Morgunblaðið - 15.08.1989, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. ÁGÚST 1989
Ættmgjum Wallenbergs
boðið til Sovétríkjanna
Stokkhólmur. Reuter.
SOVÉSK stjórnvöld hafa boðið ættingjum sænska stjórnarerind-
rekans Raouls Wallenbergs til Moskvu. Virðist ýmislegt benda til
að Sovétmenn hyggist nú loks greina frá örlögum Svíans sem
bjargaði tugum þúsunda gyðinga undan nasistum í síðari heims-
styijöldinni. Boðið barsttil Raoul Wallenberg-samtakanna í Stokk-
hólmi frá sovéska sendiherranum, Borís Pankín.
Formaður samtakanna, Per
Anger, sem starfaði með Wallen-
berg í sænska sendiráðinu í Búda-
pest þegar sá síðamefndi hvarf
þaðan sporlaust, sagðist myndu
fara til Moskvu í október næst-
komandi í fylgd Ninu Lagergren,
hálfsystur Wallenbergs, hálfbróð-
ur hans, Guy von Dardel og ritara
Wallenberg-samtakanna, Sonju
Sonnenfeld.
Sonnenfeld sagði að þetta væri
í fyrsta sinn sem einhveijum sem
tengdist Wallenberg væri boðið til
Sovétríkjanna. „ísinn er brotinn.
Það er ljóst að þeir vilja ræða
málin og okkur var tjáð að hátt-
settir menn myndu sitja fundina,“
sagði Sonnenfeld.
Wallenberg sást síðast opin-
berlega 17. janúar 1945. Þá var
honum ekið á fund yfirmanns sov-
éska herliðsins sem hemam Búda-
pest er þýski herinn hörfaði. Árið
1957 skýrði þáverandi aðstoðarut-
anríkisráðherra Sovétríkjanna,
Andrej Gromyko, sænskum stjórn-
völdúm frá því að Wallenberg hefði
látist af völdum hjartaáfalls í Lú-
bjanka-fangelsinu í Moskvu tíu
áram áður.
Sonnenfeld sagði að aukinn
þrýstingur væri á meðal almenn-
ings í Sovétríkjunum um að skýrt
yrði frá afdrifum Wallenbergs.
„Við teljum að hann sé enn á lífi
og að þessi ferð muni leiða eitt-
hvað í ljós,“ sagði hún.
Reuter
NA TO-flugmaður flýgur MiG-29
Bob Wade (t.v.), höfúðsmaður í Konunglega kanadíska flughern-
um, gantast hér við Valeríj Menítskíj, yfirtilraunaflugmann MiG-
flugvélaverksmiðjanna, eftir að hafa orðið fyrstur Amerikubúa
til þess að fljúga sovéskri orrustuþotu. Að baki gnævir MiG-29
þotan, sem hann flaug, en Menítskíj sagði honum til um handtökin.
Er þetta þín fjölskylda?
Guðrún og Björn eiga tvö börn, Finn 4 ára og Sigrúnu 9 ára. Þau
höfðu 180 þúsund krónur í mánaðarlaun í síðasta mánuði. Þau
vinna bæði mikið og sáu auðvitað aldrei þessa upphæð því hið opin-
bera hefur þegar tekið úr launaumslaginu um 32 þúsund krónur í
tekjuskatta, ef þeim hjónum hefur tekist að fullnýta persónuafsláttinn.
Síðar fá þau þó endurgreitt í formi barnabóta sem samsvarar um 5
þúsund krónum á mánuði og greiða því I raun í beina skatta tæpar
27 þúsund krónur á mánuði.
Guðrún og Bjöm greiða að meðaltali um 3 þúsund krónur í fast-
eignagjöld og 4 þúsund krónur í eignarskatta á mánuöi.
Nánast allar tekjur fjölskyldunnar fara í að greiða af lánum, kaupa
mat, fatnað, húsbúnað, bensín á bílinn, greiða rafmagn og hita og all-
an annan kostnað sem fylgir því að eiga fjölskyldu á íslandi. Um leið
og þau versla heldur hið opinbera áfram að kroppa af þeim fé í formi
matarskatts og annarra söluskatta, tolla og gjalda á vörur og þjón-
ustu.
Upp úr miðjum mánuðinum, þegar pyngjan er orðin tóm, hefur ríkið
þannig dregið að sér um 36 þúsund krónur af þessum útgjöldum
fjölskyldunnar.*
Hið opinbera hirðir því af þeim 70 þúsund krónur í beina og 6-
beina skatta á hverjum mánuði. Samkvæmt opinberum útreikning-
um nægja laun fjölskyldunnar ekki til þess að hún nái endum saman.
Þó eru fjölmargar fjölskyldur með mun lægri mánaðarlaun en 180
þúsund krónur. Hefurðu hugleitt hvernig skattpíningin snýr að
þér og þinni fjölskytdu?
Ungt sjálfstæðisfólk er sannfært um að fjölskyldan myndi ráðstafa
70 þúsund krónum af meiri skynsemi og sanngirni, heldur en þeir fé-
lagar Steingrímur, Jón Hannibalsson og Ó. Grímsson.
Hvorum treystirðu betur - þér - eða þeim?
Vinstri stjómin hælir sér af litlum skattálögum á fjölskyldur og ein-
staklinga í landinu og hefur því aukið álögur á hana um 8 þúsund
krónur í hverjum mánuði og er enn að.
Við mótmælum þessum freklegu árásum og krefjumst þess
að það sé yfirlýst skilyrði forystumanna Sjálfstæðisflokksins að
vinstri skattar verði afnumdir sama dag og Sjálfstæðisflokkurinn
myndar næstu ríkisstjóm.
Samband ungra sjálfstæðismanna
•Samkvæml heimildum Hagstofu Islands eru útgjöld „vísitölufjölskyldunnar" (3,48 ein-
staklingar) á hverjum mánuöi kr. 163.700 (verölag aprll 1989). Hagstofan meturóbeina
skatta sem 35.850 kr. af þessari upphæö á mánuöi. Stuöst er viö þessar tölur hér að
ofan þótt dæmi Hagstofunnar sé af minni fjölskyldu.
Samkvaemt þessum útreikningum Hagstofunnar um útgjaldaþörf fjölskyldunnar
nægja ofangreindar tekjur hins vegar ekki til þess að brauðfæða fjölskylduna.
's\S* *'****
Mestaatvinnui,
teys/ í °
1 ^ririitiór
fjárt
**s££s?sF
rr a
Peking:
Japanir ugg-
andi um líf sitt
Peking. Reuter.
JAPÖNSKUM kaupsýslumönn-
um í Peking hefúr verið ráðlagt
að senda Qölskyldur sínar heim
og fara að öllu með gát í kjölfar
líflátshótana hóps kínverskra
andófsmanna, en þeir hótuðu að
myrða fyrsta fórnarlamb sitt í
dag.
Andófshópurinn sakar japanska
kaupsýslumenn um „efnahagslega
innrás í Kína“ og að vera í vitorði
með kínverskum ráðamönnum. Ta-
lið er að þeir vilji með líflátshótun-
unum skaða efnahagslíf í Kína og
koma þar með höggi á þá sem stóðu
fyrir blóðbaðinu á Torgi hins him-
neska friðar í júní er mótmæli lýð-
ræðissinnaðra námsmanna vora
kveðin niður.
í bréfum sem bárast á skrifstofur
Japanska flugfélagsins í Peking í
júlí hóta andófsmennirnir að myrða
tvo Japana í hvetjum mánuði frá
15. ágúst að telja verði ekki orðið
að kröfu þeirra um minnkandi ítök
Japana í kínversku efnahagslífi.
Taro Nakayama, hinn nýi ut-
anríkisráðherra Japans, varaði í
síðustu viku við einangranarstefnu
gagnvart Kína og sagði jafnframt
að stjórnin myndi draga til baka
aðvaranir um ferðir til landsins inn-
an tíðar.
Norður-írland:
Austur-Þýskaland:
Flóttamenn
streymatil
Vestur-
Þýskalands
Lundúnum. Reuter.
SEX söngvarar og tæknimenn
úr einni af helstu óperum Aust-
ur-Þýskalands hafa verið í fel-
um í Lundúnum eftir tveggja
vikna sýningarferð til borgar-
innar, sem lauk á laugardag.
Þeir hyggjast fara til Vestur-
Þýskalands bráðlega. Virtur rit-
stjóri austur-þýsks íþróttatíma-
rits flúði einnig til Vestur-
Þýskalands um helgina eftir að
hafa fylgst með fijálsíþrótta-
móti i Málmhaugum. Ritstjór-
inn kvaddi lesendur sína í for-
ystugrein sem birtist í blaði
hans, Der Leichtathlet.
Japan:
Kaifii átti ekki
barn utan
hjónabands
Tókíó. Reuter.
JAPANSKA dagblaðið Nagoya
Times dróg í gær til baka frétt
sína, um að Toshiki Kaifu, for-
sætisráðherra Japans, ætti barn
utan hjónabands. Blaðið hefur
beðið forsætisráðherrann af-
sökunar, að sögn japanska ut-
anríkisráðuneytisins.
Gorbatsjov
getur ekki for-
dæmt innrás-
ina í Tékkósló-
vakíu
Róm. Reutcr.
Míkhaíl Gorbatsjov Sovétforseti
getur ekki fordæmt opinskátt
innrás Varsjárbandalagsríkja í
Tékkóslóvakíu árið 1968 þar
sem hann getur ekki hætt á
versnandi samskipti við hina
afturhaldssinnuðu ráðamenn í
Tékkóslóvakiu, að sögn sovéska
stjómmálafræðingsins Jev-
geníjs Ambarsúmovs. Hann
sagði þó Sovétforsetann algjör-
legan andvígan þeim aðgerðum
sem gripið var til. Samkvæint
hinni opinberu söguskoðun í
Sovétríkjunum var nauðsynlegt
að senda skriðdreka til Tékkó-
slóvakíu 21. ágúst árið 1968 til
að koma í veg fyrir að „and-
kommúnísk öfl“ kæmust til
valda í landinu.
20 ár frá komu
breska herliðsins
^ St. Andrews. Frá Guðmundi lleiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgrinblaðsins.
Á mánudag voru tuttugu ár frá því breski herinn kom til Norður-
írlands. Óeirðir voru I Belfast í gær og um helgina. Lögreglan
skaut plastkúlum að unglingum sem tóku bíla traustataki og
kveiktu í þeim. Ekki er vitað um meiðsli.
Sinn Fein, pólitískur armur írska
lýðveldishersins (IRA), minntist
þess á fundi á sunnudag að 18 ár
eru liðin síðan yfirvöld á Norður-
írlandi gripu til þess ráðs að setja
grunaða hryðjuverkamenn í fang-
elsi án dóms og laga. Fundur Sinn
Fein gekk vandræðalaust fyrir sig.
1969 var her sendur til Norður-
írlands eftir að mikil átök höfðu
orðið milli mótmælenda og kaþólsk-
ra þá um sumarið. Þegar herinn
kom tóku kaþólskir honum mjög
vel vegna þess að hann frelsaði þá
undan oki mótmælenda sem era í
meirihluta. En ári síðar greip IRA
til hryðjuverka gegn breska hern-
um.
Á þessum tuttugu árum hafa
tæplega 3.000 manns fallið á Norð-
ur-írlandi og enn fleiri særst. Árið
1972 hóf IRA hryðjuverkaherferð
á Englandi og hafa 93 fallið þar
og yfir 1.400 særst.
Á áttunda áratugnum stóð IRA
fyrir langvarandi hryðjuverkaher-
ferð gegn breska hernum, en á
þessum áratug hefur einungis verið
um að ræða stakar sprengjuárásir.
Meira en 120 hryðjuverkamenn
eða samverkamenn þeirra hafa ver-
ið sakfelldir fyrir rétti á Englandi
og núna era yfir 50 slíkir í fangels-
um þar. Þeir hryðjuverkamenn, sem
sakfelldir hafa verið á Norður-ír-
landi, skipta þúsundum.