Morgunblaðið - 25.10.1988, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 25.10.1988, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 1988 VINNUB ÞU á laugardogum. BÓNUSTALA: 6 Að ég væri... orðinn að hlébarðakonunni? Leiklist Jóhanna Kristjónsdóttir Alþýðuleikhúsið frumsýndi í kjallara Hlaðvarpans: Koss Kóngulóarkonunnar eftir Manu- el Puig Þýðing: Ingibjörg Haraldsdóttir Tónlist: Lárus H. Grímsson Lýsing: Arni Baldvinsson Leikmynd og búningar: Gerla Leiksfjóri: Sigrún Valbergsdóttir Tveir menn sitja í fangaklefa í landi í Suður-Ameríku. Ástæðurnar fyrir frelsissviptingu þeirra virðast ekki geta verið ólíkari; annar hefur hlotið dóm fyrir að afvegaleiða unga drengi kynferðislega, hinn er eld- heitur hugsjónamaður, sem berst gegn stjómvöldum, dreymir um betri heim og sá heimur verður ekki til, fyrr en hann og félagar hans hafa náð völdum. Hommann dreymir ekki um betri heim í þeim skilningi — hans löngun tengist aðeins honum sjálfum og þeim sem næstir honum standa. Hann er áhugalaus um pólitík og sú barátta sem klefafélaginn vill heyja er hon- um óskiljanleg. En það myndast tengsl á milli þeirra, þeir fara báðir yfir þröskuld- inn sem manneslqan hikar við í samskiptum við svokallaðar eðlileg- ar kringumstæður. Þar af leiðandi hefur hvorugur neitt að fela lengur og þeir geta nálgast hvor annan, ekki þrautalaust en án blygðunar þó að það hafi krafist mikils af þeim að ná að þeim púnkti. Þetta leikrit snýst auðvitað um frelsissviptingu og sýnir mannrétt- indi fótum troðin; hún ijallar um fordómana og sjálfsvirðinguna eða sjálfsblygðunina. En umfram annað um mannleg samskipti tveggja and- stæðra manna sem hefðu aldrei náð saman og skilið hvom annan við hinar svokölluðu eðlilegu aðstæður. Það ijallar um vináttu og trúnað í sinni hugnanlegustu mynd. Sýning Alþýðuleikhússins er vönduð og fallega gerð, því víst má tala um fegurð, þótt efni verks- ins virðist myrkt. Sigrún Valbergs- dóttir, leikstjóri, hefur að mínu viti náð réttum áherslum, staðsetningar í þrengslum kjallara Hlaðvarpans óþvingaðar og sannfærandi. Hún á mikið lof skilið fyrir skilning sinn á verkinu. Gerla hefur búið því umgjörð við hæfí og ágæt hugmynd að „loka“ áhorfendur inni í klefan- um með föngunum tveimur. Tónlist- in var dramatísk og vel útfærð. Guðmundur Ólafsson leikur bylt- ingarmanninn sem vill breyta heim- inum og fara eftir fræðunum, mann sem berst gegn tilfinningunum, því að baráttan hlýtur að vera númer eitt. Samt dregur að því að hann verður að gangast við „veikleika" sínum og kannski er hugsjónin far- in að þverra líka, kannski mann- eskjan í sinni sönnustu mynd sé það sem skiptir meira en klisjur um breytta heimsmynd. Guðmundur gerði Valentin áhrifamikil skil og sýndi hugarangur og sveiflur hans af innsæi snjalls leikara. Ámi Pétur Guðjónsson er í hlutverki homm- ans, sem hefur að sönnu setið inni um hríð, en var síðan látinn í klefa með byltingarmanninum til að reyna að vinna trúnað hans og fá hann til að koma upp um félaga sína. Ámi Pétur hefur Molina á valdi sínu frá byijun, blæbrigðin oft afar fínlega unnin og af nostur- semi og listfengi. í meðförum hans verður homminn sem slíkur ekki aðalatriðið, heldur manneskjan. Þótt homminn eigi margar skopleg- ar „replikkur“ féll leikarinn ekki í þá freistni að gera hann spaugileg- an — einlægnin og samúðin sat í fyrirrúmi. Ég sá ekki fræga kvikmynd sem gerð var eftir þessu leikriti, en mér hefði fundist að lokakaflanum um örlög þeirra félaga eftir að Molina losnar úr prísundinni hefði mátt sleppa. Það er auðvitað smekksat- riði, hvenær á að segja allt; ég hefði Vinningstölurnar 22. okt. 1988. Heildarvinningsupphæð: Kr. 4.040.345,- Fimm tölur réttar kr. 1.859.575,- Aðeins einn þátttakandi var með 5 réttar tölur. BÓNUSTALA + 4 tölur réttar kr. 323.262,- skiptast á 6 vinn- ingshafa, kr. 53.877,- á mann. Fjórar tölur réttar kr. 557.550,- skiptast á 126 vinningshafa kr. 4.425,- á mann. Þrjár tölur réttar kr. 1.299.958,- skiptast á 3.194 vinnings- hafa, kr. 407,- á mann. Sölustaðirnir eru opnir frá mánudegi til laugardags °g loka ekki fyrr en 15 mínútum fyrir útdrátt. Leikandi og létt! Upplýsingasími: 685111 TÖLVUSKÓLI GJJ Námskeið í 60 klst. TÖL VUÞJÁLFUN fyrír byrjendur 7.-25. nóv., kl. 8.30-12.30 Skráning og upplýsingar í síma 641222 GÍSLI J. JOHNSEN n Nýbýlavegi 16, Kópavogi Simi 641222 SalmiaKKi INNSK /21.-29. OKJC SK VIl<A OKTÓBER1988 Leikbún- ingar Myndlist Bragi Ásgeirsson í grafíkdeild Galleríis Borgar í Austurstræti hefur verið komið fyr- ir 24 myndum búningahönnuðarins Alexanders Vassilievs. Listamað- urinn er, eins og nafnið ber með sér, rússneskur og lauk námi við Moskvuleikhúsið, sem Stainslavski stofnaði 1898, árið 1980 (the Art Theatre Studio of Moscow — til- raunaleikhúsið í Moskvu) og var þá tekinn inn í sjálft opinbera Moskvuleikhúsið og listaháskólann. Vassiliev kom til Parísar árið 1982 og hefur haft aðsetur þar síðan en starfað víða í Evrópu við hönnun fyrir óperur, leikverk, kvik- myndir og ballett. Þá er hann þekktur sem kennari í fagi sínu og mun hafa stofnað skóla í París, þar sem m.a. nokkrir íslendingar hafa numið. Hann hefur verið staddur hérlendis undanfarið og hannað Icelandic Horse International: Nýr rit- stjóri ráðinn ANDERS Hansen blaðamaður hefúr verið ráðinn ritstjóri að timaritinu Iceland Horse, í stað Guðmundar Birkis Þorkelssonar, sem tekið hefúr við skólastjórn í Fjölbrautaskóla Húsavíkur. 9 Það er Uppruni hf. sem gefur tímaritið út og kemur það nú út bæði á ensku og þýsku. Á ensku nefnist ritið Iceland Horse Inter- national og á þýsku Island Pferd Intemational. Ætlunin er að fjölga nú tölublöðum og til athugunar er að gefa ritið einnig út á dönsku. Tímaritið er nú selt í áskrift til eigenda og áhugamanna um is- lenska hestinn víða um heim, svo sem í Vestur-Evrópu, Bandaríkjun-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.