta kosti 18 samvinnufélögum hefur verið leyft að reka veitingahús, en margir áhugamenn um einkarekstur hafa fengið dræmar undirtektir í borgar- ráði. Yeltsin voru mislagðar hendur. Til þess að hefta öra fólksfjölgun stöðvaði hann veitingu dvalarleyfa handa einhleypu verkafólki, sem hefur streymt til Moskvu tugþús- undum saman til að taka að sér erfið og vanþakklát störf um stund- arsakir, en fest ráð sitt, setzt þar að og aukið húsnæðisekluna. Nú fæst enginn til að vinna jæssi störf og borgarbúar kvarta sáran. Svo langt gekk Iiann í baráttu gegn spillingu í matvæladreifingu að nú fæst enginn í illa launuð störf í þeirri grein og loka verður mörgum matvöruverzlunum. Þrátt fyrir lof- orð um aukið framboð á ínatvælum hafa biðraðir lengzt og verðið hækkað, þótt framboð A ávöxtum og grænmeti virðist hafa aukizt, a.m.k. á sumrin. Neyzluvamingur fæst hins vegar ekki í eins miklu úrvali og áður. Táknið fallið Margir töldu Yeltsin tákn nýrra tfma. Almenningur S Moskvu virtist ánægður með baráttu hans gegn misrétti og forréttindum og tilraun- ir til að uppræta spillingu og bæta opinbera þjónustu. Því er hins veg- ar ekki að leyna að starf hans virtist ekki bera mikinn áþreifanlegan árangur, en raunar hafa Sovétríkin öll lítið breytzt síðan Gorbachev boðaði fyrst glasnost. Hann og Yeltsin hafa bent á marga agnúa, rekið rétta menn, sett fram skýra og áhrifamikla gagmýni og breytt andrúmsloftinu, en mætt miklu andstreymi. Nú er Yeltsin fallinn og Gorbachev á mikið starf fyrir höndum. Maigs konar erfíðieikar, sem Yeltsin komst í, mögnuðu andstöðu íhaldsmanna. Þótt meira kunni að vera gert úr þeim en efni standa til f ófrægingarskyni virðist hann ekki hafa stjómað Moskvu nógu vel. Það virtist t.d. ofvaxið hans skilningi að spilling yrði ekki upprætt nema dregið yrði úr vöruskorti. Honum hætti til að reyna að leysa flókin vandamál með einföldum ráðum,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.