Morgunblaðið - 22.02.1989, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 22.02.1989, Blaðsíða 1
48 SIÐURB 44. tbl. 77. árg. MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 1989 Prentsmiðja Morgunblaðsins Tékkóslóvakía: Evrópuþingið gegn hvalveiðum: AFP Eitt þúsundasta mark Krisíjáns Kristján Arason gerði sitt 1000. mark með íslenska landsliðinu, er það sigraði það svissneska 19:18 í milliriðli B-keppninnar í handknattleik í gærkvöldi. B-keppnin í Frakklandi/bls. 42 og 43. Reuter Mótmæli í Varsjá Ungir andkommúnistar efndu í gær til mót- mæla í Varsjá í Póll- andi og kröfðust fijálsra kosninga en voru næstum umsvifa- laust fjarlægðir af óeirðalögreglunni. Þá vakti það athygli þegar Jerzy Urban, talsmaður stjómarinnar, lýsti yfir, að verkföllin að undan- fömu væru flest runnin undan riQum flokks- bundinna kommúnista og félaga í opinberu verkalýðsfélögunum. Vildu þeir spilla þannig fyrir viðræðum stjóm- valda við Samstöðu, hina óháðu verkalýðs- hreyfingu. Níu mán- aða dómur yfir Havel Refsiaðgerðir ekki á döfinni Evrópuþingið í Strasborg sam- þykkti í síðustu viku ályktun, þar sem hvalveiðum er mótmælt og framkvæmdastjóm EB er hvött til þess að leggja fyrir ráðherranefnd bandalagsins tillögu um refsiað- gerðir gegn þeim þjóðum, sem stunda hvalveiðar. Vilja þingmenn- imir að settar verði hömlur á inn- flutning á fiski frá hvalveiðiþjóðum og hugsanlega aðrar vömr einnig. Þá verði þessar þjóðir sviptar veiði- heimildum innan lögsögu EB-ríkja og beitt verði háum refsitollum gegn þeim. I skýrslu sem fylgdi ályktuninni er meðal annars vikið að hvalveið- um íslendinga, sem hafí allt frá því að Alþjóðahvalveiðiráðið sam- þykkti bann við hvalveiðum leitað leiða til að fara fram hjá banninu og halda veiðum áfram. í þessu skyni hafí verið stofnað til svokall- aðra vísindaveiða frá íslandi en afurðimar verið seldar innanlands og til Japans. Rifjað er upp, að íslendingar hafí reynt að koma hvalkjöti til Brussel. Prá Kristófer Má Kristinssyni, íW*ttaritara MQrgunbladsins. FRAMKVÆMDASTJÓRN Evrópubandalagsins (EB) hefur ekki uppi neinar ráðagcrðir um að grfpa til refsiaðgerða i samræmi við ályktun Evrópuþingsins gegn hvaJveiðum. Heimiidarmenn i höfuðstöðvum EB segja hins vegar að ljóst sé að bandalagið sé andvfgt hvalveiðum og síðan 1982 hafí verið í gildi bann við inn- flutningi á hvalaafurðum til EB-landa. Japans í gegnum Hamborgarhöfn 1987 og þá hafí verið gripið til þess ráðs, að kalla kjötið frystar sjávarafurðir á tollpappimm. Rúmenía: „Dagleg martröð“ Brussel. Reuter. Leikritahöfúndurinn Eugene Ionescu, sem er af rúmensku bergi brotinn, sagði i gær, að lifið f Rúmenfu væri „dagleg martröð" örbirgðar og ótta við öryggialög- regluna. Kom þetta fram i yfirlýs- ingu frá honum á mannréttinda- ráðstefnu i Brussel f Belgfu. „Rúmenar lifa f stöðugum ótta við hinn langa skugga leynilögreglunn- ar. Þeir óttast nágranna sína, félaga sína, jafnvel foreldra sína,“ sagði í yfírlýsingu Ionescus, sem er 76 ára að aldri og hefur búið í París frá 1938. Sagði hann, að í tíð Nicolaes Ceausescus forseta væru Rúmenar orðnir öreigar í orðsins fyllstu merk- ingu og ungbamadauðinn svo yfir- gengilegur, að fæðingar eru ekki skráðar fyrr en bamið hefur lifað í þrjár eða fjórar vikur. Aðrir, sem til máls tóku, drógu upp dökka mynd af Rúmenfu og eink- um áætluninni um útrýmingu mörg þúsund þorpa og bæja. „Tök kommúnistafíokksins em nú jafnvel fastari en á stalínstímanum," sagði Mihnea Berendei, landflótta Rúmeni og fyrrum varaforseti óopin- berra mannréttindasamtaka. Kvaðst hann telja, að fímmtándi hver Rúm- eni væri í öryggislögreglunni. íransstjórn einangrast vegna ákveðinna viðbragða EB-rílga Nikósía, London, Waahinffton. Reuter. STJÓRNIN í fran kvaddi í gær heim sendimenn sina í Evrópu- bandalagslöndunum og var það svar hennar við heimkvaðningu sendiherra EB í Teheran. Dauða- hótanir Khomeinis erkiklerks Japan: > Oheppileg yfirlýsing Tókýó. Reuter. NÁGRANNAR Japana hafa brugðist ókvæða við þeirri yfirlýs- ingu Noborus Takeshitas forsætis- ráðherra, að framtfðin ein muni ákveða hver hafí verið hlutur Jap- ana f sfðasta strfð. Takeshita sagði í síðustu viku, að það biði sagnfræðinga framtíðarinn- ar að skera úr um hvort Japanir hefðu sýnt af sér yfirgang í heims- styijöldinni og hefur þessi yfírlýsing vakið reiði f Kfna og Suður-Kóreu, og þykir óheppileg nú þegar fulltrúar margra þjóða, sem Japanir hemámu, eru að koma saman f Tókýó vegna útfarar Hirohitos keisara. gegn breska rithöfundinum Salmans Rushdie hafa nú valdið því, að íranir eru að einangrast á alþjóðavettvangi og vekur eft- irtekt hvað hljóðnað hefur yfir þessu máli í öðrum fslömskum ríkjum. George Bush Banda- ríkjaforseti kvaðst f gær styðja afstöðu EB-rfkjanna heilshugar og sagði, að Íransstjórn yrði gerð persónulega ábyrg fyrir hugsan- legum árásum á Bandarfkjamenn eða bandarískar stofnanir. Hans Grunnet, sendiherra Dana, varð fyrstur til þess f gær að yfír- gefa Teheran en aðrir sendiherrar EB-ríkjanna voru önnum kafnir við að undirbúa brottförina. Bretar ætla að kalla heim alla fimm sendi- menn sína í Iran og í gær sagði Sir Geoffrey Howe utanríkisráð- herra, að yfirmaður frönsku sendi- ráðsskrifstofunnar í London hefði verið rekinn úr landi. Margaret Thatcher forsætisráðherra, sem verið hefur á fundi með Helmut Kohl kanslara Vestur-Þýskalands, sagði á fréttamannafundi í Frank- furt, að tjáningarfrelsið væri einn af homsteinum frjáls samfélags og væri ákvörðun utanríkisráðherr- anna til marks um samstöðu Evr- ópuríkjanna. Rithöfundurinn Salman Rushdie, sem nú fer huldu höfði í gæslu bresku lögreglunnar, hefur sagst harma það hugarangur, sem bók hans virðist hafa valdið sumum múhameðstrúarmönnum, en Khom- eini erkiklerkur í íran vill ekki taka þau orð sem afsökunarbeiðni. Hvet- ur hann enn til þess að Rushdie verði drepinn. Iranskir ráðamenn fóra í gær hatursfullum orðum um ríkisstjómir á Vesturlöndum en í öðram íslömskum ríkjum er þögnin um þetta mál orðin áberandi. Er það haft eftir ónefndum embættis- mönnum þar, að ofstæki írönsku klerkanna hafí gengið hættulega langt. Vestur-Þjóðveijar, sem vildu ganga lengst í hörðum viðbrögðum við dauðahótun Khomeinis, hafa ákveðið að hætta menningarlegum samskiptum við írani og rithöfund- ar, útgefendur og mannréttinda- frömuðir víða um lönd hafa stofnað „alþjóðlega varnamefnd" fyrir Salman Rushdie. Bush Bandaríkjaforseti sagði í gær, áður en hann hélt í vikuferð til Japans, Kína og Suður-Kóreu, að hann styddi aðgerðir EB gegn íran og kvaðst mundu gera klerka- stjómina ábyrga yrði ráðist gegn bandarískum hagsmunum. Prag. Reuter. TÉKKNESKA leikskáldið Vaclav Havel var í gær dæmt i niu mán- aða fangelsi fyrir undirróður og fyrir að hafa hindrað opinberan starfsmann við skyldustörf. Sjö aðrir andófsmenn biða nú dóms en talið er, að mál verði höfðað gegn miklu fleiri. Andófsmennimir voru handteknir þegar þeir komu saman til að minn- ast námsmannsins Jans Palachs, sem mótmælti innrásinni t Tékkóslóvakíu 1968 með því að svipta sig lífí. Var dæmt sérstaklega í máli Havels en í réttarhöldunum í gær neitaði hann að hafa hvatt til „andfélagslegs at- hæfís" og sagði, að þessi orð væra merkingarlaus í munni tékkneskra stjómvalda vegna ofnotkunar. Minnti hann á, að í sinni tíð hefðu þrír for- menn kommúnistaflokksins verið fundnir sekir um það sama. Við réttarhöldin yfír hinum and- ófsmönnunum var einn þeirra leiddur fyrir dómarann í hlekkjum og var fyöldi vopnaðra lögregluþjóna í saln- um. 15 óbreytt.um borguram var leyft að vera viðstaddir og sagði dómarinn áður en málflutningur hófst, að leyfði einhver þeirra sér að brosa yrði hon- um vísað út. Kvöldblaðið Vecerni Praha sagði í gær, að alls yrðu 53 menn sóttir til saka vegna mótmæl- anna í janúar en talið er, að hér sé um að ræða umfangsmestu pólitísku ofsóknimar f Austur-Evrópu frá und- irritun Helsinkisáttmálans. Áðförin að breska rithöfiindinum Salman Rushdie:

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.