Morgunblaðið - 11.03.1988, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 11.03.1988, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. MARZ 1988 19 IERT VIÐURLÖG VEGNA STÖÐUBROTA I>að borgar sig fyrir þig ad leggja á aifreiðinni m öþt-ogtnöum'” or hún Pf5fllnrTbuni5^ao"tt?;:.QötUf Kostaö þtg alit «aö.*tOOO krónu?n>f>tf steppuf helcsur ekki v«ö ;að oor&a þossí fljölct, Et þú greiðir ekkí gjðltfln ;innan;2ja viKría haewa þau um 50%. Oragir ^þú‘onn freker sö bórga'vordur gert löfltak. ibtóum’b^jumWbann'boöinn upp, ~ Það borgar sig ekki fyr- ir þig að koma í bæinn eftirSkúla G. Jóhannesson Nú í þessum marsmánuði tóku borgaryfirvöld Reykjavíkur alfarið að sér eftirlit með stöðu bifreiða í borginni, og hafa fengið heimild til að gera lögtak í „bílnum þínum“ ef þú borgar ekki stöðugjöld þín eins og segir í ógnandi auglýsingu sem við lesum í blöðunum þessa dagana. Undirritaður er að hugleiða vinnubrögð við kynningu á þessu máli og hugsanlegum afleiðingum, þama er spilað á ógnunar- og hræðslutilfinningar. Ég er líka að hugsa um hvað hefur verið gert fyrir miðborgina þau 26 ár sem ég hef starfað hér, er sanngjamt eða ósanngjarnt að biðja um fegrun eða hagræðingu hér? Það tekur ekki langan tíma að telja upp þær tilraunir sem ég man eftir á þessu tímabili, þær eru þijár. 1. Austurstrætið að hluta gert að göngugötu, og þessum að- gerðum átti að fylgja eftir með átaki í bílastæðamálum, en það var aldrei gert, og framhaldið, að Aust- urstræti yrði allt göngugata því óframkvæmanlegt, gatan er mis- heppnuð. 2. Útitaflið sem sett var upp við Lækjargötu, þar leyfi ég mér að setja stórt spumingarmerki við bæði nýtingu og fegrun. 3. „Nýi Laugavegurinn“ sem opnaður var í nóvember 1985. Þar kom loks- ins skemmtilegur árangur fram, og allir sem um Laugaveginn fara lýsa ánægju sinni með. Borgin sýndi þessu Laugavegsverkefni áhuga og var það vel unnið af borgarstofnun- inni, og íbúar og hagsmunaaðilar hafðir með í ráðum, en í þeirri vinnu kom upp á borðið, sem raunar var áður vitað, hvað bílastæðamál borg- arinnar em í miklum ólestri, og efndir loforða um úrlausnir hafa látið á sér standa. Raunar var eitt bílastæði tekið í notkun sl. haust, það er Bakkastæði sem svo er nefnt, og er á gömlu Hafskipslóð- inni svokölluðu, niður við höfn. Samtökin Gamli miðbærinn höfðu lengi beðið um þetta, og það tókst, takk fyrir. Þama eru stæði sem þjóna vel Kvosinni, en athugið að þessi stæði em til bráðabirgða, eft- ir 1—2 ár heijast framkvæmdir við Geirsgötu, sem liggja mun um þetta svæði, og þá byija sömu bílastæða- vandræðin. Ekki minnkar vanda- upptalningu á öllum þeim óþægind- um sem geta hent þig í viðskipta- ferð í bæinn, og einnig er í auglýs- ingunni góð útskýring hvað lögtak sé — bíllinn þinn er boðinn upp. Sérhver bíleigandi sér nú fyrir sér bílinn sinn aftan í kranabíl þeg- ar hann lætur sér detta í hug að fara í bæinn. — Já, það stendur óbeint í auglýsingunni: Það borgar sig ekki að fara í bæinn. Það er ótrúlegt en satt að bygg- ing Kringlunnar hjálpaði borgar- yfirvöldum óbeint í bílastæðavanda- málum miðbæjarins — það koma færri í bæinn en áður og nú skal hræða þá í burt sem voga sér að nálgast bæinn — ef ekki með himin- háum stöðugjöldum, þá með vígreif- um bflastöðuvörðum sem fylgjast með þessum fáu stæðum sem til eru og eru með kranabíl til að ijar- lægja bílinn þinn. Já — há gjöld, lögfræði og lögtakshótanir — komdu ef þú þorir... Það verður varla rólegt og afslappandi að reka erindi sín í bænum. Það viðhorf sem borgaryfirvöld eru að byggja upp núna er ógnandi og mjög neikvætt fyrir gamla miðbæinn, því miður. Það væri óskandi að borgaryfir- völd gætu tekið upp jákvæð viðhorf í þessum málum, sýnt okkur fram á framkvæmdir og birt síðan hveija heilsíðuauglýsinguna af annarri og þar standi: Vertu hjartanlega vel- kominn í miðbæinn. Höfundur er verslunarmaður við Laugaveg. kWtMMIMÍMaPWMMMWVMaÉ tii Qfiniii „Það væri óskandi að borgaryfirvöld gætu tekið upp jákvæð við- horf í þessum málum, sýnt okkur fram á framkvæmdir og birt síðan hverja heilsíðu- auglýsinguna af ann- arri og þar standi: Vertu hjartanlega vel- kominn í miðbæinn.“ málið við Laugaveginn, þar hefur bílastæðum fækkað frekar en hitt, og engin áform um úrbætur. Aðeins hefur raunar verið minnst á bráða- birgðastæði á Völundarlóð og sjáv- armegin við Skúlagötuna, en þetta eru bráðabirgðastæði og stæði sem þjóna ekki Laugaveginum vegna fjarlægðar. Of langt mál er að ræða þetta hér, nú tel ég að byijað sé á öfug- um enda, peninga vantar mun sagt verða — en það þarf einmitt að byggja upp bílastæði og svæði til að ná inn peningum, enda hafa bíl- og húseigendur í borginni greitt stórar upphæðir í ákveðna sjóði sem nú mætti nota. En hvað er gert — nú á að hræða fólk frá því að koma í bæinn, venja það af því, en þá gildna ekki stöðu- mælasjóðir borgarinnar. Heilsíðu- ógnar-auglýsingar eru birtar með Mðríneraður nautðvbHvi * 698“% 40 stk. ■ /n bréfble ur Asþór RE Magnús NK til Grindavíkur Magnús NK í Grindavíkurhöfii. Myndin var tekin á loðnuvertí- ðinni í fyrra. Grindavík Útgerðarfélagið Þorbjörn hf. í Grindavík hefur fest kaup á loðnu- skipinu Magnúsi NK frá Neskaup- stað, en eins og sagt var í þriðju- dagsblaði Morgunblaðsins hefiir Þorbjörn hfi einnig fest kaup á togaranum Ásþór RE 10. Að sögn Eiríks Tómassonar fram- kvæmdastjóra Þorbjöms hf. hefur Magnús NK 17.000 tonna loðnuk- vóta, 160 tonna rækjukvóta og 100 tonna þorskkvóta. Skipið er væntan- legt til Grindavíkur 15. mars og fer þá strax á net undir stjórn Péturs Guðjónssonar ásamt fleirum af áhöfn Hrafns Sveinbjarnarsonar III, en Asþór var keyptur vegna strands hans. Kr.Ben. 1 l g Opið til ld. 20.00 í kvöld ___ Iðugðrdðg til kl. 16.00 | B) // Kjörbúð Lóuhólum 2-6 sími 74100 ’ Fryst grænmetí SJÖ TEGUNDIR!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.