Morgunblaðið - 02.12.1987, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1987
33
Morgunblaðið/Magnús Gíslason
Úr leikþætti nemenda á foreldrakvöldinu.
Gott félagslíf
í Barnaskóla
Staðarhrepps
Stað í Hrútafirði.
NEMENDUR Barnaskóla Staðar-
hrepps ásamt kennurum og
skólastjóra gangast öðru hvoru
fyrir foreldrakvöldum og var
eitt slíkt haldið nú fyrir skömmu.
Bamaskóli Staðarhrepps er ekki
með mikinn fjölda nemenda, þeir
eru átján talsins á aldrinum 6 til
12 ára. Við skólann starfar einn
fastráðinn kennari, það er skóla-
stjórinn Kristinn BreiðQörð, ásamt
sex stundakennurum. Skólahúsið
er nýlegt, rúmgott og hentar vel
til kennslu og félagsstarfa. Skólinn
er starfræktur í 8V2 mánuð og er
heimaakstursskóli. Félagslíf er all-
gott og eru helstu þættir þess
foreldrakvöld, spilakvöld, diskótek,
danskennsla, skíðaferðir og skóla-
ferðalag að sumrinu. Árlega er
skólablaðið Pennarugl gefið út,
vandað blað, 20—30 síður. Góð að-
staða er í Reykjaskóla til íþrótta-
kennslu, og hafa nemendur
Bamaskólans haft aðstöðu í íþrótta-
sal skólans.
- m.g.
Skólahljómsveit Barnaskóla Staðarhrepps.
wæthél.gtw^SwiœW
sett.
blandari • spaði.
Hein*tóeW
... hf
kWNGLUNNIs: 691520
Sendu vinum þínum erlendis gjafaáskrift!
Hringdu STRAX! Sími 84966, Höfðabakka 9, Reykjavík.