Morgunblaðið - 22.02.1989, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 22.02.1989, Blaðsíða 44
_ SJÓVÁ-ALMENNAR Nýtt félag með sterkar rælur JMtogttuftlJifrttÞ MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRUAR 1989 VERÐ I LAUSASOLU 70 KR. Framkvæmdasjóður aldraðra: 2500 kr. nefekatt- -ur endurvakinn HE í frumvarpi að endurskoðuð- um lögum um máleftii aldraðra er gert ráð fyrir að endurvakinn verði sérstakur nefskattur til að Qármagna Framkvæmdasjóð aldraðra. Þá er gert ráð fyrir því f frumvarpinu, að ellilffeyris- þegar verði ekki lengur undan- þegnir gjaldskyldu á lyúkrunar- heimilum hafi þeir aðrar tekjur en almannatryggingar. Guðmundur Bjamason heilbrigð- isráðherra kynnti frumvarp þetta á ríkisstjómarfundi í gær. Guðmund- r sagði, að í frumvarpinu væru ættir, sem að hluta til tengdust breyttri verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Þar á meðal væri hlutverk Framkvæmdasjóðs aldr- aðra endurmetið og víkkað, og hon- um m.a. gert kleift að taka meiri þátt í félagslegri uppbyggingu, og að koma á fót heimaþjónustu og dagvistunarþjónustu fýrir aldraða heima í héraði. Er í frumvarpinu gert ráð fyrir að sjóðurinn fái tekj- ur með sérstökum nefskatti. Slíkur skattur var innheimtur áður en staðgreiðslukerfi skatta var tekið upp, en þá felldur niður. í frumvarpinu er gert ráð fyrir þessi skattur verði 2500 krónur á gjald- anda. Þeir sem eru eldri en 70 ára og yngri en 16 ára verða þó undan- þegnir skattinum, og einnig þeir sem eru undir skattleysismörkum. Guðmundur sagði að skatturinn ætti að skila um 230 milljónum. Fara ekki út fyr- 4r dyr í ófærðinni FJOLDI eldri borgara hefur ekkl farið út fyrir dyr f margar vik- ur vegna ófærðarinnar að undanförnu. Margir hafa hringt til elli- máladeildar Félagsmálastofnunar og óskað eftir aðstoð við inn- kaup og siyómokstur. Vegna anna lyá véladeild borgarinnar og gatnamálastjóra hefiir ekki verið hægt að verða við óskum um sqjómokstur. hringt í og beðið um aðstoð til dæmis við innkaup og snjómokst- ur. Hann sagði að fjöldi aldraðra byggi í sambýlishúsum og þyrfti að standa sig í sambandi við þrif á sameign, snjómokstur frá sorp- geymslum og þess háttar og þar gætu skátamir einnig komið til hjálpar. Þessi hugmynd hefur enn ekki verið rædd við skátana'. Þórir Guðbergsson yfirmaður ellimáladeildar Félagsmálastofn- unar sagði að starfsfólkið hefði sagt gömlu fólki sem leitað hefur til þeirra að halda sig innan dyra. Síðan hefur verið reynt að fá ein- hveija aðstoð fýrir það. „Þeir sem komnir eru á áttræð- -^s- og níræðisaldur hætta í raun og veru lífí og limum við að fara út. Ef þeir detta er mikil hætta á beinbroti og það getur haft alvar- legar afleiðingar fyrir fólk á þess- um aldri. Margt eldra fólk á til dæmis erfítt með að komast upp í strætisvagn í góðri færð. En þegar hálka er eða ófærð verður það hrætt. Það fær yfírleitt enga hjálp við að komast upp í vagnana og verður þvf að treysta algerlega á sig sjálft." Þórir sagði að sér hefði dottið í hug að leita til unglingadeilda skátafélaganna í hinum ýmsu hverfum til að koma upp sveitum til hjálpar öldruðum þegar gerir ."angvarandi ófærð eins og í vetur. Hægt yrði að gefa upp ákveðið símanúmer sem gamla fólkið gæti Morgunblaöið/RAX Landið alhvítt Landið er alhvítt yfir að líta, eins og þessi mynd sem tekin var yfir Snæfellsnesi sýnir glögglega. Kauptúnið er GrundarQörður. Siglufjörður: Sex snjóflóð féllu utan við bæinn DREGIÐ hefur úr siyóflóðahætt- unni á Siglufirði þar sem ekkert spjóaði þar i gærdag. Sex snjó- flóð féllu á Strandaveginn norð- an við bæinn í fyrrinótt. Vegur- inn var síðan ruddur og er opinn nú. Þráinn Sigurðsson formaður Al- mannavarnanefndar Siglufjarðar segir að af þessum sex snjóflóðum hafí tvö verið um tvær mannhæðir á þykkt og um 30 metra breið. Eitt var um 50-60 metra breitt og tveir metrar á þykkt. Það tók Vega- gerðina níu tíma að ryðjast í gegn- um flóðin. Þótt dregið hafi úr snjóflóða- hættunni er fólk á Siglufírði með vara á sér. Hinsvegar var ekki vakt á vegum Almannavarna í nótt eins og fyrrinótt. 72 lóðum úthlutað í Grafarvogi BORGARRÁÐ hefur samþykkt úthlutun á 72 lóðum undir íbúð- arhúsnæði i Grafarvogi. Þar af eru 42 lóðir fyrir einbýlishús og 30 fyrir parhús. Að sögn Davíðs Oddssonar borg- arstjóra dró nokkuð úr umsóknum eftir lóðum undir íbúðarhúsnæði í október og fram í janúar þar til nú að þeim fjölgar skyndilega þrátt fyrir allt tal um kreppu. Sagði hann að ennþá hefði verið hægt að anna eftirspum. Björgunarsveitirnar: 25 millj. króna skuld vegna tolla sem átti að fella niður HJÁ ríkisféhirði liggja víxlar sem björgunarsveitirnar afhentu tollstjórum á síðasta ári sem tryggingu vegna innfiutnings- gjalda af tækjakaupum. Ekki átti að innheimta víxlana þar sem fyrirhugað var að fella gjöldin niður. Það hefiir ekki verið gert og hefiir ríkisféhirðir sent sveit- unum rukkun. Víxlarnir eru allir með gjalddaga 15. janúar síðast- liðinn og er heildarupphæðin 25 milljónir kr. Að sögn Guðrúnar Ástu Sigurð- ardóttur deildarstjóra í fjármála- Óskað eftir að sorpmóttaka verði í Hellnahrauni: Fallið frá böggunarstöð í Arbæ BORGARRÁÐ hefur samþykkt fyrirtæki þurfi ekki að fara um tillögu Davíðs Oddssonar borg- arstjóra um að fela fulltrúum borgarínnar í stjórn Sorpeyð- ingarstöðvar á höfiiðborgar- svæðinu, að óska eftir þvf að móttaka á almennu sorpi verði i Hellnahrauni fyrír sunnan Hafnarfíörð. Jafiiframt var samþykkt að fela sfjóminni að kanna hvort rétt er að hafa móttöku fyrir pappfr og timbur f borgarlandinu svo að atvinnu- langan veg með það sem til fellur. „Það hefur verið fallið frá því að reisa böggunarstöðina ofan við Árbæjarhverfi," sagði Davíð. „Við höfum rætt óformlega við ráða- menn í Hafnarfírði og vitum ekki annað en að þeir séu þessu með- mæltir og að þeir muni skjóta skjólshúsi yfír þessa starfsemi. Þetta er staður, sem er miklu fjær byggðinni." Sagði Davíð að enn hefði ekki verið tekin ákvörðun um urðunar- stað fyrir sorpbaggana. „Stað- reyndin er sú að staðsetning á sorpböggunarstöð gagnvart urð- unarstað skiptir ekki öllu máli. Þá er búið að bagga sorpið og hægt að flytja það með stórum bílum. Þannig að aðalkostnaður- inn er akstur til böggunarstöðvar- innar sjálfrar," sagði Davíð. „Það má því segja að rekstrarkostnað- urinn hækki um 30 til 40 milljón- ir á ári við að flytja stöðina til Hafnarfjarðar. En ég tel ekki rétt miðað við þær móttökur, sem stöðin hefur fengið, að halda þessu til streitu. Það er ljóst að ekki mun nást sátt við íbúa og aðra hagsmunaaðila á svæðinu í þessu máli. Þó við teljum að hluti óttans sé ekki á rökum reistur þá eru tilfinningamar svo ríkar í þessu máli að við teljum okkur ekki geta haldið við fyrri staðsetn- ing^u." ráðuneytinu dugar sú fjárveiting sem ætluð var til endurgreiðslu á þessum víxlum engan veginn. Hún segir að verið sé að skoða málið í ráðuneytinu og víxlamir verði ekki innheimtir á meðan. Fjármálaráðuneytið hefur nýlega tilkynnt björgunarsveitunum að þær verði að greiða aðflutnings- gjöld af tækjum sínum að fullu við innflutning og afturkallað heimild þeirra til að fá tækin án innflutn- ingsgjalda gegn útgáfu trygginga- víxils eins og var á síðasta ári. Samtök björgunarsveitanna hafa óskað eftir leiðréttingu á þessum málum við ráðuneytið og bíða eftir Forráðamenn björgunarsveit- anna hafa miklar áhyggjur af þess- um málum. Þeir sögðust í gær von- ast til að leiðrétting fengist sem fyrst. Sjá nánar bls. 16.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.