Morgunblaðið - 22.02.1989, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 22.02.1989, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 1989 atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna ísafjörður Blaðbera vantar á innanverðan Seljalands- veg, Miðtún, Sætún og Stakkanes. Upplýsingar hjá umboðsmanni í síma 94-3884. Eyrarbakki Umboðsmann vantar til að annast dreifingu og innheimtu á Mbl. Upplýsingar í síma 91-83033. Röntgenlæknir Sjúkrahús Keflavíkurlæknishéraðs auglýsir hér með 30% stöðu röntgenlæknis lausa til umsóknar. Umsóknarfrestur er 15. mars og skulu umsóknir berast undirrituðum fyrir þann tíma. Allar upplýsingar veita yfirlæknar eða undir- ritaður í síma 92-14000. Framkvæmdastjóri. Sigluberg hf. Yfirvélavörð vatnar á loðnubát sem gerður er út frá Grindavík og stundar rækjuveiði milli loðnuúthalda. Upplýsingar í síma 92-68107 eða 92-68699. Stýrimaður Vanur stýrimaður óskast til afleysinga á ný- legan frystitogara. Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. merktar: „Frost - 8108“. raðauglýsingar raðauglýsingar raðauglýsingar húsnæði óskast Atvinnuhúsnæði óskast Húsnæði óskast til leigu, helst við Laugaveg- inn eða í miðbæ, fyrir veitingarekstur. Upplýsingar í síma 666899 eftir kl. 17.00. tilboð — útboð Utboð SVR og Póstur og sími Póst- og símamálastofnunin og Borgarsjóður vegna Strætisvagna Reykjavíkur óska eftir tilboði í frágang á skiptistöð og pósthúsi í Þönglabakka 4 í Reykjavik. - Stærð hússins: 7540 rm. - Byggingarstig nú: Húsið er tilbúið undir tréverk og frágengið að utan. - Skilafrestur verks: 30. júní og 20. ágúst 1989. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu okkar gegn 10.000 kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á Verkfræðistofu Stefáns Ólafssonar hf., Borgartúni 20, Reykjavík fimmtudaginn 9. mars 1989 kl. 11:00. VERKFRÆOISTOFA STEFÁNS Olafssonar hf. BORGARTÚNI 20 105 REYKJAVlK [ húsnæði f boði Skrifstofuherbergi Til leigu lítið skrifstofuherbergi á 2. hæð í skrifstofu- og verslunarhúsi okkar á Skúla- götu 63, Reykjavík. G.J. Fossberg, vélaverslun hf., sími 18560. Verslunarhúsnæði - Laugavegur Höfum til leigu mjög gott verslunarhúsnæði neðarlega við Laugaveg. Laust 1. apríl 1989. Upplýsingar einungis á skrifstofu. Viðskiptaþjónustan, Skeifunni 17, Reykjavík, sími 689299. | fundir — mannfagnaðir Aðalfundur UMF Fjölnis verður haldinn þriðjudaginn 28. febrúar kl. 20.30 í Foldaskóla (nýju félagsmið- stöðinni). 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Lög félagsins. 3. Önnur mál. Stjórnin. tiikynningar Styrkir til rannsókna í kvennafræðum Á fjárlögum fyrir yfirstandandi ár var einnar milljón eitt hundrað og fjörutíu þúsund króna - kr. 1.140.000,- fjárveiting færð til Háskóla íslands til rannsókna í kvennafræðum. Áhugahópur um íslenskar kvennarannsóknir auglýsir hér með í umboði háskólans eftir umsóknum um styrki til rannsókna í kvenna- fræðum en til kvennafræða teljast allar þær rannsóknir sem á einhvern hátt varða kon- ur, eru unnar á forsendum kvenna og frá þeirra sjónarhóli. Veittir verða launastyrkir fyrir rannsóknir í minnst þrjá mánuði og skulu þeir miðast við byrjunarlaun lektors. Þó getur nefndin veitt styrki til skemmri tíma ef sérstaklega stend- ur á. Ekki verða veittir styrkir til sama verk- efnis oftar en tvisvar sinnum. Umsækjendur skulu hafa lokið háskólaprófi sem svarar til meistaraprófs eða kandidats- prófs og/eða sýnt fram á hæfni sína til rann- sóknastarfa með öðru móti. í umsókn skal greina ítarlega frá þeim rann- sóknum sem sótt er um styrk til og fjáröflun til þeirra frá öðrum. Við lok styrktímabils skal styrkþegi senda úthlutunarnefnd fram- vinduskýrslu. Áhugahópurinn vill vekja athygli á því að hægt er fyrir fólk á ólíkum fræðasviðum að samein- ast um rannsóknaverkefni og vill hvetja til sam- starfs sem gæti orðið upphaf að röð rita um líf og stöðu íslenskra kvenna frá sjónarhóli mismunandi fræðigreina. Umsóknum skal skila á sérstökum eyðublöðum sem fást á aðalskrifstofu Háskóla Islands. Umsóknarfrestur er til 15. apríl nk. Umsóknir sendist til, Áhugahóps um íslenskar kvennarannsóknir, b.t. Guðrúnar Ólafsdóttur, dósents, Jarðfræðahús, Háskóla íslands, 101 Reykjavík. Styrkir til handritarann- sókna íKaupmannahöfn í framhaldi af lyktum handritamálsins hafa dönsk stjórnvöld ákveðið að veita íslenskum fræðimanni styrk til handritarannsókna við stofnun Árna Magnússonar (Det arna- magnæanske Institut) í Kaupmannahöfn. Styrkurinn veitist til allt að sex mánaða dval- ar og nemur nú um 15 þúsund dönskum krónum á mánuði, auk ferðakostnaðar. Umsóknarfrestur er til 15. mars nk. Nánari upplýsingar um styrkinn og tilhögun umsókna fást í menntamálaráðuneytinu, Stofnun Árna Magnússonar á íslandi og skrifstofu heimspekideildar Háskóla íslands. Menntamálaráðuneytið, 16. febrúar 1989. kennsla MENNTASKÓLINN í KÓPAVOGI Ferðalandafræði Kvöldnámskeið um ferðamannastaði og ferðamannaleiðir á íslandi og upplýsinga- miðlun til ferðamanna verður haldið 1.-20. mars nk. Innritun lýkur 24. febrúar. Upplýsingar í símum 74309 og 43861. Ungir sjálfstæðismenn af Norðurlandi vestra Fundur verður haldinn ÍValhöll miövikudaglnn 22. febrúar. Fundurinn hefst kl. 20.30. Gestlr fundarins veröa þeir Pálmi Jónsson, alþingis- maður, Vilhjálmur Egilsson, varaþingmaður og Porgrímur Daníels- son, formaður kjördæmisráös. Munu þeir flytja fróttir af vettvangi stjórnmálanna og svara fyrirspurnum. Æsir, Norðuriandi vestra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.