Morgunblaðið - 16.02.1988, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 16.02.1988, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1988 Afli og aflaverðmæti togaranna: Akureyrin E A og Guðbjörg ÍS bera af Ottó N. Þorláksson aflahæstur togaranna AKUREYRIN EA skilaði á síðasta ári meiri verðmætum á land en nokkurt annað fiskiskip í íslenzka flotanum og varð fyrst skipa tU að landa afla fyrir meira en 300 milljónir króna. Akureyrin er einnig eitt fjögurra skipa, sem fiskuðu meira en 5.000 tonn á síðasta ári. Eins og Akureyrin ber höfuð og- herðar yfir aðra frystitogara, ber Guðbjörg ÍS af ísfisktogurunum. Hún fiskaði meira en 5.000 tonn á síðasta ári að verðmæti 218,8 milljónir króna, um 50 milljónum meira en næsti ísfisktogarinn. Ottó N. Þorláksson varð aflahæstur með 6.016 tonn. LÍÚ hefur nú sent frá sér öfluðu að meðaltali 2.953 tonna skýrslu um afla togaranna og afla- að verðmæti 88,6 milljónir. Stórir verðmæti þeirra á síðasta ári. Tog- urunum er skipt niður í flokka eftir landshlutum og eftir stærð. V estij arðatogaramir eru mjög áberandi hvað afla og aflaverð- mæti snertir og stóru togararnir í Reykjavík og Hafnarfírði fyrir aflaverðmæti, en siglingar og sala físksins fersks erlendis er stærri þáttur hjá þeim en flestum öðrum. Þá verður að taka mið af kvóta skipanna og aflasamsetningu því hvort tveggja takmarkar möguleg- an afla og verðmæti hans. Minni togarar á svæðinu frá Vestmannaeyjum til og með Snæ- fellsnesi voru að meðaltali með 3.421 tonn að verðmæti 90,9 millj- ónir króna, en karfí er mjög stór hluti aflans. Vestfjarðatogaramir voru að meðaltali með 3.805 tonn, . mest þorsk að verðmæti 127,5 milljónir króna að meðaltali. Með- altal minni togara á Norðurlandi var 2.661 tonn að verðmæti 80,8 milljónir. Togarar á Austgörðum o INNLENT togarar á Akureyri eru flórir, en aðeins þrír þeirra voru gerðir út allt árið. Afli þeirra var frá 4.779 til 4.986 tonna að verðmæti 100,7 til 102 milljónir króna. Ekkert af afla þeirra var selt erlendis. Stóru togaramir í Reykjavík'og Hafnar- fírði voru að meðaltali með 3.981 tonn að verðmæti 147,5 milljónir. Tveggja þriðju hluta tekna þeirra var aflað með sölu aflans erlendis. Frystitogaramir voni að meðaltali með 2.883 tonn að verðmæti 179 milljónir króna. Éftirtalin skip öfluðu meira en 5.000 tonna' í fyrra: Ottó N. Þor- láksson RE 6.016, Guðbjörg ÍS 5.385, Sturlaugur H. Böðvarsson AK 5.u64 og Akureyrin EA 5.335 tonn. 7 frystiskip öfluðu fyrir meira en 200 milljónir króna: Ak- ureyrin EA 305,6 milljónir, Örvar HU 264,8, Venus HF 249, Sigur- björg ÓF 235,7, Freri RE 227,2, Siglfírðingur SI 214,4 og Hólmadrangur ST 209 milljónir. Jafnmargir ísfísktogarar öfluðu fyrir meira en 150 milljónir króna: Guðbjörg ÍS 218,8 milljónir, Júlíus Geinnundsson ÍS 169,6, Páll Páls- son ÍS 169,4, Ögri RE 168,5, Vigri RE 160,7, Ottó N. Þorláksson RE 152 og Bessi ÍS 151,9 milljónir króna. 111llttl Ó1.K.M. Bláfellið við bryggju eftir áreksturinn. Nokkrar skemmdir eru á brúarvæng stjómborðsmegin. Árekstur á ytrihöfninm ÁREKSTUR tveggja skipa varð á ytri höfninni í Reylgavík i gærmorgun. Þá rákust saman strandferðaskipið Askja og olíuflutningaskipið Bláfell. Fremur litlar skemmdir urðu á skipunum. Skipin rákust saman rétt fyrir klukkan 11 um morguninn. Askja var á leið út, en Bláfellið inn. Bæði skipin snéru til hafnar eftir óhappið, en Askja hélt síðan af stað síðdegis í áætlun umhverfís landið. Bláfellið lagði að olíu- bryggjunni í Vesturhöfninni og er lítið skemmt, en þó heldur meira en Askjan. Ekki er ljóst hvaða áhrif áreksturinn hefur á útgerð skipanna. Sjópróf hafa ekki verið haldin og engin skýring hefur verið gefín opinberlega á óhappinu, en skyggni var slæmt. Minkaskinnin þokuðust upp á við á Kaupmannahaf naruppboði: Margir bændur gera sig ánægða með verðið - segir Jón Ragnar Björnsson framkvæmdastjóri SIL MEÐALVERÐ á þeim minka- skinnum sem seldust á uppboði Hanska loðdýraræktarsambands- ins í Kaupmannahöfn um helgina var 1.247 krónur íslenskar og er það örlitlu betra verð en fékkst á desemberuppboði. Tiltölulega litið var af islenskum skinnum á uppboðinu, þau verða aðallega seld á marsuppboði. Niðurstöður helstu tegunda á uppboðinu voru, samkvæmt upplýs- Stokkfiskur í Reykjadal: Sleginn Byggðastofnun á 10,5 milljónir króna Stofnað verði hlutafélag um áframhaldandi rekstur FISKVERKUNARHÚS og bún- aður Stokkfisks á Laugum í Reykjadal var sleginn Byggða- stofnun á nauðungaruppboði i gærmorgun á 10,5 milljónir króna. Aðeins bárust tvö tilboð í eignina, frá Byggðastofnun og frá Fiskveiðasjóði, sem bauð 10 milljónir króna. Halldór Kristinsson sýslumaður á Húsavík sá um framkvæmd upp- boðsins í Reylgadal í gær og sagði hann í samtali við Morgunblaðið að alls hefðu 22 veðréttir verið á eigninni. Ekki væri búið að reikna saman hversu háar kröfumar væru samtais, en þær munu skipta tugum milljóna króna. Meðal kröfuhafa í eignir Stokkfisks voru auk Fisk- veiðasjóðs og Byggðastofnunar Búnaðarbanki íslands, Fiskimálá- sjóður, lífeyrissjóðir, Sparisjóður Reykdæla .og Rafmagnsveitur ríkis- ins. Þá voru einnig flárkröfur frá ýmsum viðskiptavinum Stokkfísks, svo sem seljendum fískhausa til fyrirtækisins. Þorsteinn Ingason stofnaði fyrir- tækið 'Og hafa að staðaldri unnið við það 20 til 25 manns. Frá því i lok síðasta mánaðar hefur Fiskiðju- samlag Húsavíkur rekið fískverkun- ina, sem fyrst og fremst felst í þurrkun fískhausa fyrir Nígeríu- markað. Tólf til fímmtán manns Morgunblaðið/GSV Halldór Kristinsson sýslumaður á Húsavík sá um framkvæmd nauð- ungaruppboðsins á Stokkfiski í gærmorgun. hafa unnið við verkunina síðustu vikumar. Guðmundur Malmquist forstjóri Byggðastofnunar sagði I samtali við Morgunbláðið í gær að Byggða- stofnun vildi fyrir alla muni tryggja áframhaldandi rekstur fyrirtækis- ins í Reykjadalnum. „Við ætlum okkur að reyna að selja fynrtækið. Það er í fullum rekstri í dag og hef ég trú á að Fiskiðjusamlag Húsavík- ur muni halda rekstrinum áfram í bili að minnsta kosti. Ég geri mér vonir um að Fiskiðjusamlagið muni hafa forgöngu um að stofnað verði hlutafélag, sem geti þá keypt fyrir- tækið af Byggðastofnun og þar með haldið rekstrinum áfram. Þessi möguleiki hefur verið ræddur og ég vænti þess að Húsvíkingar séu að vinna í málinu. Guðmundur sagði að Byggða- stofnun hefði verið stærsti kröfu- hafínn hjá Stokkfíski. Kröfur stofn- unarinnar hefðu numið um 12,5 milljónum króna, en brunabótamat fyrirtækisins mun hinsvegarjíafa numið um 30 milijónum króna. ingum Jóns Ragnars Bjömssonar framkvæmdastjóra Sambands íslenskra loðdýraræktenda: Svartminkshögnar seldust á 1.392 krónur að meðaltali og seldust 94% framboðinna skinna. Er það um 4% lægra verð en á desemberuppboði. Svartminkslæður fóm á 1.121 kr., sem er 1% lækkun, ogseldust 100%. Brúnminkshögnaskinn seldust 100% og á 1.466 kr., sem er 4% verðhækkun frá desember. Læðu- skinnin hækkuðu einnig um 4%, fóru á 1.150 krónur og seldust 98%. Pastelskinnin seldust öll og hækkuðu um 4-8% frá desember, högnaskinnin á 1.351 kr. og læð- umar á 926 kr. að meðaltali. Ekki liggja fyrir upplýsingar um það hvemig íslensku minkaskinnin komu út í sambanburði við önnur skinn á uppboðinu, nema hvað þar voru seldir 2.362 svartminkshögnar á 1.270 krónur og 484 læður á 1.000 kr. að meðaltali. Mikill hluti íslensku minkaskinnaframleiðsl- unnar verður seldur á marsupp- boðinu í Kaupmannahöfn. Jón Ragnar sagði að þetta verð væri lægra en á síðasta sölutíma- bili, sem svaraði til lækkunar dollar- ans. Ýmsir hefðu átt von á frekari VMSÍ og VSÍ: Hæg’ur gang- ur á viðræðum HÆGUR gangur er á viðræðum Verkamannnrainhanda íslands við vinnuveitendur og tæplega búist við að mál taki að skýrast fyrr en síðari hluta vikunnar, en mikið ber á milli aðila. Bilið hef- ur þó ekki breikkað, en á þessu stigi er ómögulegt að segja hvort flötur finnst á samningum. Samninganefndimar sátu á fundi í gær og funduðu áfram í gær- kvöldi eftir matarhlé sem gert var. Einnig vom fundir um helgina, á laugardag og sunnudag. Samninga- nefíidum hefur verið skipt niður til að fjalla um ákveðna þætti tillagna Verkamannasambandsins að kjara- samningum til ársins, sem lagðar vom formlega fyrir vinnuveitendur á föstudaginn var. í gær var fundur undimefnda í viðræðum Lansdsambands iðn- verkafólks og vinnuveitenda og í dag verður fundur undimefnda í deilu Landssambands verzlunar- manna. lækkun á þessu uppboði en það hefði ekki farið þannig og væm menn þokkalega ánægðir. Sagði Jón Ragnar að margir loðdýra- bændur gerðu sig ánægða með þetta verð, teldu sig vel geta fram- leitt fyrir það. Handteknir fyrii' líkams- árás og rán ÞRÍR ungir menn voru hand- teknir á sunnudag eftir að hafa ráðist á og rænt mann á fertugs- aldri á Skúlagötu í Reykjavík aðfaranótt sunnudags. Arásar- mennimir börðu manninn þannig að sauma varð sjö spor i andlit hans auk þess sem þeir rændu hann um 4 þúsund krónum í pen- ingum og ávísanahefti. Tveir árásarmannanna vom handteknir í Keflavík á sunnudags- morgun og sá þriðji í Reykjavík síðar um daginn. Rannsóknarlög- regla ríkisins tók mennina í sína vörslu og er málið að mestu upp- lýst að því er Helgi Daníelsson, yfírlögregluþjónn hjá RLR, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær. í dag ÍÞRÚIflR IBorjjunliln&iÍ) KR-ingartil tilEyja í bikamum Daníel tekur ekki þátt í tvíkeppninni m E; J r A 0 Í65. sætl J t??" íslandsmet Ragn- - • heiöar og Svan- htldar um helgína ULAJL «* blao B
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.