Morgunblaðið - 25.10.1988, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 25.10.1988, Blaðsíða 14
14 Morgunblaðið/Sigurður Gunnarsson Slátrað var í síðasta sinn á Fag- urhólsmýri í haust. Slátrað á Fag- urhólsmýri í síðasta sinn Hnappavöllum, Öræfiim. SLÁTRUN er lokið í sláturhúsi Kaupfélags Austur-Skaftfellinga á Fagurhólsmýri í síðasta sinn. Ekki verður slátrað þar oftar þar sem héraðsdýralæknirinn leyfir ekki áframhaldandi slátrun nema með töluverðum endurbót- um á húsinu, en hvergi fæst flár- magn til þeirra. Einsýnt er því að Oræfingar verða eftirleiðis að flytja sláturfé sitt á Kirkjubæ- jarklaustur eða Höfii og er það um 100 kílómetra leið. Telja margir Öræfíngar að þetta bjóði þeirri hættu heim að fjárstofn sveitarinnar smitist af einhveijum pestum en vegna langvarandi ein- angrunar er fé í Öræfum eitt hið heilbrigðasta á öllu landinu. Því hafa oft verið flutt héðan líflömb til þeirra sem skera hafa þurft nið- ur vegna riðu. Slátrað hefur verið í Öræfum frá 1928. Var kjötið fyrst saltað á staðnum og síðan skipað út í strand- ferðabát við hafnlausa ströndina. Um allmörg ár var kjötið flutt flug- leiðis milli Fagurhólsmýrar og Reykjavíkur en eftir að hringvegur- inn opnaðist hefur það alltaf verið flutt ferskt með bílum, fyrst til Reykjavíkur en síðan til Hafnar. Sláturhúsið á Fagurhólsmýri var reist 1958 en hefur verið endur- bætt verulega síðan. Hafa Öræfing- ar alltaf séð um slátrun sjálfír og er þetta því nokkur atvinnumissir fyrir fólkið, en til að bæta það upp að nokkru er fyrirhugað að nota húsið til vinnslu einhverskonar sjáv- arfangs á vetrum. - S.G. MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 1988 ISKUGGA HRAFNSINS Kvikmyndir Arnaldur Indriðason í skugga hrafiisins. Sýnd í Laug- arásbíói. íslensk-sænsk. Leikstjóri og höf- undur handrits: Hrafii Gunn- laugsson. Framleiðandi: Christer Abrahamsen, framleidd af Cin- ema Art og FILM með aðstoð Sænsku kvikmyndastofhunar- innar og Kvikmyndasjóðs ís- lands. Kvikmyndataka: Esa Vu- orinen. Kvikmyndatónlist: Hans- Erik Philip. Tónlist i brúðkaupi: Egill Ólafsson. Leikmynd, útlit og búningar: Karl Júlíusson. Hljóð: Gunnar Smári Helgason. Klipping: Edda Kristjánsdóttir. Aðstoðarleikstjóri: Daniel Berg- man. Framkvæmdastjóri: Krist- ján Þórður Hrafiisson. Helstu hlutverk: Reine Bryn- olfsson, Tinna Gunnlaugsdóttir, Egill Ólafsson, Sune Mangs, Kristbjörg Kjeld, Klara íris Vig- fúsdóttir, Helgi Skúlason, Jo- hann Neumann, Helga Bach- mann, Sigurður Siguijónsson, Sveinn M. Eiðsson, Flosi Ólafs- son, Guðmunda Elíasdóttir og Rúrik Haraldsson. Stórskomar persónur teiknaðar í grófum og hrjúfum dráttum, goð- umlíkir menn í eilífri baráttu, höggnir úr gíjóti, gyðjur eða nomir úr fomum og hörðum heimi heiðn- innar. Þannig eru persónumar í nýjustu mynd Hrafns Gunnlaugs- sonar, í skugga hrafnsins. Þær eru svorfnar úr hijóstmgu íslensku landslagi, úr veðmðu berginu, köld- um ísnum, svörtum sandinum, veð- urbarðar, skítugar og grimmar, dæmdar til að lifa og deyja í hefnd- inni. Þær em óijúfanlegur partur af þessu harðbýla landi, þær em harðar og miskunnarlausar eins og landið sem geymir þær. Hrafn er orðinn sérfræðingur í að stilla þeim upp og fílma í stór- brotnu landslaginu svo þær renna í eitt saman við landið. Maður fær það aldrei á tilfínninguna að persón- ur Hrafns komi úr upptökuveri. í skugga hrafnsins er ekki beint framhald af Hrafninn flýgur, og þó. Þar em skírskotanir í fyrri myndina en hvort sem er, em þetta sömu persónumar, sama landslag- ið. En nýja myndin vegur mun þyngra, í henni er miklu stærri saga, stærri örlög, stærri tilfínning- ar, stærri persónur. Hún er meiri mynd. í henni sekkur Hrafn sér dýpra í bmnn fomsagnanna og kemur upp með ástarsögu sem sækir víða fanga; Tristan og Isold, Sturlunga, íslendingasögumar. Það er hægt að rekja minnin eins og djúp spor í snjónum; hér em sterk- ar kvenpersónur sem ráða örlögum manna, hér vísa hrafnar leiðina til íslands, hér em brennur og sým- ker, hér er hestaat (margumtalað) Helgi Skúlason í hlutverki Grims vinnumanns fagnar hvalrekanum. Rene Brynolfsson og Tinna Gunnlaugsdóttir í hlutverkum Trausta og ísoldar. og hefndarskylda, fjölskyldueijur, göróttur drykkur og göfugar ástir svo fátt eitt sé nefnt. Og hér rekast saman heiðnin og kristnin. Sagan gerist árið 1077 þegar enn ríkir sambland af þessu tvennu á íslandi og önnur aðalper- sónan, Trausti (Reine Brynolfsson), kemur heim til Íslands úr guð- fræðinámi en með honum í för er ítalskur helgimyndamálari, Leon- ardo (Johann Neumann), sem ætlar að mála altaristöflu á bæ Trausta, Krossi. Trausti er ekki fyrr stiginn á land en barátta hefst milli fjöl- skyldu Eddu (Helga Bachmann) móður hans og höfðingjans Eiríks (Flosi Ólafsson) um hvalreka sem endar með því að Edda særist og Grímur (Helgi Skúlason), verkstjóri hennar, vegur Eirík. Það gerir hann í óþökk Trausta en þeir fara með dóttur Eiríks, ísold (Tinna Gunn- laugsdóttir), heim að Krossi. Hún brennur í fyrstu af hefndarþorsta sem fljótlega breytist í ást og þegar Hjörleifur biskupssonur (Egill Helgason), sem ísold á að giftast, kemur á bæinn að sækja ísold ver hún Trausta. En þriðji kvenskör- ungurinn, Sigríður (Kristbjörg Kjeld) móðir Hjörleifs, er langt í frá sátt við þessa skipan mála og innan stundar er friðurinn úti. Þannig er inngangurinn í mjög stuttu máli að þessari sögu um ást- ir og hatur, hefndir og fyrirgefn- ingu sannarlega. En hún er líka um breytt viðhorf með tilkomu kristn- innar, sem Trausti er fulltrúi fyrir og hún er saga um konur sem ráða lífi og örlögum í heimi karlaveldis. Edda, Sigriður og ísold eru vold- ugri kvenpersónur en við eigum að venjast í okkar bíómyndum jafnvel okkar listum yfírleitt. Þær hafa fullkomna stjórn á karlmönnunum í kringum sig í krafti valds og eigna, þær eru ýmist slóttugar og fláráðar eins og Sigríður, ráðgef- andi og vitrar eins og Edda eða tilfinningaríkar, ástkærar og vilja- sterkar eins og ísold. Allar eru þær fíma sterkar manngerðir og ráð- andi. Karlmennimir eru að sama skapi heldur aumkunarverðir ef frá eru taldir Trausti og Grímur: Hjör- leifur biskupssonur er undir ofur- valdi móður sinnar, sjálfur biskup- inn er aðeins feitur og heimskuleg- ur fulltrúi hins nýja kirkjuvalds og til fárra hluta nytsamur, helgi- myndamálarinn er hálfgert hirðfífl og virkar aðeins sem kómísk af- þreying (Neumann er mjög fyndinn í hlutverkinu) og aðrar minniháttar persónur eins og Egill (Sigurður Siguijónsson í skemmtilegu gerfí sem minnir helst á munkana í Nafni rósarinnar) eru dáðlausar með öllu. Hrafn hefur alltaf verið séður í því að fínna leikara sem henta vel manngerðunum sem hann vill skapa og í skugga hrafnsins, sem sýnd er í Laugarásbíói, er gott dæmi um það. Fjöldi leikara kemur við sögu sem ómögulegt er að telja upp hér. Kvenskörungar myndarinnar eru ekki leiknir af minni skörungum leiklistarinnar; Kristbjörg Kjeld gefur einstaklega sannfærandi og eftirminnilega mynd af biskups- frúnni og hefur einmitt þann mynd- TÖLVUSKÓLI GJJ Námskeið XEROX VENTURA PUBLISHER 7. - ll.nóv., kl. 13.00-17.00 Skráning og upplýsingar í síma 641222 GÍSLI J. JOHNSEN LLL-lll Nýbýlavegi 16, Kópavogi Sími 641222 Leiðarljós reynslunnar __________BÓK______________ Erlendur Jonsson Ólöf Ketilbjarnar: GULL- REGN. Ljóð. 88 bls. Reykjavik 1988. í formála fyrir Gullregni er þess getið að Ólöf Ketilbjamar sé í heim- inn borin 1901. Hún erþannigjafn- aldra Tómasi Guðmundssyni, tveim árum yngri en Jóhannes úr Kötlum, sjö árum yngri en Steinn Steinarr svo dæmi séu tekin. Aldursins vegna gæti hún verið búin að yrkja og senda frá sér bækur í sextíu til sjötíu ár. En í formálanum er upp- lýst að ljóðin í bók þessari séu »öll frá síðari árum, það elsta frá 1980«. Hér er því á ferð skáldkona sem ekki hefur rasað um ráð fram í útgáfu en getur nú, þegar hún loks birtir ljóð á prenti, miðlað af lífs- reynslu langri. Eins og geta má nærri yrkir Ólöf vfða með rími; einnig með ljóðstöf- um, en með þá fer hún nokkuð frjálslega. Ljóðin í bókinni eru flest örstutt, og nafnlaus nema vlsur tvær sem Olöf yrkir í minning for- eldra sinna. Þetta er íhugunarkveð- skapur, lífsspeki hins aldurhnigna sem horfír yfír farinn veg og fellir í ljóðlínur þau sannindi sem lífið kennir á langri ævi: Hvert aupablik verður að ári Hvert andartak verður að und Hver taug verður að tári Og tilveran lokuð sund Svona yrkir Ólöf um lífíð og tím- ann. í raun tengist kveðskapur hennar hvorki kynslóð hennar sjálfrar sem orti sín bestu ljóð á fjórða áratugnum né þvl sem verið er að yrkja nú á dögum heldur fer hún sínar eigin leiðir, óháð tíðar-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.