Morgunblaðið - 04.06.1988, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. JÚNÍ 1988
Laukur
Heimilishorn
Bergljót Ingólfsdóttir
Laukur er alveg ómissandi við
matargerðina enda notaður út um
allan heim. Því er á það minnst að
óvenju stór safaríkur og fallegur
laukur er nú fáanlegur í verslunum
og því sjálfsagt að notfæra sér við
matseldina. Það þarf ekki endilega
að hafa lauk sem meðlæti með öðru,
vel má gera úr honum sjálfstæðan
rétt.
Fylltur laukur
6 stórir laukar
vatn og salt
Fyiling;
2 þykkar hveitibrauðsneiðar
1 dl mjólk
2 tsk. salt
1 tsk. pipar
1 tsk. paprika
200 gr hakkað kjöt
smjör
Laukurinn hreinsaður og soðinn
í um það bil 10 mín., saltað. Lok
er skorið af lauknum og tekið innan-
úr varlega eftir þarf að standa góð
skel. Laukbitamir sem teknir eru
úr eru saxaðir smátt. Brauðið er
lagt í bleyti í mjólkina, síðan hrært
saman við hakkið ásamt kryddi og
söxuðum lauk. Kjötinu er síðan
skipt niður á laukana, sett í ofnfast
fat og smjörbitar settir ofan á lauk-
ana, bakað í ofni í ca. 30 mín. við
225o C. Borið fram heitt með brauði
og salati. Ætlað fyrir 6.
Laukbakstur
Deig:
3 dl hveiti
100 gr smjörlíki
2-3 msk. kalt vatn
Fylling:
4 stórir laukar
1 msk. smjör eða smjörlíki
3 egg
2V2 dl mjólk
1 tsk. salt
V2 tsk. pipar
I-IV2 dl rifinn ostur.
Deigið er hnoðað og geymt um
stund á köldum stað. Laukurinn
Fylltur laukur.
skorinn í þunnar sneiðar, settur í
smjörlíki á pönnu og aðeins látinn
mýkjast, síðan kældur.
Egg, mjólk og krydd hrært vel
saman, rifnum ostinum hrært sam-
an við. Deigið er flatt út, eða þrýst
niður í smurt form (24 sm ummál),
smjörpappír lagður yfir og deigið
forbakað í 15 mín. við 225° C áður
en lauknum er jafnað yfír. Eggja-
hrærunni hellt yfír og bakað í 20-30
Laukbakstur.
salt, pipar og örlítill hvítlaukur
Laukurinn skorinn í þunnar
sneiðar og látinn mýkjast eða soð-
inn í smjöri á pönnu. Hveiti stráð
yfir og þynnt út með mjólkinni, lát-
ið sjóða í 5 mín. Sýrðum ijómanum
er síðan hrært saman við, bragð-
bætt með salti, pipar og hvítlauks-
dufti. Borið fram heitt, með kjöti
eða físki, steinselja klippt yfír um
leið og borið er fram. Fyrir 4.
mín. eða þar til kominn er gullin
litur á. Borið fram heitt sem með-
læti eða sjálfstæður réttur með sal-
ati og brauði. Fyrir 4-6.
Laukþykkni
4 stórir laukar
1 msk. smjör eða smjörlíki
2 msk.-hveiti
2 dl mjólk
1 dl sýrður rjómi
Arásá
samnings-
réttinn
fordæmd
ALMENNUR fundur Félags
járniðnaðarmanna hefur for-
dæmt harðlega „ árás ríkisstjóm-
arinnar á samningsrétt verka-
lýðsfélaga og þá kjaraskerðingu
sem henni fylgir. Þessi árás á
kjör launafólks er gerð þrátt
fyrir að ríkisstjórain viðurkenni
að vanda efnahagslífsins má
rekja til óráðsíu og skipulags-
leysis en ekki til Iaunakjara
verkafólks," segir í fréttatil-
kynningu, sem Morgunblaðinu
hefur borist.
Ennfremur segir: „Með lagaboð-
um um kjaraskerðingu og afnám
samningsréttar er verkalýðshreyf-
ingin svift aðstöðu til að sinna á
eðlilegan hátt megin hlutverki sínu
að semja um kaup og kjör.
Félagfundurinn krefst þess að
ríkisstjómin afturkalli lagasetning-
una svo verkalýðsfélögum verði
unnt að vinna að frjálsri samninga-
gerð. Jafnframt beinir félagsfund-
urinn því til ASÍ að undirbúnar
verði aðgerðir af hálfu verkalýðs-
samtakanna til að hnekkja kjara-
og réttindaskerðingu ríkisstjómar-
innar."
Múrararmót-
mæla bráða-
birgðalögum
STJÓRN og trúnaðarmannaráð
Múrarafélags Reykjavíkur hefur
samþykkt mótmæli við bráða-
birgðalögum ríkisstj órnarinnar.
I tillögunni sem samþykkt var
er mótmælt „harðlega þeirri ger-
ræðislegu aðför að fijálsum samn-
ingsrétti sem felst í setningu bráða-
birgðalaga nr. 14/1988 um aðgerð-
ir í efnahagsmálum og skorar á öll
launþegasamtök í landinu að sam-
einast um aðgerðir til að fá þeim
hrundið. f því sambandi verði meðal
annars kannað hvort fullnægt hafí
verið skilyrðum 28. gr. stjómar-
skrárinnar fyrir slíkri lagasetn-
ingu."
Áskriftarsbninn er 83033
Borgaðu rafmagnsreikninginn
áður en þú ferð í fríið!
Þá verður heimkoman ánægjulegri
Það er ómetanlegt að komast í
gott sumarfrí en það er líka notalegt að
koma heim aftur — ef allt er í lagi. Áður
en við förum göngum við tryggilega frá
öllu. Við greiðum rafmagnsreikninginn
svo að heimilistækin geti sinnt skyldum
sínum í fjarveru okkar og þjónað okkur
strax við heimkomuna.
Dreifikerfi Rafinagnsveitu Reykja-
víkur er eitthvert hið öruggasta í heimi.
Viðskiptavinirnir geta treyst á góða og
ódýra orku, ef þeir aðeins greiða fyrir
hana á eðlilegum tíma. Verði misbrestur
þar á bætast við dráttarvextir - og þá er
líka stutt í hvimleiða lokun.
Rafmagnsreikningar eru sendir út á
tveggja mánaða fresti. Eindagi þeirra er 15 dögum
eftir útgáfudag. Ef reikningur hefúr ekki verið
greiddur á eindaga reiknast á hann háir dráttar-
vextir.
Láttu rafmagnsreikninginn haía
forgang!
RAFMAGNSVEITA
REYKJAVÍKUR
SUDURLANDSBRAUT 34 SÍMI686222