Morgunblaðið - 02.12.1987, Blaðsíða 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1987
Síðasta mánudagskvöld
hélt Jassvakning jass- og
blúskvöld á Hótel Borg. Þar
komu fram Tríó Guðmunar
Ingólf ssonar með munn-
hörpuleikaranum Helga
Guðmundssyni o g söng-
konunum Björk Guðmunds-
dóttur og Andreu Gylfadótt-
ur.
Helgi var fyrstur gestanna sem
lék með tríóinu. Hann hóf leikinn
á T-Bone blúsnum Stormy
Monday, sem hefur líklegast verið
leikinn oftar en flestir aðrir blúsar.
Helgi fór á kostum í því lagi ekki
síður en í öðrum blúsum sem hann
lék þetta kvöld. Framúrskarandi
munnhörpuleikari hvort sem hann
var að leika blús „standarda" eða
jassslagara á við C-jam Blues Ell-
ington.
Á eftir Helga átti Oktavía Stef-
ánsdóttir að koma fram en hún
Björk fer þar sem aðrir komast ekki.
Jassadur borgarblús
eða
blúsaður borgaijass
forfallaðist og Andrea Gylfadóttir,
sem gert hefur garðinn frægan
með Grafík, hljóp í skarðið. Ekki
bar á því að Andrea hefði lítið sem
ekkert æft með tríóinu, því svo
vel gekk henni að komast inn í
dagskrána að ótrúlegt mátti virð-
ast. Hún hélt sig nær jassinum
en Helgi, en aldrei var blúsinn þó
langt undan. Það voru Ellington/
Strayhom slagara sem vora
viðraðir, Take the A-Train og
Satin Doll söng Andrea afbragðs
vel og Summertime Gershwins
fékk að fljóta með meðal annarra
laga.
Björk Guðmundsdóttir, sem
kunnari er sem Sykurmoli, átti
næsta leik. Hún sýndi svo um
munar að það er í henni sveifla
ekki síður en óþijótandi spuni.
Björk söng meðal anarra laga
snjalla útsetningu á gömlum
íslenskum þjóðvísum og gott lag
sitt sem hún nefnir Jóhannes
Kjarval. Gaman var að heyra hana
syngja Litla tónlistarmanninn og
Stjömublik eftir 12. september,
en mesta gamanið var þegar hún
spann viðstöðulaust blúsana.
Tónleikunum lauk síðan með
því að þau komu þrjú á sviðið,
Helgi, Björk og Andrea, og fluttu
loka ópusana með tríóinu. Það var
góður endir á framúrskarandi tón-
leikum þegar Andrea og Björk
enduðu báðar í sama tóninum eft-
ir að hafa verið að spinna hvor á
sinni hæðinni og hvor á sínum
hraðanum óæfðar.
Ekki má ljúka frásögninni án
þess að geta tríósins sem var
feikna gott að vanda. Sveiflan var
góð og trommur og bassi traust
undirstaða. Guðmundur Ingólfs-
son var í blúsuðu formi, enda
hefur hann meiri blús í hægri
hendinni en kappar eins og May-
all hafa leikið alla sína tíð. Þeim
væri hollt að hlusta
Ámi Matthíasson
Helgi blúsar í anda Sonny Boy Williamson, Rice Miller og Little Walter.
Ljósmynd/BS
Andrea og Björk náðu ótrúlega vel saman óæfðar. Uósmynd/BS